Morgunblaðið - 01.10.2019, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
1. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.81 124.41 124.11
Sterlingspund 152.16 152.9 152.53
Kanadadalur 93.34 93.88 93.61
Dönsk króna 18.108 18.214 18.161
Norsk króna 13.626 13.706 13.666
Sænsk króna 12.635 12.709 12.672
Svissn. franki 124.64 125.34 124.99
Japanskt jen 1.1444 1.151 1.1477
SDR 168.72 169.72 169.22
Evra 135.22 135.98 135.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.4691
Hrávöruverð
Gull 1496.15 ($/únsa)
Ál 1712.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.48 ($/fatið) Brent
● Útflutningsverðmæti eldisafurða
jókst um 123% í ágústmánuði frá því
sem var í sama mánuði í fyrra sam-
kvæmt tölum Hag-
stofunnar.
Útflutningsverð-
mæti eldisafurða
nam 1,7 millj-
örðum króna í
ágúst síðastliðnum
og hefur aldrei ver-
ið meira í ágúst-
mánuði.
Á vef Samtaka
fyrirtækja í sjávar-
útvegi segir að
gengi krónunnar hafi verið 10% veikara
í ágúst í ár en í fyrra miðað við gengis-
vísitölu krónunnar og því er um tvöföld-
un verðmæta að ræða í erlendri mynt. Í
tonnum talið jókst útflutningur á eld-
isafurðum um 95% en alls voru 1.764
tonn af eldisafurðum flutt út í ágúst í
samanburði við 906 tonn í sama mán-
uði í fyrra. Útflutningsverðmæti eldis-
afurða nemur um 15,5 milljörðum króna
á fyrstu átta mánuðum ársins og er það
um 79% aukning í krónum talið á milli
ára en á sama tímabili í fyrra nam verð-
mæti eldisafurða 8,6 milljörðum króna.
Að teknu tilliti til gengisáhrifa nemur
aukningin 60%. Stóraukið eldi á laxi
skýrir þessa miklu aukningu á milli ára.
Útflutningsverðmæti
eldisafurða 123% meira
Laxeldi Verðmæti
eldisafurða eykst.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sigurður Viðarsson, forstjóri trygg-
ingafélagsins TM, segir í samtali
við Morgunblaðið að það sé graf-
alvarlegt mál að fasteignafélagið
Upphaf, sem er í eigu fasteigna-
sjóðsins GAMMA: Novus, sem nú
hefur misst á skömmum tíma nær
allt sitt eigið fé, sem sagt er að hafi
um síðustu áramót verið um 5,2
milljarðar króna, hafi farið í
skuldabréfaútboð í maí síðastliðnum
þar sem stöðunni var lýst sem allt
annarri. „Þetta kemur okkur veru-
lega á óvart því þessi sami sjóður
(sem Kvika, eigandi GAMMA, til-
kynnti um í gær að væri í umtals-
vert verri stöðu en gert hefði verið
ráð fyrir) var að selja skuldabréf í
maí á þessu ári þar sem stöðunni
var lýst sem allt annarri,“ segir
Sigurður.
Spurður að því hvort þetta sé
eitthvað sem þurfi að skoða nánar,
segir Sigurður að það verði sjálf-
sagt skoðað og allt í kringum þessi
viðskipti, eins og hann orðar það.
„Þetta er náttúrlega grafalvarlegt
mál að menn sem eru að selja sig út
sem sérfræðingar á þessu sviði
halda ekki betur á spöðunum en
þetta. Ég myndi halda að skulda-
bréfaeigendur myndu allavega vilja
skoða málið vel.“
Upphaflega frá 2013
TM sendi í gær frá sér afkomu-
viðvörun vegna málsins, en fyrir-
tækið átti ekki aðeins hlutdeildar-
skírteini í sjóðnum, heldur tók
félagið einnig þátt í skuldabréfaút-
boðinu í maí. Í afkomuviðvöruninni
kemur fram að ávöxtun af verð-
bréfaeign félagsins verði 440-490
milljónum króna lakari en upphaf-
lega var gert ráð fyrir, en upp-
haflega spáin hljóðaði upp á 215
milljóna króna tekjur af verðbréfa-
eign.
„Fjárfestingin okkar í sjóðnum
er upphaflega frá árinu 2013, og
svo tókum við þátt í útboðinu í vor.
Af þessum tölum sem við birtum í
morgun [í gærmorgun] þá er meiri-
hlutinn vegna þess að við erum að
afskrifa hlutdeildarskírteinin okkar
upp á ríflega 300 milljónir króna.
Þetta var það stórt högg að við gát-
um ekki annað gert en að segja frá
því strax.“
Sigurður segir að upphafleg fjár-
festing TM í sjóðnum hafi verið 200
milljónir króna árið 2013. Gengi
sjóðsins hafi svo hækkað talsvert
mikið árin á eftir, auk þess sem
greitt hafi verið út úr sjóðnum árið
2017. „Þannig að það má segja að
við séum að tapa 130 milljónum
króna í peningum á þessari fjárfest-
ingu, þó að auðvitað hafi virði sjóðs-
ins hækkað og eignin hafi staðið í
300 milljónum króna um mitt árið.
Annað tryggingafélag, Sjóvá,
birti einnig tilkynningu í gær vegna
GAMMA: Novus, en áhrif niður-
færslunnar á afkomu af fjárfest-
ingastarfsemi Sjóvár-Almennra
trygginga hf. er neikvæð um 155
m.kr.
Grafalvarlegt að fara
í skuldabréfaútboð
Morgunblaðið/RAX
Fjármál Kvika stefnir að því að sameina starfsemi GAMMA við dótturfélag sitt, Júpiter rekstrarfélag hf.
Íbúðir
»Markmið Upphafs er að
byggja næstu árin allt að 200-
250 hagkvæmar íbúðir á ári,
sem eru ætlaðar litlum og með-
alstórum fjölskyldum.
» TM birtir uppgjör 3. ársfjórð-
ungs 23. október nk.
» Uppfærðar horfur um sam-
sett hlutfall Sjóvár og afkomu
ársins 2019 og næstu 12 mán-
aða verða kynntar á afkomu-
kynningu félagsins fyrir þriðja
ársfjórðung hinn 31. október nk.
Umtalsvert verri staða fasteignafélagsins GAMMA: Novus Eigið fé horfið
Hagnaður Bílabúðar Benna, sem er
með umboðið á Íslandi fyrir
Porsche, Opel, Chevrolet og Ssan-
gYong, nam 114,6 milljónum króna á
árinu 2018 og jókst um 13% á milli
ára en hagnaðurinn nam 101 milljón
króna árið 2017. Þetta má lesa í árs-
reikningi félagsins.
Rekstrartekjur Bílabúðar Benna
námu 3,6 milljörðum króna og dróg-
ust saman á milli ára, eða um 26%,
en rekstrartekjurnar árið 2017
námu 4,9 milljörðum króna. Rekstr-
argjöld námu 3,5 milljörðum króna í
fyrra en voru 4,8 milljarðar króna
árið 2017. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) nam 154 milljónum
króna í fyrra miðað við 133 milljónir
króna árið 2017.
Enginn arður greiddur
Eignir bílaumboðsins námu 3,1
milljarði króna í árslok 2018 miðað
við 3,8 milljarða króna í árslok 2017.
Skuldir fyrirtækisins námu 1,1 millj-
arði króna í fyrra miðað við 1,8 millj-
arða króna árið 2017. Eigið fé nam 2
milljörðum króna í árslok 2018 mið-
að við 1,9 milljarða króna í lok árs
2017. Stjórn félagsins lagði fram til-
lögu um að ekki yrði arður greiddur
út til hluthafa.
Í lok árs 2018 voru hluthafar Bíla-
búðar Benna ehf. BE fjárfestingar
ehf., sem heldur á 90,91% hlut,
Benedikt Eyjólfsson sem heldur á
4,55% hlut og Margrét Beta Gunn-
arsdóttir sem heldur á 4,55% hlut.
Morgunblaðið/Eggert
Bílaumboð Benedikt Eyjólfsson er
stofnandi Bílabúðar Benna.
Aukinn hagnaður
Bílabúðar Benna
Rekstrartekjur
drógust saman um
26% á milli ára