Morgunblaðið - 01.10.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Bergur Ebbi gaf nýverið út bók sem
hann lýsir sem hvorki fræðibók né
skáldverki heldur innblásinni rök-
semd. Bókin ber titilinn Skjáskot og
fjallar að stórum hluta um framtíð-
ina, tækniþróun síðustu ára og sam-
hengið í samtímanum, sem Bergur
Ebbi telur að sé gjarnan af skornum
skammti.
„Svona bækur eru stundum kall-
aðar ritgerðir. Innblásturinn er í
raun munurinn á þessu og einhverju
akademísku verki. Það er ástríðan
og einhver sannleiksleit sem heldur
manni við efnið frekar en þrælöguð
rannsóknarspurning. Stundum þarf
maður bara að vera innblásinn til
þess að finna dæmi þegar efnið er
abstrakt og úti um allt. Þá þarf mað-
ur að vera skapandi í leit sinni að
dæmum og lausnum,“ segir Bergur
Ebbi.
Er hann þá að leita að sannleik-
anum?
„Ég er í það minnsta alveg örugg-
lega ekki að reyna að byrgja sýn á
sannleikann. Ég er í mjög góðri trú
að reyna að skilja hlutina þannig fyr-
ir mig. Heimurinn er náttúrulega
alltaf eitt stórt hagsmunapot. Sann-
leikur sem nægir mér til að skilja
heiminn er miðaður við einhverjar
forsendur sem ég geng út frá sem
aðrir gera ekki. Ég er ekki kominn
út í neina trúarlega sannfæringu í
leit að sannleika. Ég er hlutlægur
rannsakandi og átta mig á því að
sannleikurinn er afstæður að ein-
hverju leyti. Maður þarf að vera svo-
lítið hófsamur.“
Þó að Bergur Ebbi segist ekki
geta talað fyrir hönd allra vonar
hann að aðrir geti tengt við reynslu
hans.
„Ég trúi því að margt fólk hafi
svipaðan reynsluheim og svipaðan
hugmyndaheim og maður sjálfur og
að manns eigin leit að sannleika geti
mögulega hjálpað einhverjum öðr-
um að einhverju leyti. Það er heil
kynslóð uppi sem er enn að átta sig á
ákveðnum atriðum í heiminum sem
varða tækniþróun síðustu 5-10 ára.
Hún er enn að reyna að átta sig á
samhenginu.“
Eitt helsta viðfangsefni bókarinn-
ar er einmitt þessi tækniþróun. „Þó
að þetta sé um síðustu ár þarf maður
jafnvel að fara lengra aftur til skilja
samhengið. Í bókinni er ég mikið að
skoða það sem gerðist á miðri tutt-
ugustu öld. Þá hefst það sem er kall-
að þriðja iðnbyltingin eða tölvubylt-
ingin og núna erum við komin að því
sem er kallað fjórða iðnbyltingin,
sem er innleiðing gervigreindar og
hluta sem við erum ekki alveg al-
mennilega komin með nöfn yfir því
tæknin er orðin svo samþætt og inn-
byggð í tilveru okkar. Hún er ekki
lengur annar hlutur. Nú er þetta allt
saman að tvinnast saman,“ segir
Bergur Ebbi, sem horfir sérstaklega
til gervigreindar í skrifum sínum.
Titill bókarinnar tengist sam-
tvinnun manns og tölvu. „Hún heitir
Skjáskot vegna þess að landamærin
á milli okkar og tækniheimsins eru
skjárinn eins og staðan er í dag en
það er verið að banka mjög fast á
skjáinn frá báðum hliðum. Við erum
að komast meira inn í tæknina, við
viljum komast inn fyrir skjáinn. Á
sama tíma er það sem er á bak við
skjáinn að banka fastar í okkur og
farið að hafa meiri og meiri áhrif á
okkar líf.“
Bergur Ebbi telur að gervigreind
sé skilgreind of þröngt í nútíma sam-
félagi. „Við hugsum um gervigreind
eins og rosalega góða tölvu sem
vinnur alla í skák en fyrir mér snýst
þetta líka um að mannshugurinn er
að verða skilyrtari. Maðurinn fer að
hugsa meira eins og tölva og öfugt
og þarna á milli eru leiftur.“
Þó að efni bókarinnar kunni að
virðast flókið tekur Bergur sérstak-
lega fram að bókin sé ekki háfræði-
leg og ætti hugmyndaheimurinn
sem þar birtist að vera flestum að-
gengilegur enda lesendum boðið
með í hugmyndaferðalag.
„Ég nota hversdagslegri dæmi til
þess að útskýra þetta. Um leið og
maður verður of tæknilegur, ef mað-
ur fer annars vegar að fjalla um
gervigreind út frá forsendum forrit-
unar eða tölvunarfræði eða hreinnar
heimspeki hins vegar, þá náum við
ekki að skilja þetta. Ég held að við
séum almennt ekki enn að átta okk-
ur á þessu. Við, venjulegir borgarar,
skiljum þetta ekki. Hvers vegna fólk
er að missa vinnuna vegna tækninn-
ar og hvers vegna við erum farin að
stimpla vörurnar okkar sjálf inn í
Krónunni og fólk er hætt að vinna á
kassanum. Auðvitað skiljum við að
tölvur verða fullkomnari og svo
framvegis en okkur vantar mik-
ilvægt púsl í heildarmyndina. Púslið
er að við erum sífellt að aðlagast
skilyrðingu tölvuheimsins meira og í
félagslegum samskiptum okkar er-
um við líka alltaf tilbúin að slétta út
eigin hnökra í þágu tölvunnar og
þess vegna er þetta að gerast svona
hratt.“
Bergur Ebbi segist ekki vera
svartsýnismaður. „Ég held að þetta
sé allt saman hið besta mál og eðlileg
þróun. Ég er alls ekki skeptískur
eða með einhverjar efasemdir. Mað-
ur þarf að byrja á að skilja hlutina
áður en maður veit hvað manni
finnst. Mér finnst eins og fólk sé
ekki einu sinni komið á þann stað að
vita hvort því finnist þetta gott eða
slæmt.“
Í bókinni spáir Bergur Ebbi í
framtíðina en hann telur að of lítið sé
spáð í hana í samtímanum. „Fram-
tíðin var forsenda þess að fólk gerði
eitthvað í gamla daga, það vildi sjá
eitthvert ljós við enda ganganna og
klára eitthvað ákveðið. Besta dæmið
er landafundirnir í Ameríku. Fyrst
komu þeir á austurströndina og svo
var alltaf vitað að það væri annað haf
hinum megin og það var mörg þús-
und kílómetra í burtu og það var 3-
400 ára verkefni að klára það. Fram-
tíðarsýnin var þá sú og ný öld og nýr
heimur í þessu samhengi byggist
alltaf á einhverju takmarki. Við
þurfum að klára þetta. Það er búið
að taka þetta svolítið af okkur.“
Framtíðarsýn nútímamanneskj-
unnar er af öðrum toga, að sögn
Bergs Ebba. „Við sjáum fyrir okkur
hamfarahlýnun og erum enn að láta
stjórnast af því svo við sjáum enn
framtíð eða einhverja dystópíu en ég
held að við séum með öðruvísi hug-
myndir en áður um framtíðina og
það hvernig við getum öðlast hana.“
Uppgjör sem kremur hjörtu
Bergur Ebbi ræðir í bókinni að
hann telji ekki að heimsendir sé í
nánd. Þrátt fyrir það er mikil alvara
í bókinni og því ekki úr vegi að
spyrja hvort bókin sé bjartsýnis- eða
svartsýnisbók.
„Ég vil að hún sé frekar hlutlaus.
Það er því miður þannig að það er
svolítið myrkur í henni. Ein stór
samlíking sem ég geri í bókinni er
þegar ég tala um fyrstu iðnbylting-
arnar, þegar vélarafl leysir vöðvaafl
manna og dýra af hólmi í fyrstu iðn-
byltingunum fyrir 2-300 árum. Þá
verður til uppgjör í samfélagi mann-
fólks sem er í formi styrjalda og
átaka og þá gerist það sama og er að
gerast með gervigreindinni. Vélin
kemur inn í líf mannsins og maður-
inn verður vélrænni í hugsun og
ákvarðanatöku. Ein af ástæðum
þess að styrjaldir 20. aldar voru svo
rosalega öfgafullar er að þær eru
háðar á forsendum vélarinnar. Fólk
er byrjað að haga sér og taka
ákvarðanir og fórna milljónum á
kaldan og vélrænan hátt. Auðvitað
getur maður búið til svona samlík-
ingu, núna þegar gervigreind tekur
við af hugsun manna að einhverju
leyti, að það verði til einhvers konar
uppgjör í samfélagi manna.“
Bergur Ebbi telur ekki að slíkt
uppgjör birtist í hefðbundnum
stríðsátökum. „Ég held að mörg
hjörtu gætu kramist og ég er ekki að
reyna að vera sniðugur þegar ég
orða það þannig. Gervigreindin mun
traðka yfir tilfinningar okkar í rosa-
lega ríkum mæli og gera okkur köld
og hörð eins og tölvur vegna þess að
við erum alltaf að fara að mætast
þarna á miðri leið og það getur leitt
til einhvers tilfinningadoða sem ég
held að við séum nú þegar farin að
sjá. Við erum farin að sjá aðeins
meiri einsleitni, hjarðhegðun sem
kemur til vegna samfélagsmiðla-
notkunar, það vantar smá bit í hug-
sjónir og skoðanir. Það er ekki ólík-
legt að þetta verði ákveðið áfall fyrir
samfélagið okkar.“
Innleiðing gervigreindar er þó að
stórum hluta jákvæð, að sögn Bergs.
„Það eru stórkostlegar framfarir í
læknavísindum. Það er hægt að fara
langa leið með að útrýma hlutum
eins og hungri, sem mannkynið hef-
ur glímt við heillengi, með notkun
gagnasöfnunar og gervigreindar, á
grundvelli hennar.“
Bergur sendi frá sér bókina Stofu-
hita fyrir tveimur árum. Hann segir
þemu bókanna svipuð en sjónar-
hornið annað. „Ég held að þessi bók
sé aðeins meira um þjóðfélagið í
heild, hitt var meira svona persónu-
legt uppgjör, sjálfsmyndin og ein-
staklingurinn.“
Til hliðar við bókina var gefið út
tónlistarmyndband. Einnig mun
Bergur Ebbi frumflytja fyrirlestur
19. nóvember í Borgarleikhúsinu þar
sem efni bókarinnar verður í for-
grunni. Bæði fyrirlesturinn og tón-
listarmyndbandið eru til þess gerð
að dýpka efni bókarinnar. Þau
standa þó styrkum fótum sem sjálf-
stæð listaverk, að sögn Bergs Ebba.
Morgunblaðið/Eggert
Skilningur Maður þarf að byrja á að skilja hlutina áður en maður veit hvað manni finnst, segir Bergur Ebbi.
Innblásin röksemd um tækniþróun
Bergur Ebbi Benediktsson gaf nýverið út bókina Skjáskot, sem er full af kenningum og vanga-
veltum um tæknina og framtíðina Bergur segir manninn og vélina sífellt færast nær hvort öðru
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur