Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 1

Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 1
Landslið karla í knattspyrnu kom saman á æf- ingu á Laugardalsvelli síðdegis í gær fyrir lands- leikina gegn Frakklandi og Andorra í undan- keppni Evrópumótsins. Ársmiðahafar fengu að mæta á æfinguna og hitta leikmenn landsliðsins að henni lokinni. Ársmiðahafar heilsuðu upp á leikmenn eftir æfingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Heppnir stuðningsmenn og aðdáendur hittu landsliðshetjurnar eftir æfingu og fengu eiginhandaráritanir Þ R I Ð J U D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  236. tölublað  107. árgangur  LANDSLIÐIÐ MÆTIR LETT- UM Í KVÖLD SKIPUALGSMÁL OG ÞYRLUR GALDRAGÁTTIN OG ÞJÓÐSAGAN SEM GLEYMDIST ALBÍNA THORDARSON 80 ÁRA 22 DÓMUR bbbbn 29GLÓDÍS PERLA 27 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fulltrúar Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankans meta nú hvort svigrúm sé til vaxtalækkana eftir vaxtalækkun Seðlabankans. Seðlabankinn lækkaði meginvexti um 0,25% í síðustu viku. Lífskjara- samningarnir voru undirritaðir í byrjun apríl og hafa meginvextir síðan lækkað úr 4,5% í 3,25%. Eitt meginmarkmið kjarasamningsins var að stuðla að vaxtalækkun. Forystumenn ASÍ og VR telja hins vegar að bankarnir hafi ekki skilað lækkunum til lántaka. Rætt er um að stofna samfélagsbanka. Yngvi Örn Kristinsson, hagfræð- ingur Samtaka fjármálafyrirtækja, segir háar álögur á bankana þrengja að svigrúmi þeirra til vaxtalækkana. Með lægri álögum væri jafnvel hægt að lækka vexti af íbúðalánum um 1%. Um 5 milljónir á starfsmann Yngvi Örn rifjar upp að eftir efnahagshrunið 2008 hafi verið lagð- ir á þrír nýir skattar á banka. Vísar hann þar til bankaskatts, fjársýslu- skatts og viðbótarskatts á hagnað banka. Alls hafi þeir kostað bankana um 15 milljarða á ári. Hvert starf í bönkum kosti að meðaltali um 10 milljónir á ári. Þumalfingursreglan sé því að sértæku skattarnir kosti um fimm milljónir króna á hvert starf. Vaxtalækkun til skoðunar  Bankarnir meta stöðuna eftir vaxtalækkun SÍ  Háir skattar þrengja svigrúm MGæti leitt til 1% … »6 Morgunblaðið/Hari Kjós og Hvalfjörður Íbúum í Kjósar- hreppi hefur fjölgað og eru 251. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikil hagræðing er talin felast í því að lögfesta að í hverju sveitarfélagi búi minnst 1.000 íbúar. Hugmyndin er að setja lágmarkið fyrst við 250 íbúa og hækka það svo í áföngum. Þetta mun leiða til verulegrar fækk- unar sveitarfélaga. Færri en 1.000 íbúar eru nú í meira en helmingi sveitarfélaga en þau eru nú 72 að tölu. Talið er að hagræðingin af sam- einingu geti mögulega numið allt að 3,6 til 5 milljörðum króna á ári. Mæla á fyrir tillögu til þingsályktun- ar um „stefnumótandi áætlun ríkis- ins í málefnum sveitarfélaga“ á Al- þingi síðar í þessum mánuði. Karl Magnús Kristjánsson, odd- viti og sveitarstjóri Kjósarhrepps, sem er fámennasta og víðfeðmasta sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, sagði að taka yrði tillit til fjárhags- stöðu ekki síður en íbúafjölda. „Kjósarhreppur er dæmi um sveitarfélag sem hefur staðið mjög vel á síðustu árum. Fyrirtæki sem hreppurinn stofnaði tókst að reisa mjög umfangsmikla hitaveitu sem er tengd um 600 notendum í frístunda- húsum og íbúðarhúsum. Það var fjárfesting upp á 1,1 milljarð. Nú er- um við að ljúka við að tengja sveitina við ljósleiðara sem er fjárfesting hjá okkur fyrir yfir 200 milljónir,“ sagði Karl. Hann sagði að þeim hentaði vel að vera sjálfstætt sveitarfélag. Þau eru í samstarfi við Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ um þjónustu sem er greidd fullu verði. Karl sagði að meirihluti sveitarstjórnar teldi að sameining við annað sveitarfélag væri ekki tímabær hvað þau varðaði. »14 Hagræðing við sameiningu  Kjósarhreppur er fámennur og stendur í framkvæmdum  Íslendingar eru sagðir hafa sýnt grófa fram- komu og rudda- lega í tengslum við makrílveiðar, að því er fram kemur í viðtali Fiskeribladet/ Fiskaren í Nor- egi við Audun Maråk, formann norskra útgerðarmanna. Hann gagnrýnir Íslendinga harðlega, sem hafi valið að standa utan samn- inga strandríkja um stjórnun veiða á makríl, norsk-íslenskri síld og kolmunna. »10 Segir Íslendinga sýna grófa hegðun  Breytt landslag í kjölfar gjald- þrots WOW air hefur leitt til þess að Isavia vinnur nú að endurskoðun á hvatakerfi sínu og reynir að opna á tengingar við Asíu- og Ameríku- markað. „Við erum að uppfæra kerfið þannig að það hafi meiri áhrif ef flugfélag hefur nýja flug- leið frá stöðum utan Evrópu,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í ítarlega viðtali við Við- skiptaMoggann. Hann telur að það sé einungis tímaspursmál hvenær beint flug milli Íslands og Asíu verði að veru- leika. Forsvarsmenn Isavia hafa á síðustu vikum átt fundi með flug- félögum og kynnt þá möguleika sem þeim standa til boða varðandi opnun nýrra flugleiða til og frá Keflavíkurflugvelli. Sveinbjörn segir félögin vera áhugasöm en það sé þó risastór og kostnaðarsöm ákvörðun að hefja flug á nýjan áfangastað. »12 Morgunblaðið/Eggert Farþegaflug Það er ekki hvort heldur hve- nær beint flug milli Íslands og Asíu hefst. Tenging við Asíu tímaspursmál A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is  Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda óttast að niðurskurður endur- greiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi muni ekki einungis valda aðilum í kvikmyndagerð umtals- verðu tjóni heldur muni orðspor Ís- lands sem kjörlendi til kvikmynda- framleiðslu bíða hnekki. A.m.k. milljarði munar á framlagi frum- varpsins til endurgreiðslna og þeim vilyrðum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar sem veitt voru í síðasta mánuði. »2 Niðurskurður valdi tjóni og orðspors- áhættu Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.