Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 24

Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið.  Sundkonan Snæfríður Sól Jórunn- ardóttir sigraði í báðum sínum grein- um á fyrsta móti keppnistímabilsins í Danmörku, Vestur-Danmerkurmeist- aramótinu í Hjörring, en þar keppir hún fyrir AGF frá Árósum. Hún sigraði í 100 metra skriðsundi á 56,06 sek- úndum og í 200 metra skriðsundi á 1:59,79 mínútu. Í seinni greininni var Snæfríður innan við eina sekúndu frá Íslandsmeti sínu.  Guðlaugur Victor Pálsson var í gær valinn í úrvalslið 9. umferðar í þýsku B-deildinni í knattspyrnu af Kicker. Hann þótti leika mjög vel með Darm- stadt á föstudagskvöldið þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Karlsruher.  Joel Matip, kamerúnski miðvörð- urinn hjá Liverpool, var í gær útnefnd- ur besti leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann fékk 41 prósent atkvæða í kosn- ingunni sem er á vegum deildarinnar en aðrir sem komu til greina voru Riyad Mahrez og Kevin De Bruyne hjá Manchester City, Pierre-Emerick Aubameyang hjá Arsenal, Ricardo Pereira hjá Leicester og Callum Wilson hjá Bournemo- uth. Matip, sem er 28 ára gamall, hefur leikið með Liverpool und- anfarin þrjú ár og hef- ur fest sig vel í sessi í hjarta varnar liðs- ins, við hliðina á Virgil van Dijk. Eitt ogannað „Áherslurnar í dómgæslunni hafa breyst mjög mikið varðandi höfuð- meiðsli. Ef grunur leikur á að um höfuðmeiðsli sé að ræða ber að stöðva leik umsvifalaust. Sú vinnuregla var ekki áður. Læknanefndir hjá UEFA og FIFA hafa beðið dómara um að kalla til sérfræðinga þegar metið er hvort leikmaður eigi að halda leik áfram. Þá er ábyrgðin hjá læknateymi viðkomandi liðs. Fyrir vikið eru leyfis- kerfi UEFA og KSÍ með þeim hætti að læknismenntaður einstaklingur þarf að vera til staðar í leik til að upp- fylla kröfur leyfiskerfanna. Í stór- keppnum landsliða og í öllum atvinnu- mannadeildum þurfa læknismenntaðir að vera skráðir á leikskýrslu. Þurfa þeir að vera í sam- starfi við eftirlitsmann leiksins ef á þarf að halda. Ef eitthvað kemur upp á þarf að tengjast strax lækninum, tengjast sjúkrabíl og nærliggjandi sjúkrahúsi. Allur sá ferill er kominn til út af því að horft er til velferðar leik- manna,“ sagði Kristinn Jakobsson, fyrrverandi alþjóðadómari í knatt- spyrnu, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. „Miklar áherslubreytingar hafa einnig orðið í dómgæslunni varðandi notkun handa, til dæmis í skallaein- vígjum. Ein útgáfan er sú þegar leik- maður hoppar upp og notar einungis hendurnar til að fara löglega að knett- inum. Önnur útgáfan er ef hendurnar eru notaðar til að búa til pláss og við- komandi gerir sig ógnandi gagnvart andstæðingi, sem er oft og tíðum ólög- legt. Þriðja útgáfan er svo þegar leik- maður notar hendurnar sem hálfgert vopn og brýtur á andstæðingi sínum. Þá er til dæmis verið að nota olnboga og viðkomandi hefur stjórn á því hvernig hann fer í andstæðinginn. Þetta eru þrjú mismunandi stig og það síðasta er mjög hættulegt. Hið fyrsta er sjaldan aukaspyrna, annað er auka- spyrna í flestum tilvikum og hið þriðja kallar á meiri refsingu. Öll högg fyrir ofan brjóstkassa eru hættuleg og sá sem verður fyrir því er oftast varnar- laus. Áherslurnar fyrir dómara og aðra þátttakendur leiksins eru skýrar hvað þetta varðar. Mér finnst vera minna um það en áður að menn brjóti af sér með þessum hætti. Þess vegna finnst mér þessi mál vera í góðum far- vegi þótt alltaf megi gott bæta,“ sagði Kristinn. Afleiðingarnar skipta máli Magnús Kári Jónsson hefur víð- tæka þekkingu í handknattleik. Hefur hann dæmt í mörg ár og komið að þjálfun yngri landsliða svo eitthvað sé nefnt. „Upp úr aldamótum var farið að taka betur á grófum brotum í alþjóð- legum handbolta. Ef fólk horfir á stór- leiki frá aldamótum þá sjást fleiri glórulaus brot heldur en núorðið. Í dag er harðari refsing fyrir slík brot. Dómarar hér heima fylgja áherslum að utan en við höfum nýtt sambönd okkar í Danmörku og notað efni það- an. Við erum með skema þar sem fjallað er sérstaklega um brot er varða háls, hnakka og höfuð og hvernig Leitast er við að vernda leikmenn  Reglum hefur verið breytt vegna höfuðáverka í boltagreinum Hin bandaríska Simone Biles, ein sigursælasta fim- leikakona sögunnar, fór á kostum um helgina í undan- keppni HM í Stuttgart í Þýskalandi. Biles fékk flest stig allra keppenda í undankeppninni og fékk hæstu einkunn á þremur áhöldum af fjórum. Þá gerði hún sér lítið fyrir og fékk tvö stökk nefnd eftir sér, í gólfæfingum og á jafnvægisslá. Til þess að fá stökk nefnt eftir sér í fim- leikakeppni þarf viðkomandi að framkvæma æfingu sem aldrei hefur verið framkvæmd áður í keppni. Biles fram- kvæmdi tvöfalt heljarstökk með tvöfaldri skrúfu í af- stökki sínu af jafnvægisslá og verður æfingin nefnd „Bi- les“. Í gólfæfingum tók hún tvöfalt heljarstökk með þrefaldri skrúfu og verður það stökk nefnt „Biles II“. Aðalkeppnin í fjölþraut kvenna fer fram í Stuttgart á fimmtudaginn en úrslit í einstaklingskeppni fara fram um helgina. Biles hefur fjórtán sinn- um fengið gullverðlaun á HM. Hún tilkynnti í vetur að Ólympíuleikarnir í Tókýó yrðu hennar síðasta mót en hún er 22 ára gömul. bjarnih@mbl.is Tvö stökk nefnd eftir Biles Simone Biles Eins og Erik Hamrén landsliðs- þjálfari benti á að gæti orðið raunin verður Rúnar Alex Rúnarsson ekki til taks með íslenska landsliðinu í fótbolta í leikjunum gegn Frakk- landi og Andorra. Á fréttamanna- fundi á föstudag sagði Hamrén að Rúnar Alex og kærasta hans ættu von á barni og því væri Ingvar Jónsson tilbúinn að koma inn í hóp- inn. Ingvar hefur nú verið kallaður inn í hópinn og verður einn þriggja markvarða Íslands. Ingvar á að baki átta A-landsleiki. Ingvar inn í stað Rúnars AFP Átta Ingvar Jónsson, markvörður Viborg, á að baki átta A-landsleiki. Kristinn Jakobsson Magnús Kári Jónsson HÖFUÐÁVERKAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Árið 1993 þurfti að huga að Colin McGlashan, leikmanni knattspyrnu- liðsins Partick Thistle, í miðjum leik vegna höfuðhöggs. Þegar knatt- spyrnustjóra liðsins, John Lambie, var tjáð af sjúkraþjálfaranum að leikmað- urinn vissi ekki hvað hann héti þá lét Lambie þessi fleygu orð falla: „Það er flott. Segðu honum að hann sé Pelé og sendu hann aftur inn á.“ Um leið og hægt er að skemmta sér yfir orðheppni sem þessari er stað- reyndin sú að nú hefur verið búið þannig um hnútana í hæsta gæðaflokki að knattspyrnustjórinn tekur ekki ákvörðun um hvort leikmaður haldi leik áfram ef grunur leikur á að um höfuðáverka sé að ræða. Sú ákvörðun er ekki heldur tekin af leikmanninum sjálfum heldur lækni viðkomandi liðs. Eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu síðustu árin hafa margir íslenskir íþróttamenn af báð- um kynjum glímt við alvarlega höfuð- áverka. Eru um það mörg dæmi bæði í knattspyrnunni og handknattleik- leiknum. Nú síðast greindi blaðið frá því að Ómar Ingi Magnússon, lands- liðsmaður í handknattleik, hefði verið frá æfingum og keppni í marga mán- uði. Stöðva skal leikinn Blaðið hafði samband við tvo máls- metandi menn sem þekkja vel regl- urnar í þessum tveimur íþróttagrein- um og spurði þá hvort breytingar hefðu verið gerðar á reglunum í þeirri von að draga úr höfuðáverkum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.