Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 32
Kvöldstund með listamanni er yfir-
skrift nýrrar fyrirlestraraðar
Borgarleikhússins sem hefur göngu
sína í kvöld. Rithöfundurinn Andri
Snær Magnason ríður á vaðið á
Stóra sviðinu með hugvekju sína
Um tímann og vatnið, en nýútkomin
er samnefnd bók hans. Til að hjálpa
okkur að skilja þær breytingar sem
jörðin stendur frammi fyrir blandar
Andri Snær saman persónulegum
sögum, vísindum, minningum og
hugmyndum um framtíðina.
Um tímann og vatnið
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Niðurstöður mastersverkefnis sem
Rebekka Sverrisdóttir gerði við
KTH-háskólann í Stokkhólmi benda
til þess að notkun höfuðbanda geti
dregið úr skaða á heila fái íþrótta-
fólk höfuðhögg. Rætt er við Reb-
ekku í blaðinu. Einnig er rætt við
Kristin Jakobsson og Magnús Kára
Jónsson um hertari reglur vegna
hættu á höfuðáverkum. » 24-25
Höfuðbönd virðast
draga úr skaða
ÍÞRÓTTIR MENNING
ÍR er enn með fullt hús stiga á
toppi Olísdeildar karla í handbolta
eftir að liðið lagði Stjörnuna að
velli í Garðabæ í gærkvöld, 32:27.
Staðan í hálfleik var 17:16. ÍR hefur
þar með unnið fimm fyrstu leiki
sína en Stjarnan engan og er að-
eins með eitt stig. Kristján Orri Jó-
hannsson var markahæstur ÍR-
inga í gær með 9
mörk en þeir hafa nú
þegar safnað 10
stigum í
sarpinn
saman-
borið við
19 stig á
allri síð-
ustu leiktíð, þegar lið-
ið hafnaði í 7. sæti
deildarinnar. »26
ÍR-ingar gefa ekkert
eftir á toppnum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margrét Jóna Ísleifsdóttir er í hópi
frumbyggja á Hvolsvelli og hún
man tímana tvenna. „Ég man ekki
eftir svona blíðu síðan ég var
kaupakona í Fljótshlíðinni sumarið
1941,“ segir konan, sem flutti á
Hvolsvöll vorið 1942 og hefur búið
þar síðan, þar af í sama húsinu í yf-
ir 73 ár, en hún á 95 ára afmæli í
dag.
Margrét flutti á Hvolsvöll frá
Miðkoti í Fljótshlíð og fékk vinnu í
gamla kaupfélaginu 1942, en for-
eldrar hennar fylgdu í kjölfarið um
haustið. „Kaupfélagið var eini
vinnustaðurinn á svæðinu og þar
fyrir utan voru aðeins þrjú íbúðar-
hús,“ rifjar hún upp.
Þorpið heillaði ekki í fyrstu og
Margrét hugleiddi að flytja annað.
„Mér fannst þetta alveg hræðilegt,“
segir hún. „Móinn var grár og eng-
ir fuglar nema hrafninn, en ég náði
mér í góðan mann í kaupfélaginu og
hann sá ekkert nema gott hér enda
er Hvolsvöllur nú blómleg byggð.“
Eiginmaður hennar var Pálmi Eyj-
ólfsson, sem fæddist í Reykjavík en
ólst upp undir Eyjafjöllum og and-
aðist 2005. Þau eiga þrjú börn,
Guðríði Björk, Ingibjörgu og Ísólf
Gylfa. Barnabörnin eru tíu, barna-
barnabörnin 28 og eitt barnabarna-
barnabarn er komið í heiminn.
Eftir því sem störfum fjölgaði
voru æ fleiri íbúðarhús byggð og
eitt leiddi af öðru. „Nýtt ungt fólk
bættist í hópinn og íbúarnir voru
eins og ein góð fjölskylda lengi
fram eftir. Ef eitthvað skemmtilegt
átti sér stað voru allir glaðir og ef
eitthvað dapurlegt gerðist tóku allir
þátt í því.“
Félagsheimilið breytti miklu
Félagsheimilið Hvoll var tekið í
notkun 1960 og segir Margrét að
þá hafi orðið sérstaklega mikil
breyting í þorpinu. Allir hafi lagt
sitt af mörkum og konur fengið
vinnu í húsinu. „Það var nýbreytni,
því fram að því hafði vantað störf
fyrir konur.“ Og þær hlupu í öll
verk. „Ýmislegt angraði stráka-
greyin í hljómsveitunum og við
hjálpuðum þeim ef illa fór. Eitt sinn
festi ég tölu á jakka Stebba í Lúdó.
Hann var góður strákur og um að
gera að hjálpa honum, en annars
þótti mér vænst um Steina í
Dúmbó.“
Margrét starfði sem trygginga-
fulltrúi hjá sýslumanninum frá 1965
til 1995 og var með barnastúku í 11
ár. Frítíminn hefur að mestu farið í
lestur auk þess sem hún er annáluð
hannyrðakona og prjónar og heklar
mikið. „Ég horfi á heiminn, horfi
mikið á sjónvarp en byrja á því að
líta á Moggann á morgnana, hef
verið áskrifandi í 75 ár.“ Minnið er
gott og hún kann mörg ljóð utan-
bókar, þar á meðal flesta sálma.
„Það sem maður lærir ungur tollir
svolítið í kollinum.“ Margrét segist
ekkert skipta sér af pólitíkinni. „Ég
læt aðra um það, pexa ekkert um
pólitík, nenni því hreinlega ekki.
En jú. Ég var pólitísk, en þessa
dagana hugsa ég mest um sólina og
blíðuna fyrir utan fjölskylduna.“
Tímamót Margrét Jóna Ísleifsdóttir með fjölskyldunni fremst fyrir miðju á 90 ára afmælinu fyrir fimm árum.
Hefðin á Hvolsvelli
Margrét Jóna Ísleifsdóttir í hópi frumbyggja á Hvolsvelli
Hefur búið á svæðinu í 77 ár og í sama húsinu í yfir 73 ár
ReSound LiNX
Quattro
eru framúrskarandi
heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur
Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu
smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum
tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á
tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan
hátt, eða með einnota rafhlöður.
Góð heyrn
glæðir samskipti