Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 28

Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Hljómsveitin Los Bomboneros kemur fram á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30. Sveitina skipa Alexandra Kjeld, Daníel Helgason, Kristofer Rod- riguez Svönuson og Sigrún Krist- björg Jónsdóttir. „Kvartettinn hefur starfað í rúm þrjú ár og leikur reglulega bæði á tónleikum og fyrir dansi. Hljóð- heimur þeirra grefur aðallega í tón- listararf Kúbu, Kólumbíu og Mexíkó. Auk þess slæðast með frumsamdar lagasmíðar Daníels í kúbönskum stíl tres-gítarsins. Sérstakur gestur tón- leikanna verður slagverksleikarinn Matthías Hemstock,“ segir í tilkynn- ingu. Aðgangur er ókeypis. Los Bomboneros á Kex hosteli í kvöld Alexandra Kjeld Sellóleikarinn Ragnar Jónsson og harmonikku- leikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirs- son flytja Jón- asarlög Atla Heimis Sveins- sonar, Suite Itali- enne eftir Stra- vinskíj, sellósvítu í d-moll eftir Bach, In Groce eftir Sofiu Gubai- dulinu og Radioflakes eftir Atla Ingólfsson á Tíbrár-tónleikum í Salnum í kvöld kl. 19.30. „Hljóðfærasamsetningin selló og harmonikka heyrist sjaldan á tón- leikum en þeir Ragnar og Jónas hafa ráðgert sameiginlega tónleika frá því þeir komu fram sem ungir einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2016,“ segir í tilkynningu vegna tónleikanna. Selló og harm- onikka í Tíbrá Sofia Gubaidulina „Alt það, sem við ekkert hefir að keppa, dofnar og deyr“ nefnist erindi sem Rakel Edda Guð- mundsdóttir flyt- ur í Þjóðminja- safni Íslands í dag kl. 12.05. Í erindinu, sem er hluti af fyr- irlestraröð Sagnfræðingafélags Ís- lands, beinir Rakel Edda sjónum að orðræðu, stíl og helstu rök- semdum sem beitt var í skoðana- skiptum um aðskilnað ríkis og kirkju, skipan kirkjumála almennt og guðfræði í íslenskum blöðum á árunum í kringum aldamótin 1900. Rakel Edda er með BA-próf í sagnfræði og mun senn ljúka MA- prófi í sömu grein. Erindið bygg- ist á efni meistararitgerðar. Erindi um aðskiln- að ríkis og kirkju Rakel Edda Guðmundsdóttir Enski trommuleikarinn Ginger Baker er látinn, áttræður að aldri. Baker var einn af stofnendum rokksveitarinnar Cream á sínum tíma og var talinn einn áhrifamesti og hugmyndaríkasti trommari rokksögunnar. Hann stofnaði Cream árið 1966 með Eric Clapton og Jack Bruce og sendi sú fræga sveit frá sér þrjár breiðskífur og lagði svo upp laupana tveimur ár- um eftir stofnun. Þá stofnaði hann hljómsveitina Blind Faith með Clapton, Steve Winwood og Ric Grech. Baker var lagður inn á sjúkrahús í síðasta mánuði og greindi fjöl- skylda hans frá því að veikindi hans væru mjög alvarleg. Sunnudaginn síðastliðinn, þ.e. í fyrradag, var svo greint frá því að hann væri látinn. Hann hafði þá glímt við veikindi til margra ára. Baker er í þriðja sæti á lista tíma- ritsins Rolling Stone yfir hundrað bestu trommara sögunnar og um hann var gerð heimildarmyndin Beware of Mr. Baker. Baker var ekki aðeins þekktur að hæfileikum sínum í trommuleik heldur einnig fyrir að vera afar skapstór, eins og nefnt er í frétt dagblaðsins Independent. Trommuleikarinn Ginger Baker látinn AFP Allur Ginger Baker við trommusett 2015. Fæst í öllum helstu Apótekum. Færð þú í magann af mjólkurvörum? Ekki láta laktósaóþolið hafa áfhrif á þitt daglega líf. Laktase töflunar frá tetesept aðstoða viðmeltingu ámjólkursykri. Forðatöflurmeð virkni sem varir í 4 klukkustundir. Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Prófaðu töflunar í dag og fáðu meltinguna í rétt horf Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Bókin fjallar mestmegnis um sam- skipti mannsins við orðin í kringum sig og umhverfið,“ segir Sigurður Ingólfsson rithöfundur. Hann gaf nýverið út áttundu ljóðabók sína, Í orðamó. Bókin hefst á forvitnilegum ljóð- um fullum af lífsgleði og einhvers konar léttleika. Undir lok bókar eru ljóðin orðin þyngri og er gjarnan minnst á dauðann. Spurður hvort bókin lýsi æviskeiði segir Sigurður: „Bókin lýsir á vissan hátt ákveðnu þroskaferli. Mig langaði ekki að skrifa einhverja alkabók því ég er hættur að drekka og svona. Þegar maður kemur út úr því svart- nætti gerist eitthvað og ýmislegt opnast. Það er eitt ljóð þarna sem heitir „Ferð“ og fjallar um það ferðalag sem maður fer í gegnum þegar það er stundum svart í álinn og stundum bjart. Þetta er bara eins og hver önnur sjóferð, það er upp og niður, öldugangur og von- andi nær maður landi,“ segir Sig- urður, sem hefur haft bókina í smíð- um í langan tíma. Orðin „eru stundum verðmæti“ Sigurður er doktor í frönskum bókmenntum en leggur nú stund á guðfræði og eru þess merki í bók- inni en þar er að finna ógrynni af til- vísunum í Biblíuna. Hann segir þó engan beinan boðskap fyrirfinnast í ljóðunum. „Þó kannski einna helst að fólk hugsi sig um. „Það er til fleira á himni og jörðu, Hóras, en heim- spekina þína dreymir um,“ eins og Hamlet segir við Hóras. Ég vil að fólk geri sér grein fyrir litlu hlut- unum, því að orðin merkja eitthvað, þau eru stundum verðmæti sem maður tekur ekki eftir. Stundum þarf maður að passa sig aðeins hvað maður segir og nota orðin með ein- hverri skynsemi.“ Titill bókarinnar tengist því bein- línis. „Þetta er bara eins og að fara í berjamó. Maður les orðin af lyngi, lyngi mannshugans eða hvernig sem maður vill hafa það,“ segir Sigurður. Innblástur í glufóttri gangstétt Myndskreytti hækubálkurinn „Tjarnarbraut“ klýfur bókina um miðbik hennar. Bálkurinn er mynd- skreyttur af Sigurði sjálfum og virð- ist vera af einhvers konar fjalllendi. Sigurður segir forsögu myndaþátt- arins furðulega. „Tjarnarbrautin er gata sem ligg- ur í gegnum Egilsstaði. Þar bjó ég í sautján eða átján ár. Ég held að fólk sem bjó í nágrenninu hafi haldið að ég hafi verið orðinn enn klikkaðri en ella þegar ég var farinn að ganga um og mynda sprungurnar í gang- stéttunum vegna þess að þær voru svona svolítið eins og fjallgarður,“ segir Sigurður og heldur áfram: „Þegar maður labbar Tjarnar- brautina gengur maður nokkurn veginn í gegnum bæinn, framhjá menntaskólanum, grunnskólanum, sundlauginni og að Póstinum, eða frá Póstinum að Vonarlandi. Mynd- skreytingarnar eru í raun og veru við ljóðin sem eru þá líka þetta ferðalag, hvort sem maður er á lítilli götu á Egilsstöðum eða bara í lífinu. Þess vegna tók ég það til og hafði þetta hækur í stuttu máli um veg- ferðina eftir Tjarnarbrautinni sem maður getur þá útlagt hvernig sem er.“ Bók Sigurðar er tileinkuð sonum hans og ýmis ljóðanna eru tileinkuð fólki úr lífi Sigurðar, til dæmis er ljóðið „Orð“ tileinkað Hákoni Aðal- steinssyni, skáldi og skógarbónda, sem lést árið 2009. „Ég náði að kynnast honum mjög vel á stuttum tíma, gerði með hon- um útvarpsþátt og við náðum vel saman. Við vorum báðir hrifnir af Davíð Stefánssyni, Jóhanni Jóns- syni og Jóhanni Sigurjónssyni, gömlu nýrómantíkerunum, en Há- kon var náttúrlega á allt öðrum stað en ég. Hann var gríðarlega mikið náttúruskáld. Mér finnst einmitt eins og hann hafi gert mikið af því að tína orð af lyngi. Hann var lengi skógarbóndi. Ég spurði hann ein- hvern tímann að því hvort hann væri trúaður. Hann jánkaði því en sagðist þó ekki fara mikið í kirkju. Helgustu staðirnir fyrir honum voru úti í náttúrunni.“ Annað ljóð, „Fónía“, yrkir Sig- urður til Jóns Óskars, eins af atóm- skáldunum svonefndu. „Ég yrki ljóð til hans því það er eiginlega honum að þakka að ég byrjaði að skrifa. Ég og vinur minn sátum saman á morgnana og lásum á Signubökk- um, ljóðaþýðingar Jóns Óskars, til dæmis á Rimbaud og Baudelaire og maður hrundi alveg fyrir þessu.“ Skrautlegt líf að baki Sigurður sækir innblástur úr ýmsum áttum. „Mestan part í það líf sem ég hef lifað sem hefur á tíðum verið mjög skrautlegt. Svo eru strákarnir mínir mér innblástur og náttúrlega þessar bókmenntir sem maður er búinn að hjakka í öll þessi ár.“ Týnd kvenskáld eru Sigurði einn- ig hugleikin. „Þegar maður fór að þroskast að- eins þá fór maður að taka eftir því að það væru ekki bara miðaldra karlmenn sem væru að yrkja ljóð. Ég eignaðist til dæmis ljóðakver eftir langalangömmu mína sem er alveg ofboðslega fallegt. Ljóðin eru reyndar mjög hefðbundin og fjalla um heiminn, náttúruna og manninn. Þetta er öðruvísi en margir karl- arnir yrkja. Mér þótti alveg ein- staklega vænt um að fá að kynnast því. Þessum gömlu týndu kven- skáldum.“ Morgunblaðið/Eggert Les orðin af lyngi mannshugans  Rithöfundur yrkir um samskipti mannsins við orðin í kringum sig í ljóðabókinni Í orðamó  Vill að lesendur hugsi sig um  „Það er til fleira á himni og jörðu, Hóras, en heimspekina þína dreymir um“ Sú áttunda Í orðamó er áttunda ljóðabók Sigurðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.