Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
HANDBOLTI
Olísdeild karla
ÍR – Stjarnan ........................................ 32:27
Staðan:
ÍR 5 5 0 0 160:133 10
ÍBV 4 4 0 0 107:94 8
Haukar 4 4 0 0 101:89 8
Afturelding 5 4 0 1 133:122 8
Selfoss 4 2 1 1 116:117 5
KA 5 2 0 3 137:136 4
FH 4 2 0 2 103:102 4
Valur 5 1 1 3 120:120 3
Fjölnir 4 1 1 2 102:114 3
Stjarnan 5 0 1 4 117:139 1
Fram 4 0 0 4 82:96 0
HK 5 0 0 5 123:139 0
Grill 66 deild karla
FH U – Valur U.................................... 34:26
Staðan:
Þróttur 3 3 0 0 104:85 6
Þór Ak. 3 3 0 0 92:78 6
KA U 3 2 0 1 99:76 4
Haukar U 3 2 0 1 81:68 4
FH U 3 2 0 1 85:75 4
Grótta 3 1 0 2 73:80 2
Valur U 3 1 0 2 84:90 2
Víkingur 3 1 0 2 67:71 2
Fjölnir U 3 0 0 3 68:93 0
Stjarnan U 3 0 0 3 60:97 0
Svíþjóð
Önnered – Kristianstad ...................... 28:26
Teitur Örn Einarsson skoraði 8 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 3.
Sävehof – Helsingborg ........................26:23
Ágúst Elí Björgvinsson varði 6 skot af 22
sem hann fékk á sig í marki Sävehof.
IFK Ystad – Alingsås .......................... 29:32
Aron Dagur Pálsson átti eitt skot en
skoraði ekki fyrir Alingsås.
Staðan: Alingsås 12, Kristianstad 10,
Lugi 10, Skövde 9, Sävehof 9, Malmö 8,
IFK Ystad 8, Ystad IF 8, Önnered 6, Red-
bergslid 5, Guif 5, Hallby 2, Helsingborg 2,
Varberg 0.
Vináttulandsleikir kvenna
Bandaríkin – Suður-Kórea..................... 1:1
Carli Lloyd 37. – Ji So-yun 34.
Japan – Kanada ....................................... 4:0
Mana Iwabuchi 6., Yuka Momiki 65., Yui
Hasegawa 72., Rikako Kobayashi 90.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Dalhús: Fjölnir – Fram............................. 20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir – ÍBV U ........................... 18
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM U19 kvenna
Hlíðarendi: Ísland – Spánn....................... 17
Fylkisvöllur: Grikkland – Kasakstan ...... 17
Í KVÖLD!
Í AUSTURBERGI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Sigurganga ÍR í upphafi móts í
Olísdeild karla í handbolta hélt
áfram í gærkvöldi. ÍR hafði þá
betur á heimavelli gegn Stjörn-
unni, 32:27. Jafnræði var með lið-
unum stærstan hluta leiks en ÍR
nægði góður fimm mínútna kafli
um miðjan seinni hálfleikinn til að
gera út um leikinn. Á meðan lífið
leikur við ÍR-inga virðist ansi
margt vera að í röðum Stjörn-
unnar.
Stjarnan er með sterka leik-
menn eins og Tandra Má Kon-
ráðsson, Leó Snæ Pétursson og
Ólaf Bjarka Ragnarsson, en liðs-
heild Stjörnunnar virðist vera lítil
sem engin. Tandri Már skoraði tíu
mörk og Ólafur Bjarki átti ágæt
augnablik. Það vantar hins vegar
fleiri til að taka af skarið og meiri
liðsframmistöðu. Langt er síðan
Ari Magnús Þorgeirsson spilaði
vel og ógnin af línu og horni er
nánast engin. Uppleggið virðist
oft vera að senda á Tandra og
vona að hann töfri eitthvað fram,
sem hann vissulega gerir stund-
um, en það dugar skammt gegn
sterkum liðum eins og ÍR.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari
Stjörnunnar, gagnrýndi Ara
Magnús í viðtölum fyrir og eftir
leik og sagði frammistöðu hans
síðasta rúma árið vera vonbrigði.
Það er ekki oft sem maður heyrir
þjálfara nafngreina og gagnrýna
eigin leikmann svo opinskátt og
það virðist ekki allt vera með
felldu í herbúðum Stjörnumanna.
ÍR-ingar geta hins vegar dans-
að gleðidansa. Björgvin Hólm-
geirsson og Sveinn Andri Sveins-
son höfðu frekar hægt um sig en
ÍR er komið með fína breidd og
hefur Hafþór Vignisson smell-
passað í liðið. ÍR getur treyst á
fleiri leikmenn en undanfarin ár.
ÍR mætir Fram í næstu umferð
og ef allt er eðlilegt heldur sig-
urgangan áfram.
Vandræðin
aukast hjá
Stjörnumönnum
ÍR-ingar áfram með fullt hús stiga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rauðvín Sturla Ásgeirsson skoraði átta og eldist eins og gott rauðvín.
Austurberg, Olísdeild karla, mánu-
dag 7. október 2019.
Gangur leiksins: 3:3, 7:7, 10:10,
11:13, 14:14, 17:16, 18:19, 21:21,
25:22, 29:23, 31:25, 32:27.
Mörk ÍR: Kristján Orri Jóhannsson
9, Sturla Ásgeirsson 8/4, Hafþór
Már Vignisson 6, Bergvin Þór
Gíslason 3, Sveinn Andri Sveinsson
2, Þrándur Gíslason 2, Björgvin
Þór Hólmgeirsson 2.
Varin skot: Sigurður Ingiberg
Ólafsson 7/1, Óðinn Sigurðsson 7.
Utan vallar: 8 mínútur
ÍR – STJARNAN 32:27
Mörk Stjörnunnar: Tandri Már
Konráðsson 10, Leó Snær Pét-
ursson 5/4, Ólafur Bjarki Ragn-
arsson 4, Andri Már Rúnarsson 3,
Úlfar Páll Monsi Þórðarson 2, Ari
Magnús Þorgeirsson 1, Ragnar
Snær Njálsson 1, Andri Þór Helga-
son 1.
Varin skot: Brynjar Darri Bald-
ursson 10, Stephen Nielsen 1.
Utan vallar: 4 mínútur
Áhorfendur: 439.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón
Karl Björnsson
DÓMARAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var
besti dómarinn í úrvalsdeild karla í
knattspyrnu á árinu 2019 en í úr-
valsdeild kvenna voru Gunnar Odd-
ur Hafliðason og Gunnar Freyr Ró-
bertsson bestir.
Þetta er niðurstaðan úr ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins fyrir
keppnistímabilið 2019 en fjallað var
um alla leiki beggja deilda í blaðinu
og þeim lýst á mbl.is og dómurum
voru gefnar einkunnir fyrir
frammistöðu sína, frá einum og upp
í tíu.
Ellefu dómarar, sem eru í efsta
styrkleikaflokki hjá KSÍ, dæmdu
128 af 132 leikjum í úrvalsdeild
karla en hinum fjórum var deilt á
milli fjögurra dómara og þar af
voru þrír erlendir dómarar. Með-
aleinkunnir þessara ellefu dómara
voru sem hér segir, leikjafjöldi
þeirra í svigum:
Vilhjálmur A. Þórarins. .... (8) 7,63
Sigurður H. Þrastarson .... (7) 7,43
Erlendur Eiríksson.......... (10) 7,30
Pétur Guðmundsson........ (15) 7,20
Guðmundur Á. Guðms..... (11) 6,91
Jóhann Ingi Jónsson........ (11) 6,73
Þorvaldur Árnason.......... (13) 6,69
Ívar Orri Kristjánsson .... (15) 6,47
Helgi Mikael Jónasson .... (16) 6,44
Egill Arnar Sigurþórs..... (13) 6,23
Einar Ingi Jóhannsson .... (12) 6,17
26 dæmdu hjá konunum
Í úrvalsdeild kvenna komu mikið
fleiri dómarar við sögu en þar
dæmdu 26 dómarar leikina 90. Þar
af voru aðeins tvær konur. Níu
þeirra dæmdu fimm til átta leiki og
af þeim fengu Gunnar Oddur Haf-
liðason og Gunnar Freyr Róberts-
son bestu einkunnirnar. Þeir voru
hnífjafnir, dæmdu sjö leiki hvor og
voru með meðaleinkunnina
7,29.Meðaleinkunnir þeirra níu
dómara sem mest dæmdu í úrvals-
deild kvenna voru sem hér segir:
Gunnar Oddur Hafliðas .... (7) 7,29
Gunnar Freyr Róbertss..... (7) 7,29
Gunnþór Steinar Jónss...... (5) 7,20
Arnar Ingi Ingvarsson ...... (6) 7,17
Ásmundur Þór Sveinss...... (8) 7,13
Steinar Berg Sævarss ....... (8) 7,13
Arnar Þór Stefánsson ....... (5) 6,60
Atli Haukur Arnarsson ..... (5) 6,60
Helgi Ólafsson .................... (8) 6,50
Fimm þeirra dómara sem dæmdu
í úrvalsdeild karla dæmdu einn til
tvo leiki hver í úrvalsdeild kvenna.
Egill Arnar Sigurþórsson dæmdi
tvo þeirra og fékk 8,5 í meðal-
einkunn. Þá dæmdi einn erlendur
kvenkyns dómari einn leik í deild-
inni.
Vilhjálmur Alvar
besti dómarinn
Morgunblaðið/Hari
Bestur Vilhjálmur Alvar Þórarins-
son fékk hæstu einkunnirnar.
Fékk hæstu einkunnir í úrvalsdeild karla
Gunnar og Gunnar jafnir í úrvalsdeild kvenna