Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 19

Morgunblaðið - 08.10.2019, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Elsku vinkona, sem er fallin frá allt of snemma og baráttu hennar við illvígan sjúkdóm lokið. Við Karin kynntumst í stjórn Íslendingafélagsins árið 1970 í Stokkhólmi. Þar bjó ég í tæpan áratug en hún til æviloka. Vin- skapur okkar þróaðist í sífellt meiri kærleika og vorum við alls ófeimnar að lýsa væntumþykju hvor til annarrar. Hún hafði sterkar skoðanir á flestu og með mikinn sannfær- ingarmátt. Við vorum ekki alltaf sammála um alla hluti en til að halda friðinn var skipt um um- ræðuefni. Karin var mjög góður penni, talaði lýtalausa íslensku og vildi alltaf heyra nýjustu slanguryrð- in okkar og eins þótti henni t.d. orðið snjallsími sniðug lausn meðan Svíar tala í mobiltelefon. Alltaf reyndi hún að finna ein- hver tilefni til að hitta vini og kunningja og hafa gaman enda sjálf hláturmild og hrókur alls fagnaðar. Hún elskaði blómin sín í bústaðnum og sítrónutréð í húsinu þeirra á Spáni. Ætlunin var að fara í siglingu með Kalle núna í haust og eyða síðan nokkrum vikum á Spáni og var tilhlökkun mikil. Karin átti hamingjurík ár með seinni manni sínum, honum Kalle, og eignuðust þau soninn Karin Hákonar- dóttir Byström ✝ Karin Há-konardóttir Byström fæddist 17. desember 1950. Hún lést 5. septem- ber 2019 á St. Gör- ans sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Útför hennar hefur farið fram. Daniel en fyrir átti Karin soninn Ro- bert. Karin var vanaföst og hafði fyrir sið að fá sér einn cosmopolitan seinni part dags og spila kotru við Daniel í hvert skipti sem hann var heima og var hún með mikið keppnis- skap. Nokkrar freistingar átti hún erfitt með að standast og voru það aðallega flottir skartgripir, armbandsúr, skór og veski. Krabbameinsmeðferðirnar lofuðu góðu þrátt fyrir slæmar aukaverkanir en alltaf hafði hún fulla trú á bata. Þá kom í ljós fyrir skemmstu að mein í hálsi hafði fengið að grassera óáreitt í tvö ár með þeim afleiðingum að hún missti málið og þá í fyrsta sinn skynjaði maður smá upp- gjöf. Ég heimsótti þig í lok ágúst og sú heimsókn var erfið því þú hafðir alltaf haft gaman af að tala en samt gátum við bæði hlegið smá og grátið. Þú varst dugleg að skrifa mér löng bréf á fésinu þrátt fyrir að ég svaraði oftast til baka í skeytastíl. Síð- ustu bréfaskriftir okkar voru 4. september og örfáum dögum síðar varstu farin. Þú varst löngu búin að plana jarðarförina, kirkjuna og sönginn og tókst af mér loforð um að mæta í jarð- arförina, en því miður, elsku Karin mín, leyfðu mínar kring- umstæður það ekki núna. Ég votta allri fjölskyldunni innilega samúð. Blessuð sé minning þín, sem svo sannarlega lifðir lífinu lifandi. Þín vinkona, Ellen Einarsdóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR SVEINSSON, Efstaleiti 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun, miðvikudaginn 9. október, klukkan 11. Agnes Jóhannsdóttir Soffía Haraldsdóttir Ásdís Haraldsdóttir Jóhann Haraldsson Gréta Pape Sveinn Haraldsson Haraldur Agnes Civelek Edda Civelek Marta Eiríksdóttir Benoit Branger Agnes Jónasdóttir Daníel Jóhannsson Amber Allen Alexander Jóhannsson og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, DR. HALLDÓR I. ELÍASSON stærðfræðingur, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 1. október. Hann verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 10. október klukkan 11. Björg Cortes Stefánsdóttir Stefán V. Halldórsson Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 13. Börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörnÁstkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ALMA JÓNSDÓTTIR ritari, Arnarsmára 24, Kópavogi, lést laugardaginn 5. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. október klukkan 13. Jón Friðhólm Friðriksson Rósa Jónsdóttir Jónas Guðbjörn Jónsson Helga Sigrún Þórsdóttir Eiríkur Jónsson Kristjana Árnadóttir Jón Grétar Jónasson María Sigrún Jónasdóttir Eva Natalie Eiríksdóttir Nadia Liv Eiríksdóttir systkini og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, SVALA EGGERTSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum föstudaginn 4. október. Jarðarför auglýst síðar. Baldur Einarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURFINNA PÁLMARSDÓTTIR frá Unhól, Þykkvabæ, lést á Dvalarheimilinu Lundi þriðjudaginn 1. október. Útför hennar fer fram föstudaginn 11. október klukkan 13 í Þykkvabæjarkirkju. Pálína S. Guðbrandsdóttir Birgir Óskarsson Pálmar H. Guðbrandsson Jóna Sverrisdóttir Heiðrún B. Guðbrandsdóttir Kristján Hilmarsson Sigríður Guðbrandsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐRÚN BJARNARDÓTTIR, Didda í Holti, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 29. september. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju föstudaginn 11. október klukkan 14. Jóhanna Sigríður Harðard. Már Ólafsson Sigurður Jónsson Björn Harðarson Anna Harðardóttir Sigurður Kristinsson Sigurður Harðarson Manon Laméris barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNI HALLDÓR JÓNSSON, lést miðvikudaginn 2. október. Innilegar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Patreksfirði fyrir góða umönnun. Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 12. október klukkan 17. Hrönn Árnadóttir Guðmundur Ó. Guðmundsson Þór Árnason Sigríður Einarsdóttir Dröfn Árnadóttir Gísli Már Gíslason Jón Bessi Árnason Guðrún Gísladóttir Sævar Árnason Elena Alda Árnason Stefanía Heiðrún Árnadóttir Brynja Árnadóttir Guðmundur Aðalsteinsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MATTHILDUR SOFFÍA MARÍASDÓTTIR frá Hjörsey, lést föstudaginn hinn 4. október á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Útförin verður auglýst síðar. María Einarsdóttir Páll Gestsson Margrét Einarsdóttir Skúli Waldorff Ragnheiður Einarsdóttir Einar Örn Karelsson Ingibjörg Einarsdóttir Haukur Einarsson Anna Jóna Einarsdóttir Jón Heiðar Pálsson Sigríður Einarsdóttir Gunnar Örn Vilhjálmsson barnabörn, langömmu- og langalangömmubörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR HELGA JÓNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1a, Kópavogi, verður jarðsungin í Kópavogskirkju mánudaginn 14. október klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Auðar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Geir Hauksson Jórunn Jörundsdóttir Auður Hauksdóttir Haukur Hauksson Magnea Kristinsdóttir Leifur Hauksson Guðrún Bachmann barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS SKAPTADÓTTIR, fv. launafulltrúi RB, lést í faðmi fjölskyldunnar 29. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 14. Skapti Valsson Jórunn Gunnarsdóttir Dóra Sjöfn Valsdóttir Birgir Sveinsson María Ýr Valsdóttir Rúnar Sigurðsson Guðmundur Valsson Marta Kristín Lárusdóttir barnabörn og langömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI JÓNSSON, Lundi 5, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 3. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 11. október klukkan 11. Ása Björgvinsdóttir Björgvin Jón Bjarnason Guðlaug Sigurðardóttir Árný Erla Bjarnadóttir Alfreð Árnason og barnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.