Morgunblaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LA SCALA Model 3000
L 242 cm Áklæði ct. 83 Verð 729.000,-
L 242 cm Leður ct. 30 Verð 949.000,-
Sjálfstætt starfandi fólk á rétt á
greiðslum úr fæðingarorlofssjóði
til jafns við launþega, fullnægi það
skilyrðum. Til þess að eiga rétt
þarf fólkið að reikna sér laun yfir
vissu lágmarki og fæðingarorlofs-
greiðslurnar eru síðan tengdar
heildarlaunum á ákveðnu tímabili.
Umræða hefur verið um það að
sjálfstætt starfandi fólk fái lágar
greiðslur. Það kom m.a. fram í við-
tali við Margréti Erlu Maack lista-
konu sem birtist í blaðinu í gær.
Leó Örn Þorleifsson, forstöðu-
maður fæðingarorlofssjóðs, upp-
lýsir hverjar reglurnar eru. Laun-
þegar og sjálfstætt starfandi eiga
rétt á greiðslum í fæðingarorlofi ef
þeir hafa verið í að minnsta kosti
25% starfshlutfalli sex mánuði fyr-
ir fæðingu barns. Í tilviki sjálfstætt
starfandi er þetta framkvæmt
þannig að þeir þurfa að reikna sér
laun og greiða af þeim trygginga-
gjald og þurfa launin að ná 25% af
viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra
fyrir viðkomandi atvinnugrein.
Fæðingarorlofsgreiðslurnar fara
síðan eftir heildartekjum viðkom-
andi á tólf mánaða tímabili. Hjá
launafólki er miðað við tólf mánaða
tímabil sem lýkur sex mánuðum
fyrir fæðingu barns en hjá sjálf-
stætt starfandi er miðað við tekjur
samkvæmt skattframtali alman-
aksárið fyrir fæðingu.
Fæðingarorlofssjóður greiðir
80% af heildartekjum viðkomandi á
þessu tímabili, þó að hámarki 600
þúsund krónur á mánuði. Einnig
eru lágmarksgreiðslur.
Þurfa sjálfir að standa skil
Leó Örn bendir á að vinnuveit-
endur annist launagreiðslur og
greiðslu tryggingagjalds launþega.
Þessar greiðslur séu hins vegar lið-
ur í rekstri sjálfstætt starfandi
sem þeir þurfi sjálfir að standa skil
á og passa upp á.
„Okkar reynsla er sú að lang-
flestir sjálfstætt starfandi reikna
sér laun samkvæmt viðmiðun ríkis-
skattstjóra og renna í gegnum
kerfið eins og launþegar. Það koma
þó alltaf upp tilvik þar sem ein-
staklingar fá lægri greiðslur en
þeir vildu eða höfðu reiknað með.
Þá má ekki gleyma því að greiðsl-
urnar taka mið af þeim tekjum sem
viðkomandi gefur upp,“ segir Leó
Örn.
Greiðslur miðast
við uppgefin laun
Sjálfstætt starfandi eiga sama rétt
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við teljum að þarna sé óeðlilegum
vinnubrögðum beitt,“ segir Ásgeir
Kr. Ólafsson, talsmaður sumarhúsa-
og landeigenda í nágrenni Leynis 2
og 3 í Landsveit. Eins og Morgun-
blaðið hefur greint frá er fyrirhuguð
mikil uppbygging ferðaþjónustu á
svæðinu. Í síðustu viku kom fram að
Loo Eng Wah, forsvarsmanni upp-
byggingarinnar, hefði verið gert að
aftengja tengingu hjólhýsa á svæð-
inu við fráveitukerfi, en ekki var leyfi
fyrir þeirri framkvæmd.
Í bréfi sem Ásgeir sendi skipu-
lags- og byggingarfulltrúa Rangár-
þings ytra í gær er farið fram á að
hann sem fulltrúi og eftirlitsaðili
sveitarfélagsins geri grein fyrir því á
hvaða leyfum stálgrindarkúluhús
sem byrjað er að reisa á svæðinu
byggi, eða fari fram á tafarlausa
stöðvun uppbyggingu þeirra. Að
auki er farið fram á að vatns- og frá-
veitulagnir séu fjarlægðar og það
sama gildi um timburbotnplötur á
forsteyptum undirstöðum.
Ásgeir segir í samtali við Morgun-
blaðið að sér og öðrum landeigend-
um á svæðinu blöskri það hvernig
sveitarfélagið hafi tekið á málinu og
eðlilegum athugasemdum sem sett-
ar hafi verið fram.
„Ég tel að vinnubrögð sveitar-
félagsins séu með þeim hætti að það
sé rétt að leita álits ráðherra sveitar-
stjórnarmála og mun ég óska eftir
fundi með honum vegna málsins,“
segir Ásgeir.
Skipulags- og umferðarnefnd
Rangárþings ytra fundaði síðdegis í
gær. Á dagskrá fundarins var áform-
að að ræða umsókn um stöðuleyfi
vegna kúluhúsanna en samkvæmt
fundargerð hefur sá dagskrárliður
verið tekinn af dagskrá.
Hyggst leita álits ráðherra
Landeigendum blöskra vinnubrögð í Landsveit Vilja stöðva framkvæmdir
Nýr Herjólfur sigldi fyrstu áætlunarferð sína með farþega frá Vestmanna-
eyjum til Þorlákshafnar í gær. Brottför var frá Vestmannaeyjum klukkan
fimm síðdegis og tók siglingin um það bil tvær klukkustundir og 45 mín-
útur. Framboð af kojum er töluvert minna í nýju ferjunni en þeirri gömlu,
eða 30 kojur í þeirri nýju á móti 90 kojum í gömlu. Þá er ekki hægt að
leigja einkaklefa í nýju ferjunni. Slæmt veður, hafstraumar, mikill vind-
hraði og ölduhæð síðustu daga hafa valdið því að ekki hefur verið hægt að
sigla Herjólfi inn í Landeyjahöfn, hvorki nýja né gamla.
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Ferjaði farþega til Þorlákshafnar í fyrsta skipti
Fyrstu sáttafundir
samninganefndar
BSRB við ríkið,
Reykjavíkurborg
og Samband ís-
lenskra sveitar-
félaga fóru fram
hjá ríkissáttasemj-
ara í gær. Á fund-
unum var skipulag
komandi viðræðna
rætt en ekki var
rætt efnislega um kröfur BSRB.
„Flestir eru sammála um að það
þurfi að ræða styttingu vinnuvikunnar
áfram og leggja áherslu á það á næst-
unni. BSRB er með sömu kröfur gagn-
vart öllum viðsemjendum en þeir hafa
nálgast hlutina með mismunandi
hætti,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir,
formaður BSRB, í samtali við
Morgunblaðið.
Ekki er búið að ákveða dagsetningu
næstu funda en hún gerir ráð fyrir að
þeir fari fram í vikunni og segist vera
bjartsýn gagnvart komandi sátta-
fundum.
„Það er ennþá bil á milli okkar allra
en það er ólíkt hvert bilið er. Við erum
ekki búin að fá tilboð sem við getum
fallist á,“ bætti Sonja við og sagði það
jákvætt að viðræðurnar væru komnar
á dagskrá hjá ríkissáttasemjara þar
sem BSRB hefði upplifað að viðræð-
urnar hefðu verið að fara aftur á bak
frekar en áfram.
Fyrstu
sáttafund-
um lokið
Sonja Ýr
Þorbergsdóttir
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson,
umhverfis- og
auðlindaráð-
herra, hefur
ákveðið að bjóða
sig fram til emb-
ættis varafor-
manns Vinstri
grænna á lands-
fundi hreyf-
ingarinnar sem
fer fram síðar í mánuðinum. Guð-
mundur greindi frá þessu á Face-
book-síðu sinni í gærkvöldi.
Sækist eftir varafor-
mennsku í VG
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson