Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þegar horfter tilstjórnmála í Bandaríkjunum er áberandi hversu dómstólum er ákaft beitt til að bæta úr stöðu sem vinstrisinnuð stjórnarandstaða ræður ekki við. Allar götur síðan Donald Trump varð óvænt forseti Bandaríkjanna hefur feikna fé verið varið til þess að stefna ákvörðunum hans fyrir dóm- stóla. Hafa hinir frægu „stór“- fjölmiðlar vestra jafnan slegið því upp sem stórsigrum þegar dómari við dómstól t.d. í Kali- forníu sem aldrei á dómaraævi sinni hefur vikið spönn frá blindum stuðningi við erindi Demókrataflokksins leggur á bann sem gilda skuli um öll Bandaríkin við því að fyr- irmælum forsetans sé hlýtt. Fréttamenn víða um heim, sem bugta sig fyrir „stórmiðl- unum“ og hafa lengi talið þá sem handhafa guðlegrar fréttaspeki, einkum þó þeir sem fylgjast lítt með, segja dómana gjörbreytingu á stjórnmálalegri stöðu í land- inu. Það þykir hins vegar minni frétt þegar áfrýjunar- dómstól og jafnvel sjálfur Hæstiréttur Bandaríkjanna hrindir dómum þessara snún- ingalipru stjórnmáladómara. En það gerist nánast í hverju einasta tilviki sem á reynir. Engin ábyrgð er þó lögð á dómarann þótt hann standi hvað eftir annað berstrípaður frammi fyrir alþjóð. Og það er öruggt að Demókrataflokkur- inn pantar sinn mann næst þegar honum liggur nokkuð við. Það er til þess tekið að tæp- lega 20 prósent af þeim dóm- um sem kveðnir eru upp af hinum fræga svæðisdómstól í Kaliforníu eru líklegir til að standast skoðun Hæstaréttar og er iðulega hent út með níu atkvæðum gegn engu! Og eru þá allar dómúrlausnir taldar en ekki aðeins afgreiðslur á pólitískum pöntunum, sem fara enn verr út. Nú síðast dæmdi dómstóll í New York að forsetinn skyldi afhenda saksóknurum í New York skattframtal sitt, sem er, vegna fyrri umsvifa forset- ans, ólíkt skattframtölum flestra okkar hinna, vegna umfangsmikillar starfsemi hans víða um heim. Ekki skal neinu spáð um það hvernig því máli lykti eftir áfrýjunarferil, en það vakti athygli að dóm- stóllinn ákvað þó að niðurstaðan skyldi ekki taka gildi á næstunni og gerir því ráð fyrir að málinu verði áfrýjað. Saksóknarinn, sem er af frægri ætt demókrata, vill fá skatt- framtalið afhent svo hann geti séð hvort Trump hafi sjálfur greitt fé til konu sem hann er sagður hafa verið í tygjum við eina dagstund fyrir rúmum áratug eða ekki. Virðist augljóst að þarna er um hreina „veiðiferð“ að ræða eins og það er kallað vestra. Saksóknarinn hefur með öðr- um orðum ekkert í höndunum og hann veit að það sem gerð- ist eða gerðist ekki fyrir rúm- um áratug eða meira hefur ekkert með störf Trumps sem forseta að gera. Saksóknarinn þykist vera að gá að einni ein- ustu línu í skattframtali upp á þúsundir blaðsíðna, en það eru allar hinar línurnar sem hann hefur áhuga fyrir! Endalaus mál af þessu tagi má nefna. Í hinu eilífa brexit-máli er hið sama upp á teningnum. Þar hafa dómstólarnir hvað eftir annað verið dregnir inn í stjórnmáladeilurnar. Jafnvel ákvörðun forsætisráðherrans um frestun þingfunda um fá- eina daga, sem viðurkennt var að væri í samræmi við alda- langa hefð, var stefnt fyrir dómstóla í bæði Skotlandi og Englandi. Komust dómstól- arnir að misvísandi niður- stöðum og þess vegna komst málið til Hæstaréttar Bret- lands, sem fyrir skömmu var breytt í allt annað form en tíðkaðist um aldir. Hæstiréttur ákvað að dansa með í pólitíska upphlaupinu og forseti réttarins tók spanó- afbrigðið á þetta. Rétturinn kannaðist við að fyrir þessari ákvörðun væru mörg for- dæmi, en málið hefði ekki komið fyrir hæstarétt áður og því væri ekkert fordæmi þaðan! Það sem lakara var; forseti réttarins tók að málinu loknu að stæra sig af því að hafa haft forsætisráðherrann undir í málinu. Dómstólar í Bretlandi eru ekki í háu áliti þar, ef marka má kannanir. Þegar þeir geta ekki setið á sér í pólitískum dægurmálum og þar með töld- um deilum um þingsköp er hætt við að lítið álit fari áfram hratt minnkandi. Það er merkilegt að sjá að vinstrimenn í Bandaríkjunum og Evrópu líta margir á dómara sem hand- langara} Demba sér ótt í pólitísk upphlaup Á dögunum fékk lítil fjölskylda á flótta, foreldrar með ungbarn sem fætt er á Íslandi, þær kveðjur frá íslenskum stjórnvöldum að þau hlytu enga vernd hér á landi. Þau geta ekki undir nokkrum kringumstæðum farið til heimalandsins vegna viðvarandi og áralangra stríðsátaka þar í landi og munu íslensk stjórn- völd því senda þau til Grikklands, í flótta- mannabúðir. Önnur fjölskylda frá sama stríðshrjáða landi, móðir með þrjú ung börn sín, fékk einnig þær kveðjur frá íslenskum stjórnvöldum að hún skyldi halda á ný inn í flóttamannabúðir í Grikk- landi, hvar hún hefur búið síðastliðin þrjú ár. Móðirin á þess engan kost að fá húsaskjól, sjá sér farborða eða mennta börn sín því engir skól- ar eru starfræktir í yfirfullum flóttamanna- búðum í Grikklandi. Það skiptir bara íslensk stjórnvöld engu máli því þau mega þetta, í skjóli Dyflinnarreglugerðar. Þau mega senda lítil börn út í fullkomna óvissu og hættu til frambúðar, bara til að þurfa ekki að veita vernd hér á landi. Senda þau inn í flóttamannabúðir, ef þau eru svo „heppin“ að fá þar inni, ellegar á götuna þar í landi með börn sín. Enga vernd er þar að fá. Íslensk stjórnvöld mega beita þessari ómannúðlegu með- ferð í skjóli ofangreindrar reglugerðar en þau eiga líka sam- kvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum sem við er- um aðilar að að gæta að einstaklingum í sérstaklega við- kvæmri stöðu. Einstaklingar sem glíma við fatlanir, veikindi, þungaðar konur, einstæðir foreldrar með ung börn og fleiri eiga að vera flokkaðir í þennan hóp fólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá eiga íslensk stjórnvöld líka samkvæmt ís- lenskum lögum og alþjóðlegum samningum að tryggja hagsmuni barna. Með því að íslensk stjórnvöld sendi lítil börn í flóttamannabúðir í Grikklandi er að mínu mati og margra annarra verið að brjóta umræddar lagaskyldur, allt á grundvelli erlendrar reglugerðar sem við höfum undirgengist. En hvað stendur í þeirri reglugerð? Þar er ekki sett skýlaus krafa um endursendingu til annarra aðildarríkja Dyflinnarreglugerðar. Þvert á móti er ríkjum veitt ótvíræð heimild til að meta sjálfstætt hvert og eitt tilvik með tilliti til mannúðar, enda er það frumskylda hvers ríkis. Endursendingarákvæðið er til að tryggja að móttökuríki sé skuldbundið til að taka á móti flóttafólki sem ríkið hefur „hleypt inn“ á svæðið. Endursendingarákvæðið er til að fólk lendi ekki í algjöru tómarúmi á milli ríkja. Það kemur eins og áður sagði ekki á nokkurn hátt í veg fyrir að ríki sýni mannúð í verki og veiti börnum á flótta vernd. Nei, frú dómsmálaráðherra. Það er ekki rétt sem haft var eftir þér við upphaf embættissetu þinnar að ísland framfylgi mannúðlegri stefnu í málefnum flóttafólks. Ofangreind dæmi sýna annað og þar berð þú nú ábyrgð. Helga Vala Helgadóttir Pistill Hin meinta mannúðlega stefna Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. Helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikil hagræðing er talinfelast í því að lögfestaað í hverju sveitarfé-lagi búi minnst 1.000 íbúar. Hugmyndin er að setja lág- markið fyrst við 250 íbúa og hækka það svo í áföngum. Þetta mun leiða til verulegrar fækkunar sveitarfé- laga. Samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytið lét greina möguleg hagræn áhrif slíkrar laga- setningar. Tvær aðferðir voru not- aðar við greininguna og bentu niðurstöður til þess að hagræðingin gæti mögulega numið allt að 3,6 til 5 milljörðum króna á ári. Mæla á fyrir tillögu til þings- ályktunar um „stefnumótandi áætl- un ríkisins í málefnum sveitar- félaga“ á Alþingi síðar í þessum mánuði, samkvæmt frétt sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt- isins. Verði tillagan samþykkt er ljóst að sveitarfélögum mun fækka umtalsvert, en færri en 1.000 íbúar eru nú í meira en helmingi sveitar- félaga. Sveitarfélögin eru nú 72 talsins en flest voru þau um 250 um miðja síðustu öld og hefur því fækkað mikið. Í fyrra sameinuðust sveitarfélögin Garður og Sandgerð- isbær í Suðurnesjabæ og einnig sameinuðust Fjarðabyggð og Breiðdalshreppur. Ráðuneytið segir að ýmsir hafi bent á að hægt væri að nýta ávinning af sameiningu sveitarfélaga „til að lækka álögur á íbúa, greiða niður skuldir og þar með lækka kostnað og/eða auka þjónustu við íbúa og styrkja inn- viði“. Önnur aðferðin sem var notuð til að meta hagræn áhrif þings- ályktunartillögunnar studdist við kostnaðartölur málaflokka und- anfarinna fimm ára. Kostnaðarlíkön voru metin fyrir alla málaflokka, annars vegar fyrir minni sveitar- félög með 999 íbúa og færri og hins vegar fyrir stærri sveitarfélög með 1.000 til 4.000 íbúa. Sú aðferð benti til þess að svigrúm til hagræðingar við að setja lágmarksíbúafjölda við 1.000 íbúa gæti orðið 3,6 milljarðar á ári á sveitarstjórnarstiginu. Hin aðferðin fólst í því að skoða líkleg sameiningarmynstur og þá hagræð- ingu sem leiddi af slíkri endur- skipulagningu. Möguleg hagræðing með þeirri aðferð var talin vera um fimm milljarðar á ári. Margt bendir til hagræð- ingar Í skýrslunni Öflugri sveitar- félög, sem fjallar um væntan ávinn- ing af því að miða stærð sveitar- félaga við minnst 1.000 íbúa, segir m.a. að mikilvægt sé að sveitar- félögin nái að sinna núverandi verkefnum á viðunandi hátt. „Eins og staðan er í dag hafa mörg hinna fámennari sveitarfélaga útvistað grunnþjónustu sem þeim ber að sinna og í sumum tilvikum er þjónustu illa eða ekki sinnt,“ segir í skýrslunni. Þar segir einnig að margt bendi til þess að hægt verði að hagræða hjá hinu opinbera með sameiningu sveitarfélaga og fara þannig betur með skattfé al- mennings. Flutningur opinberra starfa á landsbyggðina tengist þessu því ein leið sé að fela sveit- arstjórnarstiginu umsjón fleiri málaflokka hins opinbera en nú er gert. Einnig hafi verið færð rök fyrir því að sameining sveitarfélaga geti verið mikilvægt byggðamál. Sveitarfélögin velta um þriðj- ungi af veltu hins opinbera en ríkið tveimur þriðju. Skýrslan segir að þessu sé öfugt farið í flestum ná- grannalöndum okkar, þar sem sveitarfélög eru margfalt fjölmenn- ari en þau eru hér á landi. Stækkun og fækkun sveitarfélaga lögð til Morgunblaðið/Eggert Sameining Kosið hefur verið um sameiningu margra sveitarfélaga. Sveitarfélög voru um 250 um miðja síðustu öld en eru nú 72 talsins. Kjósarhreppur er stærsta sveitarfélagið á höfuðborgar- svæðinu að flatarmáli og það fámenn- asta. Íbúar eru 251 en voru 238 í árs- byrjun. Karl Magnús Kristjánsson, oddviti og sveitarstjóri, sagði um tillögu um að lágmarksfjöldi íbúa sveitar- félaga yrði innan nokkurra ára 1.000 íbúar að einnig þyrfti að skoða fjárhagslega stöðu. Hann minnti á að aukalands- þing Sambands sveitarfélaga hefði samþykkt með meirihluta atkvæða að auka lágmarksíbúa- fjölda sveitarfélaga. Mörg minni sveitarfélög hefðu mótmælt því en ekki haft atkvæðavægi sem dugði, enda færi atkvæðavægi eftir stærð sveitarfélaga. Alþingi myndi þó hafa síðasta orðið. Fámennur en víðfeðmur KJÓSARHREPPUR Karl Magnús Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.