Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES EES-samstarfið í 25 ár – Hádegisfundur með Birni Bjarnasyni Björn Bjarnason, fv. ráðherra, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudag- inn 9. október kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Með kveðju, stjórnin. Tilkynningar Tilkynning frá Digraneskirkju Þau, sem eiga hluti í geymslu í kjallara kirkju- nnar eru vinsamlega beðnir um að fjarlægja þá sem fyrst, í síðasta lagi 10. janúar 2020. Sóknarnefnd Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss og allir velkomnir - Hreyfisalurinn er opinn kl.9:30-11:30, líkamsræktartæki, teygjur og lóð - Boccia kl.10:15 - Tálgað í tré kl.13.00 - Félagsvist kl.13:00 - Vatnslitun kl.13:00,með leiðbeinanda, kostar ekkert og allir velkomnir - Postulínsmálun kl.13:00, með leiðbeinanda, laus pláss - Bíó í miðrými kl.13:15 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld kl 20 í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Þriðjudagur: Leikfimi kl. 10:30. Fuglatálgun kl. 13:00. Bridge og Kanasta kl. 13:00. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stun- dina á vægu verði. Gestur okkar í dag er Arnþrúður Ösp Karlsdóttir söngkona. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30- 10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30- 12:20 og kaffi kl. 14:30-15:30. Bridge í handavinnustofu 13:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8;50. Myndlistarnámskeið kl. 9-12. Thai Chi kl. 9. Leikfimi kl. 10, Spekingar og spaugarar kl. 10:45. Hádegismatur kl. 11:30. Kríur Myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13:10. Enskunámskeið kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. U3a kl. 16:30. Komdu að púsla með okkur .Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9:00. Bútasaumshópur hittist kl. 9:00. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Frjáls spilamennska kl. 13:00. Opin handverkstofa kl. 13:00-16:00. Söngstund kl. 13:30. Upplestur og bókaspjall með Rögnu kl. 15:00. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14:30 til 15:30 alla virka daga. Verið öll velkomin á Vitatorg. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Vatnsleikf. kl.7:30/15:15. Qi-Gong í Sjál. kl. 8:30. Liðstyrkur Ásg. kl. 11:15. Karlaleikf. Ásg. kl.12:00. Boccia í Ásg. kl. 12:45. Línudans. Sjál kl. 13:30/14:30. Smíði í Smiðju Kirkjuh. kl.09:00/13:00 Ingrid Kuhlma í Jónshúsi kl. 14:00 fjallar um samveru. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30-11:15. Yoga kl. 11:00-12:00 Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.45 Stóla-leikfimi, kl. 13.00 Handavinna, kl. 13.30 ZUMBA, kl. 13.30 Alkort-spil. Grensáskirkja Alla þriðjudaga er opið hús í Grensáskirkju kl. 12-14. Fyrst er kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni, síðan léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi og spjall. Opna húsinu lýkur eftir kaffisopa um kl. 14. Gullsmára Mánudagur: Postulínshópur kl.9.00. Jóga kl. 9.30 og 17.00. Handavinna og Bridge kl.13.00, Félagsvist kl. 20. Þriðjudagur: Myndlistarhópur kl.9.00 Boccia kl. 9.30. Málm-og silfursmíði. Canasta. Trésmíði kl 13.00. Leshópur kl. 20.00 fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Miðvikudagur: Myndlist kl 9.30. Postulínsmálun. Kvennabridge. Silfursmíði kl. 13.00. Línudans fyrir lengra komna kl 16.00 Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30. Hádegismatur kl. 11:30. Bónusbíllinn kl. 12:15. Félagsvist kl. 13:15. Kaffi kl. 14:15. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00- 12.00 Dansleikfimi kl 9.00 Qi-gong kl 10.00 Bridge kl 13.00 Gaflarakórinn kl 16.00 Korpúlfar Listmálun kl 9 í Borgum og postulínsmálun kl 9.30. Boccia kl 10 og 17 í Borgum. Leikfimishópur undir leiðsögn Ársælls kl 11 í Egilshöll. Spjallhópur í listmiðjunni í Borgum kl 13:00 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl 13:30 í umsjón Brynjólfs, heimanámskennsla í bókasafninu í Spöng. Neskirkja Krossgötur kl. 13.00. Skúli S. Ólafsson sér um efnið. Samfélaga, kaffi og kruðerí! Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,trésmiðja 9-12, Trésmiðja kl.9-16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, kaf- fihúsaferð kl.14, Hugleiðslan kl.15.30. Uppl í s 4112760 Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. kaffispjal í króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.00. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4, Skák kl. 13.00 allir velkomnir. Smá- og raðauglýsingar Vantar þig pípara? FINNA.is Nanna Guðrún Zoëga var meðal fyrstu djáknanna til að koma til starfa í þjóðkirkjunni eftir að djáknanám hófst við guðfræði- og trúar- bragðafræðideild Háskóla Ís- lands 1993. Hún vígðist 22. des- ember 1996 til Garðasóknar í Garðabæ sem var orðin fjölmenn sókn. Hún var ráðin til starfa meðal fólks á ýmsum aldri og sinnti meðal annars foreldra- morgnum þar sem söfnuðurinn sýndi í verki stuðning við foreldra með ung börn. Hún vann einnig með eldri borgurum og í því starfi var hún einstaklega öflug. Hún annaðist reglulega samveru fyrir þá og með þeim. Merkasta starf hennar var að byggja upp starf meðal fólks sem var einangrað á heimilum sínum. Hún fór í heim- sóknir og studdi þannig við ein- staklinga sem hittu fáa. Ein manneskja getur ekki sinnt mjög mörgum þótt þörfin sé mikil. Þess Nanna Guðrún Zoëga ✝ Nanna GuðrúnZoëga fæddist 24. september 1951. Hún lést 30. september 2019. Útför Nönnu Guðrúnar fór fram 4. október 2019. vegna skipulagði Nanna Guðrún heimsóknarþjón- ustu og fékk til liðs við sig sjálfboðaliða. Hún hélt námskeið til að undirbúa þátt- takendur og fylgdi þeim eftir með reglulegri samveru. Hún vissi að það þarf að næra og styðja þann sem vill gefa öðrum af tíma sínum og sýna öðru fólki umhyggju. Eftir að Nanna Guðrún hætti störfum í Garðasókn 1. desember 2009 starfaði hún á Vífilsstöðum, hjúkrunarheimilinu Ísafold og einnig með seinfærum foreldum og börnum þeirra á vegum Reykjavíkurborgar. Nanna Guðrún tók á móti nem- endum í starfsþjálfun djáknaefna. Hún skipulagði dagskrá með þeim og var annt um að þeir fengju sem mesta innsýn, reynslu og þjálfun í því fjölbreytta starfi sem er í stórum söfnuði. Í starfsnámi skapast oft persónuleg tengsl leiðbeinenda og nemenda. Einn nemandi sagði svo frá að þær hefðu farið saman að kaupa í mat- inn. Nemandinn horfði undrandi á innkaupakörfu Nönnu Guðrúnar því hún keypti svo stóra skammta af öllu. Hún sagði si svo: „Þú kaupir aldeilis mikið magn af öllu.“ Þá sagði Nanna Guðrún henni að hún ætti sex stráka sem þyrftu nú aldeilis sitt að borða. Einn af þeim sex var náttúrlega Lárus eiginmaður hennar. Já, hún Nanna Guðrún átti sannarlega stóra stráka sem þurftu að borða vel og innkaupin voru í þeim stíl. Nanna Guðrún var einlæg og föst fyrir og lét ekki bugast þótt blési á móti. Hún hafði góða nær- veru og skynjaði líðan fólks. Hún vildi styðja samferðafólk sitt og gerði það af umhyggju og hlýju. Hún boðaði Guðs orð bæði í orði og verki. Nanna Guðrún var virk í starfi Djáknafélags Íslands og sat í stjórn þess og var formaður um skeið. Eru henni þökkuð þau störf og framlag hennar til eflingar kærleiksþjónustu og starfi djákna. Það er með þakklæti og sorg í hjarta sem við djáknar kveðjum Nönnu Guðrúnu. Við biðjum Guð að blessa Lárus, börn þeirra og aðra aðstandendur. Minning um góða fyrirmynd og yndislega konu lifir. Fyrir hönd Djáknafélag Ís- lands, Ragnheiður Sverrisdóttir. ✝ Bryndís Krist-jánsdóttir fædd- ist í Nesi í Fnjóska- dal 17. ágúst 1922 og ólst þar upp. Hún lést á Landspítal- anum í Fossvogi 12. september 2019. Foreldrar hennar voru Kristján Jóns- son, bóndi og hér- aðsráðunautur, f. í Nesi 22. mars 1880, d. á Akureyri 27. maí 1962. Móðir hennar var Guðrún Stefánsdóttir, bóndi og rjómabústýra, f. á Sela- læk á Rangárvöllum 18. apríl 1885, d. á Akureyri 26. nóvember 1983. Systkini Bryndísar voru: Hulda Björg, f. 29. okt. 1909, Karl, f. 5. júlí 1911, Páll, f. 5. júlí 1911, Valtýr, f. 23. júlí 1918, og Stefán, f. 22. okt. 1929. Þau eru öll látin. Bryndís giftist 7. september árið 1944 Jóni úr Vör, skáldi og fv. forstöðumanni Bókasafns Kópa- vogs, f. 21. janúar 1917, d. 4. mars 2000. Synir þeirra: 1) Karl, f. 9. des. 1948, k.h. Katrín Val- gerður Karlsdóttir, börn þeirra: a) Sig- rún Erla, b) Jón Eg- ill og c) Fanney Magna. 2) Indriði, f. 5. nóv. 1950, börn hans: a) Orri Freyr, b) Þórir Valdimar. Kona Indriða: Valgerður Anna Þór- isdóttir, börn þeirra: c) Stefán Örn, og d) Bryndís Ylfa. 3) Þór- ólfur, f. 3. okt. 1954, k.h. (skilin) Kerstin Maria Almquist, börn þeirra: a) Helga Guðrún Gerða, b) Anna Sólveig. Sambýliskona Þór- ólfs er Hulda Björg Rósarsdóttir. Barnabarnabörn eru fimm. Útför Bryndísar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 8. október 2019, klukkan 15. Elsku amma okkar, amma Bryndís, hefur kvatt þessa tilveru. Við eigum margar góðar minning- ar um hana og allflestar tengjast þær á einhvern hátt matargerð. Sem börn komum við oftast í heimsókn á sunnudögum til ömmu og afa í Fannborginni. Amma bak- aði þá gjarnan vöfflur, smurði brauð og lagaði heitt súkkulaði. Og bauð upp á malt, amma átti alltaf til malt. Í seinni tíð hitaði hún gjarnan brauð með skinku og osti eða sardínum og osti í litla grillinu sínu. Svo bauð hún oft upp á möndluköku, jólaköku eða hun- angsköku. Þessar kökur munu ávallt minna okkur á ömmu Bryn- dísi. Á jóladegi buðu amma og afi okkur í fjölskylduboð þar sem amma reiddi að sjálfsögðu fram hangikjöt og meðlæti. Besta vatn í heimi var líka heima hjá ömmu og afa. Það var svo einstaklega kalt og svalandi. Amma var alltaf með alls kyns kræsingar á borðum þegar við hittum hana. Hún var þó af gamla skólanum og borðaði sjaldan með gestum sínum. Hún sat í ruggu- stólnum á meðan aðrir borðuðu og ræddi við okkur um málefni líð- andi stundar. Því þó amma hafi að mörgu leyti fylgt gömlum hefðum var hún líka með puttann á púls- inum. Amma var geðgóð og róleg, hún var umhyggjusöm og um- burðarlynd og með einstaklega góða nærveru. Hún fylgdist vel með samfélagsmálum og pólitík og hafði sterkar skoðanir á þeim sviðum. Hún var alltaf óaðfinnan- lega til höfð og sá til þess að heim- ilið þeirra afa væri snyrtilegt og fallegt. Elsku besta amma Bryndís, takk fyrir allt og allt. Við munum sakna hennar. Stefán Örn Indriðason og Bryndís Ylfa Indriðadóttir. Ég vil í nokkrum orðum minn- ast Bryndísar Kristjánsdóttur föðursystur minnar. Bryndís var fædd í Nesi í Fnjóskadal, næstyngst sex systk- ina. Bryndís hélt alltaf tryggð við sínar æskustöðvar og fylgdist vel með því sem var að gerast á þeim slóðum. Góð tengsl voru á milli hennar og föður míns og fleiri ætt- ingja hér fyrir norðan. Þá voru synir þeirra hjóna, Bryndísar og Jóns úr Vör, mörg sumur í sveit í Nesi og þá mynduðust enn sterk- ari tengingar þarna á milli. Í gegn- um frásagnir þeirra fengum við jafnvel einhverja mynd af borgar- lífinu þó fáir hefðu komið þar og Kópavogur var í útjaðri borgar- innar. Við vorum jafnvel farin að kannast við einhverja vini þeirra af lýsingum og tilvitnunum þó við hefðum aldrei séð þá. Þegar ég var að alast upp og lengi eftir það voru Bryndís og Kópavogur samtengd í mínum huga. Þegar farið var til Reykja- víkur þá fylgdi það yfirleitt að koma við hjá Bryndísi og fjöl- skyldu hennar þar sem þau bjuggu við Kársnesbraut í Kópavogi og í næsta húsi var Páll föðurbróðir og fjölskylda. Faðir minn, sem oft átti erindi til Reykjavíkur vegna starfa sinna, gisti nær alltaf í Kópavog- inum og ég held að það hafi margir fleiri ættingjar gert. Sjálfur átti ég mikil og góð tengsl við þau hjón eftir að ég flutti suður og hóf háskólanám, fékk að búa hjá þeim í nokkrar vikur á meðan beðið var eftir húsnæði. Oft var boðið í mat um helgar og þá var ýmislegt spjallað. Á námsár- unum heimsótti ég þau hjón nokk- uð reglulega og einnig eftir að ég flutti norður aftur þá kom ég þar við á suðurferðum. Alltaf var fagn- að heimsóknum og tækifærið not- að til að spyrja frétta að norðan og spjalla um ýmis mál. Eftir að hafa rætt við þau hjón, Bryndísi og Jón, sem hafði upplifað ýmislegt í sinni æsku, þá var eins og maður hefði fengið einhverja næringu fyrir framhaldið, einhver skilaboð með sér til að íhuga. Síðustu árin hef ég oft átt erindi til Reykjavíkur og um áramót hef ég notað tækifærið til að heimsækja Bryndísi þar sem hún bjó á Hrafnistu. Þar höfum við átt notalegt spjall og farið oftar en ekki aftur í tímann og rifjað upp ýmislegt sem hún hafði upplifað á sínum yngri árum fyrir norðan, breytingar frá þeim tíma og fleira. Aldrei var hik á því hvort Bryndís þekkti mig og var frekar hneyksl- uð á því að ég skyldi spyrja hvort hún þekkti mig. Hún gat alltaf upplýst mig um hvar synir hennar og fjölskyldur þeirra væru um ára- mótin eða væru á leiðinni að fara að gera en spurði einnig alltaf um fréttir að norðan, hvað væri að gerast í sveitinni og fréttir af okk- ar fólki. Hún hlustaði mikið á út- varp og horfði á sjónvarp fram undir síðasta dag og fylgdist því nokkuð vel með. Bryndís náði rúmlega 97 ára aldri og var búin að skila sínu til samfélagsins. Fyrir hönd systkinanna frá Nesi og fjöl- skyldna er sonum Bryndísar og fjölskyldum þeirra vottuð samúð en hennar er minnst með mikilli hlýju og þakklæti. Haukur F. Valtýsson. Bryndís Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.