Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Gleðilega Hrekkjavöku Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Að ala upp nokkur börn í einu er brjál-æðislegt verkefni, því fylgir flókinverkaskipting auk annarra skuld-bindinga utan heimilis. Að þurfa að halda þessu öllu saman er drulluerfitt. Okkur fannst þurfa að opna inn á þessa umræðu, með léttu ívafi þó. Auðvitað er dásamleg reynsla að eignast börn með þeim sem maður elskar, en það er líka erfitt og það má segja það. Ef fólk fer í barneignir með þær væntingar að þá fyrst fari sambandið á flug, þá er það akkúrat öfugt. Þá fyrst reynir á,“ segja þær Emma Björg Eyjólfsdóttir og María Ólafsdóttir sem halda úti hlaðvarpi sem þær kalla Andvarpið- hlaðvarp foreldra. Þar fjalla þær um allt sem viðkemur foreldrahlutverkinu en þær eru báð- ar ungar þriggja barna mæður afkvæma á aldrinum 7 mánaða til 12 ára. „Við finnum mikið fyrir pressunni að við eigum að standa okkur 150 prósent í öllu, sem mömmur, makar og framakonur. Allir eru að reyna að halda ímynd hins fullkomna fjöl- skyldulífs, en okkur finnst ekkert að því að fólk viti að allt sé í drasli heima hjá okkur og að við séum stundum með allt upp á bak. Okk- ur finnst mikilvægt að einhver segi þetta upp- hátt, fyrir það fólk sem er að burðast með að skammast sín fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Ef það er eitthvað sem maður vill gera vel, þá er það að vera foreldri, eðlilega, en það er líka hætta á að maður stífni upp, af því mað- ur tekur þetta alvarlega og ætlar að gera allt vel og rétt. Áður en maður veit af er maður orðinn stífur af streitu,“ segir Emma og María bætir við að þegar stressið sé orðið of mikið þá sé gott að kveikja á kertum og fá sér rauðvín, til að slaka á. „Við viljum ekki að hlaðvarpið okkar sé væl og kvart og kvein, við teljum okkur vera ágætlega fyndnar og okkur finnst nauðsynlegt að gera grín að okkur sjálfum.“ Ekki festast í tuði eða skömmum Ellefu Andvörp eru farin í loftið og þær segja spjallið yfirleitt vera á frekar persónu- legum nótum. Þær taka fyrir ýmislegt sem tengist ómegðinni, t.d. hvað þurfi að hafa í huga þegar farið er í ferðalög með mörg lítil börn í einu. „Við höfum m.a. fjallað um ófrjó- semi, meðgöngu, fæðingu og brjóstagjöf, en við ætlum líka að taka fyrir skjánotkun og fleira sem tengist eldri börnum. Við fáum líka til okkar viðmælendur í stúdíóið, Anna Stein- sen kom til dæmis og talaði um hvernig eigi að ala upp þrautseigju í börnum, hvenær for- eldrar taka af þeim tækifæri til að þroskast með því að ryðja öllum hindrunum úr vegi. Þá eru foreldrar þroskaþjófar,“ segja þær vin- konurnar sem einnig taka að sér að mæta á fundi eða viðburði og flytja stutt erindi í anda Andvarpsins. „Við erum ekki fagmenn heldur fjöllum um hinn óbærilega hversdag þriggja barna mæðra. Við hvetjum fólk til að vera betra við sjálft sig, ekki skamma sig fyrir að standa sig ekki nógu vel, og foreldra að vera nærgætnari sín á milli, ekki festast í tuði eða skömmum heldur hrósa og hjálpast að. Para- sambandið er eitt af því sem við ætlum að taka fyrir,“ segir Emma og bætir við að það mætti lýsa því sem svo að samband fólks með mörg börn lafi saman á límbandi og þvermóðsku. „Af því það er erfitt að vera foreldri, en ekki af því maður elski ekki maka sinn.“ Krafan um að allt sé skemmtilegt María segir gott að sætta sig við að á meðan hún er með þrjú lítil börn, þá þýði ekk- ert að fara fram úr sjálfri sér. „Með þriðja barni hef ég komist að því að það er ekki hægt að gera allt, sérstaklega ekki í félagslífinu og öllu sem mann langar að gera fyrir sjálfan sig. Það verður að víkja á meðan þetta tímabil gengur yfir.“ Emma bætir við að það sé ekk- ert óeðlilegt að það komi leiðinleg tímabil í líf- inu og að fólk megi stundum vera smá óham- ingjusamt. „Það er svo mikil krafa um að allt sé skemmtilegt og að maður sé alltaf jákvæð- ur og bjartsýnn og að njóta.“ María veltir fyrir sér hvernig þetta var fyrir 100 árum. „Ég held að þá hafi fólk verið minna sjálfhvert og minna upptekið af nútímakröfunni um að setja okkur sjálf í fyrsta sæti. Kannski erum við búin að yfirgreina sjálfið svo mikið að þegar foreldra- hlutverkið bætist ofan á það, þá fer allt í klessu. Í nútímasamfélagi viljum við hafa svo mikla stjórn á öllu og skipuleggja líf okkar í þaula, meðal annars barneignir. Núna eignast flestir börnin eftir þrítugt og þá á allt að vera fullkomið. Ég minni á að sumt er bara af- greiðsla í barnauppeldi lítilla barna, en samt stend ég mig að því að berja sjálfa mig niður fyrir að vera ekki að njóta tímans frá fjögur til átta á kvöldin, á skrímslatíma þegar allir eru þreyttir og svangir. Það er bara ekki hægt, sorrí, maður er bara að henda mat í alla, klippa neglur, skipta um bleiur, baða, bera exemkrem á húð, lúsakemba og garga á mann- inn sinn á meðan,“ segir María og hlær. Við auglýsum eftir feðrum í viðtöl Hægt er að hlusta á Andvarpið á öllum helstu hlaðvarpsveitum, Spotify, SoundCloud, Apple-podcast og Google-hlaðvarpi. „Við erum líka með Facebook-síðuna Andvarpið, þar sem við setjum inn uppörvandi efni til að hjálpa fólki að lifa daginn af. Okkur finnst frábært að heyra í fólki, það er okkar uppáhalds, hvort sem það eru símtöl eða í skilaboðaskjóðu Fés- bókar. Við þiggjum líka ábendingar um við- mælendur eða umfjöllunarefni. Við auglýsum eftir feðrum í heimsókn til okkar og í viðtöl, því reynsla okkar er augljóslega reynsla mæðra, og okkur finnst forvitnilegt að vita hvort þetta eilífa mammviskubit er kvenna- sjúkdómur eða hvort feður eru líka haldnir þessu biti. Ungar konur brenna út bæði í starfi og einkalífi og það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því,“ segja þær stöllur og taka fram að Andvarpið sé aðeins upphafið að glæstum ferli þeirra vinkvennanna. „Andvarp- ið leiðir að stærri hugmynd sem meðal annars felur í sér mánaðarlega viðburði og fyrsti við- burður verður 6. nóvember í hátíðarsal Gróttu á Seltjarnarnesi kl. 20. Við tvær verðum með litla hugvekju í upphafi en guðmóðir And- varpsins, Soffía Bæringsdóttir, ætlar að flytja erindið „Vertu meyr-fyrirhöfn í foreldra- hlutverki“ sem fjallar um að stundum er nóg að standa sig bara 30 prósent í foreldra- hlutverkinu, það sleppur alveg á slæmum dög- um. Þetta verður samkoma fyrir foreldra til að eiga notalega kvöldstund með spjalli og veit- ingum.“ Miðar fást á tix.is. Vinkonur andvarpa yfir eigin ómegð Þær gera grín að eigin bugun sem þriggja barna mæður og segjast ekki skammast sín fyrir að allt sé í drasli heima. María og Emma andvarpa í hlaðvarpi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinkonur Emma og María telja sig vera ágætlega fyndnar og vilja ekkert vol eða væl. Þvottafjall Aldrei næst að vinna á þvottafjalli barnmargra heimila og það er allt í lagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.