Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 32
MIÐNÆTUROPNUN
Í SMÁRALIND
20%
afsláttur*
af öllum
vörum
*ekki af merktri tilboðsvöru
Fríar sjónmælingar
Opið til
24:00
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
New York. AFP. | Bandaríska þing-
konan Elizabeth Warren hefur lofað
að hækka skatta auðmanna, skipta
upp stórum bönkum og tæknirisum
og herða reglur um starfsemi banka
og fleiri fyrirtækja. Loforð hennar
valda fjármálafyrirtækjum og fjár-
festum á Wall Street í New York vax-
andi áhyggjum vegna vísbendinga
um að hún hafi sótt í sig veðrið í bar-
áttunni við keppinauta sína um að
verða forsetaefni demókrata í kosn-
ingunum á næsta ári. Nýleg könnun
bendir til þess að hún sé nú með
meira fylgi en Joe Biden, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, og hafi
þar með náð forystu í baráttunni.
Bandaríski fjárfestirinn og auðkýf-
ingurinn Leon Cooperman er á meðal
þeirra sem hafa gagnrýnt stefnu
Warren og hann spáir því að gengi
hlutabréfa í bandarískum fyrir-
tækjum lækki um 25% verði hún
næsti forseti Bandaríkjanna. „Ég hef
trú á stighækkandi tekjuskatti og
hærri sköttum á auðmenn. En þetta
er ameríski draumurinn sem hún er
að skíta á,“ sagði hann í viðtali við
fréttavef Politico.
Warren svaraði honum um hæl á
Twitter: „Leon, þér tókst að koma
þér vel áfram vegna þeirra tækifæra
sem landið okkar veitti þér. Hvers
vegna leggur þú ekki dálítið meira af
mörkum til að allir aðrir fái líka tæki-
færi til að láta ameríska drauminn
rætast?“
Warren er sjötug, á sæti í öldunga-
deild Bandaríkjaþings fyrir
Massachusetts og hefur einkum verið
þekkt fyrir áralanga baráttu til að
vernda neytendur gegn slæmri hegð-
un banka. Tímaritið Time sagði í
grein árið 2010 að Warren hefði skip-
að sér í flokk með „nýju fógetunum á
Wall Street“ með því að beita sér fyr-
ir strangari reglum um starfsemi
banka sem ollu fjármálakreppunni
árið 2008. Loforð hennar um að herða
reglur um starfsemi banka eru á
meðal áherslumála hennar í barátt-
unni um að verða forsetaefni demó-
krata.
Óttast skattahækkanir
„Fjármálafyrirtæki og fjárfestar á
Wall Street hafa almennt áhyggjur af
stefnu Warren,“ sagði fjármála-
ráðgjafinn Hugh Johnson. „Hún hef-
ur boðað aðgerðir sem fela í sér veru-
leg útgjöld, en hún hefur ekki útskýrt
nægilega hvernig hún ætlar að fjár-
magna þær.“
Johnson skírskotaði m.a. til þess að
Warren hefur lofað að koma á opin-
beru sjúkratryggingakerfi fyrir alla
Bandaríkjamenn og fella niður skuld-
ir vegna sumra námslána. Fjármála-
menn á Wall Street hafa áhyggjur af
því að hækka þurfi skatta til að fjár-
magna aðgerðirnar. „Hækkun skatta
á fyrirtæki verður til þess að tekjur
þeirra minnka,“ sagði Gregori Vol-
okhine, eignasafnsstjóri hjá
Meeschaert Services á Wall Street.
Hann bætti við að hærri skattar á
einstaklinga yrðu til þess að neysla
minnkaði og hagvöxtur drægist
saman.
Boðar auðlegðarskatt
Warren hefur sagt að hún vilji
leggja auðlegðarskatta á „ofur-
auðmenn“. Hún hefur boðað tveggja
prósenta skatt á auð að andvirði 50
milljóna dollara, jafnvirði rúmra 6,2
milljarða króna. Gert hefur verið ráð
fyrir því að 75.000 auðugustu fjöl-
skyldurnar myndu þurfa að greiða
þennan skatt, eða ein á hverjar 1.700
fjölskyldur. Fari auðurinn yfir millj-
arð dala, jafnvirði tæpra 125 millj-
arða króna, hækkar skatturinn um
prósent.
Franski hagfræðingurinn Gabriel
Zucman, sem hefur beitt sér fyrir
auðlegðarskattinum, telur að hann að
færi ríkinu alls 2,75 billjónir dollara á
tíu árum, eða sem svarar 342 billj-
ónum króna.
Andstæðingar Warren hafa sagt
að kosningaloforð hennar myndu
stórauka fjárlagahallann í Bandaríkj-
unum en stuðningsmenn hennar
benda á að hallinn hefur stóraukist í
forsetatíð Donalds Trumps. Fjár-
lagahallinn nam tæpri billjón dollara
á síðasta fjárhagsári og var 400 millj-
örðum dollara (nær 50.000 millj-
örðum króna) meiri en hann var áður
en Trump varð forseti.
Zuckerberg tilbúinn í „stríð“
Warren hefur í hyggju að skipta
upp stórum bönkum, sem hún segir
stefna efnahag landsins í hættu, og
einnig bandarískum tæknirisum.
Mark Zuckerberg, stofnandi Face-
book, kveðst vera tilbúinn að „heyja
stríð“ gegn stjórn Warren verði hún
kjörin næsti forseti Bandaríkjanna,
að því er fram kemur í ummælum
hans sem lekið var í fjölmiðla í byrjun
október.
Bandarísk olíufyrirtæki hafa einn-
ig áhyggjur vegna þess að Warren
hefur lofað að banna svonefnt vökva-
brot eða bergbrot (e. fracking) í olíu-
og gasvinnslu vegna skaðlegra um-
hverfisáhrifa vinnsluaðferðarinnar.
Var repúblikani
Warren er fyrrverandi lagapró-
fessor við Harvard-háskóla og var
fyrst kjörin í öldungadeildina árið
2012. Hún var í Repúblikana-
flokknum á árunum 1991 til 1996 og
kaus repúblikana í mörg ár áður en
hún haslaði sér völl í stjórnmálunum.
Hún segist vera „kapítalisti inn við
beinið“, ólíkt Bernie Sanders, keppi-
naut hennar, sem hefur lýst sér sem
„sósíalista“.
Nokkrir fréttaskýrendur hafa sagt
að Warren kunni að færa sig inn á
miðjuna fari hún með sigur af hólmi í
forkosningum demókrata og verði
forsetaefni þeirra gegn Donald
Trump. Þeir telja einnig að margar af
tillögum hennar séu mjög ólíklegar til
að ná fram að ganga á þinginu vegna
þess að repúblikanar eru í meirihluta
í öldungadeildinni og telja stefnu
hennar of róttæka. Hún myndi þá
þurfa að reyna að finna málamiðl-
unarlausn.
Boðar nýjan skatt á „ofurauðmenn“
Fjármálamenn í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af loforðum Elizabeth Warren Hefur lofað
auðlegðarskatti á auðugustu fjölskyldurnar og hyggst skipta upp stórum bönkum og tæknirisum
AFP
„Kapítalisti inn við beinið“ Elizabeth Warren með stuðningsmönnum í Los
Angeles. Hún er fylgismest forsetaefna demókrata, samkvæmt nýrri könnun.