Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
31. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.51 125.11 124.81
Sterlingspund 159.75 160.53 160.14
Kanadadalur 95.27 95.83 95.55
Dönsk króna 18.459 18.567 18.513
Norsk króna 13.418 13.498 13.458
Sænsk króna 12.775 12.849 12.812
Svissn. franki 125.04 125.74 125.39
Japanskt jen 1.1425 1.1491 1.1458
SDR 171.05 172.07 171.56
Evra 137.91 138.69 138.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.2819
Hrávöruverð
Gull 1492.75 ($/únsa)
Ál 1726.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.61 ($/fatið) Brent
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Stóru viðskiptabankarnir þrír,
Landsbankinn, Arion banki og Ís-
landsbanki, skiluðu samtals rúmum
sex milljörðum króna í hagnað á
þriðja fjórðungi 2019. Íslandsbanki
og Arion banki skiluðu sínum upp-
gjörum í gær eftir lokun markaða, en
Landsbankinn í síðustu viku.
Mesti hagnaður tímabilsins varð
hjá Landsbankanum, eða 3,2 millj-
arðar króna. Næst á eftir kemur Ís-
landsbanki með 2,1 milljarð og Arion
banki hagnast minnst á þriðja árs-
fjórðungi, eða um 761 milljón króna.
Heildareignir bankanna þriggja
námu í lok tímabilsins, sem lauk í lok
september sl., 3.862 milljörðum
króna. Eignir Landsbankans vega
þar þyngst, og námu rúmum 1.415
milljörðum. Næstmestar eignir á Ís-
landsbanki, eða 1.234 milljarða og
Arion banki kemur þar ekki langt á
eftir með 1.213 milljarða í eignir.
Til samanburðar námu eignir
bankanna samtals rúmum 3.610
milljörðum króna í lok árs 2018.
Eigið fé bankanna í lok tímabilsins
nemur samtals 618 milljörðum
króna. Landsbankinn er þar með 244
milljarða, eigið fé Íslandsbanka
nemur 178 milljörðum króna og eigið
fé Arion banka nam í lok þriðja árs-
fjóðrungs 196 milljörðum króna.
Lánabók bankans vaxið
Birna Einarsdóttir bankastjóri Ís-
landsbanka segir í tilkynningu frá
bankanum að á fyrstu níu mánuðum
ársins hafi verið góður vöxtur í þókn-
anatekjum bankans, eða 11%, og
vaxtatekjur hafi aukist um 6,5% frá
sama tímabili í fyrra. Auk þess hafi
lánabók bankans vaxið um 7,4%.
„Neikvæðar virðisbreytingar, sem
meðal annars má rekja til þess að
nokkuð hefur hægt á efnahagslífinu,
hafa þó vissulega dregið úr afkom-
unni og er arðsemi eigin fjár tíma-
bilsins undir markmiðum bankans.
Ánægjulegt er þó að kostnaðarhlut-
fall bankans hefur farið lækkandi á
tímabilinu samanborið við sama tíma
í fyrra.“
Áfram jákvæð merki
Benedikt Gíslason bankastjóri Ar-
ion banka segir í tilkynningu frá
bankanum að áfram séu jákvæð
merki í reglulegri starfsemi Arion
banka. Þar megi nefna vaxtatekjur
og tekjur af tryggingastarfsemi, sem
vaxi á milli ára og arðsemi af áfram-
haldandi starfsemi bankans á þriðja
ársfjórðungi hafi verið 8,5%. „Þrátt
fyrir þessa jákvæðu þróun er afkoma
Arion banka á ársfjórðungnum undir
markmiðum sökum þátta sem bank-
inn hefur þegar gert grein fyrir. Hér
er einkum um að ræða umtalsverðar
niðurfærslur á félögum sem bankinn
er með í söluferli, áframhaldandi
fjárfestingu í alþjóðlegri starfsemi
Valitors og gjaldfærslu kostnaðar
vegna skipulagsbreytinga.“
Fjárhagsstyrkur bankans er
áfram mikill og lausafjárhlutföll
sterk. Því fylgja margir kostir og
höfum við ákveðið að ráðast í endur-
kaupaáætlun á eigin hlutabréfum að
fjárhæð 4,5 milljarða króna, sem
hefst 31. október, í samræmi við
markmið bankans um lækkun á eigin
fé. Sterk lausafjárstaða í bæði krón-
um og erlendum myntum þýðir jafn-
framt að bankinn er í kjörstöðu til að
þjóna viðskiptavinum sínum en einn-
ig til að huga að endurkaupum á
eldri og óhagstæðari heildsölufjár-
mögnun.
Bankar hagnast um 6 ma.
Hagnaður Stóru bankarnir skiluðu rúmum sex milljörðum kr. í hagnað.
Heildareignir bankanna 3.862 milljarðar Eigið fé nemur 618 milljörðum
● Icelandair hækkaði mest allra félaga
í Kauphöll Íslands í gær eða um 4,07% í
141 milljónar króna viðskiptum. Stendur
gengið félagsins núna í 6,65 krónum
hver hlutur. Næstmesta hækkun gær-
dagsins varð á bréfum Sýnar, eða um
2,39% í 271 milljónar króna viðskiptum.
Þá hækkaði Arion banki um 1,95% í
299 milljón króna viðskiptum.
Nokkur félög lækkuðu í verði í kaup-
höllinni í gær. Sjávarútvegsfyrirtækið
Brim lækkaði þannig um 1,76% í 179
milljóna króna viðskiptum og Síminn
lækkaði einnig, eða um 0,65% í enn
meiri viðskiptum, eða 347 milljóna
króna viðskiptum. Þriðja mesta lækkun
gærdagsins varð síðan á bréfum trygg-
ingafélagsins VÍS, en bréf fyrirtækisins
lækkuðu um 0,48% í 39 milljóna króna
viðskiptum.
Icelandair hækkaði
mest allra
STUTT