Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 64
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þriðja breiðskífa Grísalappalísu, Týnda rásin, kemur út á morgun, plata sem hefur verið býsna lengi í vinnslu, allt frá árinu 2016. Hún hefur að geyma 15 lög og segja má að kveði við nýjan tón hjá sveitinni sem mun vera að leggja upp laup- ana. Það staðfestir Gunnar Ragn- arsson, einn stofnenda hljómsveit- arinnar og forsprakki. „Hún er öll, blessunin,“ segir hann um Grísa- lappalísu sem dregur nafn sitt af lagi eftir Megas. Fyrst á þó að halda tónleika á Iceland Airwaves, 9. nóvember, og vonandi verður lokahnykkur eftir áramót, að sögn Gunnars. Grísalappalísa hefur verið með líflegri tónleikasveitum landsins allt frá því Gunnar og félagi hans, Baldur Baldursson, stofnuðu hana árið 2012. Hefur Gunnar farið mik- inn á sviði, líkt og andsetið af- kvæmi Franks ’N Furter. Fæddur „front-maður“ þar á ferð sem lík- lega fer best á að kalla forystu- sauð. Auk þeirra hafa verið í sveit- inni Bergur Thomas Anderson á bassa, Rúnar Örn Marinósson á trommur og gítar, Tumi Árnason á saxófón, Albert Finnbogason gítar- leikari og trymbillinn Sigurður Möller Sívertsen. Flókið og margþætt En hvað veldur andláti hinnar ágengu Grísalappalísu? „Það er náttúrlega flókið og margþætt en Týnda rásin lýsir þessu kannski ágætlega,umfjöllunarefnin og ferl- ið,“ svarar Gunnar. „Við erum búnir að vera óaktífir í kannski þrjú, fjögur ár, bara spilað nokkr- um sinnum á ári. Við náðum núna að gefa út plötuna en það er margt að breytast hjá okkur í lífinu, okk- ar einkamál og ég hef sjálfur verið í uppgjöri. Maður er að reyna að breyta ýmsu og það er bara komið nóg. Við erum sjö einstaklingar á krossgötum.“ Gunnar segir það krefjast mik- illar ástríðu og skuldbindingar að vera í hljómsveit. Ef slíkt sé ekki fyrir hendi sé betra að hætta bara. Útsending út í tómið Í tilkynningu vegna útgáfu plöt- unnar kemur margt áhugavert fram og segir þar m.a.: „Týnda rásin er bylgjulengdin sem enginn stillir á, útvarpsstöðin er falin á tíðni sem þú nærð ekki sambandi við, útsending út í tómið. Hún er bergmálshellir. Týnda rásin er braut sem þú villist á og hverfur niður, ef til vill að einhverju leyti af eigin ásetningi. Hún er myndlík- ing fyrir þunglyndi og einangrun, að vera á skjön. Að upplifa að þú sért misheppnaður, opinberunin að þú verðir aldrei rokkstjarna.“ Gunnar er spurður út í loka- orðin, opinberunina um að verða aldrei rokkstjarna. Opinberaðist það honum? Hann hlær við. „Ég er alinn upp í þessu, þessi brostni draumur mótaði mig svolítið, að vera hent inn í þessa atburðarás svona ungur,“ svarar Gunnar sem áður var í hljómsveitinni Jakobínu- rínu. Hann segir Grísalappalísu að vissu leyti drifna áfram af hans egói. „Þetta var svolítið frústrer- andi fyrir mig á tímabili því Grísa- lappalísa var mitt helsta tjáningar- form og staðurinn þar sem ég fékk að blómstra. Ég var oft frústrer- aður yfir því að hljómsveitarbræð- ur mínir væru víðs vegar um heim- inn og að eitthvað ákveðið væri ekki að gerast sem ég vildi að myndi gerast. Þegar við byrjum að búa til þessa þriðju plötu gerir mikil minnimáttarkennd vart við sig og erfiðleikar við að semja plötuna og klára. Ég átti mjög erfitt með að glíma við það.“ Leiðangur inn í tóm Ljósmyndin sem prýðir umslag plötunnar er áhugaverð, svarthvít og grófgerð af Gunnari í einhvers konar regnslá eða poncho. Sigurður, trommari sveitarinnar, er líka kvikmyndagerðarmaður og fékk að stýra sjónrænni hlið útgáf- unnar. Hann valdi myndina úr hópi margra sem hann tók af Gunnari. „Þetta er maðurinn í frosti, maður sem er fastur,“ segir Gunnar um myndina. Sögumenn plötunnar séu enda meira eða minna fastir, með einum eða öðr- um hætti. Gunnar segir myndina líka gefa til kynna einhvers konar innra ferðalag, leiðangur inn í tóm eða sjálfshyggju. Taugaáfall í Bónus Lög plötunnar voru ekki samin og mótuð sameiginlega af hljóm- sveitinni í æfingarrými, líkt og fyrri plöturnar tvær, Ali og Rök- rétt framhald. Liðsmenn Grísa- lappalísu lögðu grunninn að lög- unum á ólíkum stöðum í heiminum, m.a. í Kópavogi, Berlín, New York, Sarajevo og Amsterdam og fyrir vikið er hún tilraunakenndari en þær fyrri og persónulegri þegar kemur að textum, að sögn Gunn- ars. „Eina stundina ertu í leðurjakka með sígarettu í munnvikinu og hina stendurðu á flíspeysu í snjón- um með sjö bónuspoka, edrú og kominn í hugleiðslunámskeið,“ eins og segir svo skemmtilega í tilkynn- ingu og í einu laganna æpir Baldur í sífellu: „Ég fékk taugaáfall í Bón- us!“. Enda er oft þungt yfir sögu- manni á plötunni, þó alltaf sé stutt í svartan húmor, eins og sjá má í þessu textabroti úr sama lagi: „Aftast í röðinni örtröðinni/hvort kom bölið á undan kvölinni/hvað var ég að pæla?/að mæta í miðri hádegistörninni.“ Hart og mjúkt Blaðamaður nefnir að Týnda rásin virðist meiri konseptplata en fyrri plötur sveitarinnar, að henn- ar verði að njóta frá upphafi til enda. Gunnar segir fleiri hafa upp- lifað hana með þeim hætti og í raun sé merkilegt að platan hafi smollið saman, í ljósi vinnuferlisins fyrrnefnda. En hefur tónlistin breyst mikið? Voru liðsmenn afslappaðri eða frjálsari gagnvart henni? „Bandið var ekki allt saman að semja grunnana og það hefur kannski ýtt undir enn meira grín og skeyting- arleysi,“ svarar Gunnar. Eitt af einkennum sveitarinnar frá upp- hafi hafi verið að flakka milli stíla og á plötunni nýju má m.a. heyra „skíta-kántrí“, eins og Gunnar kallar það. Á henni má einnig finna harðasta lag sveitarinnar til þessa, „Meðaljón“, að sögn Gunn- ars, „skrítið, hardcore lag“ en líka mörg mjúk lög. Breiddin er meiri en á fyrri skífum, sumsé. Enn að skilgreina sig Gunnar hefur stundað nám í kvikmyndafræðum og segist aðeins eiga eftir að skrifa BA-ritgerðina. „Þetta er langur námsferill,“ segir hann hlæjandi. Hvað framtíðina varðar segist hann ætla að halda áfram að troða upp sem söngvari. Gunnar hefur líka spreytt sig sem leikari og segist ennþá vera að skilgreina sig sem „performer“. „Ég hef líka verið í dansverkum,“ bætir hann við og vonar að á næstu árum geti hann unnið að skemmtilegum verkefnum og um leið átt fyrir salti í grautinn. Í tilefni af útgáfu Týndu rásar- innar verður haldið hóf á morgun í verslun útgefanda, Reykjavík Re- cord Shop á Klapparstíg, milli kl. 18 og 20. Boðið verður upp á léttar veitingar og að sjálfsögðu verður platan til sölu. Að lokum ber að minnast á tón- listarmyndband við lagið „Þrjú- hundruðsextíuogfimmdagablús (sjáðu hjónin)“ sem frumsýnt var í gær, 30. október. Því leikstýrði Sigurður Möller Sívertsen, tromm- ari sveitarinnar, kvikmyndargerð- armaður og plötuumslagshönnuð- ur. Útgáfutónleikar verða svo auglýstir síðar. H́var er draumurinn?  Grísalappalísa gefur út Týndu rásina og leggur brátt upp laupana  Kemur þó fyrst fram á Ice- land Airwaves og lokahnykkur er líklegur á næsta ári  Myndlíking fyrir þunglyndi og einangrun Á krossgötum Gunnar horfir út í tómið á umslagi plötunnar. Hann segir liðsmenn Grísalappalísu á krossgötum. 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Ármúla 24 • S. 585 2800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.