Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ýmsir harð-stjórar oghrottar hafa vaðið uppi með yfir- gangi og ofsóknum í aldanna rás og gera enn, en fáir hafa sýnt jafn mikla grimmd og hryðjuverka- samtökin Ríki íslams. Þar sem samtökin hafa náð völdum hefur stjórnarfarið verið hrottafengið og grimmilegt. Liðsmenn Ríkis íslams hafa sett strangar reglur og fylgt þeim eftir af fullkomnu mis- kunnarleysi. Refsingar hafa verið harðar. Reykingar kosta hýðingar og fjöldaaftökur á al- mannafæri voru daglegur við- burður. Þar sem Ríki íslams hefur náð yfirráðum hafa allir búið við ógn en hlutskipti þeirra sem til- heyra öðrum trúarbrögðum en íslam hefur verið sérstaklega slæmt. Nokkuð hefur verið fjallað um örlög jasída í Írak og í fyrra hlaut Nadia Murad friðar- verðlaun Nóbels ásamt kon- góska lækninum Denis Muk- wege. Murad er jasídi. Liðsmenn Ríkis íslams rændu henni 2014 og héldu henni fanginni í þrjú ár. Henni var nauðgað og á ein- um og sama deginum myrtu þeir móður hennar og sex bræð- ur. Þessa dagana er Majed El Shafie frá Egyptalandi staddur á Íslandi. Shafie var handtekinn þegar hann var tvítugur fyrir að hafa snúist frá íslam til kristni og pyntaður og dæmdur til dauða. Í grein hér í opnunni lýsir hann því hvernig hann var hengdur upp á fótum, ítrekað kaf- færður í heitu og köldu vatni, brenndur með síg- arettum og kross- festur. Shafie berst gegn trúarofsóknum og stofnaði samtökin One Free World International í þágu málstað- arins. Fyrr í vikunni var sagt frá fundi hans með forsetahjón- unum á Bessastöðum og var einnig á dagskrá hans að hitta utanríkisráðherra, utanríkis- málanefnd og biskup Íslands. Samtökin hafa lagt sérstaka áherslu á að bjarga stúlkum úr röðum jasída úr kynlífsánauð í höndum Ríkis íslams í Írak og Sýrlandi. Ríki íslams er nú á undan- haldi. Um helgina tilkynntu Bandaríkjamenn að leiðtogi þess, Abu Bakr al-Baghdadi, væri fallinn. Hann hefði sprengt sig í loft upp þegar hann hefði séð að hann ætti ekki und- ankomu auðið undan bandarísk- um hermönnum. Þar með er ekki sagt að Ríki íslams sé úr sögunni, en án efa er tækifæri til þess að láta kné fylgja kviði eftir fall leiðtogans. Barátta Shafies á stuðning skilinn. Enginn á að sæta of- sóknum vegna trúarskoðana. Í þeim efnum er vert að hafa í huga niðurlag greinar Shafies. Hann segir að sagan hafi sýnt að heimurinn geti verið myrkur og ósanngjarn, ekki vegna hins illa, heldur vegna þess að álengdar sitji fólk þögult hjá. Majed El Shafie hefur lagt sérstaka áherslu á að bjarga stúlkum úr röðum jasída frá Ríki íslams} Gegn trúarofsóknum Boris Johnsonhefur lipurt og liðugt málfar og orð hans grípa því og gleymast síður. En það gerir auð- veldara að herma upp á hann ummælin sem slógu í gegn. Þegar hann tók við í júlí sagði hann að úr ESB yrði farið 31. október, sem er í dag. Þetta snýst um „do or die,“ sagði for- sætisráðherrann. Duga eða drepast. „No ifs, ands or buts,“ bætti hann við. Nokkrir félagar hans í Íhaldsflokknum, sem löngum sýna að þeir eru tengdir ESB sterkari böndum en fósturjörð- inni, tóku höndum saman við stjórnarandstöðuna og settu í lög að forsætisráðherrann yrði skuldbundinn til að skrifa búrókrötum í Brussel bein- ingabréf um einn frestinn til ef hann næði ekki „útgöngusamn- ingi“ við þá eða næði samningi sem andstæðingunum þætti ekki nógu góður, þ.e. fyrir ESB! Fyrr skal ég liggja dauður í moldarhrauk, ans- aði Boris, og því gleyma menn ekki heldur. En eftir að andstæðingarnir misnotuðu dómstólana, athygl- issjúkan þingforseta og allt annað sem nýta mátti neyddist forsætisráðherrann til að senda slíkt bréf og frestur var enn veittur og nú til loka janúar á næsta ári. En það merkilega er að almenningur notar ekki allar þessar minnisstæðu yfirlýs- ingar gegn honum. Fólkið hef- ur fylgst með því hverjir það voru sem lögðu steina í götu hans og þess og gerðu allt sem sem þeir máttu og máttu ekki til að koma í veg fyrir að þjóð- arvilji næði fram að ganga. Og í öllu andstreyminu náði Boris Johnson fram í fjórðu tilraun sinni á fáum dögum að knýja fram kosningar 12. desember. Það gefur von, þótt fátt sé í hendi. Kannski eru loks að verða kaflaskil í Bretlandi} Enda aðrir úti í skurði? M enntunartækifæri barna og ungmenna og aðgengi þeirra að íþrótta- og tómstunda- starfi hefur áhrif á ákvarð- anir foreldra um búferla- flutninga frá smærri byggðarlögum. Þetta sýna niðurstöður könnunar Byggðastofn- unar sem í vor kannaði viðhorf íbúa í 56 byggðakjörnum utan stærstu þéttbýlisstaða landsins. Alls bárust svör frá rúmlega 5.600 þátttakendum sem allir búa í byggða- kjörnum með færri en 2.000 íbúa. Könnunin beindist meðal annars að áformum íbúa um framtíðarbúsetu. Þau sem höfðu í hyggju að flytja á brott á næstu 2-3 árum voru spurð um ástæður þeirra fyrir- ætlana og gátu svarendur merkt við fleiri en eitt atriði. Athygli vekur að fjölskyldufólk með börn undir 18 ára aldri merkti flest við valmögu- leikann „Tækifæri barns til menntunar“, eða 58% þeirra þátttakenda. Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að menntasókn hefur áhrif á búferlaflutninga mun fleiri aðila en þeirra einstaklinga sem ætla að sækja sér menntun. Menntatækifæri hafa margfeldisáhrif, ekki síst fyrir smærri samfélög. Það er því mikið í húfi fyrir öll sveitarfélög að forgangsraða í þágu mennt- unar. Það felast verðmæti í því fyrir okkur öll að landið allt sé í blómlegri byggð og það er stefna þessarar rík- isstjórnar að landsmenn eigi að hafa jafnan aðgang að þjónustu, atvinnutækifærum og lífskjörum. Áherslur í þeim efnum má finna í byggðaáætlun 2018-2024 en þar er meðal annars fjallað um eflingu rannsókna og vís- indastarfsemi, hagnýtingu upplýsingatækni til háskólanáms og aukið samstarf á sviði mennta-, heilbrigðis- og félagsmála. Það er mikilvægt að allir hafi jöfn tæki- færi til menntunar og geti fundið nám við sitt hæfi. Við viljum tryggja öllum börnum og ungmennum slík tækifæri og er það eitt leiðarljósa við gerð nýrrar menntastefnu fyrir Ísland til ársins 2030. Markmiðið er skýrt; íslenskt menntakerfi á að vera fram- úrskarandi og byggja undir samkeppnis- hæfni hagkerfisins til langrar framtíðar. Síðasta vetur héldum við 23 fræðslu- og umræðufundi um land allt, sem lið í mótun nýju menntastefnunnar, m.a. með fulltrúum sveitarfélaga og skólasamfélagsins. Tæplega 1.500 þátttakendur mættu á fundina og sköpuðust þar góðar og gagn- rýnar umræður um mennta- og samfélagsmál. Niður- stöður þessara funda eru okkur dýrmætar í þeirri vinnu sem nú stendur yfir en af þeim má skýrt greina að vilji er til góðra verka og aukins samstarfs um upp- byggingu á sviði menntunar um allt land. Lilja Alfreðsdóttir Pistill Eflum menntun á landsbyggðinni Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Átta þingmenn úr þrem-ur flokkum hafa endur-flutt á Alþingi frumvarpum frystingu olíuleitar við Ísland, sem er hugsað sem lið- ur í að sporna við alvarlegum áhrifum loftslagsbreytinga. Ef það verður samþykkt sem lög yrði ekki heimilt að gefa út leyfi til olíuleitar eða vinnslu kolvetnis á Drekasvæð- inu milli Íslands og Jan Mayen um fyrirsjáanlega framtíð. Í frumvarpi Andrésar Inga Jónssonar, sem er fyrsti flutnings- maður, og sjö annarra þingmanna VG, Samfylkingar og Pírata, er lagt til að umsóknir um leyfi til leitar að kolefni og leyfi til rann- sókna og vinnslu kolvetnis verði ekki teknar til afgreiðslu nema uppsöfnun koldíoxíðs hafi mælst undir 350 ppm að meðaltali hvern undangenginna tólf mánaða. ,,Verði frumvarpið að lögum munu stjórnvöld því ekki taka til af- greiðslu slíkar umsóknir nema sig- ur hafi unnist í baráttunni gegn loftslagsbreytingum af mannavöld- um. Með því mundi Ísland skipa sér með skýrum hætti í hóp þeirra ríkja sem líta á vinnslu kolvetnis sem arf fortíðar,“ segir í grein- argerð. Síðustu leyfi til olíuleitar voru gefin út árið 2013 og frá þeim tíma hefur öllum slíkum leyf- um verið skilað inn en hugmyndir um olíuleit og vinnslu á íslenska landgrunninu hafa þó ekki verið slegnar út af borðinu. Orkustofnun bendir á ýmis álitaefni sem hafa verði í huga í umsögn við frum- varpið. Í Parísarsamkomulaginu séu t.d. hvergi gerðar kröfur um takmörkun á vinnslu olíu og gass. Allar aðgerðir þar beinist að því að takmarka notkun kolefnis sem orkugjafa og þar með eftirspurnina eftir því. „Ein fljótvirkasta aðgerðin til þess að minnka kolefnisfótspor er að draga sem fyrst úr kola- brennslu, þannig að tímabundið komi brennsla olíu og gass í stað- inn. Ef framboð á olíu og gasi er takmarkað þá hækkar verðið á því óhjákvæmilega miðað við kolin og þessi aðgerð verður því beinlínis hamlandi fyrir minnkun kolefnis- fótspors á yfirgangstímabilinu í næstu framtíð,“ segir í umsögn- inni. ,,Ef lýðræðisríki eins og Ís- land og Noregur takmarka vinnslu á olíu og gasi er tekin pólitísk áhætta þegar markaðurinn er í meira mæli eftirlátinn löndum þar sem lýðræði og mannréttindi eru langt frá okkar viðmiðum um það hvað er ásættanlegt,“ segir þar ennfremur. „Þessi umræða er ekki að koma upp í fyrsta skipti núna og þetta hefur verið rætt bæði á okk- ar vettvangi og annarra, bæði hinn siðferðilegi grundvöllur og hvernig þetta rýmar saman við stefnumið í loftslagsmálum. Okkur þótti nauð- synlegt að halda þessum umræðu- punktum á lofti svo umræðan yrði ekki of einhliða,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri í sam- tali við Morgunblaðið. Með þessu frumvarpi sé verið tala um að loka fyrir olíu- og gasvinnslu við Ísland. Bendir Guðni á að hluti af núver- andi stjórnarsamkomulagi í Noregi sé að skilja umrætt svæði eftir þeim megin frá en ef það opnist þá breytist forsendurnar. ,,Það er bú- in að gera miklar rannsóknir þarna og mikið af gögnum liggur fyrir. Ef gerðar yrðu einhverjar til- raunaboranir, hvort sem það yrði Noregsmegin eða Íslandsmegin, þá myndi það auka mjög gildi og við- mið þessara rannsókna og gagna sem liggja fyrir.“ Álitamál ef útiloka á olíuleit á Drekasvæði AP Norskur olíuborpallur Ef Norðmenn hefja vinnslu á samningssvæðinu Nor- egsmegin eiga Íslendingar rétt á að ganga inn í verkefnið með 25 % hlut. Orkustofnun bendir á að lagafrumvarp þingmannanna taki ekki á gagnkvæmum réttindum Ís- lendinga gagn- vart Norð- mönnum á Drekasvæðinu. Ef Norðmenn hefji vinnslu á samningssvæðinu Noregsmegin eigi Íslendingar í dag rétt á að ganga inn í verkefnið með 25% hlut. ,,Ef frumvarpið yrði samþykkt eins og það er væri hægt að túlka lögin þannig að við værum að kasta frá okkur möguleika á hlutdeild í þeim verkefnum sem við ættum rétt á,“ segir Guðni A. Jóhannesson. ,,Samningarnir við Norðmenn eru þannig að ef til þess kæmi gætu það orðið gríðarleg verð- mæti sem við værum að kasta frá okkur. Menn þurfa að taka af- stöðu til þess líka.“ Kasta verð- mætum? GAGNKVÆM RÉTTINDI Guðni A. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.