Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Árið 1984 gaf GuðrúnHelgadóttir okkur orðið„unglingaveiki“. Rúmumþrjátíu árum síðar ákvað
annar hafnfirskur höfundur að
skoða málið frá hlið unglingsins.
Bæði Jón Oddur og Jón Bjarni og
Mamma klikk! teljast til ástsæl-
ustu barnabóka okkar, sem bendir
til að það séu að minnsta kosti
tvær hliðar á málunum.
Í bókinni leikur Gunnar Helga-
son sér með tvær frásagnarbrellur
sem forvitnilegt er að skoða hvern-
ig reiðir af í sviðssetningu. Annarri
þeirra er reyndar nánast vonlaust
að koma til skila: að draga lesand-
ann á því hvað „amar að“ Stellu.
Þó að lesandann sem hér skrifar
hafi snemma rennt í grun hvernig
í pottinn var búið er því ekki sleg-
ið föstu fyrr en undir lokin. Það er
mjög smekklega unnið með þetta
atriði í sýningunni, þó að auðvitað
sé engin leið fær önnur en að sýna
okkur Stellu í sínum eðlilegu að-
stæðum frá fyrstu stund. Það er
líka umhugsunarvert að átta sig á
því hvað það kemur lítið að sök.
Brellan í bókinni var bara það:
brella. Það eru persónurnar og
sagan sem skiptir máli.
Hin brellan er svolítið annað
mál, að sumu leyti kjarni bókar-
innar og helsta viðfangsefni: upp-
lifun Stellu, sem er að byrja að
hætta að vera barn, af hinni klikk-
uðu, ofvirku skalasyngjandi óperu-
mömmu. Hvernig það er hin þrett-
án ára Stella sem hefur breyst, og
er að breytast, en ekki mamman.
Á sviði, allavega í túlkun þessarar
uppfærslu, er alveg morgunljóst að
Stella er síst að mikla fyrir sér
„ágalla“ mömmu sinnar. En hitt
fer heldur ekki á milli mála að hún
hefur alltaf verið svona og má alls
ekki öðruvísi vera. Og aftur: þetta
kemur síður en svo að sök. Leik-
gerðin er ágætlega unnin, mögu-
lega samt full-upptekin af að halda
sem mestu til haga úr bókinni.
Eitt sem ekki er vel leyst er
hvernig spennan í vinkvenna-
sambandinu vegna svika vinanna
við Stellu snemma í verkinu er
byggð upp. Það er pínu óreiða á
því hvenær allt er fallið í ljúfa löð.
Hinu skilar leikgerðin, og sviðsetn-
ingin svikalaust: hvað þetta er
ógurlega skemmtilegt lið. Og eins
og Stella óskar sér í fallega laginu
sínu: afskaplega venjulegt – en
samt spes.
Kannski aðeins meira spes en
venjulegt. Hús-stíll Gaflaraleik-
hússins einkennist af krafti, gleði,
litum og uppstyttulausu fjöri og
ættarsvipur Mömmu klikk! er
alveg skýr hvað það varðar. Þetta
birtist bæði í því hvernig sýningin
brunar frá einni stemmingunni í
aðra, nostursamlegri vinnu við litla
brandara sem síðan er miðlað af
algerri sannfæringu af öllum í leik-
hópnum. Einnig í útlitinu, þar sem
litagleði í búningum Bjarkar Jak-
obsdóttur og hárkollur á mörkum
smekkvísinnar gefa tóninn og leik-
mynd Stígs Steinþórssonar sem
býr til feikilegt athafnarými en
lumar líka á vel útfærðum leyndar-
málum, gott ef ekki heilu tréhúsi.
Enginn kvartmílubíll samt. Lýsing
Freys Vilhjálmssonar skilar sínu
stóra hlutverki með sóma og þó að
titillag Halls Ingólfssonar sé ekki
ýkja áheyrilegt er hitt frumsamda
lagið flott og útfærslan á tónlist-
inni úr Carmen stórskemmtileg.
Björk hefur úr leikstjórastólnum
tekist einstaklega vel að stilla sam-
an leikhópinn, sem er eðli máls
samkvæmt á ólíkum aldurs- og
listþroskaskeiðum. Hér eru allir að
spila í sama liði, frá reynslubolt-
anum Gunnari Helgasyni sem nýt-
ur sín í hlutverki pabbans og
ýmsum smárullum, niður í sjarma-
tröllið og senuþjófinn Auðun Sölva
Hugason sem þreytir með glæsi-
brag frumraun sína í atvinnu-
leikhúsi sem Siggi sítróna, hinn
tunguhefti bróðir Stellu.
Gríma Valsdóttir skilar aðal-
hlutverkinu ákaflega vel. Fyrir
utan líkamlegar áskoranir hlut-
verksins er það vandasamt fyrir
það hvað Stella þarf að dvelja
lengi og oft í hneykslunar- og
sjálfsvorkunnarstemmingunni sem
öll sagan gengur út á, en Grímu
tókst engu að síður að gera Stellu
okkur nákomna. Það er síðan engu
líkara en titilhlutverkið hafi verið
skrifað með Valgerði Guðnadóttur
í huga, sem er eins og syngjandi
stormsveipur með bros, kraft og
trúðsglampa í auga. Ásgrímur
Gunnarsson var sannfærandi og
fyndinn, bæði í sínu aðalhlutverki
sem Palli bróðir, og öðrum. Það
sama má segja um bæði Þórunni
Lárusdóttur sem ömmu snobb og
Felix Bergsson í hlutverki Hanna
granna, en bæði taka þau á sig
ýmis gervi.
Eitt af því sem leikgerðin nær
ekki að skila fyllilega er persónur
vinahópsins hennar Stellu. Mögu-
lega vegna þess að í bókinni kynn-
umst við þeim aðallega í lýsingu
hennar á þeim, frekar en þær eigi
sér fyllilega sjálfstætt líf í sögunni
og það hefur einfaldlega ekki
gefist pláss til að dýpka myndina.
Engu að síður er ekkert við
frammistöðu þeirra Öglu Bríetar
Einarsdóttur, Veru Stefánsdóttur,
Theu Snæfríðar Kristjánsdóttur og
Matthíasar Davíðs Matthíassonar
að athuga og sá síðastnefndi náði
að fara á kostum í smáhlutverki
fermingardrengs í heiftarlegum
mútum.
Mamma klikk! flytur mikilvægan
boðskap um umburðarlyndi og
samheldni, um virðingu og vináttu.
Það slær heitt hjarta í bókinni og
það slær hratt og taktfast í þessari
stórskemmtilegu og brosmildu
sýningu.
En samt spes
Heitt hjarta „Mamma klikk! flytur mikilvægan boðskap um umburðarlyndi og samheldni, um virðingu og vináttu.
Það slær heitt hjarta í bókinni og það slær hratt og taktfast í þessari stórskemmtilegu og brosmildu sýningu.“
Gaflaraleikhúsið
Mamma klikk! bbbbn
Eftir Gunnar Helgason í leikgerð Bjarkar
Jakobsdóttur. Leikstjórn: Björk Jakobs-
dóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Búningar: Björk Jakobsdóttir. Lýsing:
Freyr Vilhjálmsson. Sviðshreyfingar:
Björk Jakobsdóttir. Frumsamin tónlist og
tónlistarhönnun: Hallur Ingólfsson.
Lagatextar: Hallur Ingólfsson, Þorsteinn
Valdimarsson og Hjörleifur Hjartarson.
Hljóðblöndun: Kristinn Gauti Einarsson.
Leikgervi: Björk Jakobsdóttir. Klipping
og hönnun á vídeóefni: Björk Jakobs-
dóttir og Vignir Daði Valtýsson. Leikarar:
Gríma Valsdóttir, Valgerður Guðnadóttir,
Auðunn Sölvi Hugason, Ásgrímur Gunn-
arsson, Gunnar Helgason, Þórunn Lárus-
dóttir, Felix Bergsson, Matthías Davíð
Matthíasson, Agla Bríet Einarsdóttir,
Vera Stefánsdóttir og Thea Snæfríður
Kristjánsdóttir. Frumsýning í Gaflaraleik-
húsinu laugardaginn 19. október 2019,
en rýnt í þriðju sýningu sunnudaginn 27.
október 2019.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Ljósmynd/Ólafur Þórisson
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
Einarsson, sem notar listamanns-
nafnið Ásgeir, hefur sent frá sér nýtt
lag, „Bernskuna“, sem verður á vænt-
anlegri plötu hans Sátt sem kemur út
7. febrúar og verður fyrsta platan sem
Ásgeir gefur út í samstarfi við íslenska
útgáfufyrirtækið Record Records.
Auk þess að gefa út nýtt lag hefur
Ásgeir tilkynnt um tónleikaferð sína
um Evrópu og Bandaríkin og tónleika í
Háskólabíói laugardaginn 1. febrúar
2020, en miðasala á þá hefst á morgun
kl. 10. Tónleikarnir í Háskólabíói verða
þeir fyrstu í tveggja mánaða tónleika-
ferð Ásgeirs um Evrópu og Norður-
Ameríku.
„Á nýrri plötu snýr Ásgeir aftur
með íslenskt efni en öll platan verður
fáanleg bæði á íslensku og ensku. Á Ís-
landi kemur platan út undir nafninu
Sátt en enska útgáfa plötunnar ber tit-
ilinn Bury The Moon. Það er One
Little Indian sem líkt og áður gefur út
tónlist Ásgeirs utan Íslands,“ segir í
tilkynningu.
Lagið „Bernskan“ var samið fyrst
án texta en Ásgeir ákvað síðar með
föður sínum, Einari Georg Einarssyni,
hvert innihald textans ætti að vera.
Textinn fjallar um það tímabil í æsku
Ásgeirs er hann bjó í Garðinum ásamt
fjölskyldu sinni, fullur af gleði og víðs-
fjarri öllum áhyggjum, eins og segir í
tilkynningu.
Um plötuna Sátt segir að hún sé
uppgjör Ásgeirs við langtímasamband
sem leið undir lok en í kjölfarið ákvað
hann að fara út á land þar sem hann
eyddi nokkrum vikum aleinn við að
semja nýtt efni. „Ég tók með mér gít-
ar, hljómborð og lítið upptökutæki, það
var allt og sumt,“ rifjar Ásgeir upp og
að hann hafi fengið senda matarpakka
frá vinum og vandamönnum. „Mig hef-
ur alltaf langað til að gera þetta. Fara í
burtu á eigin vegum að semja tónlist.
Ég held að það hafi verið mjög hollt
fyrir mig að hafa ekkert fyrir stafni
annað en tónlist, enga truflun. Ég fór
út að hlaupa á morgnana og eyddi síð-
an því sem eftir lifði dags við að semja
lög,“ er haft eftir honum.
Myndband við lagið „Bernskan“
hefur nú verið gefið út og má sjá það á
mbl.is í frétt um útgáfuna í dálkinum
Fólk.
Uppgjör Ásgeirs við
langtímasamband
Sátt Umslag hljómplötu Ásgeirs.