Morgunblaðið - 31.10.2019, Page 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Verslun Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | Sími 588 0488 | feldur.is
Hlýjar og
fallegar
úlpur
Bubbi Morthens talar ekkií kringum hlutina ífjórðu ljóðabók sinniVelkomin. Bókin er beitt
og áleitin og tekst á við eitt
stærsta deilumál síðustu ára; við-
mót samfélagsins gagnvart fólki á
flótta. Ljóðin draga fram óhugn-
anlega og raunsæja mynd af
hryllingi styrj-
alda, en fyrst og
fremst hryllingi
þess að vera
umkomulaus,
úrræðalaus, að
vera hvergi vel-
komin.
Á tíðum er
bókin nokkuð
óþægileg í lestri
og hefur það líklegast verið
ætlunarverk höfundar. Það er
óþægilegt að lesa um börn sem
fæðast í skugga styrjaldar, um
foreldra sem hætta lífinu til að
sigla yfir Miðjarðarhafið á
gúmmíbát því það er betri kostur
en að vera um kyrrt í stríðshrjáðu
landi. Það er ekki síður óþægilegt
að neyðast til að horfast í augu
við eigið aðgerðarleysi. Hve gott
maður hefur það í eigin nær-
umhverfi á meðan þúsundir dvelja
í tjaldbúðum fyrir utan borgir
sem vilja horfa framhjá vanda-
málinu.
Ljóðin vekja samúð á sama
tíma og þau valda samviskubiti.
Þau vekja ýmsar spurningar um
það samfélag sem við búum í. Er
það ófært um að sýna kærleika,
miskunnsemi með þeim sem fara
ekki fram á neitt nema lífið? Er
það orðið svo heltekið af glans-
myndum í netheimum að við
hundsum umheiminn?
Verðugt tilefni til sjálfsrýni
Ljóðin eru mörg afar pólitísk og á
köflum gagnrýnin á stjórnvöld.
Það skyggði að nokkru leyti á
þann hluta bókarinnar sem sneri
frekar að mannlegu eðli og tilfinn-
ingum. Þetta sambland af ádeilu á
yfirvöld annars vegar og mennsku
og ómennsku hins vegar virkaði á
köflum kaótískt. Að vissu leyti má
segja að það dragi úr trúverðug-
leika bókarinnar. Ljóð sem varpa
áhugaverðu ljósi á sammannlegar
eðlishvatir verða skyndilega um-
deilanleg, mennskan verður um-
deilanleg. Það dregur nokkuð úr
áhrifum bókarinnar en eftir sem
áður skilur hún mikið eftir sig.
Velkomin segir á myndrænan og
vel úthugsaðan hátt frá varnar-
leysi hinna óvelkomnu. Bókin á
brýnt og tímabært erindi í sam-
tímann og er verðugt tilefni til
sjálfsrýni hjá lesendum. Tilefni til
að staldra við, horfa út fyrir nær-
umhverfið og spyrja sig hvað það
er sem raunverulegu máli skiptir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Opinskár Bubbi talar ekki í kring-
um hlutina í fjórðu ljóðabók sinni.
Varnarleysi
hinna óvelkomnu
Ljóð
Velkomin
bbbmn
Eftir Bubba Morthens.
Mál og menning gefur út. 71 bls. kilja.
LILJA HRUND AVA
LÚÐVÍKSDÓTTIR
BÆKUR
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Aðferðir til að lifa af heitir ný skáld-
saga Guðrúnar Evu Mínervudóttur.
Síðasta bók hennar var smásagna-
safnið Ástin, Texas og bókin nýja
hefst eins og álíka safn af sögum, en
sögurnar tengjast og fljótlega kem-
ur í ljós skáldsaga.
Guðrún segist hafa fundið sig í
smásagnaskrifunum í Ástinni, Texas
og hún hafi eiginlega verið að vona
að fleiri smásögur kæmu, „en mín
aðferð til að skrifa er sú að vera sem
hlýðnust og sem undirgefnust við
skáldagyðjuna. Ég byrjaði því bara
að skrifa eins og þetta byrjaði að
koma til mín og var komin sæmilega
langt þegar ég var ekki enn þá viss
hvort þetta væru smásögur með
boðkefli eða hvort þetta yrði skáld-
saga. Ég ákvað að vera ekkert að
velta því fyrir mér, að leyfa þessu
bara að fæðast, og svo varð bara til
lífrænt þétt ofið plott.
Það kom svolítið í ljós þegar
strákurinn Aron Snær kom til sög-
unnar, þá byrjaði plottið að vefast
utan um hann.“
Guðrún, sem kennir ritlist, segir
að þegar nemendur hennar spyrji
hvort ekki sé rétt að gera beinagrind
að bók áður en haldið sé af stað mæli
hún ekki með því, enda sé lífrænt
plott yfirleitt frumlegra og betra og
slíkar sögur verði ríkari. „Það er líka
skemmtilegra að skrifa þannig, að
söguþráðurinn sé ekki ljós, ef maður
þorir. Ef maður þorir að renna svo
blint í sjóinn er það miklu skemmti-
legra. Það er eins og að hlaupa niður
Esjuna frekar en að fikra sig niður,
miklu skemmtilegra og hættulegra
og fljótlegra.
Mér finnst það líka svo mikill mis-
skilningur að skipuleggja þetta allt í
meðvitaða huganum af því hann er
svo miklu takmarkaðri en dulvitund-
in eða undirmeðvitundin.“
Ástin, Texas kom út á síðasta ári
og Guðrún segist ekki hafa ætlað að
byrja strax á nýrri bók, hún hafi ver-
ið búin á því, því þótt það hafi ekki
verið þykk bók hafi verið í henni
fimm sögur, fimm heimar. Fljótlega
eftir að hún var búin að skila bókinni
af sér gerðist hins vegar eitthvað.
„Það kemur yfirleitt þannig að
maður liggur milli svefns og vöku og
þá byrjar eitthvert „download“ og
maður getur ekkert sofnað fyrr en
maður er búinn að fara fram. Ég fór
því bara fram og skrifaði fyrstu eina
og hálfa blaðsíðuna um hana Hönnu,
sem er sextán ára og skilin eftir ein
úti í einhverjum sumarbústað. Hún
veit ekki hvað er í gangi og ég vissi
það ekki heldur og hugsaði bara: vá,
þetta er svo hversdagslegt, af hverju
ætti ég að vera að skrifa um þetta?
en ég er búin að læra það að hlýða
skilyrðislaust og vera ekki með eitt-
hvert múður þannig að ég þvældist
ekki fyrir, það var galdurinn.
Ég hélt því áfram og var ekkert að
flýta mér, lagði alla áherslu á að fara
mér hægt og hætta þegar mér
fannst ég vera orðin tóm og vera
ekki að kreista neitt. Ég bara komst
að því að það er svo miklu fljótlegri
aðferð. Hægt er hratt.“
Skemmtilegra að
renna blint í sjóinn
Guðrún Eva Mínervudóttir segir lykilatriði að vera
sem hlýðnust og undirgefnust við skáldagyðjuna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fann sig Guðrún segist hafa
fundið sig í smásagnaskrif-
unum í Ástinni, Texas.
Kapalstöðin HBO hefur ákveðið að
ráðast í gerð sjónvarpsþátta þar
sem rakin verður forsaga þeirrar
sögu sem sögð hefur verið í Game
of Thrones, Krúnuleikunum.
Þáttaröðin mun heita House of the
Dragon, eða Hús drekans, og mun
sagan gerast um 300 árum áður
en saga Krúnuleikanna hófst en
henni lauk nú í vor eftir átta
þáttaraðir.
Krúnuleikarnir eru vinsælasta
sjónvarpsþáttasyrpa sögunnar og
hlutu fjölda Emmy-verðlauna.
Tugir milljóna manna horfðu á
þættina og má því búast við að
nýju þættirnir njóti líka mikilla
vinsælda.
Í Húsi drekans verður rakin
saga Targaryen-ættarinnar og
heimsálfunnar Westeros. Einn
meðframleiðenda þáttanna verður
höfundur Krúnuleikanna, George
R.R. Martin, að því er fram kemur
í frétt breska ríkisútvarpsins,
BBC.
Ævintýri Jon Snow og drekamóðirin
Daenerys Targaryen í Game of Thrones.
Forsaga Krúnu-
leika í framleiðslu