Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 1

Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 1
 Ráðgjafar- fyrirtækið Atten- tus hefur selt ríkisstofnunum ráðgjöf og þjón- ustu fyrir vel á fimmta tug millj- óna síðan í september í fyrra. Meðal við- skiptavina fyrir- tækisins er Vinnueftirlitið, en það hefur leigt af því mannauðsstjóra. Fram hefur komið að sá sem fyrst gegndi stöðu mannauðsstjóra var látinn hætta vegna meintrar óánægju með framgöngu hans. Hanna Sigríður Gunnsteins- dóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir framgöngu mannsins til rann- sóknar. Utanaðkomandi aðilar hafi verið fengnir í málið til að annast hlutlausa málsmeðferð. »6 Selja ríkinu ráðgjöf fyrir tugi milljóna Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir Vegir liggja til allra átta, er gjarnan sagt. Í lík- neski sínu horfir Leifur Eiríksson til vesturs rétt eins og á tímum landafunda. Maðurinn með hundinn tók hins vegar stefnuna til austurs og mót sólinni, en dagsbirtu hennar nýtur nú æ skemur. Ágætt veður verður sunnan- og vestan- lands í dag, skýjað og hiti aðeins í plús eða nærri frostmarki. Norðanlands og austan léttskýjað en hitastig aðeins í mínus. Til austurs og vesturs í plús og mínus Morgunblaðið/Hari M I Ð V I K U D A G U R 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  261. tölublað  107. árgangur  SKAMMDEGIÐ SKOÐAÐ Í SKÁLDSÖGU FORN KERRUVEGUR? PLAY ÆTLAR Í LOFTIÐ FYRIR LOK ÁRSINS FORNLEIFAR FRESTA VERKLOKUM 10 VIÐSKIPTAMOGGINNHULDAR BREIÐFJÖRÐ 28 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Skipverjar voru orðnir mjög þrek- aðir þegar við komum að svo ekki mátti tæpara standa. Þeir lágu ofan á björgunarbátnum sem var á hvolfi í sjónum,“ segir Sigurður Þórarins- son, skipstjóri á togbátnum Leyni SH. Mannbjörg varð þegar Blíða SH sökk norður af Langeyjum á Breiða- firði um hádegisbil í gær. Skipverjar á Leyni fengu boð frá Landhelgis- gæslunni klukkan 11.45 um að svip- ast um eftir Blíðu, sem þá var horfin af ratsjá. Sjálf- virkt neyðarkall barst örskömmu síðar og þá var allt sett á fulla ferð. „Við vorum við Bjarneyjar og settum á fullt stím til suðurs. Þegar að var komið létum við reka að björgunarbátnum og kippt- um mönnunum þremur um borð. Þeir voru þá orðnir mjög kaldir enda höfðu þeir ekkert ráðrúm haft til að komast í björgunargalla. Báturinn bókstaflega sökk undan fótum þeirra,“ segir Sigurður Þórarinsson. Hæg NA-nátt var á Breiðafirði þeg- ar þetta gerðist og hiti um frost- mark. „Vindur og sjólag sökktu ekki bátnum. Þar kemur eitthvað annað til sem mun skýrast við rannsókn,“ segir Sigurður. Skipverjar á Blíðu voru af erlendum uppruna; tveir Lettar og sá þriði Lithái. Leynir SH kom með þá inn til Stykkishólms um kl. 14 og voru mennirnir þrír þá flutt- ir til læknisskoðunar. Tveir voru út- skrifaðir fljótlega en sá þriðji þurfti frekari aðhlynningar við vegna kæl- ingar. Blíða SH var 61 tonns bátur, smíð- aður árið 1971 og stækkaður 1988. Báturinn var í eigu Royal Iceland ehf. og var á beitukóngsveiðum. Skipverjarnir mjög þrekaðir  Þremur bjargað þegar Blíða SH sökk á Breiðafirði í gær  Báturinn sökk undan fótum mannanna  Ekki mátti tæpara standa, segir skipstjórinn á Leyni SH Sigurður Þórarinsson  Óskað hefur verið eftir því við umhverfisráðherra að skipaður verði starfshópur sem fái það verk- efni að skilgreina gróðurelda sem náttúruvá og móta tillögur um skuldbindingu innviða samfélagsins gagnvart henni. K. Hulda Guðmundsdóttir á Fitj- um í Skorradal og Trausti Jónsson veðurfræðingur benda á að þótt hætta á gróðureldum fari vaxandi séu samfélagsskuldbindingar gagn- vart vánni algerlega í lausu lofti. Ljóst sé að mannslíf séu í húfi og efnislegt tjón gæti numið hundr- uðum til þúsunda milljóna í ein- staka atburðum. Þau benda sér- staklega á að tryggingakerfið sé ekki í stakk búið til að takast á við vandann. Til að mynda sé hlutverk Náttúruhamfaratryggingar Íslands ekki skilgreint í þessu efni. »11 Morgunblaðið/Júlíus Eldur Mikið tjón getur orðið í gróðureldum. Tryggingar vegna gróðurelda í ólagi VÍKINGUR OGDANÍEL FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 19:30 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 19:30 UPPSELT AUKATÓNLEIKAR Edvard Grieg Pétur Gautur, valdir þættir Daníel Bjarnason Processions, píanókonsert W.A. Mozart Hornkonsert nr. 3 Jean Sibelius Sinfónía nr. 5 Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Radovan Vlatković einleikari nossfalÓraðieHrugnikíV einleikari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.