Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 16

Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019 Umræðan um sér- stöðu íslenska laxa- stofnsins og hættu á erfðamengun er ekki ný af nálinni. Mikið hefur verið gert til að tryggja verndun ís- lenska laxastofnsins og hafa Íslendingar geng- ið mun lengra í þeirri viðleitni en þekkist í öðrum löndum. Segja má að stærsta skrefið sem stigið var til verndar íslenska laxa- stofninum fyrir mögulegri erfða- mengun frá eldislaxi hafi verið þegar þáverandi landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, birti auglýsingu um friðunarsvæði við strendur Ís- lands þar sem segir „Auglýsing um friðunarsvæði, þar sem eldi laxfiska (fam. Salmonidae) í sjókvíum er óheimil“ (sjá mynd). Þessi mörkun svæða þýddi að ekki mátti stunda laxeldi á stærstum hluta strand- svæðis Íslands. Ákvörðun ráðherra var ekki úr lausu lofti gripin, heldur byggði á greinargerð sérfræðinga Veiði- málastofnunar (nú Hafró) um friðun svæða fyrir eldi laxfiska í sjókvíum og í greinargerðinni var horft til þess „hvort dýrmætir náttúrulegir stofn- ar væru á svæðinu og hversu miklir veiðihagsmunir væru til staðar“1), sjá mynd. Ár utan lokaðra svæða voru ekki taldar í hættu, enda um að ræða ár sem ekki höfðu náttúrulega laxa- stofna eða þá að laxastofnarnir þóttu hafa lítið verndargildi. Hér var því markvisst verið að vernda erfðaefni íslenska laxins. En hver er þá munurinn á laxá og laxeldisá? Staðreyndin er sú að ár sem kall- aðar eru laxveiðiár eru alls ekki alltaf með náttúrulegan laxastofn, heldur eru ár, sem gætu hentað til ræktunar á laxi til stangveiða. Þetta eru gjarn- an ár sem þykja fallegar og renna gjarnan í fallegu landslagi og þar sem gott væri að stunda stangveiði. Með því móti eru búnar til aðstæður fyrir veiðiáhugamenn og laxabændur til að selja veiðileyfi og stunda ferða- þjónustu. Hér er því um að ræða eldisár – laxeldisár. Breiðdalsá er gott dæmi um slíka á og sem hefur engan náttúrlegan laxastofn. Áin er dæmigerð á fyrir Austfirði, dragá sem er köld og nær- ingarsnauð með miklum rennslis- sveiflum. Breiðdalsá var að stórum hluta ólaxgeng frá náttúrunnar hendi þar til ákveðið var að byggja í henni laxastiga og ryðja þar með úr vegi náttúrulegri hindrun, fossinum Beljanda. Slíkar framkvæmdir eru ekki nýjar af nálinni og hafa verið stundaðar lengi, bæði í ám sem hafa náttúrulega laxastofna og eins hinum sem aldrei hafa haft náttúrlegan laxastofn. Hér var því markvisst búin til laxveiðiá. Þessu er ágætlega lýst í skýrslum sérfræðinga hjá Hafró (áð- ur Veiðimálastofnun) sem lögðu m.a. til að breytingar yrðu gerðar á Breið- dalsá með flutningi á grjóti og möl svo auka mætti lífslíkur sleppiseiða og einnig útbúa svæði þar sem hent- ugt væri að grafa hrogn í árfarveg- inn. En hafa slíkar framkvæmdir skil- að árangri í Breiðdalsá? Þegar skráðar seiðasleppingar í Breiðdalsá eru skoðaðar kemur í ljós að gríðar- legu magni af laxaseiðum er búið að sleppa í ána frá því að sleppingar hóf- ust eftir 1960. Fróðlegt er að skoða markvissar seiðasleppingar á tíma- bilinu 1997 til 2019, því þá kemur í ljós að búið er að sleppa tveimur milljónum, eitt þúsund og níuhundr- uð laxaseiðum (2.001.900). Á sama tíma hefur veiðst tíuþúsund níu- hundruð fjörutíu og einn lax (10.941). Þetta þýðir að endurheimtur eru rétt um 1,1%, ef miðað er við að helm- ingur fiska sem gengur í ána veiðist. Þetta teljast lélegar heimtur sé mið- að við 5% viðmið í áhættumati Hafró, en það er líkan sem gert er til að spá fyrir um fjölda eldislaxa sem gætu gengið í laxár út frá stærð laxeldis. Hvaða máli skiptir Breiðdalsá? Í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í fiskeldi á Íslandi hefur verið horft til þess að mikilvægar ár njóti friðunar. Slíkt er gert með fyrr- greindri auglýsingu landbúnaðar- ráðherra. Í dag er komin viðbót við þessa friðun, sem er áhættumat Hafró, og sem skal taka mið af mögulegri erfðablöndun eldislax og villts lax2). Þessi viðbót er í dag notuð til grund- vallar leyfisveitingum fyrir laxeldi í viðbót við burðarþol fjarða. En til að áhættumat Hafró skili markmiði sínu er lykilatriði að ekki sé verið að tengja þá friðun þeim ám sem þegar hafa verið metnar af sömu sérfræð- ingum sem laxeldisár, með lítið sem ekkert verndargildi. Niðurstaðan er því sú að með því að setja Breiðdalsá og aðrar sam- bærilegar laxeldisár inn í áhættumat Hafró er verið að gjaldfella áhættu- matið og um leið að vinna gegn eðli- legri uppbyggingu í atvinnuvegi sem skiptir byggðir landsins miklu máli. Það er kjarni málsins. 1) Sigurður Guðjónsson (2001). Greinargerð um friðun svæða með ströndum landsins fyrir eldi laxfiska í sjókvíum. Veiði- málastofnun. 2) Ragnar Jóhannsson, Sigurður Guð- jónsson, Agnar Steinarsson og Jón Hlöð- ver Friðriksson (2017). Áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi. HV 2017-027, ISSN 2298-9137. Breiðdalsá – dæmi um tilbúna laxveiðiá Eftir Þorleif Eiríksson og Þorleif Ágústsson »Með því að setja Breiðdalsá og aðrar sambærilegar laxeldisár inn í áhættumat Hafró er verið að gjaldfella áhættumatið. Þorleifur Eiríksson Þorleifur Eiríksson er dýra- fræðingur; Þorleifur Ágústsson er fiskalífeðlisfræðingur. the@rorum.is Þorleifur Ágústsson Kort/Fiskistofa Friðunarsvæðin við strönd Íslands merkt með rauðu þar sem eldi er bannað til varnar villtum íslenskum laxi (Veiðimálastjóri 2004). Almenningur hefur nú þegar að- gang að mjög hrað- virku alneti og hef- ur ekkert við meiri gagnahraða að gera. 5G mun taka frá okkur störfin, auka eftirlit með okkur og það sem er verst, skaða heilsu okkar. 5G er tæknimartröð framtíðarinnar. 5G er forsendan fyrir sjálf- keyrandi bílum. Bílarnir fá þær upplýsingar sem þeir þurfa um umhverfi sitt nógu hratt til að forðast árekstra. Með 5G biðja tækin um gögn og fá þau í sömu andrá. Við þekkjum snjallsíma og snjallsjónvörp en eigum eftir að fá snjallheimili, snjallverk- smiðjur, snjallspítala og já snjallborgir. Róbótar munu taka við störfunum okkar í snjall- verksmiðjum og vélmenni fram- tíðarinnar eiga að geta fram- kvæmt flóknar skurðaðgerðir inni á snjallspítölum. Maður spyr sig: ef fólk á meira og minna að sitja heima í framtíð- inni og þiggja ölmusu frá stjórn- völdum, hver á þá að kaupa vör- urnar sem róbótarnir framleiða? Hér áður voru tækniframfar- irnar til að auka afkastagetuna og létta manninum störfin. Lyft- ari þurfti mann til að keyra hann en nú er framtíðin sem sagt sjálfkeyrandi lyftari. Á síðasta ári kvittaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir því að Ísland skyldi verða hluti af best tengda 5G-svæði heims og nokkur tilraunaverk- efni eru komin á laggirnar. Við Ráðhúsið og Höfðatorg eru t.d. snjöll hjólastæði sem hægt er að læsa með korti eða appi. Ef ein- hver reynir að stela hjóli gefur hjólastæðið frá sér viðvörunar- hljóð og smellir mynd af viðkom- andi. Viljum við að tortryggnin þráðlausrar tækni. Þeir vitna til dæmis í stærstu rannsóknina sem gerð hefur verið (kostaði 25 milljónir dollara), niðurstöður hennar voru að geislun undir öryggismörkum olli tölfræðilega marktækri aukningu á heila- og hjartakrabbameini hjá til- raunadýrunum. Þeir vitna í varnaðarorð frá árinu 2016 (EU- ROPA EM-EMF Guideline 2016) þar sem segir: „Það eru sterkar sannanir fyrir því að langtíma rafgeislun getur valdið sjúkdómum eins og krabba- meini, alzheimer og ófrjósemi. Algeng einkenni hjá fólki sem er mjög næmt fyrir rafgeislun er höfuðverkur, einbeitingarerf- iðleikar, svefnörðugleikar, þung- lyndi, orkuskortur, síþreyta og flensulík einkenni.“ Á netinu er að finna undir- skriftasöfnun gegn 5G sem vert er að kynna sér. Undirskrift- irnar eru komnar yfir 100 þús- und: „International appeal: Stop 5G on earth and in space“. Ætlum við virkilega að fara ís- lensku leiðina í þessu? Vinna eitthvert kapphlaup, henda upp 5G og taka síðan afleiðingunum af því, sem verða sennilega mjög alvarlegar. Heimildir: Frétt á rúv 6.10. 2018: 5G: Þurfa ljósa- staurarnir nýjan titil? Frétt af https://www.actu- environnement.com: Scientists warn of potential serious health effects of 5G gagnvart náung- anum verði svo mikil í framtíðinni að hér verði allt stútfullt af mynda- vélum og minnstu smáglæpir upp- lýstir með þeim? Á snjallheimilum framtíðarinnar verður hægt að fylgjast með raf- orkunotkun hvers einasta heim- ilistækis og hve- nær þau eru í notkun með snjall- rafmagnsmælum. Kannski ágætt að það myndi fljótt upp- götvast ef einhver væri að reyna að rækta kannabis á heimili sínu! Helsta áhyggjuefnið er hins vegar að við verðum stöðugt út- sett fyrir rafgeislun sem verður tífalt til hundraðfalt meiri en þekkist í dag. 5G starfar á mun hærri tíðni en gamla tæknin og bylgjurnar ná skemmra og eiga erfiðara með að komast í gegn- um fast efni. Þetta þýðir að setja þarf sendi á sennilega annan hvern ljósastaur og upp á mörg húsþök og eitthvað á það nú eftir að kosta. Ætlar svo Vodafone að vera með einn sendi, Síminn annan og Nova síðan enn einn sendinn eins og þekkist í gamla kerfinu? Á netinu er að finna bréf 231 vísindamanns og læknis frá 36 löndum frá árinu 2017 til Evr- ópusambandsins: „Vísindamenn vara við hugsanlegum alvar- legum heilsufarsskaða af völd- um 5G“ (Scientists warn of pot- ential serious health effects of 5G). Vísindamennirnir skora á Evrópusambandið að fresta uppsetningu á 5G uns afleið- ingar þess á mannfólk og um- hverfi hafi að fullu verið rann- sakaðar af vísindamönnum óháðum hagsmunaöflunum. Vís- indamennirnir fullyrða að fjöldi rannsókna hafi með sannfær- andi hætti staðfest skaðsemi Hættan af 5G Eftir Sölva Jónsson Sölvi Jónsson » 5G þýðir tífalt til hundraðfalt meiri geislun á menn og umhverfi og það á að henda þessu upp án nokkurra sannana um öryggi tækninnar. Höfundur er félagsliði og tónlistarmaður. gaufi2@yahoo.co.uk Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins bendir réttilega á að það kreisti nú enginn fram „tár úr steini“. Nefnir þá staðreynd að fyrirtæki geti illa staðið undir launa- hækkunum komi til verk- falla. Tiltekur bága stöðu fyrirtækja á fjölmiðla- markaði og birtir samn- ingsboð sitt til starfs- manna þeirra. Varla finnst nokkur sem mælir því mót að rekstrarumhverfi fjöl- miðla sé þungt, erfitt og krefjandi. Greinilegt er að Halldór Benjamín hefur orðið fyrir hugljómun í sumar og er allt í einu far- inn að velta því fyrir sér hvort umbjóðendur hans, fyrirtækin í landinu, geti greitt þau laun sem hann semur um fyrir þeirra hönd. Óþarfi er að nefna hvernig fyrirtækj- unum gengur að standa undir öllu því er þeim er ætlað en bent er á uppsagnir, lokanir og gjaldþrot sem afleiðingar þess að samkeppnishæfni fyrirtækjanna er horfin. Halldór mætti líka velta því fyrir sér hvort eftirgjöf við samninga- borð á einum stað skapi ekki ýktari kröfur við það næsta? Verkalýðsfélög virðast miða sínar kröfur við hag sinna minnstu bræðra en SA við hag sinna stærstu meðlima. Á sama tíma kalla samtökin eftir samstöðu í eigin ranni en eru með innbyggt ójafn- vægi sem gerir það að verkum að þeir hinir stærri ráða för. Þeir sem kynna sér það sjá það glögglega. Neyðarleg er sú ráðstöfun að stofna síðan deild innan samtakanna og kalla „litla Ísland“ sem einhvers konar vettvang lítilla og með- alstórra fyrirtækja. Það kallar fram hláturtár sé litið til þess að á flesta mælikvarða eru 95% allra fyrirtækja landsins einmitt það, lítil og meðalstór. Nær væri að samtökin mættu öllum sín- um meðlimum á jafnréttisgrundvelli og virtu hag þeirra til jafns. Veik forysta SA Forysta Samtaka at- vinnulífsins er veik. Til for- ystu velst fólk úr fámenn- um hópi allra stærstu fyrirtækjanna. Mest laun- þegar án beinna hagsmuna sem eigendur rekstrar og yfirleitt ekki með neina aðra hagsmuni en að ná sem bestri útkomu fyrir sitt fyrirtæki og síðan sjálfa sig. Stoppa stutt við og inn kemur „nýtt“ fólk úr sömu átt. Öllu miðstýrt með upp- stillingu. Hagsmunir stórs hluta félagsmanna SA eru fyrir borð bornir í hvert sinn er samið er um kaup og kjör. Stærri og stærri hluti meðlima SA hefur ekki bolmagn til standa undir því sem samið er um, verandi í harðri samkeppni, ekki síst við innflutning. Engu að síður vilja sam- tökin hafa um allt að segja, þiggja meðlimagjöld byggð á umfangi rekstrar og þenja út starfsemina á þann hátt að enga krónu má missa. Hefur undirritaður sem meðlimur sam- takanna haft þann eina hag af verunni að hægt hefur verið að mæta á aðal- fund og fá „frítt“ að borða í hádeginu. Sem er auðvitað blekking, nær væri að tala um dýrasta hádegisverð ársins. Þau mál sem ég hef leitað til SA með hafa einhvern veginn leyst sig sjálf án þess að aðkoma samtakanna hafi skipt nokkru eða bætt stöðu míns fyrirtækis. Hygg ég að svo sé um marga aðra. Mörg nýrri fyrirtæki sjá sér ekki hag í því að vera innan SA, margir úr minni stétt eru hættir og aðrir búa sig til brottfarar. Erfitt er fyrir nokkurt lítið eða meðalstórt fyrirtæki að réttlæta fleiri hundruð þúsunda eða milljóna greiðslur félagsgjalda inn í SA eins og málum er háttað. Eigendur fyrirtækj- anna fengju meira fyrir krónurnar með niðurgreiðslu skulda en að kasta þeim í tilgangsleysið í Borgartúni 35. Að kreista fram tár Eftir Steinþór Jónsson Steinþór Jónsson » Forysta Samtaka atvinnulífsins er veik. Til forystu velst fólk úr fá- mennum hópi allra stærstu fyrirtækjanna. Höfundur rekur bakarí. steinthorj@hotmail.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.