Morgunblaðið - 06.11.2019, Page 24

Morgunblaðið - 06.11.2019, Page 24
MEISTARADEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Alex Oxlade-Chamberlain tryggði Evrópumeisturum Liverpool sigur gegn Genk í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á Anfield í gær er hann skoraði sigurmark leiksins í upphafi síðari hálfleiks. Leiknum lauk með 2:1-sigri Liv- erpool, en Oxlade-Chamberlain, sem er að koma til baka eftir erfið krossbandsslit, hefur nú skorað þrjú mörk í Meistaradeildinni á þessari leiktíð í tveimur byrj- unarliðsleikjum. Sigurinn var afar þýðingarmikill fyrir Liverpool, sem fer með sigrinum upp í efsta sæti E-riðils með 9 stig. Liverpool hefur ekki virkað sann- færandi í riðlakeppninni til þessa og Evrópumeistararnir voru langt frá því að vera sannfærandi í leiknum í gær. Eini leikurinn þar sem liðið hefur litið ágætlega út var gegn Genk í Belgíu þar sem Liverpool vann öruggan 4:1-sigur og þar skor- aði títtnefndur Oxlade-Chamberlain tvö mörk. Þrátt fyrir það hefur liðið unnið þrjá leiki og tapað einum, sem er styrkleikamerki. Þá ætti það að gefa stuðnings- mönnum Liverpool góð fyrirheit um framhaldið að liðið var ekki sann- færandi í riðlakeppninni á síðustu leiktíð heldur. Liverpool þurfti sig- ur gegn Napoli í lokaleik riðla- keppninnar til þess að fara áfram í útsláttarkeppnina og þá var það Al- isson Becker sem reyndist hetjan. Hann varði meistaralega frá Arka- diusz Milik á lokamínútum leiksins og Liverpool fór alla leið í keppn- inni. Evrópumeistararnir eru með eins stigs forskot á Napoli, sem gerði 1:1-jafntefli gegn Salzburg í Napoli. Liverpool mætir Salzburg í næstu umferð riðlakeppninnar og dugar jafntefli í Austurríki til þess að tryggja sig áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Ótrúlegar endurkomur Spennan í H-riðli er rafmögnuð eftir úrslit gærdagsins. Alls voru átta mörk skoruð á Stamford Bridge í Lundúnum í leik Chelsea og Ajax og þá fóru tvö rauð spjöld á loft. Ajax komst í 4:1 í leiknum áður en hollenska liðið missti tvo leik- menn af velli um miðjan seinni hálf- leikinn. Chelsea tókst að jafna met- in og Cesar Azpilicueta hefði getað tryggt Chelsea sigur en hann brenndi af vítaspyrnu á 78. mínútu. Chelsea, Ajax og Valencia, sem vann 4:1-sigur gegn Lille á Spáni, eru öll með 7 stig en spænska liðið á eftir að mæta bæði Chelsea og Ajax í síðustu tveimur umferðunum. Þá vann Borussia Dortmund ótrúlegan endurkomusigur gegn Inter Mílanó í F-riðli á Signal Id- una Park í Dortmund. Inter leiddi 2:0 í hálfleik en Dortmund skoraði þrjú í seinni hálfleik og fagnaði dýr- mætum sigri. Barcelona er með 8 stig, Dortmund er með 7 stig og Inter kemur þar á eftir með 4 stig. Ósannfærandi Evrópumeistarar  Átta marka veisla á Stamford Bridge AFP Mark Alex Oxlade-Chamberlain heldur áfram að skora í Meistaradeildinni. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019 Ítalinn Fabio Grosso, sem varð heimsmeistari með Ítölum á HM 2006 og skoraði sigurmarkið í víta- spyrnukeppni í úrslitaleiknum gegn Frökkum, var í gær ráðinn þjálfari ítalska A-deildarliðsins Brescia. Grosso þjálfaði ítalska lið- ið Verona en var rekinn frá störfum í fyrra. Hann tekur við af Eugenio Corini sem var látinn taka pokann sinn eftir tap Brescia gegn Verona um síðustu helgi. Grosso á erfitt verk fyrir höndum en Brescia er í fallsæti, situr í næstneðsta sæti með aðeins sjö stig eftir tíu leiki. HM-stjarna í þjálfarastólinn Ljósmynd/Juventus Þjálfari Fabio Grosso er tekinn við liði Brescia í ítölsku A-deildinni. Kristín Þorleifsdóttir er óvænt á leið á heimsmeistaramótið í hand- bolta í Japan í lok þessa mánaðar. Hún var kölluð inn í sænska lands- liðshópinn eftir að fyrirliðinn Sab- ina Jacobsen meiddist. Kristín er dóttir Sigrúnar Andrésdóttur og Þorleifs Sigurjónssonar. Hún býr í Höör á Skáni og spilar hjá liði sem ber nafn bæjarins. Frammistaða hennar í vetur varð til þess að landsliðsþjálfari Svía, Henrik Sign- ell, valdi þessa 21 árs gömlu vinstri- skyttu í 18 manna HM-hóp sinn. Sjá viðtal við Kristínu á mbl.is/sport. Kristín í sænska landsliðið Ljósmynd/@h65_dam HM Kristín Þorleifsdóttir er á leið á HM í Japan með Svíum. Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Liverpool – Genk ......................................2:1 Georginio Wijnaldum 14,. Alex Oxlade- Chamberlain 53. - Mbwana Samata 41. Napoli – Salzburg.....................................1:1 Hirving Lozano 44. - Erling Braut Håland 11. (víti). Staðan: Liverpool 4 3 0 1 10:7 9 Napoli 4 2 2 0 6:3 8 Salzburg 4 1 1 2 12:10 4 Genk 4 0 1 3 4:12 1 F-RIÐILL: Barcelona – Slavia Prag..........................0:0 Dortmund – Inter .....................................3:2 Achraf Hakimi 51., 77. Julian Brandt 64. - Lautaro Martínez 5., Matias Vecino 40. Staðan: Barcelona 4 2 2 0 4:2 8 Bor. Dortmund 4 2 1 1 5:4 7 Inter Mílanó 4 1 1 2 6:6 4 Slavia Prag 4 0 2 2 2:5 2 G-RIÐILL: Zenit Petersburg – Leipzig.....................0:2 Diego Demme 45., Marcel Sabitzer 63. Lyon – Benfica ..........................................3:1 Joachim Andersen 4., Memphis Depay 33., Betrand Traoré 89., Haris Seferovic 76. Staðan: RB Leipzig 4 3 0 1 6:4 9 Lyon 4 2 1 1 7:4 7 Zenit 4 1 1 2 5:6 4 Benfica 4 1 0 3 5:9 3 H-RIÐILL:Chelsea – Ajax .......................4:4 Jorginho 5. (víti), 71. (víti), Cesar Azpili- cueta 63., Reece James 74. - Sjálfsmark 2., Quincy Promes 20., sjálfsmark 35., Donny van de Beek 55. Rautt spjald: Daley Blind 68., Joel Vettman 69. (Ajax). Valencia – Lille .........................................4:1 Daniel Parejo 66. (víti), sjálfsmark 82., Ge- offrey Kondogbia 84., Ferran Torres 90. - Victor Osimhen 25. Staðan: Ajax 4 2 1 1 10:5 7 Chelsea 4 2 1 1 7:6 7 Valencia 4 2 1 1 6:5 7 Lille 4 0 1 3 3:10 1  Svíþjóð Alingsås – Kristianstad .......................29:28  Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir Alingsås.  Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Guðmundsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Ungverjaland Pick Szeged – Gyöngyösi ....................31:28  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1 mark fyrir Pick Szeged.   NBA-deildin Washington – Detroit......................... 115:99 Minnesota – Milwaukee ................... 106:134 Brooklyn – New Orleans ................. 135:125 Phoenix – Philadelphia .................... 114:109 Memphis – Houston ......................... 100:107 Golden State – Portland .................. 127:118   Hildur Þóra Hákonardóttir, Linda Líf Boama og Karen María Sigurgeirsdóttir voru á skotskónum fyrir U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu þegar það mætti Svíþjóð í vináttulandsleik í Fífunni í Kópavogi í gær. Leiknum lauk með 3:0-sigri íslenska liðsins en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Hildur Þóra kom íslenska liðinu yfir strax á 16. mínútu með föstum skalla úr markteignum eftir hornspyrnu Evu Rutar Ásþórsdóttur. Linda Líf Boama tvöfaldaði forystu íslenska liðsins á 25. mínútu eftir frábæra stungusendingu Clöru Sigurðardóttur. Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði svo þriðja mark íslenska liðsins á 35. mínútu með föstu skoti frá vítateigshorninu en bolt- inn fór yfir markmann Svía og í netið. Liðin mætast á nýjan leik í Egilshöllinni á morgun og hefst sá leikur klukkan 19.15. bjarnih@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Öruggar Stelpurnar í U19 ára landsliði Íslands voru ekki í miklum vandræðum gegn jafnöldrum sínum frá Svíþjóð. Öruggt hjá stelpunum gegn Svíum Kristianstad tapaði sínum fjórða leik á tímabilinu þegar liðið heim- sótti Alingsås í sænsku úrvalsdeild- inni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með eins marks sigri Alingsås, 29:28, en staðan í hálfleik var 17:15, Kristianstad í vil. Aron Dagur Pálsson komst ekki á blað hjá Alingsås en Teitur Örn Einarsson átti fínan leik fyrir Kristianstad og skoraði fjögur mörk. Ólafur Andrés Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Kristians- tad sem er í sjötta sæti deildarinnar með 12 stig en Alingsås er á toppn- um með 18 stig. bjarnih@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Markheppinn Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk gegn Alingsås. Vandræði Kristianstad halda áfram HANDKNATTLEIKUR Coca Cola bikar kvenna, 16-liða úrslit: TM-höllin: Stjarnan – Fram.................19.30 Kórinn: HK – Afturelding ....................19.30 Hleðsluhöllin: Selfoss – KA/Þór...........19.30 Fylkishöll: Fylkir – Fjölnir ..................19.30 Austurberg: ÍR – Grótta............................20 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominons-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – Breiðablik19.15 Mustad-höllin: Grindavík – Keflavík ...19.15 Ásvellir: Haukar – Valur ......................19.15 Í KVÖLD! Nær öruggt er að Ungverjar munu spila án leikstjórnandans snjalla Mates Lekais í úrslita- keppni Evrópumóts landsliða í janúar. Lekai, sem er fyrirliði ungverska liðsins Veszprém, meiddist illa á hné og verður frá keppni næstu mánuðina en hann er einn af lykilmönnum ungverska landsliðsins. Ungverjar leika í riðli með Ís- lendingum, Dönum og Rússum á EM og verður riðillinn spilaður í Malmö í Svíþjóð. Mikið áfall fyrir Ungverja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.