Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 28

Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Íhvert sinn þegar sól hækkar álofti og sumarið yljar vetrar-köldu Nunavut-héraði ínorðurhluta Kanada flýgur konan unga sem segir söguna þang- að norðureftir eins og gæsirnar, nirliit eins og þær heita á máli heimamanna. Nirliit er fyrsta skáld- saga Léveillé-Trudel sem er frönskumælandi Québec-búi og byggir söguna á eigin reynslu en sjálf sinnti hún í nokkur sumur fræðslustarfi meðal ungra frum- byggja Nunavut. Margskonar félagsleg vandamál hafa mótað samfélagið í Nunavut þar sem íbúar treysta iðulega á styrki frá stjórnvöldum en farand- verkamenn á borð við konuna ungu sem segir frá koma fljúgandi að sunnan og starfa við hvers kyns uppbyggingu og umsjón mála. Stétt- skipting milli heimamanna og að- komufólks birtist ljóslega í sögunni, þar sem hvíta fólkið að sunnan („Hin svörtu eru líka hin hvítu. Allir sem ekki eru inúítar verða hvítir hér svona norðarlega.“ (15)) horfir iðu- lega niður á heimamenn sem því þykja hysknir og til vandræða. En sögumaður leggur áherslu á að hún sé öðruvísi, sé full samkenndar og vinur heimamanna, segir: „Það er til fólk sem kemur norður ekki bara til að græða peninga. Ég elska þetta hérna. Ég elska börnin, fólkið, tungumálið, hundana, landslagið, miðnætursólina, norðurljósin, hrein- dýrin, freðmýrina, fjöllin, göngu- ferðirnar …“ (64) Sögumaður tengist samfélaginu sterkum böndum en reynir ekkert að fegra vanda- málin, sem eru margvísleg. Bók- in skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri er í ljóð- rænni fyrstu per- sónu frásögn byggð upp trú- verðug mynd af samfélaginu í einu byggðarlagi frumbyggjanna og er látin vinkona sögumanns, Eva að nafni, ávörpuð ítrekað en sú hafði verið myrt af ást- manni sínum og líkinu sökkt í hafið. Í seinni hluta bókarinnar er skipt yfir í beinskeyttari þriðju persónu frásögn og sagt frá Elijah, syni hinnar myrtu, unnustu hans og sambandsraunum þeirra. Við sögu koma farandverkamenn sem vilja gjarnan lenda í ævintýrum með ungum heimastúlkum og skapast við það dramatískur núningur milli manna. Höfundur gerir vel í að nota frá- sagnir af þeim mæðginum, lífi þeirra og dauða, til að knýja söguna áfram. Á sama tíma er byggð upp bæði athyglisverð og trúverðug mynd af samfélagi frumbyggja Kan- ada í dag; samfélagi með marg- brotnu mannlífi og erfiðum félags- legum átökum og vandamálum. Þá er skotið inn vel lukkuðum hliðar- sögum, eins og af Tayara sem er svalur rappari í heimabænum og ferðast suður til stórborgarinnar Montréal þar sem hann hyggst slá í gegn. Það er ekki ferð til fjár og Tayara brjóstumkennanlegur í frá- sögn sem samt er hlýleg, enda má alltaf finna fyrir væntumþykju sögumanns fyrir fólkinu og sam- félaginu í textanum. Þýðingin, sem er úr frönsku, rennur lipurlega en á nokkrum stöð- um er setningum og orðum sem eru á ensku í frumútgáfunni haldið ská- letruðum með þeim hætti þar sem betur hefði farið að þýða það einnig á íslensku. En Nirliit er áhugaverð og vel skrifuð saga sem bregður upp mynd af samfélagi inúíta í Kanada sem lesendur hafa gott af að kynn- ast. Af ástum og ótímabærum dauða í samfélagi frumbyggja Skáldsaga Nirliit bbbbn Eftir Juliönu Léveillé-Trudel. Jóhanna Björk Guðjónsdóttir íslenskaði. Dimma, 2019. Kilja, 172 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Ljósmynd/Alain Léveillé Höfundurinn Juliana Léveillé-Trudel byggir frásögina á reynslu frá þeim tíma er hún starfaði með ungmennum í samfélagi frumbyggja í Nunavut. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sólarhringl heitir ný bók Huldars Breiðfjörð sem Bjartur gefur út. Á kápu bókarinnar segir að í bókinni skoði Huldar samband Íslendings- ins við heimkynni sín og má til sanns vegar færa, enda hefst bókin þar sem hann ræðir upplifun sína og fyrstu kynni af skammdegi. Við fylgjumst svo með Huldari þar sem hann hefst handa við heim- ildarmynd um skammdegið, veltir meðal annars fyrir sér hvar á land- inu skammdegið vari lengst, hvar finna megi forsælubæi Íslands (kemur meðal annars fram að skemmstur sólargangur sé í Höfða- brekku á Grenivík), hvaða áhrif sól- arleysið hafi á fólkið á þeim bæjum og eins hvaða áhrif það hafi á sálar- líf Íslendinga almennt. Þegar á líður bókina leggur Huldar upp í puttaferðalag snemma vors, leggur af stað í hringferð með það eitt að markmiði að sitja í hjá sem flestum, spjalla við ökumenn og aðra farþega og vinna úr þeim samtölum. Lesandi sér fljótt að þótt þessar frásagnir virðist ólíkar á yfirborðinu þá skarast þær að miklu leyti, því áhrif náttúru og umhverfis skína alltaf í gegn. Þegar ég ber þessa greiningu mína á bókinni undir höfundinn tekur Huldar henni ekki illa og svarar því til að þegar hann hafi verið að ganga frá bókinni hafi hann einmitt velt því fyrir sér hvaða gegnumþræðir væru í henni „og það eru einmitt dagur og nótt og veður og sól, þess vegna endaði ég á þessum titli. Ég var svolítið lengi að ná utan um þetta, en það er algerlega þannig að öllum þess- um textum var ætlað að tala saman. Aðra texta tók ég út, fannst þeir ekki eiga heima þarna, því mér var umhugað um að frásögnin myndi mynda heild. Ég var búinn að vera markvisst með þetta verkefni í gangi í tvö ár og kláraði bókina núna í haust. Það var mjög gaman að skrifa hana, því hún varð á einhvern hátt eins konar lífsstíll, það varð einhvern veginn bókin sem henti mér úr þessum skammdegisrannsóknum og í putta- ferðalagið og svo í ferðina norður – hún ýtti mér alltaf á milli umfjöll- unarefna. Ég hef aldrei áður skrifað bók sem hefur ráðið svona miklu í ferlinu. Yfirleitt hef ég farið í ferða- lag og komið til baka með dag- bækur og vitað hvað ég var að fara að gera, en þetta varð frekar ófyr- irsjáanlegt þótt ég hafi reynt að halda mig nálægt þemarann- sóknum. Að því leytinu til var rosa- lega gaman að skrifa hana. Ég vona að það komi í ljós í puttaferðalaginu hvaðan ég er að koma, ég þurfti á þessu að halda til að keyra mig aftur inn í birtuna og þykist vita að það sé eitthvað sem margir kannast við á þessu landi. Bókin verður mjög persónuleg en ég er að vona að lesandinn geti nán- ast skipt mér út fyrir sig, notað mig sem eins konar avatar.“ Morgunblaðið/Hari Skammdegi Huldar Breiðfjörð segist ekki áður hafa skrifað bók sem hafi tekið af honum völdin líkt og Sólarhringl gerði. Inn í birtuna  Í Sólarhringli kannar Huldar Breið- fjörð meðal annars upplifun Íslendinga af skammdegi og áhrif þess á sálarlíf Kvintett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar og gítarleikarans Hans Olding kemur fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans á Björtu- loftum í Hörpu í kvöld kl. 21. „Sigurður og Hans hafa unnið sam- an nokkur undanfarin ár. Þeir hafa komið fram á tónleikum bæði hér á landi og í Svíþjóð og hafa auk þess sent frá sér plötu með eigin útsetn- ingum af brasilískri tónlist,“ segir í tilkynningu. Með þeim leika Nils Janson á trompett, Þorgrímur Jóns- son á bassa og Einar Scheving á trommur. Kvintett leikur hjá Múlanum í kvöld Félagar Sigurður og Hans Olding. Endurminningaleikhúsið nefnist tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi við Félag aldraðra í Mos- fellsbæ og Félagsstarf aldraðra í Mosfellsbæ undir handleiðslu And- reu Katrínar Guðmundsdóttur, leikkonu og leikstjóra, sem sérhæft hefur sig í samfélagsleiklist. „Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir eldri borgara til að deila endurminningum sínum, stuðla að nýsköpun í félagsstarfi aldraðra og rjúfa félagslega ein- angrun þessa samfélagshóps. Fyrirmyndin að verkefninu kemur frá enska leikhópnum Age Ex- change í London sem frá 1983 hef- ur unnið að leiksýningum byggðum á endurminningum aldraðra,“ segir í tilkynningu. Leiksýning, sem er afrakstur vinnu síðustu vikna, verður sýnd í samkomusalnum í Eirhömrum í Mosfellsbæ á morgun kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Endurminningaleikhúsið sýnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.