Morgunblaðið - 13.11.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019
SÍÐAN 1969
FLOTTUSTU BÚNINGARNIR
ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR
846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI
SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI
ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ!
Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Tíðni manndrápa á Íslandi er sú
sama og í Slóveníu, í Þýskalandi og á
Írlandi samkvæmt nýjum tölum sem
Hagstofa Evrópusambandsins,
Eurostat, hefur tekið saman. Töl-
urnar eru fyrir árið 2017 og er miðað
við fjölda skráðra manndrápa á
hverja skráða 100 þúsund íbúa.
Alls voru manndráp 0,9 á hverja
100 þúsund íbúa hér árið 2017. Þau
voru litlu fleiri í Danmörku og Sví-
þjóð, 1,1, en í Finnlandi voru þau 1,3.
Hlutfallið var hæst í Evrópu í Lett-
landi þar sem 5,6 manndráp voru
framin á hverja 100 þúsund íbúa.
Lægst var hlutfallið í Lúxemborg,
0,3.
Fjögur manndráp voru á Íslandi
árið 2017. Thomas Möller Olsen varð
valdur að dauða Birnu Brjánsdóttur
og var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir
manndráp og fíkniefnainnflutning.
Í júní það ár lést Arnar Jónsson
Aspar eftir árás í Mosfellsdal.
Sveinn Gestur Tryggvason var
ákærður fyrir stórfellda líkamsárás
og hlaut í kjölfarið sex ára dóm.
Khaled Cairo varð valdur að dauða
Sanitu Brauna í íbúð í Vesturbæ
Reykjavíkur. Hlaut hann 16 ára dóm
fyrir. Dagur Hoe Sigurjónsson fékk
17 ára fangelsi fyrir að hafa stungið
tvo albanska karlmenn á Austurvelli.
Annar maðurinn, Klevis Sula, lést af
sárum sínum. hdm@mbl.is
Tíðni manndrápa sú
sama og í Þýskalandi
Manndráp í Evrópu
Fjöldi skráðra manndrápa á hverja 100.000 íbúa árið 2017
Lettland
Litháen
Eistland
Malta
Belgía
Ungverjaland
Rúmenía
Slóvakía
Frakkland
Búlgaría
Finnland
Norður-Írland
Engl. og Wales
Danmörk
Króatía
Skotland
Svíþjóð
Írland
Ísland
Slóvenía
Þýskaland
Kýpur
Austurríki
Grikkland
Portúgal
Pólland
Spánn
Ítalía
Tékkland
Noregur
Sviss
Lúxemborg
5,6
4,0
2,2
2,0
1,7
1,6
1,5
1,5
1,4
1,3
1,3
1,3
1,2
1,1
1,1
1,1
1,1
0,9
0,9
0,9
0,9
0,8
0,7
0,7
0,7
0,7
0,7
0,6
0,6
0,5
0,5
0,3
H
ei
m
ild
: E
ur
os
ta
t
Fjögur manndráp
hér á landi 2017
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Endurræsingu kerskála þrjú í ál-
verinu í Straumsvík er lokið. Slökkt
var á kerskálanum í lok júlí eftir að
ljósbogi myndað-
ist í lokuðu keri.
Sambærilegt at-
vik hafði þá ekki
gerst áður í ál-
verinu sem var
gangsett fyrir
rúmri hálfri öld,
eða 1. júlí 1969.
Jafnframt voru
18 ker í kerskál-
um eitt og tvö
tekin úr notkun
eftir óhappið. Alls eru 160 ker í
hverjum kerskála í álverinu, eða
samtals 480.
Endurræsing kerskála þrjú hófst í
september. Kom þá fram í Morgun-
blaðinu að framleiðslan yrði aukin
hægt og bítandi. Nokkur ker yrðu
gangsett á hverjum degi og því gæti
ferlið tekið nokkra mánuði.
Gekk hraðar en áætlað var
Bjarni Már Gylfason, upplýsinga-
fulltrúi Rio Tinto á Íslandi, segir
endurræsingu álversins í Straums-
vík hafa gengið vonum framar.
„Endurræsingunni er lokið. Hún
var nokkuð á undan okkar áætlunum
og gekk mjög vel og hraðar en við
áætluðum. Þetta gekk atvikalaust og
eins vel og hugsast gat en öryggis-
mál eru í algerum forgangi í þessu
ferli. Okkar fólk stóð sig með mikilli
prýði,“ sagði Bjarni Már.
Fram kom í ársuppgjöri Rio Tinto
að vegna óhappsins myndi fram-
leiðslan í Straumsvík dragast saman
um 21 þúsund tonn í ár. Til saman-
burðar var framleiðslugetan áætluð
213 þúsund tonn í ár. Það samsvarar
um 10% samdrætti.
Hafa afgreitt allar pantanir
Bjarni Már segir álverið hafa af-
greitt allar pantanir síðan óhappið
kom upp. „Viðskiptavinir okkar hafa
ekki fundið fyrir þessu og við höfum
getað staðið við allar skuldbindingar
gagnvart þeim,“ segir Bjarni Már.
Fram kemur í nýjum efnahagsleg-
um skammtímatölum Hagstofu Ís-
lands að virðisaukaskattsskyld velta
málmframleiðslu dróst saman um
13,4% í júlí og ágúst frá fyrra ári.
Þær upplýsingar fengust frá Hag-
stofunni að lykilstærðir, á borð við
heimsmarkaðsverð á áli og heims-
framleiðsluna, hefðu hér áhrif. Mikl-
ar sveiflur gætu orðið í áliðnaði.
Fram kom í samtali Morgunblaðs-
ins við Rannveigu Rist, forstjóra Rio
Tinto á Íslandi, í tilefni af 50 ára af-
mæli álversins, að um 400 manns
starfi nú í álverinu. Þá megi áætla að
afleidd störf vegna starfseminnar í
Straumsvík gætu verið um 1.500,
miðað við áætlanir Samáls um heild-
arfjölda afleiddra starfa í greininni.
Af því leiðir að röskun á framleiðslu í
álverinu getur haft víðtæk áhrif.
Bilunin í álverinu í júlí er meðal
þátta sem hafa dregið úr framleiðslu
í hagkerfinu í ár. Nokkrir þeirra
helstu eru hér sýndir á grafi.
Í nýlegri þjóðhagsspá Hagstof-
unnar var spáð 0,2% samdrætti í ár.
Gangsett vel á undan áætlun
Starfsmenn álversins í Straumsvík hafa endurræst þriðja kerskálann Var lokað í júlí eftir óhapp
Þrátt fyrir samdrátt í framleiðslu hefur álverinu tekist að afgreiða allar pantanir til viðskiptavina
Morgunblaðið/Ómar
Í hálfa öld Álverið var gangsett 1. júlí 1969. Um 400 manns starfa nú hjá ál-
verinu. Þá skapar framleiðslan fjölda afleiddra starfa í íslensku hagkerfi.
Sviptingar í efnahagsmálum árið 2019
Dæmi um áföll og áhrifaþætti
FEBRÚAR
Hafró hefur ekki gefið
út upphafskvóta á
loðnu, stefnir í að
engar loðnuveiðar
verði heimilaðar
MARS
Verkföll hjá
Eflingu hafa áhrif
í ferða-
þjónustu
12. MARS
Icelandair kyrrsetur
Boeing Max-þotur eftir
hörmuleg flugslys
– setur áætlanir
félagsins úr skorðum
3. APRÍL
Lífskjarasamn-
ingar undirritaðir
– langvarandi
óvissu á vinnu-
markaði lýkur
28. MARS
WOW air
hættir
starfsemi
– um þúsund
missa vinnuna
22. JÚLÍ
Þriðja kerskálanum í
álverinu Straumsvík
lokað
eftir
óhapp
OKTÓBER
Að óbreyttu er
ekki útlit fyrir
loðnuvertíð í
vetur
Bjarni Már
Gylfason
Ingólfur Bender,
aðalhagfræð-
ingur Samtaka
iðnaðarins, segir
aðspurður að
endurræsing
þriðja kerskálans
sé góðar fréttir.
Með henni
verði meiri fram-
leiðsla í hagkerf-
inu síðustu vikur ársins en ella.
Það birtist í hagvexti. Við þetta
bætist síðan áform flugfélagsins
Play um að hefja flug til Evrópu.
Hvort tveggja þýði meiri
gjaldeyristekjur „sem séu að vissu
leyti lífæð þjóðarbúsins“. Með því
aukist fjárfestingar og innlend
eftirspurn í hagkerfinu.
Fram kom í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku að aðflutningur erlendra
ríkisborgara til landsins á þriðja
fjórðungi í ár hefði verið kröftugur
og jafnvel umfram spár.
Spurður um efnahagsleg áhrif
þessa segir Ingólfur aðflutninginn
vera afleiðingu, fremur en orsök,
stöðunnar í efnahagsmálum.
„Aðfluttir erlendir ríkisborgarar
hafi á þessu ári verið talsvert færri
en á síðasta ári sem endurspeglar
samdrátt í hagkerfinu. Atvinnu-
leysi hefur verið að aukast og
dregið úr eftirspurn eftir vinnuafli.
Launþegum hefur fækkað. Það er
því mjög jákvætt ef hægt verður
að vinda ofan af því atvinnuleysi
sem orðið er,“ segir Ingólfur um
stöðuna í hagkerfinu.
Góðar fréttir fyrir hagkerfið
ÁHRIF ÁLSINS OG FLUGSINS Í ÁRSLOK
Ingólfur
Bender