Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI
AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Komdu í kaffi
inn og út úr vagninum. Að stöðva
þar er, að sögn Árna, einnig skýrt
lögbrot enda merkt hringtorg.
Jóhannes Svavar Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Strætó, segir
þörf á að bregðast við ætli lögreglan
að framfylgja umferðarlögum við
þessar stoppistöðvar með sektum.
„Ef lögreglan ætlar að fara að
sekta þá þarf auðvitað að breyta
þessu í samstarfi við Reykjavíkur-
borg því það er hún sem úthlutar
okkur stoppistöðvum,“ segir hann.
Spurður hvort þessi vandræða-
gangur setji vagnstjóra Strætó í
óþægilega stöðu kveður Jóhannes já
við. „Við viljum ekki vera valdir að
lögbrotum, ekki frekar en aðrir.“
þurfa að stoppa. Bílstjórinn fær jú
sektina en ekki veghaldari sem í
þessu tilviki er Reykjavíkurborg,“
segir Árni enn fremur.
Setur Strætó í slæma stöðu
Reykjavíkurborg segir Hagatorg
ekki vera „hefðbundið“ hringtorg og
að verið sé að skoða hvaða breyt-
ingar þarf mögulega að gera á um-
ferðarmerkingum til að staðfesta
það. Má skilja afstöðu Reykjavíkur-
borgar á þann veg að Hagatorg sé
ólíkt öðrum hringtorgum í borginni.
Við Hádegismóa í Reykjavík má aft-
ur á móti finna annað hringtorg þar
sem strætó þarf einnig að stoppa á
akstursbraut til að hleypa farþegum
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er merkt hringtorg og þarna
má nú finna strætóstoppistöð, en
samkvæmt umferðarlögum er
óheimilt að stöðva ökutæki á hring-
torgi. Við höfum þegar komið okkar
ábendingum á framfæri við Reykja-
víkurborg og er boltinn hjá þeim,“
segir Árni Friðleifsson, aðalvarð-
stjóri í umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, og vísar í máli
sínu til Hagatorgs í Vesturbæ
Reykjavíkur.
Greint var frá því í Morgunblað-
inu í gær að breytt staðsetning á
strætóskýli við Hagatorg veldur því
að strætó þarf nú að stoppa á akst-
ursleiðinni um torgið til að hleypa
farþegum inn og út úr vagninum. Að
stöðva ökutæki á hringtorgi er, sam-
kvæmt umferðarlögum, ekki heimilt.
Árni segir lögreglu munu fylgjast
með umferð á svæðinu í ljósi þeirrar
stöðu sem nú er uppi. Spurður hvort
lögreglu sé heimilt að sekta vagn-
stjóra Strætó stöðvi þeir vagna sína
við strætóskýlið kveður Árni já við.
„Við munum fylgjast með þessu
svæði sem öðrum. Lagagreinin er al-
veg skýr og engin undanþága heim-
il,“ segir hann og bætir við að þeir
ökumenn sem lenda í því að þurfa að
stoppa ökutæki sín vegna þess að
strætó stoppar við strætóskýlið
gætu einnig átt von á sekt.
„Menn geta ekki leyft sér að búa
til þær aðstæður að ökumenn fái
sekt vegna þess að vagnstjórar
Morgunblaðið/Eggert
Hádegismóar Við þetta skýli þarf strætó að stoppa og er það brot á lögum. Fyrir það má sekta vagnstjórann.
Vagnstjórar Strætó
gætu átt von á sekt
Er annað „óhefðbundið“ hringtorg við Hádegismóa?
Morgunblaðið/Eggert
Hagatorg Hringtorgið er greinilega merkt eins og venjulegt hringtorg, en
Reykjavíkurborg vill meina að um sé að ræða „óhefðbundið“ hringtorg.
Erlendir ríkisborgarar án atvinnu í
lok október voru 2.920 talsins eða
um 38% allra atvinnulausra. Þessi
fjöldi samsvarar um 8,3% atvinnu-
leysi á meðal erlendra ríkisborgara.
Vinnumálastofnun segir að gera
megi ráð fyrir því að skráð atvinnu-
leysi aukist í nóvember og verði á
bilinu 3,9% til 4,1%. Þetta kom fram
í frétt stofnunarinnar sem birt var í
gær.
Skráð atvinnuleysi í október
mældist 3,8% og jókst um 0,3 pró-
sentustig frá því í september. Að
jafnaði voru 7.039 einstaklingar á at-
vinnuleysisskrá í október og fjölgaði
þeim um 476 frá september. Alls
voru 2.804 fleiri á atvinnuleysisskrá í
október 2019 en í október árið áður.
Í október nú voru að jafnaði 3.912
karlar atvinnulausir og 3.127 konur.
Atvinnuleysi var 3,8% meðal karla
og jókst um 0,4 prósentustig og 3,9%
meðal kvenna og jókst um 0,3 pró-
sentustig frá í september.
Í október tóku 1.612 einstaklingar
þátt í úrræðum eða starfsþjálfunar-
verkefnum. Um 886 einstaklingar
fóru í ýmiss konar grunnúrræði.
Vinnumálastofnun gaf út 206 at-
vinnuleyfi til útlendinga í október.
Af útgefnum leyfum voru 99 til
nýrra útlendinga á íslenskum vinnu-
markaði og 107 leyfi voru fram-
lengd. gudni@mbl.is
Búist er við að at-
vinnuleysi aukist
Skráð atvinnuleysi í október 3,8%
Morgunblaðið/Golli
Vinna 2.920 útlendingar án vinnu í
október eða 38% atvinnulausra.
Sveitarstjórn
Borgarbyggðar
hefur sagt Gunn-
laugi A. Júlíus-
syni upp störf-
um. „Mismun-
andi sýn á stjórn-
un sveitarfélags-
ins gerir það að
verkum að sveit-
arstjórn og
Gunnlaugur hafa
ákveðið að slíta samstarfi,“ segir í
tilkynningu og tekið fram að öll
sveitarstjórnin standi að ákvörð-
uninni. Gunnlaugur hefur verið
sveitarstjóri frá árinu 2016, var
endurráðinn eftir kosningar.
Sveitarstjóra Borg-
arbyggðar hefur ver-
ið sagt upp störfum
Gunnlaugur
A. Júlíusson
„Við fögnum að sjálfsögðu lækkun-
um fasteignaskatta á atvinnuhús-
næði á Akranesi, í Vestmannaeyjum,
Kópavogi og Mosfellsbæ. Óbilgirni
borgaryfirvalda í Reykjavík, sem
halda fasteignaskatti á atvinnuhús-
næði í lögleyfðu hámarki, er hins
vegar með talsverðum ólíkindum,“
sagði í frétt frá Félagi atvinnurek-
enda (FA) í gær. FA tók saman til-
lögur um fasteignaskatta á íbúðar-
og atvinnuhúsnæði í frumvörpum til
fjárhagsáætlana í tíu af stærstu
sveitarfélögum landsins. Af tólf
stærstu sveitarfélögunum áttu að-
eins Árborg og Reykjanesbær eftir
að leggja fram fjárhagsáætlun.
FA segir það vekja athygli „að
Reykjavíkurborg, þar sem yfir helm-
ingur af öllu verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði landsins er staðsettur,
sér enn eitt árið enga ástæðu til að
lækka fasteignaskatta og innheimtir,
eitt sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu, hæsta lögleyfða fasteigna-
skatt af atvinnuhúsnæði, 1,65% af
fasteignamati,“ segir í fréttinni.
Lagt er til að álagningarhlutfall
íbúðarhúsnæðis í Reykjavík verði
0,18% af fasteignamati árið 2020.
Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði
er lægstur á höfuðborgarsvæðinu á
Seltjarnarnesi 0,175% og er lagt til
að hann verði óbreyttur á milli ára.
Einnig er lagt til að fasteignaskattur
á atvinnuhúsnæði þar í bæ verði
óbreyttur á næsta ári eða 1,1875%.
Samkvæmt samantekt FA lækkar
fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði
mest á Akranesi eða um 11,4% og fer
úr 1,5804% í 1,4% af fasteignamati. Í
Kópavogi lækkar fasteignaskattur á
atvinnuhúsnæði úr 1,5% í 1,49%. Í
Mosfellsbæ er lagt til að lækka fast-
eignaskatt á atvinnuhúsnæði úr 1,6%
í 1,585%. Jafnframt er lagt til að
lækka vatns- og fráveitugjöld. Lagt
er til að fasteignaskattur á atvinnu-
húsnæði lækki talsvert í Vestmanna-
eyjum eða úr 1,65% í 1,55%.
Hafnfirðingar leggja til að fast-
eignaskattar verði óbreyttir milli
ára, 0,26% á íbúðarhúsnæði og 1,4%
á atvinnuhúsnæði. Garðbæingar
ætla að skoða álagningarhlutfallið
milli umræðna. gudni@mbl.is
Reykjavík með hæsta skatt
FA tók saman álagningarhlutföll fasteignaskatta í stærstu sveitarfélögunum
Reykjavík áfram með fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði í lögleyfðu hámarki