Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Þú færð rúðuhreinsinn og allar hinar vetrarvörurnar fyrir bílinn hjá Olís. Vinur við veginn *Lykil- og korthafar Olís og ÓB eru sjálfkrafa meðlimir í Vinahópnum og njóta afsláttarkjara þegar greitt er með lykli eða korti. 10% afsláttur af bílavörum fyrir Vinahóp Olís* Bjartara framundan Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mér finnst gott að getanotað forréttindi mínsem þegn í friðsömu ogfrjálsu landi til þess að hjálpa þeim sem sannarlega þurfa. Þetta starf veitir mér mikla gleði,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs- ins. Hún er nýlega komin heim frá Palestínu þar sem hún dvaldi um fjögurra vikna skeið, frá því snemma í október síðastliðnum fram í þennan mánuð, og sinnti þar uppskerustörf- um á ólífuökrum. Endalaus mannréttindabrot Ytra dvaldist Sigþrúður sem sjálfboðaliði á vegum samtakanna The International Women’s Peace Service (IWPS), en stefna þeirra og starf er bundið við Palestínu. Á þess- um slóðum var Sigþrúður einnig á síðasta ári og er því orðin hagvön. Kvennasamtökin fyrrnefndu hafa til umráða hús í þorpinu Der Istia og þar átti Sigþrúður samastað meðan á dvölinni stóð. „Meðan ég var þarna komu í hús konur til dæm- is frá Englandi, Svartfjallalandi, Frakklandi og Austurríki. Þarna var fjörleg sambúð í fallegu húsi,“ segir Sigþrúður og heldur áfram: „Veðráttan var mild og vinna þægileg, svo þetta var allt eins og best verður á kosið. Hins vegar rann mér til rifja að sjá og upplifa það margvíslega óréttlæti sem palest- ínska sveitafólkið sem þarna býr má sæta. Þarna eru framin endalaus mannréttindabrot. Sárast finnst mér kannski að sjá grimmdina bitna á börnunum; sem móðir og amma kemur slíkt við hjarta mitt.“ Hætta vofir yfir Ólífukonurnar lögðu af stað út á akurinn snemma dags og tíndu af trjánum allan daginn. Urðu þó oft frá að hverfa af ýmsum ástæðum. „Hættan sem steðjar að bændunum er af ýmsum toga. Oft eru akrarnir mjög nálægt landtökubyggðum og þá vofir yfir hætta á ofbeldi af hálfu landtökufólks. Í október komust til dæmis sjálfboðaliðar á næsta akri við okkur í hættu þegar hópur landtökufólks réðst á þau með bar- smíðum og spörkum. Í framhaldinu var kveikt í ólífutrjám allt í kringum okkur.“ Að auki þurfa bændurnir að eiga við her og lögreglu sem eiga það til að birtast og vísa bændum af eigin ökrum sem skyndilega eru sagðir vera hernaðarlega mikilvægir staðir, að sögn Sigþrúðar. Hún bætir við að mörgum renni til rifja að sjá og fylgj- ast með fréttum af ástandinu í Pal- estínu. Algengt sé því að sjálfboða- liðar fari þangað til aðstoðar og nú á dögunum hafi hún hitt fjölda fólks sem var á svæðinu undir merkjum fjölmargra hjálparsamtaka. Notaleg vinna og núvitund „Ólífutínslan sjálf er notaleg vinna og á við bestu núvitundar- æfingu. Helsti kosturinn er að fá að kynnast bændunum og fjölskyldum þeirra og fá að deila með þeim kjör- um. Oft bjóða fjölskyldurnar sjálf- boðaliðunum í kvöldmat í dagslok og ef heppnin er með okkur fáum við að fara með þegar feng dagsins er skil- að í ólífupressuna, en þar er mikið fjör á þessum árstíma,“ segir Sig- þrúður um sjálfboðastarfið í Palest- ínu sem hún vill sinna áfram. Hugsandi Rann til rifja að sjá og upplifa óréttlæti, segir Sigþrúður. Ólífur Aldin á trjám í fjarlægu landi. Stöðvaður Maðurinn reið asna en hermenn hömluðu lengi för. Palestína er stríðshrjáð land en heillandi þó. Sig- þrúður Guðmundsdóttir dvaldist þar á dögunum og tíndi ólífur á ökrum bænda. Landtökufólk á svæðinu beitir grimmd og ofbeldi og hermenn eru aldrei langt undan. Starf með heimafólki í sveitum landsins er því ekki hættulaust en afar lærdómsríkt. Ljósmynd/Sigþrúður Guðmundsdóttir Stríð Palstínumenn eru umsetnir landtökufólki sem meðal annars kveikir elda á ólífuökrum og vinnur spellvirki. Ólífurnar í október Áfram er meintu aðgerðaleysi stjórn- valda gegn loftslagsbreytingum mót- mælt og í hádeginu á morgun, föstu- dag, mætir ungt fólk til fundar á Austurvelli klukkan 12. Verkfallið er innblásið af hinni sænsku Gretu Thunberg, en skólaverkfall hennar hefur vakið mikla athygli. Nú þegar hafa hundruð þúsunda ungmenna farið að hennar fordæmi og flykkst út á götur til að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda í baráttunni við loftslags- breytingar í yfir 100 löndum um allan heim. „Við viljum sýna stjórnvöldum að almenningur sé meðvitaður um al- vöru málsins og vilji rótttækar að- gerðir,“ segir í kynningu á viðburði þessum. Þar er nefnt að á Íslandi hafi verið sett aðgerðaáætlun í loftslags- málum sem nái til ársins 2030. Þar sé meðal annars gert ráð fyrir kolefn- ishlutleysi fyrir árið 2040. Þær ráða- gerðir séu góðar en betur megi ef duga skuli. Áætlunin sé ekki í sam- ræmi við markmið um að halda hlýn- un innan 1,5 gráða á heimsvísu og því þurfi að stíga stærri skref. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóð- anna segir að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. „Við krefjumst þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vísindamenn, lýsi yfir neyðarástandi og láti hið minnsta 2,5% af þjóðarframleiðslu renna beint til aðgerða tengdra um- hverfismálum. Þar verður atvinnulífið einnig að axla ábyrgð og til þess verður viðhorfsbreyting að eiga sér stað,“ segir ennfremur. Loftslagsverkföllin á Austurvelli halda áfram Hlustað verði á vísindamenn Morgunblaðið/Hari Austurstræti Í allsherjarverkfalli ungs fólks vegna loftslagsmála í haust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.