Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 ræða, að sögn Jóns. Stefán er fé- lagi í heimssamtökum hrein- dýraræktenda og er nýkominn frá hreindýrabændum í Síberíu. „Allir sem rækta hreindýr, frá Grænlandi og austur til Síberíu, eru að hugsa um tæki til að smala og líta eftir. Hreindýrabændur í Skandinavíu og víðar hafa áhuga á þessu tæki. Ég ræddi við kollega mína sem flestir kvörtuðu yfir því að hefðbundnir drónar hefðu of lítið flugþol. Auk þess gátu þeir ekki notað drónana nógu langt frá sér. Þeir töldu æski- legast að geta notað dróna í 3-7 km fjarlægð til að leita að dýrum og hjálpa við að smala við ákveðnar aðstæður. Þessi vél getur mætt því. Hreindýrabændur í Síberíu glíma við vandamál vegna óarga- dýra. Þar eru stór flæmi og skóg- ar. Mikið er af úlfum sem drepa hreindýr og valda bændunum miklu tjóni. Þeir hafa áhuga á að geta fylgst með úlfunum svo hægt sé að flytja þá á önnur svæði þar sem þeir valda ekki skaða. Við höf- um fengið skriflega fyrirspurn frá Rússlandi um hvort við höfum áhuga á að vinna með þeim,“ sagði Stefán. Mjög fullkomin myndavél Ingvar sagði að myndbúnaður drónans gegndi lykilhlutverki. Þeir keyptu tvöfalda tékkneska mynda- vél sem tæki jafnt myndir í hárri upplausn og hitamyndir. Mynda- vélarlinsan hefur mikla aðdrátt- argetu. Hitamyndavélin gerir kleift að sjá dýrin í myrkri og sér þau greinilega þótt þau séu mjög sam- lit umhverfinu. Myndavélin er smá- gerð og létt en hvert gramm skipt- ir máli í þessu sambandi. Jón sagði að myndavélin gæti tekið góðar myndir þótt hún væri í 100-150 metra fjarlægð frá mynd- efninu. Hefðbundnar drónamynda- vélar þurfi að vera í 40-50 metra fjarlægð til að ná þokkalegri mynd. Það þrengir leitarsvæðið og gerir stjórn á drónanum erfiðari. Ingvar sagði að hugbúnaður fylgdi myndavélinni sem auðveldaði greiningu á myndefninu. Vélin er smíðuð til eftirlits- og hern- aðarnota. Því þurftu þeir að und- irrita yfirlýsingu um endanlega notkun vélarinnar áður en hún fékkst afhent. Jón sagði að þegar dróninn var smíðaður hefðu þeir sett á hann alls konar tengi og festingar fyrir aukabúnað. „Þegar ég vigtaði drón- ann var hann of þungur. Ég reif allt úr honum, grennti kapla, end- urhannaði rafkerfið og fjarlægði hvert gramm sem ég gat.“ Alltaf hægt að endurbæta Drónanum er alltaf flogið á milli staða á vettvangi, hann er aldrei borinn. Það eina sem þarf að bera er varaeldsneytið. Hægt er að fljúga drónanum í tvo klukkutíma á fjórum lítrum af bensíni. Jón sagði mikinn mun á að bera það bens- ínmagn eða 25 kg þungan og stór- an dróna. Með öflugri ljósavél verð- ur hægt að fylla eldsneytistank drónans, sem rúmar átta lítra. Með því og minniháttar uppfærslu er hugsanlega hægt að auka flugþolið í fjórar klukkustundir Þróun drónans er ekk i lokið. „Þetta er fullgerð frumgerð en það er alltaf pláss fyrir endurbætur,“ sagði Jón. „Þetta var frumraun hjá okkur og við höfum áttað okkur á styrkleikum og veikleikum tæk- isins.“ Ingvar sagði að tækið væri vel nothæft og Stefán gæti farið með drónann til Grænlands og smalað með honum. Ljósmynd/IG Hitamynd Myndin var tekin við smölun á hreindýrum á eyju nálægt Isortoq. Hitamyndavélin sýnir hreindýrin greinilega á nóttu sem degi. Húsdýragarðurinn Ljósmyndavél drónans er mjög næm og tekur bæði svart-hvítar og litmyndir í hárri upplausn. Linsan hefur mikið aðdráttarafl. Ljósmynd/IG Hreindýrasmölun í Grænlandi Flugmaður drónans fjarstýrir honum og fylgist með smöluninni í gegnum sýndarveruleikagleraugu. Ljósmynd/IG Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.gallerifold.is Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. lokað VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ KOMA VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ ÁHUGASAMIR GETA HAFT SAMBAND Í SÍMA 551-0400 Hreindýrasmölun á Grænlandi með dróna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.