Morgunblaðið - 14.11.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.11.2019, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hinn 4. nóvember síðastliðinn birti Morgunblaðið frétt um að skipulags- fulltrúinn í Reykjavík hefði tekið til afgreiðslu umsókn Seðlabanka Ís- lands um hækkun hússins á lóð nr. 1 við Kalkofnsveg (Svörtuloft) að hluta til um tvær hæðir, samkvæmt tillögu arkitektastofunnar Arkþings ehf. Fréttin var byggð á gögnum sem Arkþing sendi til borgarinnar fyrir hönd Seðlabankans. Hinn 8. nóvember birtist svo við- tal við Ásgeir Jónsson seðlabanka- stjóra í Fréttablaðinu þar sem hann vísaði því á bug að framkvæmdirnar væru áformaðar. Bankinn vildi að- eins kanna hvort sá möguleiki væri fyrir hendi að hækka Seðlabanka- húsið. Fyrirspurn send til bankans Þar sem seðlabankastjóri var hér að halda því fram að Morgunblaðið væri að fara með rangt mál var óhjá- kvæmilegt að blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina sendi fyrirspurn til Ásgeirs seðlabankastjóra: Fyrirspurnin: „Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur 25. október sl. var eft- irfarandi bókun gerð: „3.19 Kalk- ofnsvegur 1, Seðlabankinn, (fsp) hækkun húss að hluta. Lögð fram fyrirspurn Helga Mars Hallgríms- sonar f.h. Seðlabanka Íslands dags. 25. júlí 2019 um hækkun hússins á lóð nr. 1 við Kalkofnsveg að hluta til um tvær hæðir, samkvæmt tillögu Arkþings ehf. ódags. Vísað til um- sagnar verkefnisstjóra.“ Í tillögu Arkþings segir m.a.: „Nýlega var sameining Seðla- banka Íslands og Fjármálaeftirlits- ins samþykkt á Alþingi. Fyrirhugað er að sameina starfsemina undir eitt þak í núverandi hús Seðlabankans. Starfsfólki í húsinu mun fjölga um u.þ.b. 40% og er ljóst að stækka þarf húsið til að rúma starfsemina.“ Nú langar mig að vita hvernig ber að skilja þessa setningu ef ekki eru nein áform um stækkun hússins eins og haft er eftir þér í Fréttablaðinu.“ Eftirfarandi svar barst frá seðla- bankastjóra: „Umrædd fyrirspurn til skipu- lagsfulltrúa Reykjavíkur var und- irbúin í sumar og send til þess að kanna þessa möguleika og vinna tíma ef til þess kæmi að hækka þyrfti húsnæðið. Það hefur þó engin ákvörðun verið tekin um slíkt. Fyrst um sinn verður reynt að nýta hús- næði Seðlabankans sem best og stefnt er að því að færa starfsemi FME þangað eftir því sem færi gefst. Stefnan er að hafa starfsem- ina undir einu þaki en það breytir því ekki að við vildum kanna afstöðu borgaryfirvalda til mögulegrar stækkunar.“ Tölvupóstsamskiptin við Ásgeir Jónsson bankastjóra fóru fram í gegnum Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóra á skrifstofu seðlabanka- stjóra. Þar sem blaðamaður taldi svar seðlabankastóra alls ófullnægjandi sendi hann eftirfarandi fyrirspurn á Stefán Jóhann: „Þetta svarar ekki spurningunni sem ég bar upp hér að neðan. Ef ekki stóð til að stækka húsið, hvers vegna stendur þá í fyrirspurn Arkþings að ljóst sé að stækka þurfi húsið til að rúma starfsemina? Á grunni þessa m.a. skrifaði Morgunblaðið fréttina sem seðlabankastjóri hefur vísað á bug í samtali við Fréttablaðið. Voru það mistök að breyta ekki fyrirspurn Arkþings áður en hún kom til af- greiðslu skipulagsyfirvalda?“ Svar Stefáns Jóhanns var svo- hljóðandi: „Eins og fram kom þá var aldrei endanlega búið að taka neina ákvörðun í Seðlabankanum um að stækka húsið heldur var ákveðið að kanna þá möguleika strax í sumar ef út í það færi að húsið yrði stækkað. Það var unnið að því að skoða þessa möguleika eins og fram kemur í svari seðlabankastjóra. Þetta end- urspeglast líka í því sem haft er beint eftir seðlabankastjóra í fréttum.“ Eins og sjá má hér að ofan er spurningu blaðamanns Morgun- blaðsins ekki heldur svarað af Stef- áni Jóhanni. Ómdeilt er að í bréfi Arkþings fyrir hönd Seðlabankans dagsett 25. júlí segir orðrétt: „Starfsfólki í húsinu mun fjölga um u.þ.b. 40% og er ljóst að stækka þarf húsið til að rúma starfsemina.“ Með fylgdu tölvumyndir af Kalk- ofnsvegi 1 frá nokkrum sjón- arhornum, fyrir og eftir stækkun. Mörg dæmi eru um það að skipu- lagsyfirvöld í Reykjavík fái fyrir- spurnir um það hvort leyfi fáist til framkvæmda og er þeim þá svarað jákvætt eða neikvætt. Ekkert slíkt er að finna í fyrirspurn Arkþings sem borgin afhenti Morgunblaðinu. Starfsmenn Seðlabankans eru nú 181 talsins og starfsmenn Fjármála- eftirlitsins 117. Því verða alls 298 manns starfandi í húsinu óstækkuðu í framtíðinni, samkvæmt orðum seðlabankastjóra. Þess má geta í lokin að þegar Ark- þing sendi Reykjavíkurborg bréfið 25. júlí var Már Guðmundsson seðla- bankastjóri. Ásgeir Jónsson tók við embættinu 20. ágúst sl. Ætlaði að byggja en samt ekki  Seðlabankastjóri vísar á bug frétt um að áformað sé að hækka hús bankans  Í bréfi til skipulags- yfirvalda segir hins vegar að stækka þurfi húsið til að rúma starfsemina  Misræmið er óútskýrt Tölvumyndir/Arkþing Fyrir og eftir „stækkun“ Hér má sjá myndir sem arkitektastofan útbjó og sýna Svörtuloft fyrir og eftir stækkunina sem þó var ekki áformuð að sögn bank- ans. Hér er sjónarhornið frá Arnarhvoli niður Ingólfsstræti. Í bréfi Arkþings fyrir hönd bankans var stækkun hússins sýnd frá fjórum sjónarhornum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og ungir iðkendur í Fram tóku á þriðju- dag fyrstu skóflustungu að nýrri íþróttamiðstöð félagsins í Úlfarsár- dal. Framkvæmdir hefjast strax og verklok eru áætluð 2022. Verktaki er GG Verk ehf. Fjölnota íþróttahús, áhorfenda- stúka fyrir aðalleikvang í knatt- spyrnu, minni íþróttasalir, félags- og þjónustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrými ásamt samkomusal og fundaraðstöðu eru hlutar af íþróttamiðstöðinni. Hún verður 7.300 fermetrar á þremur hæðum með aðalinngang við sameig- inlegt hverfistorg við Úlfarsbraut. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður 4,6 milljarðar króna. Íþróttamiðstöðin er austasti hluti bygginga við Úlfarsbraut sem þjóna hverfinu. Í vestari hluta bygginganna eru leik- og grunnskóli ásamt frí- stundamiðstöð, menningarmiðstöð og sundlaug sem nú eru ýmist full- byggðar eða í uppbyggingu. Íþrótta- aðstaðan nýja verður ennfremur nýtt af skólum í hverfinu. Íþróttamiðstöðin mun hýsa full- búna handboltahöll með keppnisvelli og áhorfendapöllum fyrir allt að 1.300 manns. Nýr knattspyrnuvöllur verð- ur gervigrasvöllur, með stúku sem rúmar 1.600 áhorfendur. sisi@mbl.is Ljósmynd/Reykjavíkurborg Ný íþróttamiðstöð rís í Úlfarsárdal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.