Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 30

Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 30
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sú staða er komin upp að Ísland þarf að ákveða hvort það tekur upp nán- ara samstarf við Kína eða lætur und- an kröfum Bandaríkjanna um að draga úr nánum samskiptum land- anna. Einnig getur sú staða komið upp að Ísland þurfi að taka af skarið með það hvort það ætli að vera í nán- ara pólitísku og efnahagslegu sam- starfi við Bandaríkin, þá ef til vill í bandalagi við Bretland, eða ríki Evrópu innan Evrópusam- bandsins. Þetta er mat Baldurs Þórhalls- sonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, en hann hefur ásamt sam- starfsmönnum sínum rannsakað utanríkisstefnu Íslands út frá kenningunni um mikil- vægi skjóls fyrir smáríki. Fyrir um mánuði fjallaði Morgun- blaðið um það sjónarmið Baldurs og fræðimannsins Marcs Lanteignes að Ísland stæði á krossgötum; þyrfti að velja milli nánara samstarfs við Kína eða Bandaríkin. Greinin vakti tölu- verð viðbrögð en byggðist að mestu leyti á viðtali við Lanteigne, sem rök- studdi sjónarmið sín á opnum fyrir- lestri í Háskóla Íslands. Gagnrýndi Björn Bjarnason, einn helsti sérfræðingur Sjálfstæðis- flokksins í utanríkismálum, meðal annars niðurstöður greinarinnar. Í tilefni af áhuganum sem málið vakti lék blaðamanni forvitni á að heyra Baldur skýra málið nánar. Mikilvægi skjóls fyrir smáríki Dr. Baldur byrjar á að útskýra kenninguna um skjól sem hann hafi þróað með samstarfsaðilum sínum. Þar sé vikið að mikilvægi þess að smærri samfélög hafi pólitískt, efna- hagslegt og samfélagslegt skjól stærri ríkja og alþjóðastofnana. „Stór ríki geta miklu frekar staðið ein og sér. Það eiga smáríki erfitt með að gera. Undir pólitískt skjól fellur til dæmis hernaðarlegt og diplómatískt skjól sem og reglur og viðmið í alþjóðakerfinu sem eru smá- ríkjum hagstæð. Bandaríkin og að- ildin að NATO veita okkur hern- aðarlegt skjól. Bandaríkin veittu okkur einnig mikilvægt efnahagslegt og diplómatískt skjól stærstan hluta kaldastríðstímans. Auk þess héldu Bandaríkin uppi gildum og reglum í alþjóðakerfinu sem voru mjög hag- stæð smáríkjum eins og Íslandi. Norðurlöndin hafa veitt okkur öfl- ugasta samfélagslega skjólið eins og aðgang að menntastofnunum, þaðan kemur fyrirmyndin að velferðar- kerfinu og róttækar hugmyndir ber- ast enn þaðan. Umfangsmesta efna- hagslega skjólið í dag felst í aðgangi að mörkuðum Evrópu með aðildinni að Evrópska efnahagssvæðinu,“ segir Baldur og bendir á að staða landsins í alþjóðakerfinu sé að breytast. Grafa undan alþjóðakerfinu Um leið ríki óvissa um hvernig smáríkjum muni reiða af í breyttri heimsmynd. Kína gegni sífellt stærra hlutverki í heimsmálunum og Banda- ríkin grafi undan alþjóðastofnunum þar sem smáríki hafi notið skjóls. Þá ríki óvissa á stundum um hvort Bandaríkin standi við skuldbindingar gagnvart nánum bandalagsríkjum sínum. Bretar gangi líklega úr Evr- ópusambandinu á næstunni og inn- byrðis togstreita einkenni ESB, sem aftur dragi úr áhrifamætti þess. Með hliðsjón af þessum hræringum sé rétt að spyrja hver staða Íslands sé í al- þjóðamálum og hvernig best sé fyrir lítið ríki að haga utanríkisstefnu sinni í ólgusjó þessara breytinga. Telur Baldur að enn frekari pólun geti átt sér stað í alþjóðakerfinu. Því sé ekki sjálfgefið að Ísland geti á sama tíma unnið náið með valda- mestu ríkjum heims eins og Banda- ríkjunum, Kína og ríkjum Evrópu- sambandsins. Eitt sé að stunda viðskipti við þessi ríki, annað að taka upp náið stjórnmálalegt samband við þau. Veittu ekki aðstoð í hruninu Baldur bendir á að hið efnahags- lega skjól sé ekki lengur fyrir hendi fyrir Ísland. Sama gildi um diplómat- íska skjólið sem landið hafði. „Ef eitthvað er finnst mönnum á stundum að stjórnvöld í Bandaríkj- unum séu að grafa undan því al- þjóðakerfi sem var búið til eftir síðari heimsstyrjöldina og hefur verið mjög hagstætt smáríkjum. Við getum til dæmis litið á íslenska efnahagshrunið 2008 í þessu sam- bandi. Þá vöknuðu stórar spurningar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn lok- uðu herstöðinni 2006. Þeir vildu ekki aðstoða okkur í hruninu, á sama tíma og þeir aðstoðuðu Norðurlöndin og Sviss. Hvað gerðum við í hruninu? Fyrstu viðbrögðin voru meðal annars að leita til Bandaríkjanna sem höfn- uðu að veita okkur aðstoð, þótt sendi- herra Bandaríkjanna hér í Reykjavík mælti með því. Það var sótt um aðild að Evrópusambandinu, níu mánuðum eftir hrun, sem voru dæmigerð við- brögð lítils ríkis sem lendir í áfalli. Evrópusambandið átti að bjarga okk- ur á öllum sviðum, hvort sem það væri efnahagslega, pólitískt eða sam- félagslega. Því næst gerum við svo öryggis- samninga, einkum tengda hafinu, við ríki eins og Danmörku, Noreg, Bret- land og Kanada. Og við aukum öryggis- og varnarsamstarf við Norðurlöndin,“ segir Baldur. Náið samstarf við Kína „Við fórum síðan í náið samstarf við Kína og gerðum gjaldmiðlaskipta- samning og fríverslunarsamning. Jafnframt lögðum við áherslu á frí- verslunasamninga innan EFTA. Frá mínum bæjardyrum séð hefur utanríkisstefna Íslands frá því eftir hrun einkennst af því að íslenskir ráðamenn, hvar í flokki sem þeir hafa staðið, hafa reynt að tryggja landinu efnahagslegt, pólitískt og samfélags- legt skjól. Menn eru hins vegar ekki einhuga um hvar eigi að leita skjóls. Að mínu mati vitnar utanríkisstefnan um að menn hafa verið dálítið ör- væntingarfullir, á köflum. Það má kannski líta á það sem dæmi hvernig aðildarumsóknin að ESB var höndluð í flýti og hve ákafir ráðamenn hafa verið að vinna með Kína; hafa fullir örvæntingar leitað að nýjum skjól- veitanda sem er jafn sterkur og við höfðum á tímum kalda stríðsins. Við höfum hins vegar ekki náð að tryggja okkur jafn öflugan skjólveitanda og við höfðum í kalda stríðinu.“ Viðbrögð við Brexit gott dæmi Baldur telur viðbrögð íslenskra ráðamanna við Brexit styðja þessa túlkun á utanríkisstefnunni. Leitað sé tækifæra þar sem þau bjóðast. „Þegar ljóst er að Bretar hafa greitt atkvæði um að ganga úr Evrópusambandinu fara íslenskir stjórnmálamenn að tala um tækifær- in sem felast í útgöngunni, á meðan flestir stjórnmálamenn í Evrópu sjá aðeins vandamálin sem henni fylgja. Við tölum um að geta bundist Bretum enn nánari böndum og fylgt þeim eftir út um allan heim; gert fríversl- unarsamninga og unnið náið með þeim. Þannig hyggjast ráðamenn leita skjóls hjá Bretum. Það virðist ekki skipta máli hvar í flokki menn standa þegar þeir leita að skjóli,“ seg- ir Baldur og bendir á skort á efna- hagslegu skjóli. Það hafi komið á daginn að ekkert í samningum Íslands við Bandaríkin, Evrópusambandið eða Norðurlöndin hafi kveðið á um að Íslandi yrði bjargað í efnahagslegu áfalli. Það skýri örvæntingu stjórnmálamanna eftir hrunið og hversu víða þeir leit- uðu skjóls. Það spurðist út árið 2009 ESB-aðild átti að bjarga öllu  Prófessor segir stjórnmálamenn hafa í örvæntingu leitað skjóls fyrir Ísland eftir efnahagshrunið  Eftir að vinaþjóðir höfnuðu aðstoð hafi Ísland horft til Kína  Bandamenn muni gera kröfur Morgunblaðið/Hari Á Keflavíkurflugvelli Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans, Karen. Hjónin heimsóttu Ísland í ágúst síðastliðið sumar. Baldur Þórhallsson 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Verslun Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | Sími 588 0488 | feldur.is Fallegar og hlýjar loðskinns- úlpur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.