Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
14. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.62 125.22 124.92
Sterlingspund 159.94 160.72 160.33
Kanadadalur 93.98 94.54 94.26
Dönsk króna 18.374 18.482 18.428
Norsk króna 13.615 13.695 13.655
Sænsk króna 12.839 12.915 12.877
Svissn. franki 125.19 125.89 125.54
Japanskt jen 1.1408 1.1474 1.1441
SDR 171.04 172.06 171.55
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.0121
Hrávöruverð
Gull 1455.0 ($/únsa)
Ál 1804.5 ($/tonn) LME
Hráolía 62.11 ($/fatið) Brent
● Aðeins tvö félög hækkuðu í við-
skiptum í Kauphöll í gær. Þannig
hækkaði Origo um 0,6% í óverulegum
viðskiptum. Hins vegar hækkuðu bréf
Skeljungs um ríflega 2% í viðskiptum
sem námu tæpum 382 milljónum
króna. Voru það mestu viðskipti með
einstakt félag í Kauphöllinni í gær.
Skeljungur hafði birt uppgjör sitt fyrir
þriðja ársfjórðung eftir lokun markaða
á mánudag.
Bréf Eimskipafélagsins lækkuðu um
4,6% í viðskiptum sem námu 126
milljónum króna. Útgerðarfélagið
Samherji er stærsti hluthafinn í félag-
inu og fer með ríflega fjórðungs hlut í
félaginu.
Mest viðskipti með bréf
Skeljungs í Kauphöllinni
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Annasamasta tíma ársins er nú að
ljúka hjá dekkjaverkstæðum lands-
ins, en alla jafna byrja bíleigendur
að stefna ökutækjum sínum á hjól-
barðaverkstæðin þegar líður á
októbermánuð ár hvert.
Samkvæmt upplýsingum frá
bæði Degi Benónýssyni, rekstrar-
stjóra bílaþjónustu N1, og Ólafi
Konráð Benediktssyni, deildar-
stjóra Nesdekks, er törninni nú um
það bil að ljúka. „Það er farið að
síga á seinni hlutann. Við erum
með tíu verkstæði sem sinna hjól-
barðaþjónustu. Þetta hefur gengið
býsna vel í ár. Ef maður veitir góða
þjónustu, þá gengur manni vel,“
segir Dagur og bætir við að við-
skiptin séu svipuð frá ári til árs.
„Það er helst að það fjölgi hót-
elgestum á dekkjahótelunum okkar
milli ára.“
Árið á undan hefur áhrif
Ólafur Konráð segir í samtali við
Morgunblaðið að það hafi haft áhrif
á „vertíðina“ að enginn snjór hafi
verið á höfuðborgarsvæðinu, en
mun fleiri mæta á dekkjaverkstæð-
in ár hvert ef snjórinn er snemma
á ferðinni.
Áttu þá von á annarri bylgju
þegar og ef snjórinn lætur sjá sig?
„Ég held að bróðurparturinn af
dekkjaskiptunum sé búinn, en lík-
lega kemur smá bylgja í viðbót
þegar snjórinn lætur sjá sig.“
Spurður um hvort nagladekk eða
aðrar tegundir dekkja séu í sókn
samanborið við síðustu ár, segir
Ólafur að tímabilið markist gjarnan
af árinu á undan. „Ef það var lítill
snjór árið á undan, þá eru færri
sem fara á nagla árið á eftir, og öf-
ugt.“
Hann segir að nýir bílar búi yfir
sífellt betri skriðvörn og stöðuleika-
kerfi, og því sé minni þörf á nagla-
dekkjum á slíka bíla. „Nagladekkin
eru auðvitað alltaf öruggust við erf-
iðustu aðstæður, en þá er bara
spurning hversu marga daga á ári
aðstæður eru erfiðar hér innanbæj-
ar. Toyo-harðskeljadekkin, sem eru
vinsælustu dekkin okkar, eru mjög
góð við flestar aðstæður, án þess að
ég sé að ráðleggja eitt fremur en
annað. Fólk fylgir sinni sannfær-
ingu þegar að þessu kemur og mik-
ilvægt að það velji réttu dekkin sem
henta aðstæðum.“
100 bílar afgreiddir á dag
Ólafur segir að Nesdekk á Breið-
höfða sé stærsta dekkjaverkstæði
landsins og í október og nóvember,
þegar mest er að gera, sé skipt um
dekk á vel yfir 100 fólksbílum, auk
hópferða- og vöruflutningabíla, en
verkstæðið annar allt að sex vöru-
bílum í einu. Ólafur segir að húsið
bjóði upp á þá nýjung að vörubílar
geti keyrt í gegnum verkstæðið,
sem sé mun þægilegra fyrir bæði
viðskiptavini og starfsmenn.
„Húsið var byggt í hittifyrra og
býður upp á nútímalega aðstöðu.
Við erum til dæmis með niður-
grafnar lyftur, þannig að flottir
bílar eins og Porsche keyra inn á
slétt gólf, og þurfa ekki að keyra
upp á lyftu. Einnig erum við með
snertilausar umfelgunarvélar, sem
henta vel vönduðum og dýrum bíl-
um.“
Fjörutíu starfsmenn eru nú að
störfum hjá Nesdekki á Breiðhöfða.
„Við ráðum alltaf aukafólk þegar
mest er að gera, og það hefur aldrei
verið jafn auðvelt að fá fólk til
starfa og nú í ár. Mörgum finnst
svo gaman í þessari vertíð að þeir
taka sér frí frá sínum venjulegu
störfum til að vinna í dekkjunum
hjá okkur yfir törnina.“
Fleiri vilja nagladekk ef
fyrra ár var snjóþungt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dekk N1 er með 10 dekkjaverkstæði, en sex dekkjaverkstæði Nesdekks eru rekin undir sérleyfi.
Dekkjaskiptum að ljúka Nýir bílar með góða skriðvörn Menn koma á vertíð
Hluthafar TM samþykktu á hlut-
hafafundi í gær að félagið festi kaup
á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar
hf. af Klakka ehf. Kaupverðið nemur
9.250 milljónum króna auk þess
hagnaðar sem fyrirtækið mun skila
á þessu ári. Ekki liggur fyrir hver
hagnaður fyrirtækisins verður á
þessu ári en í fyrra nam hann 1,2
milljörðum króna en árið 2017 nam
hann 2,1 milljarði.
Eigið fé Lykils nam 11.688 millj-
ónum króna hinn 30. júní síðastlið-
inn.
TM hyggst m.a. greiða fyrir hlut-
inn í TM með útgáfu nýs hlutafjár
sem nema mun allt að 125 milljónum
króna að nafnverði. Miðað við núver-
andi gengi félagsins í Kauphöll nem-
ur heildarvirði útboðsins því rúmum
4 milljörðum króna. Verður efnt til
almenns hlutafjárútboðs í tengslum
við útgáfuna og munu núverandi
hluthafar njóta forgangsréttar í
samræmi við eign sína. Þá hefur fé-
lagið einnig gert breytingar á eigna-
safni sínu til að standa straum af
kaupunum og felst hún einkum í sölu
eigna úr safni þess. Samkvæmt
kynningu til hluthafa nemur umfang
eignasölunnar 3.250 milljónum
króna. Þá mun hluti kaupverðs einn-
ig verða tryggður með frekari eigna-
sölu og töku brúarláns.
Kaup
á Lykli
samþykkt
TM hyggst gefa
út nýtt hlutafé