Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 36

Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 sp ör eh f. Töfrandi ferð um ítölsku og frönsku rivíeruna þar sem heillandi umhverfi lætur engan ósnortinn. Förum m.a. til yndislegu borgarinnar Nice við Côte d’Azur ströndina í Frakklandi, siglum úti fyrir brattri klettaströnd Cinque Terre og látum suðrænan blæ leika um okkur í furstadæminu Mónakó og í fræga bænum San Remo. Verð: 298.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir Vor 3 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík 7. - 18. apríl Páskaveisla við ítölsku rivíeruna Ultima Thule, fjarlægasta útstirni sólkerfisins, hefur fengið nýtt nafn, Arrokoth, sem þýðir „himinn“ á máli Powhatan-frumbyggja í Bandaríkj- unum. Geimvísindastofnun Banda- ríkjanna, NASA, ákvað þetta eftir að fyrra nafnið var gagnrýnt vegna hug- renningatengsla við þýska nasista. Geimfarið New Horizons fór framhjá útstirninu í janúar og tók myndir sem benda til þess að það samanstandi af tveimur hnöttum sem eru fastir saman og minna á snjókarl. Stjórnendur leiðangursins kölluðu útstirnið Ultima Thule, eftir landi sem talið var vera lengst í norðri og endimörk veraldar í ritum Grikkja og Rómverja til forna. Þeir sem gagnrýndu nafngiftina á út- stirninu bentu á að þýskir þjóðernis- sinnar notuðu nafnið Ultima Thule yfir heimkynni aría sem samkvæmt kenningum nasista voru herraþjóð sem lifði áfram í germanska kyn- þættinum. Félagar í Thule-félaginu í Þýskalandi, þ.á m. Rudolf Hess, stofnuðu Þýska verkamannaflokkinn (DAP) sem Adolf Hitler endur- skipulagði og gerði að nasista- flokknum. Nafnið er enn vinsælt meðal hvítra þjóðernissinna í Evrópu og Bandaríkjunum. Útstirnið Ultima Thule fær nýtt nafn Satúrnu s Úranus Neptúnus Plútó Fjarlægasta stjarnan sem geimfar hefur verið sent til, Ultima Thule, hefur fengið nafnið Arrokoth Smástirni á hjara sólkerfisins fær nýtt nafn Heimild: NASA *Hlutföllin eru ekki rétt Arrokoth (þýðir „himinn“ á máli Powhatan-frumbyggja í Bandaríkjunum) Leið New Horizons NewHorizons Kuipersbeltið Útstirni sem eru næst Neptúnusi eða innan þyngdaráhrifa hans Sól 2006: Geimfarinu skotið á loft 2015: Fór framhjá Plútó 2019: Fór framhjá Arrokoth, sem áður var nefnt Ultima Thule Brautir stjarna*  Þótti minna um of á nasismann Bill Taylor, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, svaraði spurningum leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær og sagði m.a. að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði beitt stjórnarerindreka þrýstingi til að knýja fram rannsóknir í Úkraínu á pólitískum andstæðingi hans, Joe Biden, og meintum afskiptum Úkra- ínumanna af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016. Taylor hafði áður sagt í skriflegum vitnisburði að Trump hefði sett það skilyrði fyrir aðstoð við Úkraínu að andvirði nær 400 milljóna dala að forseti landsins, Volodimír Zelenskí, fyrirskipaði rannsóknir á Biden, sem sækist nú eftir því að verða forseta- efni demókrata, og meintum afskipt- um Úkraínumanna af kosningunum í Bandaríkjunum. Tvö önnur vitni hafa staðfest þetta, að sögn The Wall Street Journal. Trump óskaði eftir rannsóknunum í símasamtali við Ze- lenskí 25. júlí. Taylor sagði í gær að Trump hefði rætt málið við Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna hjá Evr- ópusambandinu, daginn eftir samtal- ið við Zelenskí og spurt hann um „stöðuna á rannsóknunum“. Taylor sagði einnig að aðstoðarmaður sinn hefði spurt Sondland eftir samtalið við Trump hvaða skoðun forsetinn hefði á Úkraínu. „Sondland sendi- herra svaraði að Trump forseti hefði meiri áhuga á rannsókninni á Bi- den,“ sagði Taylor. The Wall Street Journal segir að vitnisburður Taylors í gær sýni að Trump hafi sýnt mikinn áhuga á því að rannsóknirnar hæfust í Úkraínu. Nýleg könnun bendir til þess að 53% Bandaríkjamanna séu hlynnt rannsókninni sem fulltrúadeildin hóf með það fyrir augum að ákæra for- setann til embættismissis. 49% sögðu að svipta bæri Trump embætt- inu en 46% sögðust vera á móti því. Beitti stjórnarer- indreka þrýstingi  Trump þrýsti á um rannsókn á Biden AFP Vitnisburður Bill Taylor svarar spurningum þingnefndarinnar. Mikið tjón varð vegna sjávarflóða í Feneyjum í gær og fyrrakvöld þegar sjór flæddi inn í margar gamlar byggingar, m.a. Markúsar- kirkjuna. „Tjónið nemur milljónum evra,“ sagði Carlo Alberto Tesserin, formaður nefndar sem annast rekstur og viðhald kirkj- unnar. Hann bætti við að sérfræðingar hefðu varað við því að þetta gæti gerst vegna hækk- andi sjávarborðs en stjórnvöld á Ítalíu hefðu ekki hlustað á þá. Slökkviliðsmenn voru kallaðir út til að hjálpa fólki og dæla sjó úr byggingum. Sjávar- staðan hækkaði í 1,87 metra og hefur aðeins einu sinni mælst hærri frá því að mælingar hófust árið 1923, en það var árið 1966 þegar hún mældist 1,94 metrar. Luigi Brugnaro, borgarstjóri Feneyja, kenndi loftslagsbreytingum um flóðin og sagði að þau myndu setja „varanlegt mark“ á borgina. „Ríkisstjórnin verður að hlusta núna,“ sagði hann. „Þetta er afleiðing lofts- lagsbreytinga og kostnaðurinn verður mikill.“ Skolp og dauðar rottur sáust víða fljóta í skurðum sem skilja að eyjarnar. Myndin var tekin í herbergi lúxushótelsins Gritti Palace. Borgarstjóri Feneyja kennir hækkandi sjávarborði vegna hlýnunar jarðar um flóð sem ollu miklu tjóni í borginni AFP „Þetta er af- leiðing lofts- lagsbreytinga“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.