Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 37
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Fjórhjóladrifinn
og fæst
sjö sæta
Skoda Kodiaq er sneisafullur af staðalbúnaði og hefur slegið rækilega í gegn
fyrir aksturseiginleika, tækni og snjalla hönnun. Komdu í reynsluakstur og
finndu hvað gerir Kodiaq að afburðargóðum kosti. Hlökkum til að sjá þig.
Þægindi, tækni og hönnun
5
ár
a
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
EK
LU
að
up
p
fy
llt
um
ák
væ
ðu
m
áb
yr
g
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þá
er
að
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d
-V
er
ð
m
ið
as
t
vi
ð
g
en
g
i1
.n
óv
em
b
er
20
19
.
Skoðaðu úrvalið!
www.hekla.is/skodasalur
Verð frá 6.150.000 kr.
Škoda Kodiaq 4x4
2.0 / Dísil / Sjálfskiptur
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
Staðalbúnaður
- Bakkmyndavél
- Stöðugleikastýring
- Hraðastillir
- Rafmagnsopnun á afturhlera- Nálgunarvarar
- LED ljósabúnaður
- 8 hátalarar og fleira.
Kodiaq
1,1 milljón hektarar gróðurlendis
hafa brunnið í Nýju Suður-Wales í
Ástralíu frá því í september og óttast
er að enn meira tjón verði af völdum
gróðurelda á næstu vikum þegar há-
sumarið gengur í garð.
Um 3.000 slökkviliðsmenn börðust
í gær við um 150 gróðurelda sem
geisuðu enn í ríkjunum Nýju Suður-
Wales og Queensland. Daginn áður
kviknuðu um 300 nýir eldar í ríkj-
unum tveimur og þeir urðu til þess
að 50 íbúðarhús eyðilögðust eða
skemmdust og um tuttugu manns
voru flutt á sjúkrahús. Þrír menn
hafa dáið og alls 200 hús eyðilagst í
eldunum frá því á föstudaginn var.
Aðstæðurnar skánuðu víða í Nýju
Suður-Wales í gær vegna þess að
hitinn minnkaði og vindinn lægði, að
sögn fréttaveitunnar AFP. Varað
var hins vegar við aukinni hættu á
gróðureldum í Queensland vegna
þess að spáð var hvassara og hlýn-
andi veðri. Útlit er fyrir hvassviðri
með miklum hita í báðum ríkjunum
um næstu helgi. „Ljóst er við getum
ekki slökkt alla eldana fyrir helgina,“
hefur AFP eftir Shane Fitzsimmons,
slökkviliðsstjóra í Nýju Suður-Wa-
les. „Við þurfum rigningu en því mið-
ur er ekki útlit fyrir neina verulega
úrkomu í fyrirsjáanlegri framtíð.“
Lögreglan í Nýju Suður-Wales
hefur hafið rannsókn á fréttum um
að menn hafi kveikt nokkra eldana af
ásettu ráði. Hermt er að glæpamenn
hafi notfært sér eldana til að láta
greipar sópa um yfirgefin hús.
Skæðari þurrkar en áður
Vísindamenn og sérfræðingar
segja að loftslagsbreytingar verði til
þess að gróðureldar verði skæðari og
geisi í lengri tíma en áður í Ástralíu.
Staðfest hefur verið að síðasta ár var
það þriðja hlýjasta og 2017 það
fjórða hlýjasta í landinu frá því að
mælingar hófust. Síðasta sumar var
það hlýjasta í sögu Ástralíu. Veður-
stofa landsins sagði í nýlegri skýrslu
að loftslagsbreytingar af mannavöld-
um hefðu leitt til skæðari þurrka
sem ásamt mikilli hlýnun ykju hætt-
una á alvarlegum gróðureldum í
landinu.
Ríkisstjórn Ástralíu hefur verið
gagnrýnd fyrir að hafa oft forðast að
svara spurningum um hvort lofts-
lagsbreytingar verði til þess að
gróðureldar verði tíðari og skæðari.
bogi@mbl.is
AFP
Heimili í hættu Íbúar húss í grennd við bæinn Taree í Nýju Suður-Wales
reyna að verja það gegn einum gróðureldanna sem hafa geisað í ríkinu.
1,1 milljón
hektarar eld-
um að bráð
Gróðureldar taldir verða skæðari
í Ástralíu vegna loftslagsbreytinga
Sydney
Lítil CatastrophicExtremeSevereMjög mikilMikil
Newcastle
Coffs
Harbour
Port
Macquarie
skv. mati yfirvalda í gær
Hættan af völdum gróðurelda
NÝJA SUÐUR-
WALES
QUEENSLAND
VIKTORÍA
CANBERRA
Eldar í Nýju Suður-Wales
Heimild: Slökkvilið Nýju Suður-Wales
100 km