Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
100% Merino ull
Flott og þægileg
ullarnærföt
við allar aðstæður
Frábært verð
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins
Eyjólfssonar • Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland,
Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinns-
sonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi
Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði
Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum
Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Laser peeling
Húðslípun
Augnlyfting
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Gerðu vel við einhvern
sérstakan þessi jólin
15%
afsláttur
núna af
gjafabréfum
hjá okkur
Um þrettán ára
skeið hefur Dagur B.
Eggertsson borgar-
stjóri barist fyrir upp-
byggingu atvinnu-
starfsemi í
Elliðaárdalnum. Það er
sérkennilegt pólitískt
erindi. Af fjölmörgum
afglöpum núverandi
meirihluta eru fyrir-
huguð uppbyggingaráform í Elliða-
árdalnum hugsanlega alvarlegust.
Græn svæði lúta í lægra
haldi fyrir gróðavon
borgarstjóra.
Nýverið samþykkti
meirihluti borgarráðs
uppbyggingu atvinnu-
húsnæðis í Elliðaár-
dalnum og lagningu
nærri 100 bílastæða í
námunda við Elliðaárn-
ar. Atvinnustarfsem-
inni munu fylgja tíðir
vöruflutningar og bíla-
umferð sem spilla munu
friðsæld dalsins. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ítrekað lagst gegn áform-
unum enda alvarleg aðför að verð-
mætu grænu svæði í borgarlandinu.
Það er fádæma fásinna að staðsetja
hjúpaða suðræna náttúru nákvæm-
lega þar sem íslensk náttúra er upp á
sitt besta innan borgarmarkanna.
Uppbyggingin mun fara fram þrátt
fyrir hávær mótmæli íbúa og Holl-
vinasamtaka Elliðaárdals. Umhverf-
isstofnun hefur gert fjölþættar alvar-
legar athugasemdir við
uppbygginguna, meðal annars að rask
verði á vatnasviði Elliðaánna og úti-
vistarsvæðið skert verulega. Meiri-
hlutaflokkarnir virtu umhverfisáhrif
framkvæmdanna algjörlega að vett-
ugi.
Þéttbýlismyndun hefur vaxið á und-
anliðnum áratugum. Afgerandi meiri-
hluti Evrópubúa er nú búsettur í borg-
um. Búsetu í þéttu borgarumhverfi
fylgja fjölmargir kostir, en búsetan
takmarkar gjarnan beinan aðgang að
óspilltri náttúru. Hún veldur áreiti
með aukinni hljóð- og loftmengun. Það
er því hverjum þéttbýlingi nauðsyn-
legt að eiga greiðan aðgang að græn-
um svæðum. Þannig má stuðla að
bættri andlegri og líkamlegri heilsu en
ekki síður auknum loftgæðum. Þetta
hefur alþjóðaheilbrigðisstofnunin
staðfest. Með hliðsjón af mann-
fjöldaspám og sífellt þéttari byggð
mun hlutverk grænna svæða í borg-
arlandinu vega enn þyngra.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagst
alfarið gegn hvers kyns húsnæðis-
uppbyggingu á grænum svæðum
borgarinnar og telur rétt að upp-
bygging svæðanna snúi eingöngu
að bættri aðstöðu til útivistar og af-
þreyingar. Elliðaárdalurinn gegnir
veigamiklu hlutverki í borgar-
umhverfinu – við verðum að hlúa að
lífríki hans, byggja svæðið ein-
göngu upp til útivistar og tryggja
að skammsýni ráði ekki för við
skipulag þessa verðmæta græna
svæðis. Það væri óskandi að með
samtakamætti borgarbúa mætti
fyrirbyggja þessa annars óaft-
urkræfu grænsvæðagræðgi meiri-
hlutans.
Eftir Hildi
Björnsdóttur »Það væri óskandi að
með samtakamætti
borgarbúa mætti fyrir-
byggja þessa annars óaft-
urkræfu grænsvæða-
græðgi meirihlutans.
Hildur Björnsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.
hildurb@reykjavik.is
Grænsvæðagræðgi
Nú þegar nálgast
að Bretland fari úr
ESB, verða þátta-
skil, er kunna að
leiða til endaloka
evrusamstarfsins.
Þetta er nefnilega
merkilegt vegna
þess að Bretland er
ekki innan evru-
samstarfsins, en hef-
ur kostað stóran
hluta reksturs ESB-
samstarfsins. Gangi Bretland út
hinn 31. okt. 2019 án nauðasamn-
ings við ESB, mun efnahagur
ESB-samstarfsins hrynja, sem og
styrkleiki evrunnar sem gjald-
miðils.
Þjóðverjar eru tilbúnir með
sínar peningaprentsmiðjur til að
framleiða ný-mörk, því þeir eru
ábyrgir fyrir þeim evrum sem
gefnar hafa verið út af þeirra
hálfu. Ef landsmenn vilja tryggja
sína mynt sem bundin er í evrum
að einhverju leyti, þá skal það
upplýst hér að peningaseðlar
framleiddir í Þýskalandi eru
merktir með X sem fremsta bók-
staf í talnaröð evru-seðla.
Reikna má með að það taki
ekki nema nokkra mánuði frá út-
göngu Breta úr sambandinu, þar
til holskeflan gengur yfir evruna,
því viðskipti á milli Breta og
Þýskalands eru það mikil að
gengisfelling evrunnar verður
það sem kallast hrun. Einnig má
reikna með að verðgildi nýja-
marksins verði ekki nema um
60% af verðgildi evrunnar, því
Þjóðverjar munu nýta sér tæki-
færið til að lækka verðgildi
marksins til eflingar á útflutn-
ingshæfi landsins.
Nú er stóra spurningin, hvað
segja áróðurspostular innan ís-
lenska popúlistasamfélagsins, það
er að segja Viðreisn með kúlu-
lánadrottninguna Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur í fararbroddi
og liberistana innan Samfylking-
arinnar um nauðsyn þess að taka
upp evru sem hina einu lausn ís-
lensks samfélags? Eða fá þessir
aðilar að komast upp með að
kannast ekki við krógann þegar
opinberunin kemur í ljós? Þetta
skrumskælingarlið hefur einatt
verið fremst í flokki um ágæti
ESB og hefur lagt sig í líma við
að troða íslensku samfélagi inn í
þá brunarúst sem sú alræðis-
samkunda hefur haft upp á að
bjóða. Hefur hatrömm túlkun
þeirra verið slík að hafi ein-
hverjir mælt varúðarorð gagn-
vart áróðri þeirra hafa þeir verið
stimplaðir afturhaldsseggir og
einangrunarsinnar til þess eins
að slá ryki í augu almennings.
Hverjar ætli séu áætlanir fjár-
mála Seðlabankans
við hvarf Breta úr
ESB, eða fjár-
málaráðherrans og
ríkisstjórnar Katr-
ínar Jakobsdóttur?
Eða ætli sjálf-
tökustefnan, í gegn-
um orkupakkaæðið
og frestun laga um
landakaup á Íslandi,
skipti viðreisnar-
ráðherra Sjálfstæð-
isflokksins meira
máli en það sem
koma skal, með fyrirsjáanlegri
útgöngu Breta úr ESB? Ætli það
sé Katrínu Jakobsdóttur meira í
mun að tala um umhverfismál
sem hún greinilega hefur tak-
markað vit á, en afstýra áfalli í
íslensku efnahagsumhveri eða
verður afsökunin að hún hafi
ekki haft tíma til að kynna sér
málið?
Nú er mál að linni, Íslendingar
þurfa að opna augun fyrir ásælni
þessara afla innan samfélagsins.
Látum ekki blekkjast af froðuf-
laumi fagurgala innan þingheims
sem telja sjálftökurétt sinn rétt-
hærri en hag samlanda sinna.
Nú er áróðursskýrsla Björns
Bjarnasonar og co. um ágæti
EES-samstarfsins komin í ljós.
Frá því nefndinni var komið á fót
að beiðni viðreisnarráðherra
Sjálfstæðisflokksins Guðlaugs
Þós, var einsýnt hver niðurstaða
skýrslunnar yrði. Áfram skal
halda í að taka sjálfstæði af Ís-
lendingum og færa það undir
kúgara og nýlenduherra, á kostn-
að hins almenna borgara.
Ísland var og á að vera sjálf-
stætt ríki, því ættu þingmenn að
girða sig í brók og fara að vinna
vinnuna sína með það að leið-
arljósi að endurheimta sjálfstæði
landsins. Land getur ekki verið
sjálfstætt hafi það ekki andmæla-
rétt eða þori ekki að leita réttar
síns gangvart nýlenduherrunum
sem stjórna ESB-veldinu.
Íslenska þjóðfylkingin hefur
séð þessa landráðastefnu stjórn-
valda og ætíð beitt sé í að upp-
lýsa þjóðina gagnvart þeim sem
barist hafa fyrir eyðingu sjálf-
ráðaréttar og sjálfstæði þjóð-
arinnar. Því er það nauðsyn að
koma skynsömu fólki á þing sem
setur hagsmuni þjóðar ofar eigin
hagsmunum.
Er ESB og evran
að líða undir lok?
Eftir Guðmund
Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl
Þorleifsson
»Nú er mál að linni,
Íslendingar þurfa að
opna augun fyrir ásælni
þessara afla innan sam-
félagsins.
Höfundur er formaður
Íslensku þjóðfylkingarinnar.