Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
✝ Sigurður Ax-elsson fæddist
í Reykjavík 29. júlí
1932. Hann and-
aðist á hjúkrunar-
heimilinu Hrafn-
istu 29. október
2019.
Hann var sonur
hjónanna Krist-
ínar Ketilsdóttur,
f. 1895, d. 1955,
frá Minni-
Ólafsvöllum á Skeiðum og Axels
Sigurðssonar, f. 1897, d. 1970,
Laugavegi 51, Reykjavík. Hann
var yngstur fimm systkina. Elst
var Stefanía, f. 1917, látin, var
gift Niels Jörgen Nielsen, lát-
inn, þau eignuðust tvö börn,
bjuggu í Danmörku. Þá Sigríð-
ur Axelsdóttir Nash, f. 1919, lát-
in, var gift Clayton Nash , lát-
inn. Bjó lengst í
Bandaríkjunum. Olgeir Krist-
inn, f. 1921, látinn, kvæntur Est-
er Vilhjálmsdóttur, þau eign-
uðust fjórar dætur. Sverrir
Ingi, f. 1927, kvæntur Ásu Þor-
steinsdóttur, látin, þau eign-
uðust fjögur börn.
Sigurður kvæntist 31.12.
1955 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Hrafnhildi Kristinsdóttur,
f. 22. mars 1935. Foreldrar
hennar voru hjónin Kristinn
Bjarnason, f. 1892, d. 1968, frá
Ási í Vatnsdal, og kona hans
Guðfinna Ástdís Árnadóttir, f.
un hjá Weight Measures Dep-
artment í Glasgow í Skotlandi,
Van Berkel í Hollandi og Avery
í Birmingham á Englandi. Sig-
urður sinnti ýmsum störfum,
m.a. hjá Hamilton & Beck á
Keflavíkurflugvelli.
Árið 1960 var hann ráðinn
hjá Löggildingarstofu ríkisins
og árið 1976 var hann skipaður
forstöðumaður þeirrar stofn-
unar og gegndi því embætti til
ársins 1997 er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir. Sigurður
var mikill félagsmálamaður alla
tíð og starfaði m.a. fyrir Sjálf-
stæðisfélag Garðabæjar, sat í
ótal ráðum og nefndum á veg-
um Garðabæjar, starfaði í Kiw-
anisklúbbnum Setbergi og var
forseti hans í þrjú ár. Einnig
var hann svæðisstjóri Ægis-
svæðis. Hann starfaði í kvöld-
vökufélaginu Ljóði og sögu um
árabil og var formaður þess í
sex ár. Sigurður var einnig for-
maður Félags eldri borgara í
Garðabæ, var virkur í
frímúrarareglunni og sat í
sóknarnefnd Garðasóknar. Sig-
urður gekk ungur í Sundfélagið
Ægi. Hann stundaði morg-
unsund í Sundhöll Reykjavíkur í
marga áratugi.
Sigurður og Hrafnhildur
fluttust í Garðabæ 1978 og
bjuggu þar þar til heilsu hans
fór að hraka þá fluttist hann á
Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem
hann bjó síðustu tvö ár ævinnar.
Útför Sigurðar fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag,
14. nóvember 2019, kl. 15.
1903, d. 1990, frá
Grund í Eyjum.
Sigurður eign-
aðist tvö börn: 1)
Axel f. 23.10. 1952,
d. 18.8. 2016. Börn
hans með fyrri eig-
inkonu sinni Katr-
ínu R. Björnsdóttur
eru: a) Hrafnhildur
María, f. 1973, gift
Vincent Ladger,
þau eiga þrjú börn.
b) Sigurður Axel, f. 1980, giftur
Bryndísi Gylfadóttur, þau eiga
fjögur börn. c) Björn Torfi,
maki Hafdís Lárusdóttir, þau
eiga tvö börn. Með eftirlifandi
eiginkonu sinni, Laufeyju M. Jó-
hannesdóttur, f. 1957, á hann
dótturina d) Lindu Rún, f. 2000.
2) Stefanía Kristín, f. 11.2. 1957,
gift Reyni Þórðarsyni, f. 1954.
Synir þeirra eru: a) Þórður, f.
1980, maki Helga Huld Hall-
dórsdóttir Pedersen, þau eiga
tvö börn. b) Hlynur, f. 1983,
maki Astrid Fehling.
Sigurður ólst upp við Grett-
isgötu og var í sveit hjá afa sín-
um og ömmu á Minni-Ólafsvöll-
um á Skeiðum. Sigurður gekk í
Austurbæjarskóla og lauk gagn-
fræðaprófi, kvöldskólanámi, var
flugvirkjanemi hjá Loftleiðum
1947-50, stundaði nám við
tækniskóla í Liverpool 1965-67
og framhaldsnám í Birmingham
1969-73. Einnig var hann í þjálf-
Kvöldið er fagurt, sól er sest
og sefur fugl á grein.
(Ingólfur Þorsteinsson)
Þetta var uppáhaldslag Sigurð-
ar sem mun hljóma í kirkjunni í
dag.
Þegar barnabörnin okkar 6
talsins bera hann hinstu ferðina.
Minningar eru margar og dýr-
mætar eftir 64 ára hjónaband.
Ævikvöldið var erfitt, að sjá
hann fjarlægjast í tómið vegna
Alzheimersjúkdómsins.
Ekkert hægt að tala saman, að-
eins vera áheyrandi.
Þakklæti er efst í huga, að geta
verið saman til hinstu stundar
með hjálp frá góðu fagfólki á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Við höfum átt góð ár saman frá
upphafi.
Við kynntumst af tilviljun á
íþróttamóti í Þjórsártúni fyrir um
70 árum, tveir unglingar sem
tjölduðu hlið við hlið ásamt ferða-
félögum okkar sem skemmtu sér
á danspöllunum meðan við
óreyndu unglingarnir sátum fyrir
utan tjöldin, drukkum appelsín,
hlustuðum á tónlistina og spjöll-
uðum saman.
Síðan liðu árin og aftur hitt-
umst við árið 1953, þá hnippti Am-
or í okkur og úr varð hjónaband
1955 sem varð lífstíðarband ástar
og vináttu.
Hans mesta áhugamál var fjöl-
skyldan og heimilið svo og ferða-
lög utanlands, t.d. um Evrópu og
fjarlægar álfur, og innanlands
tjaldútilegur með börnin okkar
tvö voru einnig ánægjulegar og
gefandi.
Sigurður var félagsmálamaður
mikill og þótti úrræðagóður og
réttsýnn.
Okkar samtengdu ævisögu er
lokið, söknuðurinn er mikill en
minningarnar eru góðar frá okkar
horfnu stundum á lífsleiðinni.
Minningin um mætan mann
mun lifa.
Hans ástkæra eiginkona,
Hrafnhildur Kristinsdóttir.
Elsku pabbi, nú ert þú fallinn
frá, leita þá margar minningar á
hugann.
Þú varst sannarlega Reykja-
víkurbarn enda alinn upp í miðri
borginni. Ég man þá daga þegar
við ætluðum að skreppa niður í
bæ. Er við komum niður á Lauga-
veg heilsaðir þú öðrum hverjum
manni og spjallaðir við marga
þannig að ferðin tók töluvert
lengri tíma en við ætluðum. Svona
varst þú, þekktir alla.
Ferðalög fjölskyldu okkar um
landið eru minnisstæð, t.d. hvíta
tjaldið þitt sem þú komst með í
búið þegar þið mamma kynntust.
Þegar ég fermdist fór ég mína
fyrstu utanlandsferð með þér og
mömmu. Við byrjuðum á að heim-
sækja London, það var ævintýra-
legt að sjá stórborg í fyrsta skipti,
mikil upplifun fyrir fimmtán ára
stelpu að sjá götur eins og Oxford
Street og Carnaby Street. Við
héldum þaðan til Kaupmanna-
hafnar og hittum Stefaníu nöfnu
mína og systur þína þar sem há-
punkturinn var Tívolí og skemmt-
um okkur vel, við enduðum þessa
ferð í Glasgow þar sem við heim-
sóttum meðal annars þínar slóðir
þar sem þú varst í námi.
Síðustu árin varstu orðinn
veikur og kominn á Hrafnistu í
Hafnarfirði þar sem ég fylgdist
daglega með þér. Þú varst með
alzheimersjúkdóminn, þekktir
ekki marga undir það síðasta en
þegar ég kom til þín tókstu alltaf í
hendur mínar og sagðir innilega
og fagnandi: „Sæl, elskan mín.“
Pabbi, þín er sárt saknað af
fjölskyldunni, megi minning þín
lifa í hjörtum okkar.
Mamma, þú ert hetja, þú hefur
hugsað vel um pabba í 64 ár og nú
er hann í góðum höndum.
Þín elskaða dóttir,
Stefanía Kristín.
Í dag kveð ég afa minn hinstu
kveðju og þá rifjast upp ljúfar
minningar sem ég ætíð ber þakk-
látur í hjarta mínu.
Það var alltaf gaman að koma í
heimsókn til ykkar ömmu í
Hvannalundinn og ætíð nóg um
að vera. Þú varst hraustur og
orkumikill og ég á margar góðar
minningar um gönguferðir með
Lubba, hjólatúra um Garða-
bæinn, sundferðir og ógleyman-
legar boxæfingar í bílskúrnum.
Dagurinn endaði oftar en ekki á
því að amma hafði lagað plokk-
fisk, sem við borðuðum með sultu.
Þegar ég varð eldri fylgdist þú
áhugasamur með mér, ráðlagðir
hvernig best væri að haga at-
vinnuleit og bentir reglulega á að
ekki væri vit í því að eiga aðra bíla
en Toyota.
Nú ert þú elsku afi Siggi, mikli
heiðursmaður, farinn í þína síð-
ustu ferð og verða samverustund-
ir okkar ekki fleiri hér að sinni.
Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í friði.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þórður Reynisson.
Elsku afi Siggi.
Eftirvænting að koma í heim-
sókn til ykkar ömmu í Hvanna-
lundinn var mikil, horfa á Nonna
og Manna í sjónvarpinu, leika sér
að skrifa sögur á ritvélina og
skoða safnið ykkar með gamla
dótinu, sem var eins og tímavél
fyrir ungan dreng. Ófáir bíltúrar
þar sem þú sagðir sögur frá því í
gamla daga á leið í Kolaportið að
kaupa kartöflur, ávallt með
brjóstsykur eða gulan Gajol í bíln-
um. Sælkeri varstu og hef ég erft
dálæti á bleiku möndlukökunni.
Þegar maður hugsar til baka eru
endalausar minningar frá Garða-
bænum, sérstaklega minnisstætt
er þegar kom að því að flytja frá
Hvannalundinum yfir á Norð-
urbrú, þá var ég settur í bílskúr-
inn til að setja niður í kassa, og
þvílíkt samansafn af dóti, þú áttir
held ég allar tegundir af verkfær-
um sem framleidd voru. Þú varst
sérlega áhugasamur um fé-
lagsmál og lífsgæði samborgara
þinna og tókst virkan þátt í fé-
lagsmálum í gegnum fjölmörg fé-
lagasamtök, sama hvað það var,
alltaf varstu vel liðinn. Árrisull
varstu og iðulega mættur í Sund-
höllina að hitta félagana og synda.
En lífið tekur oft óvænta stefnu
og fyrir nokkrum árum greindist
þú með alzheimers-sjúkdóminn,
hann fór hljótt í fyrstu en ágerðist
mjög snögglega síðustu ár, getan
til að keyra, ganga, synda og nú
síðast að tala dvínaði hratt og var
það mjög sárt að horfa á þig
hverfa inn í heim sjúkdómsins.
Fyrir tæpum 64 árum giftist þú
ömmu og alla daga síðan hefur þú
hugsað vel um þinn betri helming
og staðið þétt við bakið á henni í
gegnum lífið líkt og hún gerði í
gegnum þín veikindi síðustu ár.
Elsku afi, ég þakka þér fyrir
allt og kveð þig með söknuði en
hugga mig við það að nú ert þú
kominn á betri stað þar sem þú
keyrir um á nýjum Toyota-bíl
með Lubba í skotinu og ræðir um
pólitík og lofsamar Sjálfstæðis-
flokkinn. Ég veit að mamma mun
hugsa vel um ömmu eins og alltaf,
því hennar missir er mikill.
Hlynur Reynisson.
Sigurður Axelsson, fyrrverandi
löggildingarstjóri ríkisins, vinur
minn og félagi til áratuga, er lát-
inn eftir erfið veikindi.
Sigurði kynntist ég fyrst þegar
hann gekk í Kiwanisklúbbinn Set-
berg í Garðabæ nokkrum árum
eftir að hann var stofnaður 1975.
Hann var mikill félagsmálamað-
ur, traustur og góður félagi sem
tók virkan þátt í verkefnum
klúbbsins og lét ekki sitt eftir
liggja þegar unnið var að ýmsum
fjáröflunarverkefnum. Sigurður
hafði sérstaklega gaman af ýms-
um verkefnum sem sneru að ungu
fólki eins og t.d. þegar við fórum á
vorin og veittum nemendum sem
voru að útskrifast úr skólum bæj-
arins viðurkenningu fyrir góðan
árangur í íslenskunámi. Einnig
var hann virkur í því að afhenda
nemendum í fyrsta bekk reið-
hjólahjálma. Var hann ávallt
fyrstur manna að gefa kost á sér í
þessi verkefni. Sigurður gegndi
ýmsum stjórnunarstörfum fyrir
klúbbinn og hreyfinguna hér á Ís-
landi. Var svæðisritari Ægis-
svæðis 1987-1988.
Ekki er hægt annað en að
minnast á Hrafnhildi, hans góðu
eiginkonu, þegar rætt er um starf
hans með Kiwanis. Hún tók virk-
an þátt í starfinu og var oftar en
ekki með innlegg á skemmti-
kvöldum. Hrafnhildur samdi sér-
stakan Setbergssöng sem félagar
syngja í lok hvers fundar. Eigin-
konur Setbergsfélaga stofnuðu
Sinawikklúbb og var verkefni
hans að styðja við starf Kiwanis
sem styður við börn og nærsam-
félag sitt. Hrafnhildur var þar
framarlega í flokki.
Sigurður gekk í frímúrararegl-
una 1989 í stúkuna Eddu. Var
hann mjög áhugasamur og stund-
aði það starf af miklum metnaði
meðan heilsan leyfði. Bar hann
mikla virðingu fyrir því starfi sem
þar fer fram.
Við Sigurður áttum gott sam-
starf í sóknarnefnd Garðasóknar
en þar tók hann sæti árið 2000.
Hann hafði einlægan áhuga fyrir
starfsemi kirkjunnar og var dug-
legur að aðstoða við kirkjuhaldið
og starf kirkjunnar.
Sigurður var góður félagi og
vinur sem hafði einlægan áhuga á
annarra hag, hann var drengur
góður. Við Kiwanisfélagar sjáum
á bak góðum félaga og vini. Við
sendum Hrafnhildi og fjölskyld-
unni allri innilegar samúðarkveðj-
ur.
Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins
Setbergs,
Matthías Guðmundur
Pétursson.
Sigurður Axelsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARÍA GÍSLADÓTTIR
húsmóðir,
frá Bjargi í Norðfirði,
andaðist á heimili sínu Ísafold í Garðabæ
miðvikudaginn 6. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
20. nóvember klukkan 11.
Helga Heimisdóttir
Pétur Heimisson Ólöf S. Ragnarsdóttir
Fanný Kristín Heimisdóttir Breki Karlsson
Þorgerður Ragnarsdóttir
Birna Heimisdóttir
Heimir Heimisson Elín S. Óladóttir
María Heimisdóttir Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg og ástrík móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
STELLA EYRÚN CLAUSEN,
lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi mánudaginn
4. nóvember. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn 15. nóvember klukkan 13.
Röðull Bragason
Sigurbaldur Kristinsson Halldóra Halla Jónsdóttir
María Kristinsdóttir Jón Bjarni Gíslason
Kolbrún Belinda Kristinsd. Sigurður Oddsson
ömmu-, langömmubörn
og langalangömmubarn
Okkar ástkæra
GERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bergen, Noregi,
lést á heimili sínu í Ulset, Noregi,
þriðjudaginn 5. nóvember.
Útför fer fram frá Lille kapell, Möllendal,
föstudaginn 15. nóvember.
Minningarathöfn fer fram á Íslandi og verður kynnt síðar.
Einar Guðmundsson Ingibjörg Hafliðadóttir
Ágúst Guðmundsson Erna K. Þorkelsdóttir
Jóhann Þ. Guðmundsson Elín Helga Jónsdóttir
Hákon B. Sigurjónsson Hanna Sampsted
Þorsteinn Guðmundsson Þórunn Ósk Jónsdóttir
Gunnhildur M. Eymarsdóttir Steinar Einarsson
Linda Nielsen
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI INGIMAR HELGASON
skipstjóri,
Ingimarsstöðum, Þórshöfn,
lést laugardaginn 9. nóvember.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn 18. nóvember
klukkan 15. Jarðsett verður frá Þórshafnarkirkju laugardaginn
23. nóvember klukkan 15.
Guðmundur Hólm Indriðason
Oddný F. Árnadóttir Gunnar Páll Jóakimsson
Þuríður Árnadóttir Sigurður Skúli Bergsson
Soffía Árnadóttir Hafsteinn B. Sveinbjörnsson
Helgi Mar Árnason Íris Björnsdóttir
og afabörn
Elskuleg eiginkona mín, systir, mágkona og
tengdadóttir,
HILDUR DAVÍÐSDÓTTIR,
Háteigsvegi 6,
Reykjavík,
sem lést 1. nóvember, verður jarðsungin frá
Langholtskirkju mánudaginn 18. nóvember klukkan 13.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Ás styrktarfélag.
Hreinn Hafliðason
Valborg Davíðsdóttir Ragnar Breiðfjörð Ragnarsson
Kristrún Davíðsdóttir Ásgeir Eiríksson
Jenný Davíðsdóttir Ólafur Einarsson
Elsa María Davíðsdóttir Daníel Sveinsson
Jónína B. Sigurðardóttir Hafliði Hjartarson
Hjörtur Hafliðason Anna Bára Baldvinsdóttir
og systkinabörn
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir