Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 57

Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 ✝ Kristin Har-aldsdóttir, tal- símavörður og hús- móðir, fæddist 18. júní 1929. Hún lést hinn 8. nóvember 2019 á Sjúkrahús- inu á Akranesi. Kristín fæddist á Akureyri og voru foreldrar hennar þau Haraldur Guð- mundsson skip- stjóri og útgerðarmaður og Jó- hanna Jónsdóttir húsmóðir. Kristín var yngst fimm systkina, hin voru Kjartan, Guðrún, Guð- mundur og Jón, þau eru öll látin. Hinn 23.11. 1957 giftist Krist- ín Bjarna Arasyni héraðsráðu- naut, f. 3. júlí 1921, d. 20.2. 2011. Börn Kristínar og Bjarna eru: 1) Haraldur læknir, f. 14.8. 1958, giftur Katrínu Frímannsdóttur matsfræðingi, f. 8.9. 1959. Börn þeirra eru: a) Bjarni, f. 7.1. 1981, giftur Nicole Brooks. Börn þeirra eru: Beatrix Snædís, Henry Teitur og Elizabeth Guð- rún. b) Kristín, f. 14.12. 1985, gift Adam Uhl. c) Karólína, f. 5.5. 1988, gift Devotiu Moore. Haraldur, Katrín og afkom- endur þeirra búa í Bandaríkj- 4.4. 2001. Ari og Berit búa í Ólafsvík. Kristín lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og hóf síðan störf við símstöðina á Akureyri árið 1946. Hún fór til Noregs sumarið 1952 þar sem hún stundaði nám við hús- mæðraskóla. Eftir það dvaldi hún um tíma í Noregi á búgarði Guðrúnar systur sinnar þar sem hún vann ýmis störf. Hún sneri síðan aftur til Akureyrar og hóf aftur störf við símstöðina á Ak- ureyri. Árið 1957 fluttust Krist- ín og Bjarni til Reykjavíkur vegna starfs Bjarna hjá Bún- aðarsambandi Íslands. Árið 1960 fluttu þau í Borgarfjörð og bjuggu lengst af á Laugarteigi í Bæjarsveit. Árið 1969 fluttu þau í Borgarnes og bjuggu á Þór- ólfsgötu 15 þar í bæ. Kristín hóf störf sem talsíma- vörður á símstöðinni í Borg- arnesi og vann þar þar til sím- stöðin var lögð niður 1987. Kristín söng með Kirkjukór Borgarneskirkju frá 1970 og síðar með kór eldri borgara í Borgarnesi. Þá söng hún einnig með Öbbunum sem var kvenna- kvartett í Borgarnesi. Kristín var félagi í Inner Wheel í mörg ár. Kristín bjó síðasta árið í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dval- arheimilinu í Borgarnesi. Útför Kristínar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 14. nóv- ember 2019, klukkan 14. unum. 2) Sigríður bankastarfsmaður, f. 22.11. 1963. Hún var gift Karli Jó- hanni Birgissyni, f. 29.9. 1960, d. 26.9. 1992. Börn þeirra eru a) Kolbrún Stella, f. 12.4. 1982, gift Örlygi H. Grímssyni. Börn þeirra eru: Karl Jó- hann og Sunneva Björt. Kolbrún og Örlygur búa í Vestmannaeyjum. b) Haraldur Ari, f. 12.9. 1987. Dætur hans eru: Mía Bjarný, Ara Eirný og Una Árný. Sambýliskona Har- aldar Ara er Brynja Skjald- ardóttir, þau búa í Reykjavík. Sambýlismaður Sigríðar er Jón Ólafur Daníelsson þjálfari, f. 31.3. 1967. Þau búa í Vest- mannaeyjum. 3) Ari tannlæknir, f. 20.5. 1965. Hann er giftur Fanný Berit Sveinbjörnsdóttur ljósmóður, f. 25.11. 1965. Börn þeirra: a) Tinna Björk, f. 18.3. 1988, sambýlismaður Christian Gøtstad Sørensen, þau búa í Kaupmannahöfn. b) Brynja Aud, f. 22.6. 1993, sambýlis- maður Egill Lárusson, þau búa í Kosice í Slóvakíu. c) Bjarni, f. Móðir okkar Kristín Haralds- dóttir lést 8. nóvember eftir stutta sjúkralegu. Hún hafði þá búið í Brákarhlíð, dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, í um tveggja ára skeið við afburða að- stæður. Pabbi okkar féll frá fyrir tæp- um níu árum og setti það stórt skarð í líf mömmu. Þau mamma og pabbi höfðu mjög ólíkan bak- grunn, pabbi alinn upp í land- búnaðarsamfélagi á Grýtubakka við Eyjafjörð en mamma alin upp á Akureyri við allt annað samfélagsmynstur; hún sjálf bæjardaman. Þrátt fyrir þennan mun á umhverfi og uppvexti og mikinn mun á grundvallarlífsvið- horfum tókst þeim að halda heimili sem var heilsteypt og gaf okkur börnunum umgjörð og uppvöxt sem einkenndist af kær- leika, væntumþykju og þjóð- félagslegri samkennd. Mamma og pabbi voru sannir félagar með ólíkar grunnskoðanir sem oft leiddi til sterkra skoðana- skipta en hafði ekki áhrif á það sem var lokaafurðin, grunnfjöl- skyldan og uppeldi allra afkom- enda. Mamma bar hag okkar barnanna alltaf fyrir brjósti og veitti okkur ríkulega af hlýju og umönnun. Við vorum hvött til náms og studd til þess en sjálf- stæði og tillitssemi gagnvart náunganum var einnig mikil- vægur hluti af þessum uppeldis- árum. Okkur var uppálagt um- burðarlyndi og ekki að fara í manngreinarálit. Þá var mikil áhersla lögð á hagsýni og nýtni. Mamma hafði mikla kímnigáfu og ótrúlegt minni fyrir mönnum og málefnum. Hún hafði mikla hæfileika til að endurtaka nöfn og símanúmer, það var nánast eins og að spyrja símaskrá nú- tímans að leita til hennar með slíkar upplýsingar. Heimili mömmu og pabba ein- kenndist af gestrisni, hlýju og jöfnuði. Þar var jafnan gest- kvæmt og var öllum tekið eins án tillits til stöðu eða staðsetn- ingar í þjóðfélagsstiganum. Við börnin, tengdabörn, barna- börn og barnabarnabörn sökn- um þess hlýja bross sem við vor- um vön að mæta. Hún var alltaf forvitin um okkar hag og frá henni geisluðu tilfinningar hlýju og almenn væntumþykja. Minning okkar um þig mun allt- af búa í brjósti okkar, elsku mamma. Þú varst verndarengillinn okkar. Þú varst alltaf til staðar, á gleði- sem sorgarstundum. Þú hvattir okkur og studdir. Þú hafðir trú á okkur. Þú vafðir vængjum þínum um okkur, Verndaðir og leiðbeindir. Takk, mamma, við elskum þig. Þín börn, Haraldur, Sigríður og Ari. Kristín tengdamóðir mín lést í síðustu viku og var andlátið al- veg eins og hún lifði; ljúft og fal- legt án átaka og áreynslu. Hún var afar stolt kona, stolt af for- eldrum sínum og systkinum, stolt af börnunum sínum og síð- ast en ekki síst stolt af sjálfri sér og hún mátti svo aldeilis vera stolt enda harðduglegur og vel gerður hópur fólks sem í kring- um hana var. Hún Kristín mín var alltaf af- ar vel tilhöfð og glæsileg kona og naut þess að láta dunda við sig, jafnt útlærðu hárgreiðslu- konurnar að laga hárið sem barnabörnin að lakka neglurnar. Sem ung kona vann hún á sím- stöðinni á Akureyri og kynntist þar vinkonum sem hún átti fram í andlátið. Þegar börnin komu í heiminn fór hún alfarið að vinna heima við en byrjaði aftur að vinna úti og þá á símstöðinni í Borgarnesi þegar börnin urðu eldri. Hún naut þess að vinna ut- an heimilisins, fannst yndislegt að eignast vini og kunningja í vinnunni og vera í samskiptum við fólk allan daginn. Enda var hún einhver félagslyndasta manneskja sem ég hef nokkurn- tíma kynnst. Hún var ótrúlega dugleg að halda sér við í vinnunni og sótti endurmenntun þegar tæknin breyttist eða þeg- ar símstöðin var lögð niður og hún fór að vinna á póstinum. Við höfum verið að fara í gegnum allt húsið á Þórólfsgötunni síð- ustu vikurnar og í gömlum hirslum fundum við einkunna- spjöld frá þessum tíma. Eitt af því dásamlegasta sem við fund- um voru skriftarpróf frá því hún var 11 ára en þar fékk hún hæstu einkunn sem ætti ekki að koma neinum á óvart því fallegri rithönd er vandfundin. Það er vart hægt að minnast Kristínar án þess að Bjarni sé hluti af minningunum. Þau voru gift í 53 ár og voru miklir félagar og það var einstaklega hlýtt á milli þeirra. Eitt af því sem fannst í tiltektinni voru undur- falleg ástarbréf frá Bjarna til unnustunnar. Þvílík einlægni og ást sem þar var sýnd. Bjarni var vanur því alla tíð að geta „flett upp í“ Kristínu því hún mundi öll símanúmer sem hún hafði nokkurntíma heyrt og mundi öll nöfn og heimilisföng að auki. Þegar þau hættu að vinna þá sameinuðust þau í áhuga sínum á ættræði og það var ekki oft sem Bjarni þurfti að nota tölv- una til að finna ættartölur og annað því tengt því Kristín mundi svo óskaplega margt. Það var því nokkuð lýsandi símtal sem við fengum fyrir 15 árum eða svo frá Bjarna. Hann hafði miklar áhyggjur af því að Krist- ín væri farin að missa minnið, hún mundi nefnilega ekki lengur einhverja afmælisdaga sem Bjarni var vanur að spyrja hana um. Þetta var náttúrlega ótækt og hún hlaut að vera farin að kalka. Þá var hún á áttræðis- aldri. Þetta var náttúrlega áhyggjuefni, um það var engum blöðum að fletta, en það var úr háum söðli að detta og viðmiðin voru eiginlega ekki fyrir allt venjulegt fólk. En það var rétt hjá Bjarna, minninu hrakaði smám saman og hún var ekki orðin svipur hjá sjón undir lokin. Nú hefur hún sameinast Bjarna í sumarlandinu og þau njóta þess eflaust að spjalla um menn og málefni yfir kvöld- kaffinu þar sem tebollar sitja á eldhúsborðinu ásamt heimabök- uðum kökum. Takk fyrir allt, elsku Kristín. Katrín Frímannsdóttir (Kata). Kristín Haraldsdóttir Í dag kveð ég þig, mín yndislega amma og nafna. Ég veit að þú ert farin á góðan stað þar sem afi og litla bíða þín. Minningarnar eru margar sem koma upp í hugann, langar mig að minnast nokkurra þeirra. Vil byrja á öllum dásamlegu stund- unum sem ég átti í Byggðarenda- num hjá þér, elsku Ella amma, og Viktori afa, þar var ég sko alltaf velkomin. Þá minnist ég sérstak- lega laugardaganna þar sem við komum oft stórfjölskyldan í há- deginu og borðuðum saman besta grjónagraut í heimi. Eftir hádeg- ið fórst þú að vinna í bíóinu og fannst mér mjög spennandi að fá að fara með í vinnuna til að að- stoða þig og ekki liðu nú mörg ár þar til ég var farin að vinna sjálf með þér, aðeins 12 ára gömul, flestalla laugardaga og var ég svo heppin að fá að vinna með í bíóinu í nokkur ár. Besti staðurinn minn til að læra á var við eldhúsborðið í Byggðarendanum, þar fékk ég alltaf þá aðstoð sem ég þurfti hjá þér, amma, þar skrifaði ég ófáa Elín Pálmadóttir ✝ Elín Pálma-dóttir fæddist 27. febrúar 1932. Hún lést 2. nóv- ember 2019. Elín var jarð- sungin 12. nóv- ember 2019. stíla í stafsetningu þar sem þú last þá upp fyrir mig aftur og aftur, þú lagðir alltaf svo mikla áherslu á góða menntun. Þær voru margar næturnar sem ég gisti hjá ykkur í Byggðar- endanum enda snemma komin með mitt eigin herbergi hjá ykkur og var ég einnig svo heppin að fá að búa hjá þér og afa síðasta árið mitt í grunnskólan- um. Þú fylgdist alltaf svo vel með öllu því sem ég var að gera í mínu daglegu lífi og gat ég alltaf leitað til þín ef það var eitthvað, betri ömmu gæti ég varla hugsað mér. Þið afi voruð svo stolt og ánægð þegar ég fæddi ykkar fyrsta langömmu/afa barn, hann Gumma, sem þér fannst syngja svo vel, og síðan fæddi ég hana Kristínu Ósk, sem var svo mikill dansari í þínum augum. Ömmu- börnin og síðan langömmubörnin áttu hug þinn allan, þú vildir allt- af fylgjast með þeim öllum og þér leið alltaf vel þegar einhver af þeim var í heimsókn hjá þér. Ég veit að börnin mín eru mun ríkari eftir að hafa fengið að alast upp með Ellu ömmu sinni. Þær voru margar ferðirnar sem við fórum saman bæði innan- og utanlands. Síðustu utanlandsferðinni þinni til Kanarí mun ég aldrei gleyma þar sem þú sýndir mér nokkra staði þar sem þið afi hefðuð verið saman á. Ég veit ég mun einn daginn fá ósk mín uppfyllta þar sem ég mun syngja lagið mitt fyrir þig. Takk fyrir allar dásamlegu stundirnar sem við áttum saman elsku amma. Hvíl í friði. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði og lífsins veginn greiði. Mig styrk í stríði nauða, æ styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Páll Jónsson) Þín ömmustelpa, Elín Ósk. Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýju og stuðning vegna andláts og útfarar okkar elskulega VALDIMARS BJARNASONAR, Þorlákshöfn. Þorbjörg Jónína Magnúsdóttir Bjarni Már Valdimarsson Eva María Hilmarsdóttir Bryndís Ósk Valdimarsdóttir Magnús Þór Valdimarsson Lilja Margrét Sigurðardóttir Salka Liljan Bjarnadóttir Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir Magnús Snorrason Friðgerður Pétursdóttir Þóra, Emma og Sandra Bjarnadætur og fjölskyldur Pétur, Jón, Arnþór og Fjóla Rós Magnúsarbörn og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, mamma okkar, dóttir, systir, mágkona og frænka, JÓNANNA BJARNADÓTTIR, sem lést í Barcelona, Spáni, miðvikudaginn 30. október, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju, Garðabæ, miðvikudaginn 20. nóvember klukkan 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning 318-26-5005, kt. 090874-4899. Arnar Óskar Þór Stefánsson Hugrún Greta Arnarsdóttir Hjördís Emma Arnarsdóttir Hugrún H. Sigurbjörnsdóttir Ragnar Hauksson Bjarni L. Thorarensen Sigríður Magnúsdóttir Stefán Thorarensen Elvar Thorarensen Hrafnhildur Haraldsdóttir Ragnar Hólm Ragnarsson Karen Jóhannsdóttir Alexandra Ýr, Júlíus Fannar, Elvar Hólm, Hrannar Ingi, Hekla, Katla, Felix og Lilla Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN EÐVALDSDÓTTIR áður til heimilis að Heiðargerði 94, Reykjavík, lést á Hrafnistu sunnudaginn 10. nóvember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 19. nóvember klukkan 11. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Hrafnistu njóta þess. Hjartans þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Sólteigi-Mánateigi fyrir einstaklega hlýja umönnun. Kristín Oktavía Árnadóttir Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Ingibjörg Sigríður Árnadóttir Jón Baldursson Kristín Oktavía Hafsteinsd. Kristjón Daníel Bergmundss. Katrín Ásta Hafsteinsdóttir Björg Haraldsdóttir Árni Jónsson Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir Guðný Jónsdóttir Símon Guðmundsson Sófús Árni Hafsteinsson Ella Navarro og langömmubörn Þökkum innilega fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra JÓNS ERNSTS INGÓLFSSONAR, Hraunhólum 18, Garðabæ. Dagný Guðmundsdóttir Rósa Dögg Jónsdóttir Helgi Hrannarr Jónsson Harpa Rós Gísladóttir Dagur Geir Jónsson Elísa Rut Hallgrímsdóttir Aðalheiður Jónsdóttir Juan Carlos Melgar Rada og afabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ALFREÐ EYJÓLFSSON, kennari og skólastjóri, Marteinslaug 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 31. október. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. nóvember klukkan 15. Guðjónía Bjarnadóttir Kristín Alfreðsdóttir Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Þóra B. Valdimarsdóttir Alfreð Jóhannes Alfreðsson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.