Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Superior herbergi
HVATAFERÐIR OG FUNDIR
Superior herbergi
Það fer vel um stóra og smáa hópa á fundum eða í hvataferð hjá okkur.
Við sérsníðum móttökurnar að þörfum hópsins. Hótel Örk er steinsnar
frá borginni í sannkallaðri náttúruparadís.
Pantanir í síma 483 4700
booking@hotelork.is
hotelork.is
Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir, Krambúðir,
Nettó verslanir um allt land og 10-11.
Með muldum pipar,
provencal kryddi og ókryddaður.
Tilbúin vara en má hita.
Fullkominn
skyndibiti,
hollur og
bragðgóður
Nú 3 tegundir
Heitreyktur lax
„Ég brá því á það ráð að gera út-
gáfu af þessum rétti sem er bara
mín eigin og með tvenns konar
fyllingum. Annars vegar með gráð-
ost fyrir þá sem hann elska og
hins vegar með hvítlauksrjómaosti
og camembert fyrir okkur hin,“
segir María um þennan skemmti-
lega rétt sem er vel þess virði að
prófa.
Fylltar fíkjur vafðar með
hráskinku
Ferskar fíkjur ca. 8 stk. eða magn
eftir fjölda, 1-2 á mann
Fylling 1: Gráðost (fyrir þá sem það
vilja, annars næstu ostar í línu fyrir
neðan)
Fylling 2: Brie-ostur og 125 g askja
af hreinum rjómaosti
Hráskinka (magn eftir hversu marg-
ar þið gerið)
2 hvílauksrif marin eða ½ geiralaus
hvítlaukur
½ tsk. fínt borðsalt
steinselja
Hnetur til að toppa með:
½ bolli hnetur (valhnetur, pek-
anhnetur eða fræ og hnetur bland-
að)
1 msk. hunang
Klípa af grófu salti
Vinaigrette:
2 msk. balsamikedik
1 msk. ólífuolía
1 msk. hunang
Salt og pipar
Aðferð: Ef þið ætlið ekki að nota
gráðost byrjið þá á að gera fyll-
ingu 2
Merjið hvítlauksrifin og setjið út
í rjómaostinn
Hrærið svo salti og steinselju
saman við
Skerið brie-ostinn í þunnar
sneiðar
Skerið næst fíkjurnar langsum
án þess að taka þær alveg í sund-
ur, leyfið þeim að hanga saman
eins og þið sjáið á myndunum
Setjið annaðhvort gráðostinn inn
í fíkjuna, fyrir þá sem það vilja, en
fyrir ykkur hin setjið þá eina sneið
af brie-osti og ½-1 tsk. af hvít-
lauksrjómaosti
Lokið nú fíkjunni og vefjið
hráskinku utan um og stingið
tannstöngli þvert í gegnum hana
miðja
Raðið í eldfast mót eða bökunar-
plötu með smjörpappa og stingið
inn í 200-210C° heitan ofninn á
blástur í 15-20 mínútur eða þar til
hráskinkan er orðin stökk og fal-
leg
Meðan fíkjurnar eru inni í ofn-
inum skuluð þið rista hnetur á
pönnu, setjið svo hunangið út á
hneturnar á pönnunni
Takið hneturnar af og setjið á
disk og sáldrið grófu salti strax yf-
ir, gott að hafa vel af því
Stingið hnetum í frysti meðan
vinaigrettið er gert klárt
Hrærið öllu saman sem á að fara
í vinaigrettið og leggið til hliðar
Þegar rétturinn er til er fallegt
að raða fíkjunum á klettasalat og
dreypa svo vinaigrettinu yfir og
mylja hneturnar ofan á
Gott er að hafa svo vinaigrette
og aukahnetur til hliðar við réttinn
fyrir þá sem vilja bæta á
Ljósmynd/María Gomez
Smárétturinn sem sló í gegn
Þessi skemmtilegi réttur er skemmtilega öðruvísi en hann er úr smiðju Maríu
Gomez á Paz.is sem segir hann hafa komið einstaklega vel út. Fyrir þá sem
hafa gaman af því að prófa eitthvað nýtt er snjallt að bjóða upp á þetta við
skemmtileg tilefni enda bæði bragðmikill og spennandi réttur.
Spennandi smáréttur Réttir sem
þessi eru sniðugir í saumaklúbbinn.
Hinn eini sanni Prins Póló,
sem í hversdagslífinu kallast
Svavar Eysteinsson, hefur
sett nýja vöru á markað sem
kallast Bopp.
Bopp er snakk framleitt úr
lífrænt ræktuðu íslensku
bankabyggi. Byggið er hitað
þangað til það poppast og á
sama tíma mótað í stökkar
flögur, ekki ósvipað hrískök-
um. Það er síðan saltað með
vestfirsku sjávarsalti. Fram-
leiðslan fer fram í snakkgerð
Havarís á Karlsstöðum í
Berufirði.
Bopp fæst í völdum versl-
unum Krónunnar og að sögn
Svavars hafa viðtökurnar
hafa verið frábærar.
„Við erum núna í því að
kynna Boppið fyrir landanum
og verðum meðal annars á
Matarmarkaðnum í Hörpu 14.
og 15. des.,“ segir Svavar og
eru landsmenn hvattir til að
fjölmenna í Hörpu þá helgina
enda er mikil gróska í matar-
gerð um þessar mundir og
margt að sjá.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prinsinn kominn með
Bopp-ið í verslanir
Frábærar viðtökur Svavar segir að
viðtökurnar hafi verið frábærar sem
ætti ekki að koma neinum á óvart.
Prinsinn Hinum eina
sanna Prins Póló er
margt til lista lagt eins
og landsmenn þekkja.