Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 64
64 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin
50 ára Heiðbjört er
Grindvíkingur en býr
á Hveravöllum í
Reykjahverfi. Hún er
garðyrkjubóndi og
sveitarstjórnarfulltrúi
í Norðurþingi.
Maki: Páll Ólafsson,
f. 1968, garðyrkjubóndi.
Börn: Alda Pálsdóttir, f. 1989, Anna
Dís Pálsdóttir, f. 1992, og Harpa Lind
Pálsdóttir, f. 1998. Barnabörnin eru
þrjú.
Foreldrar: Ólafur Benóný Guðbjarts-
son, f. 1949, d. 2009, skrifstofumaður
í Grindavík, og Anna Marý Kjartans-
dóttir, f. 1950, húsmóðir í Garðabæ.
Heiðbjört Þóra
Ólafsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki sitja heima í dag og reyndu að
stökkva ekki upp á nef þér þótt mikið gangi
á. Þetta ástand varir ekki að eilífu.
20. apríl - 20. maí
Naut Til allrar hamingju mun orðspor þitt
og ferill blómstra. Ekki láta það draga kjark
úr þér þótt einhverjir mótmæli þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt hart sé gengið eftir svari frá
þér skaltu taka það rólega og velta hlut-
unum vandlega fyrir sér. Spjallaðu um það
sem allir eru sammála um áður en ráðist er
í viðkvæmari málefni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag er gott að ganga frá lausum
endum í tengslum við tryggingar, fast-
eignir, erfðaskrár eða skuldir. Vendu þig á
að koma til dyranna eins og þú ert klædd/
ur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Óvænt tækifæri til ferðalaga eða auk-
innar þjálfunar á einhverju sviði eru hugs-
anleg. Nú er að bretta upp ermarnar og
drífa sig í að klára hlutina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Notaðu daginn til þess að sinna fjöl-
skyldumeðlimum. Slepptu öllum leik-
araskap, hann skemmir bara fyrir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Lokaðu ekki dyrunum á menn eða
málefni án þess að vita hverju þú ert að
hafna. Fólk sem kallar fram það besta í þér
á skilið meira af tíma þínum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu fara lítið fyrir þér í dag
því öll óþarfa athygli fer illa í þig. Léttu á
hjarta þínu við góðan vin og veröldin sýnist
bjartari.
22. nóv. - 21. des.
BogmaðurMeð því að draga úr útgjöldum
kemst líf þitt aftur í jafnvægi. Ekki mála þig
út í horn í vinahópnum með eilífu tuði yfir
engu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú tekur sjálfa/n þig ekki of
alvarlega og skoðar málið í öðru ljósi
muntu geta hlegið innilega. Aðalmálið er að
finna tíma til að gera eitthvað skemmtilegt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Rómantíkin blómstrar. Einhver
sviptir hulunni af gömlu leyndarmáli sem
veldur því að þú skilur fólkið þitt betur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gefðu þér tíma til að stofna til nýrra
kynna sem og að rækta samböndin við
gömlu félagana. Ekki láta kenna þér um
eitthvað sem þú átt enga sök á.
deild og leysti af nokkra mánuði á
hverju ári sem skipherra á einhverju
skipanna, Óðni, Ægi og Tý. Á þess-
um tíma tók ég þátt í mörgum eftir-
minnilegum björgunum bæði á fólki
og skipum og einnig flotkví sem er í
Hafnarfjarðarhöfn. Eftirminnilegt
er fyrsta björgunin sem ég tók þátt í
eftir að ég lauk þjálfun sem sigmað-
ur, en þá björguðum við flugmanni af
væng flugvélar hans sem nauðlent
hafði í sjónum og var að sökkva.“
Magni var sendur á vegum LHG í
stjórnunarnám í danska sjóliðsfor-
ingjaskólann í Kaupmannahöfn vet-
urinn 1999-2000. Hann átti í nokkur
ár sæti á vegum LHG í nefnd sem
skipulagði fjölþjóðlegar björgunar-
æfingar á Norður-Atlantshafi, sem
voru á vegum Nato. Einnig var hann
um tíma tengiliður LHG við varnar-
liðið á Keflavíkurflugvelli.
„Haustið 2003 var mér boðið starf
við kennslu í Stýrimannaskóla Nami-
bíu á vegum Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands og var þá í launa-
lausu leyfi frá LHG í eitt ár. Ég fór
einn út til Namibíu í byrjun janúar
2004 en fjölskyldan kom til mín í júní
og var hjá mér í þrjá mánuði.
Notuðum við tækifærið og ferð-
uðumst talsvert um Namibíu og Suð-
ur-Afríku.“
Þegar heim var komið var Magni
ráðinn sem sviðstjóri skipstjórnar-
þar fram á haust er báturinn var
leigður vestur á firði. Haustið 1986
sótti ég um starf hjá Landhelgis-
gæslunni, en ég hafði hug á að prófa
það og vera í nokkra mánuði. Þar var
ég stýrimaður og skipstjóri til ársins
2004. Fékk þar þjálfun sem spil- og
sigmaður á þyrlu Gæslunnar, TF-
SIF, og starfaði í flugdeildinni,
ásamt því að fara á varðskipin sem
stýrimaður nokkra túra á ári til 1992
er ég tók við sem yfirstýrimaður á
Ægi og fór minn fyrsta túr sem skip-
herra þar haustið 1994. Frá þeim
tíma var ég á stjórnstöð og í flug-
V
ilbergur Magni Ósk-
arsson er fæddur 14.
nóvember 1959 á Sel-
fossi, en ólst upp á
Eyrarbakka. „Áður en
ég varð 10 ára var ég farinn að að-
stoða kartöflubónda við að taka upp
á haustin. Í þorpinu voru nokkrir
kartöflubændur og ég held að flest
börnin í þorpinu hafi á þessum árum
unnið við að taka upp kartöflur á
haustin fram að skólabyrjun. Held
reyndar að skólinn hafi ekki getað
byrjað fyrr en búið var að taka upp.
En annars eyddi maður flestum
stundum í fjörunni á þessum tíma og
kom yfirleitt votur heim.“
Magni vann í skólafríum, í grunn-
og gagnfræðaskóla, í fiskvinnslu hjá
Fiskiveri og í frystihúsinu, aðallega í
saltfiski, en á sumrin hjá hreppnum.
Hann fór fyrst á sjóinn 16 ára sem
háseti í afleysingar á Valafell, sem
frystihúsið átti, síðan sem kokkur á
bátnum Aski og þaðan yfir á stærri
bát sem hét Sólborg og var þar um
veturinn 1976-1977 á netaveiðum.
„Eftir humarvertíð á báti sem hét
Álaborg, sumarið 1977, sótti ég um
starf hjá Eimskip og var ráðinn há-
seti um borð í Brúarfossi, sem var í
Ameríkusiglingum. Sem var mikið
ævintýri fyrir 17 ára strák.
Á Brúarfossi var ég fram í maí
1978 er ég lenti í slysi um borð og
sigldi ekki meira það sumarið og
settist á skólabekk í Stýrimanna-
skólanum þá um haustið. Á milli
bekkja í Stýrimannaskólanum var ég
stýrimaður á humarvertíð á Jóhanni
Þorkelssyni frá Eyrarbakka. Eftir
að ég lauk farmannaprófi 1981 var ég
háseti á togaranum Bjarna Herjólfs-
syni fram á haust en fór þá sem
stýrimaður á flutningaskipið Ísnes
og var þar til áramóta 1981-82, er ég
fór í Varðskipadeild Stýrimanna-
skólans.“ Magni lauk farmannaprófi
frá Stýrimannaskólanum 1981, varð-
skipadeild 1982 og útgerðartækni frá
Tækniskóla Íslands 1983.
„Eftir að námi lauk starfaði ég um
tvö ár sem skrifstofustjóri hjá inn-
flutningsfyrirtæki, en fór aftur á sjó-
inn sem stýrimaður á Drífu ÁR frá
Eyrarbakka og tók við þeim báti sem
skipstjóri á vertíðinni 1986 og var
sviðs Menntafélagsins, sem hafði
tekið við rekstri Stýrimannaskólans í
Reykjavík og Vélskóla Íslands.
Magni fór í kennsluréttindanám í
Kennaraháskóla Íslands til þess að
öðlast kennsluréttindi á framhalds-
skólastigi og lauk því 2006. Við sam-
einingu Stýrimannaskólans og Vél-
skólans árið 2006 og Iðnskólans í
Reykjavík árið 2008 í Tækniskólann
urðu til nokkuð sjálfstæðir fagskólar.
Þar á meðal var Skipstjórnarskólinn
sem Magni var ráðinn skólastjóri yf-
ir.
„Í störfum mínum þar stóð ég m.a.
fyrir nokkrum breytingum á náminu
og þar á meðal að koma á dreifnámi
með staðlotufyrirkomulagi þar sem
nemendum, til dæmis þeim sem
starfa á sjó, gafst kostur á að stunda
skipstjórnarnám og ná sér í skip-
stjórnarréttindi án þess að þurfa að
taka sér frí í nokkur ár til þess að
setjast á skólabekk. Ég steig til hlið-
ar sem skólastjóri þegar Véltækni-
skólinn og Skipstjórnarskólinn voru
sameinaðir undir einn skólastjóra og
tók að mér fagstjórn skipstjórnar
ásamt kennslu.“
Magni hefur átt sæti í sendinefnd
á vegum Íslands sem farið hefur á
fundi hjá Alþjóðasiglingamálastofn-
uninni (IMO) í London, þegar til um-
ræðu hafa verið menntunar- og ör-
yggismál sjómanna. Magni hefur
setið í starfsgreinaráði sjávarútvegs
og siglingagreina frá 2005 og verið
formaður ráðsins frá 2010. Hann er
sérfróður meðdómsmaður í Héraðs-
dómi. Hann sat í samninganefnd
Stýrimannafélags Íslands, fyrir
hönd stýrimanna hjá Landhelgis-
gæslu Íslands, 1988-1998, var for-
maður Starfsmannafélags Landhelg-
isgæslunnar 1989-1990 og
stjórnarmaður 1992-1995 og hefur
verið stjórnarmaður í Hollvina-
samtökum varðskipsins Óðins frá
2010.
Áhugamál Magna eru bátar og
skip, fluguveiði og ferðalög, fjöl-
skyldan og sumarbústaður fjölskyld-
unnar.
Fjölskylda
Eiginkona Magna er Brynja
Björgvinsdóttir, f. 19.5. 1962, lyfja-
Vilbergur Magni Óskarsson, kennari og fagstjóri skipstjórnar – 60 ára
Fjölskyldan Magni, Brynja, börn, tengdabörn og barnabörn.
Lærifaðir skipstjóranna
Hjónin Brynja og Magni.
30 ára Grímur ólst
upp í miðbæ Reykja-
víkur og býr í Norður-
mýrinni. Hann er
menntaður smiður og
starfar við smíðar hjá
Glerskipti. Helsta
áhugamál Gríms er
klifur.
Maki: Védís Pálsdóttir, f. 1990, vöru-
hönnuður.
Dóttir: Áshildur Grímsdóttir, f. 2019.
Foreldrar: Stígur Steinþórsson, f. 1960,
leikmyndahönnuður, og Bryndís Christ-
ensen, f. 1965, kennari og vinnur við fé-
lagsstörf á dvalarheimili. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Grímur
Stígsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Áshildur Grímsdóttir
fæddist 4. júlí 2019. Hún vó 16
merkur og var 54 cm við fæðingu.
Foreldrar hennar eru Grímur
Stígsson og Védís Pálsdóttir.
Nýr borgari