Morgunblaðið - 14.11.2019, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 14.11.2019, Qupperneq 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Mér fannst full ástæða til að halda upp á að ég er búinn að eiga kontrabassa í 40 ár. Þessi samvera okkar tveggja er á við rúbínbrúð- kaup og því er platan til heiðurs kontrabassanum. Ég keypti fyrsta bassann minn í Ósló í lok ágúst 1979 og nýja platan var tekin upp í lok ágúst 2019, svo þetta eru ná- kvæmlega 40 ár,“ segir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari en hann verður með tónleika í Hörpu nk. sunnudag í tilefni af útgáfu nýrrar djassplötu sem hann hefur gefið nafnið Gangandi bassi. „Það var síður en svo augljóst að við kontrabassinn yrðum hjón, sam- band okkar var nokkuð erfitt til að byrja með. Það hófst á misheppn- uðu klassísku bassanámi mínu en þá leið mér eins og okkur væri ekki skapað nema skilja. Þegar ég fór að eiga stundir með hljóðfærinu og plötuspilaranum þar sem ég spilaði djasstónlist kviknaði aftur á milli okkar. Þá hafði ég lagt bogann á hilluna og sneri mér að því að spila djasstónlist, sem er sá tónn sem síðan hefur verið ráðandi í þessi fjörutíu ár,“ segir Tómas og bætir við að kontrabassa hafi hann ekki séð fyrr en hann var kominn á þrí- tugsaldur. „Ég ólst upp úti á landi og þar voru ekki til svona hljóðfæri, líkust skrýtnum skápum. Ég var eins og annað ungt fólk á þeim tíma á kafi í rokktónlist og poppi, og það eina sem ég brá út af því var að ég spil- aði á harmonikku um tvítugt. Kontrabassinn var því eins og geimvera fyrir mér. Ég man eftir að hafa séð hann í sjónvarpi þegar Helgi Péturs plokkaði einn slíkan með Ríó tríó. Þegar ég svo loksins sá þetta fyrirbæri berum augum á tónleikum Jazzvakningar í Reykja- vík 1978, þá sá ég að þetta var gull- fallegt hljóðfæri.“ Hefði troðið mér meira fram Tómas segist á nýju plötunni hafa viljað sýna blessað hljóðfærið og ota því dálítið fram. „Hefðbundin staða kontrabassa er frekar aftar- lega á vellinum, ef ekki hreinlega aftast við hlið markvarðar. Nú gerði ég hann að framverði, sem er þó nokkur glíma vegna hljóms hljóð- færisins, því hann er alla jafna dimmur og dökkur, en það er snúið að hafa dimmraddað hljóðfæri í lag- línuspili mestan part á heilli plötu. Það þarf að beita mörgum útsetningarbrögðum svo þetta virki. Þetta var þó nokkurt verkefni að finna út hvernig þetta gat rímað saman, en ég held ég hafi fundið ágæta leið til að gera þetta mús- íkalskt. Ég hefði sjálfsagt troðið mér meira fram undanfarin 40 ár ef þetta væri ekki svona skratti flókið. Það gat til dæmis verið erfitt að keppa við Óskar á saxófóninum þar sem við spilum saman línur, því Óskar er með svo stóran og feitan saxófóntón, en þetta gekk upp að lokum, ég gat komið kontrabass- anum fremst í tónlistinni.“ Sigtryggur er jörðin sjálf Tómas er með einvalalið hljóð- færaleikara með sér á plötunni, bræðurna Óskar og Ómar Guðjóns- syni á saxófón og gítar og Sigtrygg Baldursson á slagverk, en þeir fjór- ir kalla sig á plötunni Trekvartett- inn. „Ég hef spilað mjög mikið með þeim í áratugi svo það lá ljóst fyrir að fá þá til liðs við mig. Til að hoppa ekki í gömul hjólför þá fékk ég Sig- trygg til að vera með kongatromm- ur, sem ég leyfi mér að segja að sé nánast óþekkt slagverkshljóðfæri í sveiflutónlist, trommusett er þar reglan. Menn notuðu reyndar að- eins kongatrommur í sveiflutónlist um 1960, en þá með trommusetti. Ég hef hvergi getað grafið upp kongatrommur sem eina slagverks- hljóðfærið í slíkri tónlist, en við Sig- tryggur höfum leikið okkur svolítið að þessu undanfarin ár, svo ég vissi að þetta mundi virka. Sigtryggur er jörðin sjálf, hann hefur jarðarbít.“ Veröldin bjartari eftir sundið Sum heiti laganna á nýju plötunni vekja athygli og þegar Tómas er spurður út í þau segir hann að flest laganna hafi fengið fjóra til fimm titla í vinnuferlinu. „Þetta er alltaf að breytast á meðan ég er að búa þetta til, bæði út frá tilfinningu og út frá því hvaða leið lagið fer á endanum. Það byrjar kannski með einum titli sem passar mjög vel við en síðan breytist lagið og þá er titillinn orðinn ónýtur. Tit- ill lagsins sem heitir Bassabopp með latíngljáa kemur til af því að ég heillast af þessu nýja tungumáli sem er á matseðlum veitingastaða, þar er allt á íslensku en ég skil oft ekki nema annað hvert orð. Þetta lag átti fyrst að heita Bassabopp- aðir jarðskokkar á latínbeði, og ég var að hugsa um að hafa frauð líka með í nafninu en sleppti því. Svo duttu jarðskokkarnir og beðurinn út en gljáinn kom inn,“ segir Tómas og bætir við að titill eins lagsins vísi í hans daglegu sundferð, en það heitir Eftir sundið. „Ég er alltaf miklu glaðari þegar ég kem úr sundi en þegar ég fer í sund, án þess að ég sé neitt tiltakanlega fúll þegar ég fer í sund. Veröldin er alltaf bjartari að sundi loknu.“ Útgáfutónleikarnir verða í Kalda- lóni í Hörpu nk. sunnudag, 17. nóv- ember, kl. 17. Miðasala á harpa.is. Platan Gangandi bassi er aðgengi- leg á Spotify, Itunes og Google Play og fáanleg í flestum verslunum sem selja tónlistarefni. Ljósmynd/Jón Karl Helgason Trekvartett Tómas ásamt félögum sínum Óskari Guðjónssyni, Sigtryggi Baldurssyni og Ómari Guðjónssyni. Hann var eins og geimvera fyrir mér  „Það var síður en svo augljóst að við kontrabassinn yrðum hjón, samband okkar var nokkuð erfitt til að byrja með“  Tómas R. heldur upp á 40 ára bassasamband með nýrri plötu og tónleikum Sviðslistahátíð er nefnist Safe-Fest hefst í Núllinu, hinu fyrrverandi al- menningssalerni í Bankastræti, í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan 18 og stendur fram á sunnudag. Skipuleggjendur og þátttakendur hátíðarinnar eru Adolf Smári Unn- arsson, Aron Martin Ásgerðarson, Birnir Jón Sigurðsson, Helgi Grím- ur Hermannsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Snæfríður Sól Gunnarsdóttir en þau eru öll út- skrifuð af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands. Dagskráin samanstendur „af glænýjum og nánast áður óséðum verkum“, eins og segir í tilkynningu, og er áhersla lögð á „nýsköpun og öryggi“. Á opnunarhátíðinni í dag verða ræðuhöld, tónlistaratriði og óvænt- ar uppákomur. Fyrstu 100 gestir hátíðarinnar fá frían hátíðarpassa. Kl. 20 til 23 verður síðan frumflutt Nýjasta síðasta verkið og er gestum frjálst að koma og fara að vild með- an á sýningu stendur. Á laugardag verða performansar á dagskrá frá kl. 13.30 og ný og ólík verk síðan sýnd fram eftir degi en sýningar á þeim hefjast kl. 14, 15, 16.15 og 17. Á sunnudag klukkan 13 til 17 verður síðan sviðslistamarkaður: „Pop up-performansar og list til sölu,“ eins og segir í tilkynningu. Sviðslistahátíðin Safe-Fest í Núllinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sviðshöfundur Adolf Smári Unnarsson er einn sex höfunda verkanna á hátíðinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.