Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Lengi stóð hún af sér áraunóhugnaðarafkvæmanna //En svo fór // eftir högginóteljandi, sífellt þyngri, / að móðurmorðingjar náðu að mölva undirstöðubeinin / alveg // og móður- jörðin steyptist á hliðina“ segir í ljóði Steinunnar Sigurðardóttur, „Móðurmorðingjar“, í nýju ljóðabók- inni Dimmumót. Móðir jörð er því fallin, felld af okkur afkomendunum, og „eins og í kvæði kvæðanna / eftir völvunnar hljóðan: // „Nú mun hún sökkvast.““ Jörðin fellur hér og heim- urinn tekur stórfelldum breytingum, til hins verra. Í „Hverslend- ingar“ spyr skáldið: „Hvað tekur svo við? Hver verðum við? Nefnd hvaða nafni? // Hvers-lendingar verðum við þá Íslendingar svokallaðir / þegar jökullinn fer?“ Og eitt er þar víst: „Ís-lendingar ekki.“ Steinunni liggur mikið á hjarta í þessari tíundu ljóðabók sinni og tal- ar tæpitungulaust í kröftugum og áhrifamiklum ljóðum, sem mörg hver eru þung ádrepa vegna ábyrgð- arlausrar framkomu okkar mann- anna við jörðina. Og endurtekin táknmynd ástandsins er hörfandi jökullinn, sem skáldið tregar. Eins og segir í nafnlausu upphafsljóðinu: „Þessi kastali úr snjóhvítu rós- unum þiðnar / og verður að ramb- andi haug / Það er fullkomnað Endanlegt Eilífðarlok“ Í bókinni eru nær fjörutíu ljóð í sjö hlutum. Í fyrsta hlutanum, „Það kemur í ljós“, birtist í tíu ljóðum einskonar einlæg uppvaxtarsaga, stelpu sem ber svipmót skáldsins og fær að kynnast náttúrunni á sunn- lenskum sumrum. Hún tengist henni sterkum og mikilvægum böndum og þegar stelpan er orðin fullorðin, búin „að eiga sitt eigið barn, jafnvel það / og löngu löngu fædd ljóðin“ þá er Jökulinn enn til staðar, sú táknmynd og tenging sem ljóðmælandinn kall- ar „eilífðarfjall“. „Sem yrði þar allt- af, ekki spurning, / framtíðarljóst í okkar augsýn.“ En það reyndist misskilningur eins og fjallað er um í lokaljóði fyrsta hlutans, „Sjónarsvipir 1“, þar sem ljóðmælandi segir, og kraumar undir reiðin: Við vitibornu skiljum þá hamfarahlýn- un á jörðinni en við látum ósköpin yfir ganga börnin og barnabörnin. Krúttin á facebook. Hvað verður um þeirra krútt og þeirra krúttkrútt? Er okkur alveg sama? SAMA sem hroðgræðgi dáðleysi ár fram af ári, mann fram af manni. Í seinni köflum bókarinnar, sem ber þetta þunga heiti og sýnir á táknrænan hátt á kápu hvar jökul- hetta splundrast, veltir skáldið í senn tregafull og myrk í máli fyrir sér áhrifum hamfarahlýnunarinnar á okkur Íslendinga sem og á framtíð jarðarinnar. Ljóðmálið er í senn opið og myndrænt og athyglisvert er hvernig vísanir í ættjarðarljóð og eldri sem yngri kveðskap – rétt eins og í orð Krists í upphafsljóðinu – birtast víða og eins og hnykkja á er- indi skáldsins. Ýmiskonar raddir fá að hljóma í bókinni og í „Raddir úr Vatna-jökla sveitum“ einnig raddir fólks sem lætur sér fátt um finnast þótt jökull- inn sem þau hafa alltaf haft fyrir augum hopi. Einn trúir ekki að hann hverfi, öðrum var kennt að jökullinn væri skelfilegur, þriðji „sér enga fegurð í þessu.“ Þarna leikur skáldið með þá alkunnu staðreynd að mikil- vægi og merking náttúrunnar dylst oft þeim sem alast upp og búa með henni – þótt það sé alls ekki algilt. Hin ljóðin eru síðan fleiri þar sem hugsað er um jöklana og bráðnum þeirra, frá ýmsum hliðum og með ýmsu móti, og er þá ekki laust við endurtekningu – þótt þunginn og mikilvægi erindisins, auk vel mótaðs textans, haldi lesendum föngnum. Því hér er ort af alvöru um dauðans alvöru, og spáð fyrir um endalok. Og ekki bara sjálfsmyndar þjóðar, eins og sjá má í þessu stutta ljóði um Vatnajökul, „Afkomandinn“: Sá Stóri Hvíti er afkomandi Íslands. Þegar hann fer, deyr ekki aðeins hann út, Ættarhöfðingi eyjarinnar, heldur einnig allur ættbálkur hans. Hvers-lendingar verðum við þá? Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljóð Dimmumót bbbbm Eftir Steinunni Sigurðardóttur. Mál & menning, 2019. Innbundin, 95 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Tæpitungulaust „Steinunni liggur mikið á hjarta í þessari tíundu ljóðabók sinni og talar tæpitungulaust í kröftug- um og áhrifamiklum ljóðum,“ segir í rýni um bókina Dimmumót þar sem fjallað er um hamfarahlýnun. Breski ljósmyndarinn Robert Freeman, höfundur myndanna á nokkrum hljómplötum Bítlanna, og þar með nokkrum af þekktustu plötum sögunnar, er látinn, 82 ára að aldri. Hann var til að mynda höfundur myndanna á plötunum With the Beatles, Rubber Soul, Help! og Meet the Beatles og átti því stóran þátt í að skapa ímynd hljómsveitarinnar á fyrri hluta ferils hennar. Eftirlifandi Bítlar, Ringo Starr og Paul McCartney, hafa báðir minnst Freemans á samfélags- miðlum. „Hann var einn af okkar eftirlætisljósmyndurum á Bítla- árunum og átti hugmyndirnar að sumum þekktustu plötuumslögum okkar,“ skrifar McCartney. „Auk þess að vera mikill fag- maður var hann frumlegur og hug- myndaríkur,“ segir hann og tekur sem dæmi hina bjöguðu mynd af sveitinni á umslagi Rubber Soul. Freeman gat sér orð fyrir að mynda fleiri listamenn, þar á með- al John Coltrane og Jimmy Cliff. Ljósmyndari rómaðra Bítlaplatna látinn Rubber Soul Hin fræga „bjagaða“ mynd Freemans á umslaginu. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.