Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 74

Morgunblaðið - 14.11.2019, Síða 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Mateusz Morawiecki, forsætisráð- herra Póllands, hefur skrifað for- svarsmönnum Netflix og krafist breytinga á heimildarmyndinni The Devil Next Door sem Netflix dreifir og fjallar um útrýmingarbúðir nas- ista í seinni heimsstyrjöldinni. Ráðherrann segir að landakort sem sýnt sé í myndinni staðsetji út- rýmingarbúðirnar innan núverandi landamæra Pólands, sem sé ekki rétt og gefi þá röngu mynd að Pól- verjar hafi borið ábyrgð á búðunum og fjöldamorðunum. Pólsk stjórnvöld hafa á síðustu árum markvisst reynt að benda á að Pólverjar hafi ekki borið ábyrgð á búð- unum og settu tímabundið um- deild lög sem refsuðu fólki sem hélt slíku fram. Samkvæmt BBC staðfesta stjórn- endur hjá Netflix að framsetning í myndinni sé umdeild en hafa ann- ars ekki brugðist við. Pólskur ráðherra gagnrýnir Netflix Í Auschwitz-út- rýmingarbúðunum. Innan og utan leikvallar Stöngin út – Halldór Einarsson bbbmn Eftir Magnús Guðmundsson. Bjartur, 2019. Innbundin, 335 bls. Í ævisögu Halldórs Einarssonar, Hensons, rennur textinn lipurlega og sögumaður kemur til dyranna eins og hann er kæddur. Skemmti- legar sögurnar streyma fram, skemmtileg at- vik og ævintýri í fótboltanum innan sem utan leikvallar. Íþróttir eru heillandi veröld og mað- ur er manns gaman. Keppn- isferðir, eftirminnilegir leikir, sætir sigrar, súr leikslok, samkomuhald ýmiskonar og svo mætti áfram telja. Frá öllu þessu segir Halldór af trúu minni í bókinni, sem heitir því skemmtilega nafni Stöngin út. Einnig greinir Halldór frá fyrirtækjarekstri sínum; löngu og lærdómsríku úthaldi þar. Seg- ir frá velgengni en líka því þegar boginn var of hátt spenntur svo í bakseglin sló. Bókin gefur að því leyti ágæta innsýn í það margþætta bras sem atvinnustarfsemi fylgir. Það er ekki alltaf dansað á rósum og vaka þarf yfir öllu svo dæmið gangi upp. Engum dylst sem les bókina að gæfumaður segir frá. Halldór hefur átt skemmtilegt og innihaldsríkt líf; góða fjölskyldu og traustan og skemmtilegan vinahóp manna sem margir hafa verið áberandi og sett svip á samtímann. Má þar nefna Hemma Gunn, en Halldór segir í bókinni vel frá þeim syni þjóðar og fallegri vin- áttu þeirra. Þá er líka fengur í því þegar Hall- dór greinir frá kynnum sínum af erlendum knattspyrnu- og viðskipamönnum; óvæntum ævintýrum og atvikum sem eru kryddið í til- verunni. Magnúsi Guðmundssyni blaðamanni tekst vel upp í bókarskrifunum og Halldór birtist hér lesendum sínum ljóslifandi. Bókin er létt- leikandi eins og maðurinn sem segir frá kapp- inu sem er alltaf í boltanum. Ljómandi góð afþreying Höpp og glöpp bbbnn Eftir Ólaf B. Schram. Skrudda, 2019. Innbundin, 270 bls. Maður er manns gaman, segir í Háva- málum, og inntakið er hið sama í minningabók Ólafs B. Schram, Höpp og glöpp – sjálfshól og svað- ilfarir. Lesandinn slæst í för með skemmtilegum sögumanni, hittir litríka karaktera á heimavelli í byggðum landsins, fer í jeppaferðir og útreiðar- túra upp um fjöll og dali og kynnist túristum frá fjarlægum löndum sem heillast í senn af landinu og hinni und- arlegu þjóð sem það byggir. Kemur þar til að sakir fámennis þekkist fólk á Íslandi betur innbyrðis en í flestum öðrum löndum og af því sprettur sú skemmtilega menning að segja sögur af náunganum, eins og Ólafur gerir listilega vel. Í bókinni kynnast lesendur líka veröld sem var í Öræfasveit. Þar var Ólafur í sveit á barnsaldri meðan héraðið var umlukt vötnum svo þangað var fáum fært. Við þær aðstæður myndaðist óvenjulegt samfélag sem Ólafur segir skemmtilega frá. Þess utan er bókin líka ágæt landafræði; samfléttaður sögum af körlum og konum er margvíslegur fróðleikur um landið og náttúru þess – sem hver upplifir með sínum hætti. Ekki er á neitt hallað þótt nefnt sé að text- ann í bókinni hefði mátt meitla betur. Teikn- ingar Þorgríms Kára Snævarr eru góðar en ljósmyndir af persónum og leikendum hefðu gert bókina gildismeiri, en hún er almennt sagt ljómandi góð afþreying. Þægileg aflestrar og vönduð sagnfræði Halaveðrið mikla bbbbn Eftir Steinar J. Lúðvíksson. Bjartur, 2019. Innbundin, 176 bls. Frásagnir af sjóslysum hafa alltaf höfðað sterkt til Íslendinga. Rit um það efni eru mörg og má þar nefna bækurnar Þrautgóðir á raunastund, sem Steinar J. Lúðvíksson skráði og nutu vinsælda. Höfundurinn rær nú á sömu mið í bókinni Halaveðrið mikla – mannskæðar hamfarir til sjávar og sveita. Ofsi þessi gekk yfir í febrúar árið 1925 og fórust þar alls 74 sjómenn. Þetta var mikil blóðtaka og harmurinn þungur, sbr. að Hala- veðrið skuli enn í minnum haft nú 94 árum seinna. Bókin Halaveðrið mikla er skrifuð á góðri og þróttmikilli íslensku, enda er höfundurinn þraut- reyndur. Hver setning er á réttum stað og fram- vindan í stílnum góð og spennandi. Lesendum er líka haldið vel við efnið, svo þeir geta bók- staflega upplifað sig um borð í togurunum við hrikalegar aðstæður í vefurofsa. „Ekkert lát varð á veðurofsanum og sjólag- ið var jafnvel enn verra en hinir reyndu sjó- menn á togaranum höfðu nokkru sinni ímyndað sér að gæti orðið. Erfitt var að verja skipið áföllum, þar sem náttmyrkur og hríð- arbylur byrgði alla sýn,“ segir í bókinni (bls. 77) um ástandið á togaranum Agli Skalla- grímssyni. Sagan um Halaveðrið er þægileg aflestrar, vönduð sagnfræði, og vandað til myndamála. Atburðir sem ekki má fenna yfir, enda er til þess séð í þessari ágætu bók Steinars J. Lúð- víkssonar. Fótbolti, ferðalög og fárviðrið mikla Yfirlit yfir nýútkomnar ævisögur og sagnfræðirit. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Halaveðrið Ríkarður Jónsson gerði snjólíkneski á Lækjartogi þegar söfnun stóð yfir til styrkt- ar aðstandendum þeirra sem fórust. Af þeim sem standa við líkneskið má marka stærð þess. V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Um 160 sendibréf sem fóru á milli rithöfundarins Ians Flemming, höf- undar sagnanna sívinsælu um njósnarann James Bond, og Ann, ást- og eiginkonu hans, frá tuttugu ára tímabili verða seld á uppboði hjá Sotheby’s í desember. Um er að ræða um fimm hundruð vélritaðar síður og samkvæmt frétt The Gu- ardian vekja bréfin áhuga margra en áætlað verð er á milli 40 og 50 milljónir króna. Samband Flemmings og Ann Charteris er sagt hafa verið æði skrautlegt og er haft eftir sérfræð- ingi hjá Sotheby’s að bréfin varpi fyllra ljósi á það. Þau átti í nokk- urra ára ástarsambandi á fimmta áratugnum en á þeim tíma var Ann í tveimur hjónaböndum með efn- uðum aðalsmönnum og féll sá fyrri í heimsstyrjöldinni. Á þeim árum gekk hún með barn Flemmings en það lést skömmu eftir fæðingu. Eftir margra ára leynilegt ástar- samband gengu þau í hjónaband ár- ið 1952 en það entist aðeins í ár og var framhjáhaldi hans kennt um. Ástarbréf höfundar Bonds á uppboð Höfundurinn Ian Flemming er þekktastur fyrir að skapa njósnarann James Bond.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.