Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 76

Morgunblaðið - 14.11.2019, Page 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Fyrir bókmenntaunnendureru ljóð Einars í Til þeirrasem málið varðar auðæfisem byggð eru á gríðar- stórum fjársjóði, bókmenntahefðinni sjálfri. Ljóðmælandi horfir um öxl og lítur til bókmenntahefðarinnar og smíðar þannig ljóðin í tengslum og úr tengslum við skáldskap sem virð- ist aldrei falla úr gildi. Í ljóðunum tek- ur ljóðmælandi hefðina, vísar í hana, leynt eða ljóst, og snýr jafnvel upp á hana. Þannig birtist hugmynd heimspekingsins Mikhails Bakhtins skýrt í textunum, kenningin um það að sérhver texti sé byggður upp sem mósaík tilvitnana, sé upptaka og umbreyting annars texta. Þannig tengjast allir textar og allt sem er skrifað hefur einhvern tímann áður verið skrifað. Í bókinni er að finna vísanir í Sig- fús Daðason, Jónas Hallgrímsson, Ingibjörgu Haraldsdóttur, Jóhann Sigurjónsson, Jóhann Jónsson og fleiri höfuðskáld Íslendinga. Ljóðið „Tíminn og vatnið“ eftir Stein Stein- arr er fyrirferðarmikið í bókinni og kemur það oft við sögu ef lesandinn kýs að horfa á bókina með gler- augum hefðarinnar. Það er langt síðan ég hef ort ljóð en stutt síðan konur fengu kosningarétt og tíminn er einsog vatnið, dropinn sem holar steininn. Þetta eina erindi gefur góða hug- mynd um ljóðlistina sem er að finna í Til þeirra sem málið varðar. Á sama tíma og ljóðmælandi vísar í forvera sína innan ljóðlistarinnar og horfir um öxl leikur hann sér með tímann sjálfan: hvað er langt og hvað er stutt, hvort er tilvistin að hefjast eða henni að ljúka? Einar horfir nefnilega ekki ein- ungis um öxl heldur einnig fram á veginn: „Klukkan er korter í upphaf- ið. Klukkan er korter í endalokin.“ Heimurinn fer batnandi en á sama tíma versnar hann. Er tíminn að renna út? Það sem er hvað magn- aðast í bókinni er það hvernig Einar nær að nýta sér bókmenntahefðina, ljóð sem í einhverjum tilvikum eiga minna við í samtímanum en á þeim tíma sem þau voru skrifuð, til þess að spegla nútíð, fortíð og framtíð samtímis. Ég veit ekki með önnur ljóð. Ég veit bara að þetta ljóð er opið hús með gluggum sem speglast í vötnum þar sem draumarnir flæða. Ljóð Til þeirra sem málið varðar bbbbm Eftir Einar Má Guðmundsson. Mál og menning, 2019. Kilja, 96 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Morgunblaðið/Hari Mósaík Í Til þeirra sem málið varðar tekur Einar Már Guðmundsson hefð- ina, vísar í hana, leynt eða ljóst, og snýr jafnvel upp á hana að sögn rýnis. Í sterkum tengslum við hefðina Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Við viljum stuðla að nýsköpun í tón- list og erum því að leita að tónskáld- um til að semja strengjakvartett fyr- ir Salinn. Þetta verkefni heitir Tón- verk 20/21 og er einnig hugsað til að auka sérstöðu Tí- brártónleikarað- arinnar hjá okk- ur, því verkin munu verða frumflutt í Saln- um næsta vetur í Tíbrá,“ segir Aino Freyja Jar- vela, forstöðu- maður Salarins í Kópavogi sem auglýsir nú eftir tónverkum. „Þeir sem senda verk þurfa að vera menntaðir tónsmiðir eða hafa um- talsverða reynslu af tónsmíðum, en við vonumst til að þetta verði héðan í frá árlega og þá geta þeir sem enn eru í tónsmíðanámi í Listaháskól- anum sótt um síðar.“ Aino Freyja segir að ákveðin skilyrði séu sett. „Við viljum fá 10 mínútna strengja- kvartettsverk, þar sem eru tvær fiðl- ur, víóla og selló. Strokkvartettinn Siggi mun flytja verkið og því vita umsækjendur hverjir flytjendur eru og hvers þeir eru megnugir. Okkur finnst áríðandi að þetta verði ekki skúffuverk heldur lifandi flutningur. Ef þetta heldur áfram þá verður annar rammi hin árin, til dæmis söngur og hljóðfæri eða eitthvað annað.“ Aino Freyja segir að ætlast sé til að tónskáld sendi hugmynd að verki og útskýri hvernig hún rímar að þeirra mati við Salinn og Strok- kvartettinn Sigga. „Þetta er ekki samkeppni um verk sem er búið að semja heldur er þetta verkefni sem við vinnum með kvartettinum. Þetta er opið fyrir tónskáld á öllum aldri því við viljum hafa breidd og erum að vonast til að geta valið tvö til þrjú tónskáld núna í fyrsta kasti. Vonandi senda sem flestir inn hugmyndir, því mér finnst skipta svo miklu máli að við hvetjum til að verk verði til, það er hluti af markmiðum okkar með Salnum. Fyrir nú utan að skapa at- vinnu fyrir tónskáld, en þau sem verða valin fá greitt út frá leiðbein- ingum á greiðslum til tónskálda.“ Valnefndin er skipuð einum fulltrúa frá Strokkvartettinum, einum frá Salnum og einum frá Tónskálda- félagi Íslands. Nánar um verkefnið á salurinn.is. Tónskáld á öllum aldri geta sótt um Strokkvartettinn Siggi Sigurður Bjarki Gunnarsson, Una Sveinbjarnar- dóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir. Aino Freyja Kynferðisleg misnotkun áungu fólki er einn alvar-legasti glæpur sem umgetur. Yfirhylming er ekki langt undan þegar kemur að uppgjörinu. Óskar Guðmundsson tekst á við viðfangsefnið í spennu- sögunni Boðorðunum og kemst oft á tíðum ágætlega frá því. Veröldin er vitskerrt, stendur einhvers staðar, og það má senni- lega taka undir það. Brenglun í sambandi við vin- skap og traust verður mörgum að yrkisefni, Óskar skilgreinir vandamálið og vinnur úr því. Anton er kynntur til sögunnar á Akureyri 1995. Ungur piltur sem ætti að eiga framtíð fyrir sér en kemst ekki yfir fyrstu hindrun og eitt leiðir af öðru. Eftirminnileg per- sóna, ekki síst vegna þess að henni bregður svo oft fyrir í raunheimum. Sagan gerist svo að mestu 2014. Kirkjunnar menn fá það óþvegið og stöðugt er brugðið fæti fyrir Sölku lögreglukonu við rannsókn mála. Í fámennu samfélagi getur tenging verið meiri en í þéttbýli og hags- munir skarast. Glæpir fyrri tíma eru viðbjóðs- legir og þeir sem eru framdir á sögu- tíma eru síst betri. Við rannsóknina rifjast ýmislegt upp og ekki verður beint sagt að vel hafi verið búið að unglingum sem áttu erfitt. Kemur svo sem ekki á óvart, en hvernig brugðist er við orkar tvímælis. Frásögnin er spennandi en lýs- ingar á starfsemi lögreglunnar fyrir rúmlega 20 árum eru vægast sagt ótrúverðugar. Eins virðist sumt ekki fá staðist sem á að hafa gerst fyrir fimm árum. En leyndarmálin leyn- ast víða og ekkert er sjálfgefið þegar glæpir eru annars vegar. Skemmdu eplin má víða finna, jafnvel þar sem enginn á von á þeim. Spenna Óskar tekst á við alvarlegt viðfangsefni í Boðorðunum. Skemmd epli þar sem síst skyldi Glæpasaga Boðorðin bbbnn Eftir Óskar Guðmundsson. Bjartur, 2019. 304 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR LEÐURSKÓR 17.995 KR. 19.995 KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.