Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 1

Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 best núna! Mmm ... mangó Krónan mælir með! ORKUMÁL Landsvirkjun telur sig vera með traustar ábyrgðir gagnvart Rio Tinto sem skoðar nú mögulega lokun á álverinu í Straumsvík. Komi upp ágreiningur um atriði raforku- samningsins sé skýrt kveðið á um hvernig leysa eigi úr honum. Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. „Varðandi raforkuverðið teljum við að samningurinn sé sanngjarn fyrir bæði fyrirtækin. Vissulega er hann ekki ódýr, en hann er sann- gjarn,“ segir Hörður. Sérfræðingar í orkumálum telja að í samningi Landsvirkjunar og Rio Tinto, sem gildir til 2036, sé kveðið á um móðurfélagsábyrg. Móðurfélag álversins þurf i að ábyrgjast lágmarkskaup á raforku, um 80 prósent, út samningstímann. „Við teljum traustar ábyrgðir fyrir skuldbindingum beggja aðila í samningnum. Það hefur enginn ágreiningur verið um það,“ segir Hörður. Þá hefur komið fram að í samningnum sé endurskoðunar- ákvæði sem hægt er að virkja árið 2024. Aðspurður segir Hörður að ákvæðið eigi að tryggja að samn- ingurinn sé sanngjarn fyrir bæði fyrirtækin. Álverið í Straumsvík greiddi arð upp á 130 milljónir dala til móður- félagsins 2017. Í svari frá álverinu kemur fram að arðgreiðslan hafi verið sú eina sem fyrirtækið hefur greitt frá 2004. Ástæðan var að fyrir lá kauptilboð frá Norsk Hydro um að kaupa álverið þar sem fyrirtæki séu jafnan ekki seld með lausafé. Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi, segir að hækkun raforkuverðs sem fylgdi nýjum samningi til 2029 hafi komið niður á samkeppnisstöðu fyrirtækisins. „Það sem hrjáir okkur mest er spurningin um hvað tekur við eftir 2029. Ef það stefnir í enn hærra raf- orkuverð þá lítur þetta afskaplega illa út og við þurfum svar við þeirri spurningu mjög f ljótt vegna þess að við höfum stöðvað fjárfestingu í uppbyggingu. Þegar við fjárfestum í uppbyggingu þurfum við að horfa meira en níu ár fram í tímann,“ segir Einar. – þfh / sjá Markaðinn Telur sig með traustar ábyrgðir Forstjóri Landsvirkjunar segir samninginn við Rio Tinto innihalda skýr ákvæði um hvernig skuli leysa úr ágreiningi um samningsatriði. Forstjóri Elkem segir óvissu um orkuverð koma niður á fjárfestingu. VIÐSKIPTI Tryggingar sem íslenskar ferðaskrifstofur þurfa að útvega hafa hækkað verulega eftir gildis- töku nýlegra laga og eru dæmi um að fyrirtæki hafi þurft að útvega margfalda fjárhæð miðað við það sem áður var. Í heildina hafa trygg- ingarnar hækkað um þrjá milljarða. „Eigendur smærri ferðaskrif- stofa þurfa að leggja allar persónu- legar eigur undir til að geta staðið í þessum rekstri,“ segir viðmælandi Markaðarins. Stjórnendur í ferða- þjónustunni segja fyrirkomulagið skekkja stöðuna gagnvart erlendum keppinautum og ýta undir að fyrir- tæki flytji starfsemi sína til útlanda. Þeir kalla eftir samstarfi ríkis og ferðaþjónustunnar um stofnun sérstaks tryggingarsjóðs til að leysa vandann. – þfh / sjá Markaðinn Tryggingarnar snarhækkuðu Lögreglan veitti konu á stolnum bíl eftirför í gær eftir að sonur eiganda bílsins tilkynnti um stuldinn. Konan ók frá Sundahöfn og hófst eftirförin við Kirkjusand og lauk á byggingarsvæði á Lækjargötu þar sem konan var gripin og hún handtekin. Samkvæmt sjónarvotti voru bílarnir á miklum hraða og mildi að enginn skyldi slasast við atganginn. FRÉTTABLAÐIÐ / SIGTRYGGUR ARI 130 milljónum dala nam arð- greiðsla álversins í Straums- vík til móðurfélagsins Rio Tinto árið 2017.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.