Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 8

Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hröð þróun fjölmiðla- markaðarins sýnir að þörf er á samstöðu Evrópuþjóða til að verja menningar- arfinn. Konur og stúlkur sem eru framar- lega í barátt- unni fyrir sjálfbærum heimi verða oft fyrir kynferðis- legri og kynbundinni áreitni. Davíð Stefánsson david@frettabladid.is Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Aldrei meira úrval af öskudagsbúningum Finndu okkur á Nú þegar fimm ár eru liðin frá því að ríki heims komu sér saman um sautján heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hefur komið í ljós að markmiðið um kynjajafnrétti er það markmið sem lengst er í land með. Ekkert land í heiminum hefur náð að afnema að fullu mismunun og ofbeldi sem konur og stúlkur verða fyrir vegna kyns síns. Jafnréttisþing 2020, sem fram fer í Hörpu á morgun, er helgað heimsmarkmiðunum og jafnrétti í breyttum heimi. Kröftugir fyrirlesarar og listafólk hefur verið kallað til leiks til að taka þátt í þessari umræðu. Sérstaklega verður litið til samspils umhverfismála og jafnréttismála en það verður sífellt ljósara að lofts- lagsváin er kynjuð, þar sem afleiðingarnar koma í meiri mæli niður á konum sem eru jafnframt ólíklegri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku. Kannski kemur það því ekki á óvart að almennt eru karlar líklegri en konur til að afneita loftslagsvandanum og setja sig upp á móti aðgerðum til að sporna gegn hlýnun jarðar. Konur og stúlkur sem eru framarlega í baráttunni fyrir sjálf- bærum heimi verða oft fyrir kynferðislegri og kyn- bundinni áreitni. Á jafnréttisþingi verður fjallað sérstaklega um átaka- orðræðu í loftslagsmálum, þar á meðal út frá sjónarhóli fötlunar. Þá verður fjallað um framtíðaráskoranir í tengslum við tæknibreytingar, loftslagsbreytingar og nýja atvinnu- og lifnaðarhætti og velt upp hvaða áhrif þessir þættir kunna að hafa á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi. Loks er hluti dagskrárinnar skipulagður í samvinnu við Stúdentaráð Háskóla Íslands og verður þar meðal annars fjallað um hugmyndafræði grænkera og karlmennsku. Þótt Ísland standi framarlega í jafnréttismálum er enn langt í land. Ég á mér von um að Ísland verði meðal fyrstu ríkja heims til að ná heimsmarkmiðinu um jafn- rétti kynjanna. Vert er að skoða gaumgæfilega hvernig jafnrétti lítur út í breyttum heimi þar sem sjálfbær þróun er ekki lengur aðeins falleg hugmyndafræði, heldur eini valkosturinn sem við höfum. Ég hvet fólk til að fjölmenna á Jafnréttisþing í Hörpu á morgun! Jafnrétti í breyttum heimi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Gríðarleg umbylting á sér stað í tækni og áhorfi á myndmiðla. Línulegt áhorf tilheyrir gærdeginum og horft er á efni í ólínulegri dagskrá, á myndstreymi eða annarri miðlun. Notendur horfa á þeim stað og tíma sem þeir sjálfir kjósa. Þótt þessar breytingar standi þeim yngri nær, hefur fjölmiðlanotkun breyst hjá öllum aldurshópum. Æ meir sækir fólk fréttir og upplýsingar til mynddeili- þjónusta á borð við YouTube og samfélagsmiðla eins og Facebook eða Instagram. Efni er miðlað beint í snjalltæki í stað myndlyklakerfa sjónvarpsstöðva, í beinu viðskiptasambandi við alþjóðlega notendur. Bandarískar streymisveitur, Netflix og Amazon, eru aðgengilegar hér og von er á stærsta fjölmiðla- fyrirtæki heims, Disney+, á árinu. Fleiri eru væntan- legar, f lestar frá Bandaríkjunum sem gnæfa yfir hina á hinum alþjóðlega streymismarkaði. Framboðið sem er mikið nú þegar mun margfaldast. Í vikunni fjallaði Fréttablaðið um þessar breytingar á fjölmiðlamarkaði. Sagt var frá fyrirhugaðri löggjöf hér sem leggur kvaðir á streymisveitur, íslenskar sem erlendar, þegar reglur Evrópusambandsins um hljóð- og myndmiðla verða að lögum. Það mun gilda um Netflix, YouTube og aðra sem miðla myndefni. Með því að skilgreina slíka miðla sem fjölmiðla er leitast við að koma á meira jafnræði óháð miðlun efnis. Reynt er að sporna við dreifingu á hatursfullu of beldi á öldum ljósvakans. Sett verður inn heimild til að stöðva miðlun eða grípa til viðeigandi aðgerða, sé efnið talið brjóta gróflega gegn lögum. En mikilvægasta breytingin er krafa um að 30 pró- sent af framboði myndefnis eftir pöntun skuli vera evrópsk, sýnileg og fjölbreytt. Ekki verður dregin fjöður yfir að með þessu er verið að bregðast við mikilli markaðshlutdeild bandarískra streymisveitna á evrópskum markaði. Einhver kann að spyrja um forsjárhyggju. Hvað kemur mönnum við á hvað er horft? Evrópsk sjónar- mið eru þau að æskilegt sé að tryggja Evrópubúum aðgang að fjölbreyttu efni sem spegli menningu og sögu þeirra í sífellt opnara og alþjóðlegra samkeppn- isumhverfi. Sama gildir hér. Það eru okkar hagsmunir að halda menningu, tungu og sögu okkar á lofti. Það er í senn undirstaða mannlífs hér og hreyfiafl til góðra hluta. Örríkið Ísland getur ekki eitt og sér spornað við þessari alþjóðaþróun. Okkar hagsmunum er best borgið í samstarfi Evrópuþjóða. Norrænu ríkin telja sig ein og sér of smá til að etja kappi við stærri ríki eða alþjóðleg risafyrirtæki. Jafnvel Angela Merkel Þýska- landskanslari lýsti nýlega smæð Þýskalands í hinni alþjóðlegu samkeppni stórvelda og stórfyrirtækja. Saman mynda Evrópuríkin afar öflugan markað 450 milljóna neytenda. Í því liggur mikið afl og sterk samningsstaða gagnvart alþjóðlegum risum tækni og fjölmiðlunar. Einungis með virku samstarfi þar mynda þjóðirnar það afl sem þarf til að styðja menn- ingarhagsmuni sína. Hröð þróun fjölmiðlamarkaðar- ins sýnir að þörf er á samstöðu Evrópuþjóða til að verja menningararfinn. Streymið 100 ára meinsemd Kerfiselítunni virðist sérlega ljúft að bjóða heim umdeildum fulltrúum gömlu herraþjóðar- innar er fagna skal merkingar- þrungnum stóráföngum í ferða- sögu Íslendinga frá helsi til frelsis. Alþingi reið á vaðið með því að fá Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins, til að tóna niður hátíðleika 100 ára full- veldisafmælisins og Hæstiréttur heggur nú í sama knérunn með Mads Bryde Andersen en Danirnir tveir eiga sameiginlegt að vera eðlislægt að stuða fólk almennt og særa sómakennd þess í leiðinni. Einbeittur velsæmisbrotavilji Risið hefur verið hærra á dómsvaldinu á Íslandi en nú er handhægt þykir að grípa til hliðstæðna í „réttarríkjum“ á borð við Pólland og Tyrkland. Vandséð, að það sé til þess fallið að efla traust almennings að hið fordæmisgefandi efsta dómstig, sem stóð vörð um kvótakerfið og ábyrgðarmenn Geirfinnsmálsins í áratugi, fagni aldarafmæli með því að fá annálaðan danskan andstæðing mannréttinda til þess að ávarpa æðstu fulltrúa íslenskrar valdastéttar í einka- samkvæmi og tala niður skjólið í Strassborg þangað sem íslenskir blaðamenn og aðrir þolendur dyntótts dómskerfisins hafa helst getað sótt réttarbót. toti@frettabladid.is adalheidur@frettabladid.is 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.