Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 12

Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 12
11% er hækkun hlutabréfaverðs í VÍS frá áramótum. mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns mánuda -f studaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 A stu strönd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is Þú færð gómsætar bollur hjá okkur allar helgar í febrúar. VELDU GÆÐI! Evrópskt fyrirtæki sem starfar á sviði greiðsluþjónustu, sem er meðal annars í eigu og stýrt af Ali Mazanderani, stjórnarmanni í Creditinfo Group, er annað þeirra félaga sem eiga nú í viðræðum við Íslandsbanka um kaup á öllu hlutafé Borgunar, samkvæmt heim- ildum Markaðarins. Mazanderani, sem hefur setið í stjórn Creditinfo Group frá því síðasta vor, er sjálfstætt starfandi fjárfestir en hann situr í stjórnum fjártæknifyrirtækja víða um heim, svo sem Network International í Bretlandi, Paycorp í Suður-Afríku og Stone í Brasilíu. Hann tók sæti í stjórn Creditinfo Group síðasta vor í kjölfar þess að breski fjárfestingasjóðurinn Actis, sem hann starfaði á þeim tíma fyrir, jók við hlut sinn í íslenska félaginu úr tíu prósentum í tuttugu prósent. Sem meðeigandi í Actis, sem fjár- festi upphaf lega í Creditinfo árið 2016, kom Mazanderani að fjöl- mörgum fjárfestingum, einkum á sviði fjártækni, í yfir sextíu ríkjum og vaxtarmörkuðum. Eins og greint var frá í Markaðin- um fyrr í mánuðinum eru viðræður um kaup á öllu hlutafé Borgunar langt komnar en Íslandsbanki, sem á 63,5 prósenta hlut í greiðslumiðl- unarfyrirtækinu, hefur verið með hlut sinn í söluferli frá því í byrjun árs 2019. Samkvæmt heimildum Markað- arins hafa viðræður staðið yfir við tvö erlend félög en í þeim er gert ráð fyrir að kaupverðið fyrir Borg- un verði í kringum sjö milljarðar króna. Tekið var fram í nýlegum ársreikningi Íslandsbanka fyrir síðasta ár að viðræður við hugsan- lega kaupendur væru hafnar en hins vegar væri það enn háð töluverðri óvissu hvort af sölu yrði. Borgun tapaði 972 milljónum króna á síðasta ári borið saman við 1.069 milljóna króna tap á árinu 2018. – hae, kij Fjárfestir í Creditinfo skoðar Borgun Ali Mazanderani fjárfestir MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Tveir stjórnarmenn í VÍS, þau Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, sem seldi allan hlut si n n í t r yg g i ng a-félaginu í nóvember, og Gestur Breiðfjörð Gestsson, einn eigenda fjárfestingafélagsins Óskabeins, gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn VÍS á komandi aðalfundi. Þá gæti tilnefn- ingarnefnd félagsins, sem mun skila skýrslu sinni í næstu viku, lagt til frekari breytingar á stjórn VÍS, sam- kvæmt heimildum Markaðarins. Á meðal þeirra sem sækjast nú eftir því að komast í stjórn VÍS er Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjártæknifélags- ins Two Birds og áður framkvæmda- stjóri þjónustusviðs VÍS fram til ársins 2018, og Guðný Hansdóttir, en hún var framkvæmdastjóri mannauðssviðs Innness á árunum 2014 og 2018 og þar áður mannauðs- stjóri Skeljungs. Þá leitast Benedikt Ólafsson, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Skeljungs undir lok síðasta árs, eftir að komast í stjórn tryggingafélags- ins en hann sat einnig í stjórn Skelj- ungs á árunum 2013 til 2016 og var áður yfir sérhæfðum fjárfestingum hjá sjóðastýringarfélaginu Stefni. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins sækir Auður Björk meðal annars stuðning sinn til Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og for- stjóra Iceland Seafood, en hann kom fyrst inn í hluthafahóp VÍS um miðj- an janúar á þessu ári og fer núna með rúmlega þriggja prósenta hlut í félaginu. Guðný nýtur hins vegar stuðnings Óskabeins en félagið er í dag stærsti einkafjárfestirinn í hlut- hafahópi VÍS með samanlagt um 4,7 prósenta eignarhlut, sem er að hluta í gegnum framvirka samninga hjá Arion banka, en hann er metinn í dag á tæplega 1.100 milljónir króna. Frestur til að skila framboðum til tilnefningarnefndar VÍS rann út í lok síðasta mánaðar. Samkvæmt heimildum Markaðarins bárust umsóknir um framboð, fyrir utan þá stjórnarmenn sem hafa áhuga á að sitja áfram, frá hátt í tuttugu manns. Auk Svanhildar og Gests er stjórn VÍS í dag skipuð þeim Valdi- mar Svavarssyni, sem er stjórnarfor- maður, Vilhjálmi Egilssyni og Mörtu Guðrúnu Blöndal en þau þrjú síðast- nefndu sækjast öll eftir áframhald- andi setu í stjórninni. Vilhjálmur, sem er fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst, og Marta, sem yfirlögfræð- ingur ORF líftækni, komu fyrst inn í stjórn VÍS í desember 2018. Miklar breytingar hafa orðið á hluthafahópi VÍS á undanförnum mánuðum. Félagið K2B fjárfest- ingar, sem er í eigu hjónanna Svan- hildar og Guðmundar Þórðarsonar, seldi allan 7,25 prósenta hlut sinn í félaginu í nóvember síðastliðnum fyrir 1.550 milljónir. Kaupendur voru LSR, sem keypti meginþorra bréfanna, auk annarra lífeyrissjóða. Fjárfestingarfélagið var fyrir við- skiptin þriðji stærsti hluthafi VÍS. Þá seldi breski vogunarsjóður- inn Lansdowne sömuleiðis allan 7,5 prósenta hlut sinn í VÍS á fyrstu vikum þessa árs en sjóðurinn kom fyrst inn í eigendahóp félagsins í árs- lok 2017. Hlutabréfasjóðir Stefnis, sem áttu um fimm prósenta hlut í ársbyrjun, hafa jafnframt selt öll sín bréf í tryggingafélaginu á árinu. Auk Bjarna þá bættist einnig Sig- urður Bollason, fjárfestir og einn af stærstu hluthöfum Skeljungs og Kaldalóns, í hluthafahóp VÍS undir lok janúar þegar félagið RES II, sem er í eigu Sigurðar og eigin- konu hans, Nönnu Bjarkar Ásgríms- dóttur, keypti um 1,3 prósenta hlut í félaginu. Sigurður var fyrir fáeinum árum einn stærsti hluthafi VÍS en um mitt árið 2017 seldi félagið Gran- dier, sem var í eigu Sigurðar og Don McCarthy, fyrrverandi stjórnarfor- manns House of Fraser, allan átta prósenta hlut sinn í félaginu. Stærstu hluthafar VÍS eru LSR, Líf- eyrissjóður verslunarmanna, breski sjóðurinn Miton og Frjálsi. Sé litið til tuttugu stærstu hluthafa félagsins nemur samanlagður eignarhlutur lífeyrissjóða um 40 prósentum. Markaðsvirði VÍS nemur 23,5 milljörðum og hefur hlutabréfaverð félagsins hækkað um 11 prósent frá áramótum. hordur@frettabladid.is Útlit fyrir að stokkað verði upp í stjórn VÍS Þrír nýir gætu komið inn í stjórn félagsins en Gestur og Svanhildur gefa ekki kost á sér. Meðal þeirra sem vilja í stjórn eru Benedikt Ólafsson og Auður Björk Guðmundsdóttir. Miklar breytingar hafa orðið á hluthafahópnum. Markaðsvirði tryggingafélagsins nemur í dag um 23,5 milljörðum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir og áður einn stærsti hluthafi VÍS, og Kristín Þor- steinsdóttir, fyrrverandi ritstjóri og útgefandi Fréttablaðsins, eru á meðal þeirra sem sækjast nú eftir því að komast í stjórn fjarskiptafélags- ins Sýnar. Talið er að mögulega muni þrír nýir stjórnarmenn taka sæti í stjórn félagsins þegar aðalfundur fer fram 20. mars næstkomandi. Svanhildur kom fyrst inn í hlut- hafahóp Sýnar í byrjun þessa árs en félagið K2B fjárfestingar, sem er í eigu hennar og Guðmundar Þórðar- sonar, fer með 1,6 prósenta hlut í félaginu. Að baki framboði Svan- hildar í stjórn Sýnar standa einnig meðal annars fjárfestar sem eiga eignarhaldsfélagið Óskabein og fara með tæplega fimm prósenta hlut í fjarskiptafyrirtækinu í gegnum framvirka samninga. Þeir sem ráða för í Óskabeini eru viðskiptafélagarnir Andri Gunnars- son og Fannar Ólafsson, sem eru meðal annars í hópi eigenda að Keahótelum, Gestur Breið- fjörð Gestsson, fráfarandi stjórnarmaður í VÍS og eig- andi Sparnaðar, og Engilbert Hafsteinsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmda- stjóri hjá WOW air. Þá hefur Kristín einnig skilað inn framboði til stjórnar félagsins til tilnefningarnefnd- ar en hún hefur að undanförnu, s a m k v æ m t h e i m i l d u m M a r k a ð a r - ins, leitað til sumra af stærstu h l u t - h ö f u m S ý n a r um stuðning. Tveir varamenn tóku sæti í stjórn Sýnar á liðnu ári samhliða því að Heiðar Guðjónsson, sem þá var stjórnarformaður, tók við starfi for- stjóra Sýnar í aprílmánuði og undir lok síðasta árs var Yngvi Halldórsson ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar- sviðs félagsins og sagði sig þá um leið úr stjórn fyrirtækisins. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins þykir fullvíst að Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður Sýnar, og Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verði áfram í stjórn félagsins. Óvíst er hins vegar hvort aðrir stjórnar- menn, meðal annars Anna Guðný Aradóttir, sem hefur verið í stjórn frá árinu 2012, muni njóta stuðnings til áframhaldandi stjórnarsetu. Stærstu hluthafar Sýnar eru Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Ursus, fjárfestingafélag Heiðars Guð- jónssonar. Breski vogunarsjóðurinn Lansdowne var fyrir aðeins fáum mánuðum stærsti hluthafi félagsins með liðlega fjórtán prósenta hlut en sjóðurinn hefur á skömmum tíma selt nær allan hlut sinn og fer í dag með aðeins um 3,7 prósenta hlut. M a r k a ð s v i r ð i Sýnar er í dag um 10 , 7 m i l l j a r ð a r króna og hefur h l u t a b r é f a - verð félagsins hækkað um nærri 28 pró- sent á síðustu þremur mán- uðum. – hae Svanhildur Nanna og Kristín vilja í stjórn Sýnar 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.