Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 14

Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 14
Þetta eru alltof miklar og kostnaðarsamar var-úðarráðstafanir miðað við þá litlu áhættu sem er til staðar,“ seg ir Hörðu r Erlingsson, eigandi Ferðaskrifstofu Harðar Erlingssonar. Rúmt ár er síðan ný lög um tryggingar vegna sölu ferða- skrifstofa á pakkaferðum tóku gildi en með gildistöku laganna náði tryggingarskyldan yfir f leiri ferða- þjónustufyrirtæki en áður var. Þannig þarf fyrirtæki sem selur bæði gistingu og af þreyingu á borð við hestaferð í einum pakka að útvega tryggingu. Fjöldi trygging- arskyldra fyrirtækja var 339 áður en lögin tóku gildi og var gert ráð fyrir að þeim myndi fjölga um tugi eða hundruð eftir gildistökuna. Samk væmt nýlegu svari frá Ferðamálastof u nam heildar- fjárhæð trygginga ferðaskrifstofa um sjö milljörðum króna. Stofn- unin tók þó fram að fjárhæðin gæti breyst ört. Áður en lögin tóku gildi stóð heildarfjárhæðin í 4,3 milljörðum króna og hefur hún því hækkað um tæpa þrjá milljarða króna. Ásberg Jónsson, eigandi Nordic Visitor, segir að Evrópulöggjöfin, sem íslensku lögin byggja á, hafi verið skrifuð fyrir ferðaskrifstofur sem f lytja viðskiptavini út og aftur heim (e. outbound). Hugmyndin að baki lagagreininni er að tryggja viðskiptavini ferðaskrifstofu þann- ig að unnt sé að endurgreiða þeim eða f lytja þá heim komi til gjald- þrots ferðaskrifstofunnar. „Á Íslandi snýst starfsemin að miklu leyti um að þjónusta ferða- menn sem koma til landsins og eiga f lugmiða til baka (e. inbound). Það hefur aldrei komið til þess að Ferðamálastofa hafi þurft að nýta þessa tryggingu og endurgreiða viðskiptavinum ferðaskrifstofa sem taka á móti ferðamönnum hingað til Íslands,“ segir Ásberg. Margar ferðaskrifstofur eiga ekki annarra kosta völ en að fá banka- ábyrgð hjá viðskiptabanka gegn þóknun til að verða sér úti um tryggingar. Ferðaskrifstofa Harðar þarf að útvega 140 milljóna króna tryggingu yfir háannatímann en upphæðin var áður um 90 millj- ónir króna. Hörður og eiginkona hans hafa því, eins og margir aðrir í atvinnugreininni, þurft að grípa til þess að fá bankaábyrgð gegn því að veðsetja húsið sitt og fasteign sem er í eigu fyrirtækisins. „Eigendur smærri ferðaskrif- stofa þurfa að leggja allar persónu- legar eigur undir til að geta staðið í þessum rekstri. Að því leyti snýst þetta mál líka um nýsköpun vegna þess að þeir sem vilja stofna ferða- skrifstofu en eiga ekki peninga eða fasteign til að leggja að veði gegn tryggingunni komast ekki inn á markaðinn,“ segir Hörður en ferðaskrifstofa hans f lytur inn gesti frá þýskumælandi löndum. Hann nefnir að þýskur samkeppnisaðili með svipaða veltu þurfi einungis að útvega 130 þúsunda evra trygg- ingu, jafnvirði um 18 milljóna króna, yfir háannatímann. Þann- ig sé samkeppnisstaða íslenskra ferðaskrifstofa gagnvart erlendum keppinautum verulega skekkt. Þreföldun á tryggingarkröfu Fyrstu útfærslunni á reglugerðinni Þetta ásamt hækk- un launa og opin- berra gjalda þrýstir enn meira á atvinnurekendur að flytja hluta af starfseminni úr landi. Arnar Bjarnason Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Á Íslandi snýst starfsemin að miklu leyti um að þjónusta ferðamenn sem eiga miða til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Margir hafa þurft að leggja allt undir til að standa í rekstrinum Tryggingar ferðaskrifstofa hafa hækkað töluvert vegna nýlegra laga. Heildarfjárhæðin aukist um þrjá milljarða. Margir eigendur eru nauðbeygðir til að veðsetja íbúðarhúsnæði til að útvega tryggingu. Kallað eftir samstarfi ríkis og ferðaþjónustunnar um stofnun sjóðs. Skekkir samkeppnina við erlend fyrirtæki. Ráðuneytið telur lögin til bóta Fréttablaðið sendi atvinnuvega­ ráðuneytinu fyrirspurn um hvort það teldi nýju lögin vera til bóta. „Lögin miða að aukinni neytendavernd og eru að mati ráðuneytisins til bóta hvað hana varðar. Þau eru innleiðing á pakkaferðatilskipun ESB sem veitir lítið svigrúm til útfærslu nema hvað varðar tryggingar­ hlutann. Þar er ráðuneytið með einn þátt laganna til nánari skoð­ unar um þessar mundir,“ segir í svari ráðuneytisins. „Samkeppnishæfni greinarinn­ ar er mikilvæg og ef til eru leiðir sem bæta regluverkið, án þess að ganga á neytendaverndina sem hefur verið bætt, verða þær skoðaðar sérstaklega.“ Tekjur drykkjaframleiðandans Coca-Cola European Partners á Íslandi námu 85 milljónum evra, jafnvirði um 11,8 milljarða króna, á síðasta ári og drógust saman um 6,5 prósent frá árinu 2018 þegar þær voru um 91 milljón evra. Þetta kemur fram í nýbirtu upp- gjöri móðurfélagsins, Coca-Cola European Partners (CCEP), fyrir síðasta ár. Drykkjaframleiðand- inn, sem er með starfsemi í þrettán löndum í Vestur-Evrópu, keypti sem kunnugt er starfsemina hér á landi árið 2016. Velta CCEP á Íslandi hefur þann- ig dregist saman um liðlega tíu pró- sent frá árinu 2017 þegar hún nam um 95 milljónum evra, samkvæmt eldri ársreikningum evrópska móðurfélagsins. Athygli vekur að af mörkuðum CCEP var samdrátturinn hvað mestur hér á landi í fyrra, 6,5 pró- sent eins og áður sagði, en samtals var tekjuvöxtur móðurfélagsins um 4,5 prósent á árinu. Tekjur jukust á öllum mörkuðum nema á Íslandi og í Noregi þar sem samdrátturinn nam hálfu prósenti. Mestur var vöxturinn í Frakklandi, eða um sjö prósent. Ekki koma fram upplýsingar í ársuppgjörinu um afkomu CCEP á Íslandi á síðasta ári. Íslenska félag- ið hagnaðist um tæpar 167 millj- ónir króna árið 2018 og jókst þá hagnaðurinn um hátt í 65 prósent frá árinu 2017 þegar hann var 102 milljónir króna. Eignir félagsins voru liðlega 7,9 milljarðar króna í lok árs 2018 en á sama tíma var eigið fé þess 5,9 milljarðar króna og eiginfjárhlut- fallið því um 75 prósent. Haft var eftir Einari Snorra Magn- ússyni, forstjóra CCEP á Íslandi, í Markaðinum í mars í fyrra að í magni væru gosdrykkir 48 prósent af sölu félagsins, bjór 22 prósent og vatn 11 prósent. Aftur á móti væri bjór og innf lutt áfengi tæp- lega helmingur af veltu enda væri um dýrari vöru að ræða vegna áfengisskatta. Aðspurður nef ndi hann auk þess að mark- aðshlutdeild Coca- Cola drægist hægt og rólega saman. Fyrir áratug hefði hún verið um 70 til 80 prósent af gosdrykkja- m a rk aði nu m en vær i nú komin í 65 pró- sent. – kij Tekjur drógust saman um 6,5 prósent í fyrra sem byggir á nýju lögunum var breytt eftir mótmæli frá ferðaskrif- stofum. Atvinnuvegaráðuneytinu var sýnt að tryggingarkrafa á félag, þar sem mest allar tekjur koma inn á tveimur mánuðum, gæti verið tvöföld velta félagsins. Við þessu var brugðist með því að setja 80 prósenta þak á tryggingarfjárhæð miðað við veltu félags í samsettum ferðum. Lagabreytingin hafði í för með sér breytingu á reikniformúlunni sem ákvarðar tryggingarfjárhæð- ina. Áður var fjárhæðin reiknuð með einföldum hættu út frá föstu hlutfalli af tekjum en nú byggir formúlan á f leiri breytum. Ein þeirra er til dæmis meðalfjöldi daga frá fullnaðargreiðslu þar til ferð hefst. „Fyrir utan kostnaðinn við að framfylgja þessari reglugerð er f lækjustigið allt of hátt. Ég held að ein af starfskonum okkar hafi verið í heila viku að fylla út umbeðin skjöl. Þetta eru orðin mjög íþyngj- andi gagnaskil, sérstaklega fyrir smærri ferðaskrifstofur,“ segir Hörður. Ásberg segir breytinguna hafa hækkað tr yggingar f járhæðina fyrir margar ferðaskrifstofur á sama tíma og rekstrarumhverfið versnaði. „Af því sem ég heyri eru margir í vandræðum með þetta og ég held að margar ferðaskrifstofur muni hreinlega ekki getað útvegað þessa tryggingu sem þýðir að þær verða að hætta rekstri. Það má gera ráð fyrir að fram undan muni f leiri fyrirtæki fara í þrot en ekki endi- lega vegna þess að reksturinn sjálfur hafi verið kominn í þrot heldur þess að nú mun Ferðamála- stofa taka oftar í gikkinn,“ segir Ásberg. Hann vísar til þess að Ferðamálastofa hafi nú víðtækari heimildir til inngripa og að stofn- unin hafi verið gagnrýnd fyrir að veita ferðaskrifstofunni Farvel of marga fresti til að útvega nægilega tryggingu áður en fyrirtækið varð gjaldþrota á síðasta ári. A r na r Bja r na son, for st jór i Arcanum – Icelandic Mountain Guides, segir að tryggingarfjárhæð fyrirtækisins hafi meira en þre- faldast eftir að reikniformúlunni var breytt. „Þetta er orðið frekar þungt og f lókið. Formúlan sem slík er mein- gölluð gagnvart fyrirtækjum sem eru með sveif lukenndan rekstur enda byggir hún á erlendri fyrir- mynd þar sem sveif lur í ferðaþjón- ustu eru mun minni en á Íslandi,“ segir Arnar. Auk þess taki hún ekki tillit til áhættu í rekstri fyrirtækja. Til að mynda sé enginn greinarmunur gerður á nýstofnaðri ferðaskrif- stofu annars vegar og rótgróinni ferðaskrifstofu með sterka eigin- fjárstöðu hins vegar. Arnar tekur fram að í reikniformúlunni sem var notast við fyrir lagabreytinguna hafi verið tekið enn minna tillit til þessara þátta og auk þess byggt á sögulegum gögnum. Samtökin og ríkið stofni sjóð Þá bendir Arnar á að erlendis hafi verið stofnaðir og byggðir upp sjóðir af ferðamálasamtökum sem veita ferðaskrifstofum tryggingar- vernd gegn sanngjörnu gjaldi. Á meðan þurfi íslenskar ferðaskrif- stofur að leggja fram eign, banka- tryggingu eða að reyna að kaupa tryggingar erlendis sem er aðeins á færi stærri fyrirtækja. „ Þet t a get u r hamlað vext i ferðaþjónustunnar með því að leggja þyngri byrðir á greinina en nágrannaríki gera. Þetta, ásamt hækkun launa og opinberra gjalda, þrýstir enn meira á atvinnurekend- ur að f lytja hluta af starfseminni úr landi. Við erum ekki að spila við sömu aðstæður og erlend ferða- þjónustufyrirtæki sem í dag selja og framkvæma ferðir hér á landi. Samtök ferðaþjónustunnar þurfa að vinna að því með ríkinu að búa til tryggingarsjóð fyrir ferðaskrif- stofur,“ segir Arnar. Tryggingar- gjöldin væru þá sniðin að áhættu og skuldbindingum vegna ferða í rekstri hvers og eins fyrirtækis. Hörður talar á svipuðum nótum og segir að undanfarin ár hafi ferðaþjónustan átt stóran þátt í að byggja undir íslenskt efnahagslíf. Því sé eðlilegt að hið opinbera taki einhvern þátt í þessum tryggingum eins og þekkist víða erlendis. Einar Snorri Magnússon, forstjóri CCEP á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 11,8 milljarðar króna var velta Coca-Cola European Partners á Íslandi í fyrra. 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.