Fréttablaðið - 19.02.2020, Qupperneq 18
Tískuhús ZikZak var stofnað árið 2001. Sigríður Ómars-dóttir er annar eigandi
verslunarinnar og segir hún að
alltaf sé haldið upp á afmælið
með einhverjum hætti. „Þetta
er okkar árlega afmælisveisla og
ætlum við að veita 20-50% afslátt
af öllum vörum í verslunum okkar
í Kringlunni og á Akureyri. Það er
gaman að segja frá því að við opn-
uðum nýja, breytta og betri ZikZak
verslun á Glerártorgi á Akureyri
í byrjun febrúar. Verslunin er
alveg einstaklega björt og falleg.
Nú þegar þessir björtu og fallegu
vorlitir eru að koma í verslanir
er mjög skemmtilegt að koma og
sjá með eigin augum, sjón er sögu
ríkari,“ segir Sigríður en báðar
verslanirnar hafa verið gerðar upp
að undanförnu.
Fallegir vorlitir
Sigríður segir að starfsfólkið finni
fyrir því að sól hækkar á lofti og
vorið fari að gera vart við sig. „Það
birtir fallega yfir viðskiptavinum
okkar og fólk verður léttara í lund.
Við skvísurnar í ZikZak finnum
rosalega mikinn mun á stuttum
tíma á skaplyndi og líðan við-
skiptavina okkar enda höfum
við tekið inn fullt af björtum og
fallegum litum í nýjustu sending-
unum okkar. Viðskiptavinir okkar
eru afskaplega ánægðir með nýju
vörurnar,“ segir hún og bætir við
að litirnir sem einkenna vorlínuna
séu sumarlegir og spennandi.
„Ljósbleikt, ljósblátt og sömuleiðis
dökkblár eru litir sem eru vinsælir
hjá okkur þessa dagana,“ segir
hún.
„Við höfum tekið inn tvö ný
vörumerki, annars vegar vöru-
merkið CISO og hins vegar
vörumerkið Saloos. CISO kemur í
stærðunum 38-56. Okkur fannst
við þurfa að bæta við úrvalið í
stærri stærðunum. Við höfum
boðið upp á CISO-vörumerkið
frá því um áramótin og það er að
reynast afskaplega vel, stærðirnar
eru einstaklega góðar, úrvalið
er gott og gæðin alveg einstök.
Margar konur hafa þegar fallið
fyrir þessu nýja merki.
Ný vörumerki
Breska vörumerkið Saloos kemur
í stærðunum 38-48. Það sem
einkennir Saloos vörumerkið er
fallegur og sparilegur fatnaður, þar
á meðal eru blússur, túnikur og
kjólar,“ segir Sigríður og bendir á
að í ZikZak geti mæður fermingar-
barna og ömmur fundið falleg
sparidress í stærðum 36-56. Þetta
er glæsilegur fatnaður sem hentar
jafnt fyrir veislur, árshátíðir eða
hverju öðru tilefni.“
Sigríður segir að helsti mark-
hópur Tískuhúss ZikZak séu konur
á öllum aldri en stærsti hópurinn
á aldrinum 45-55 ára. „Við erum
með hversdagsfatnað í miklu
úrvali ekki síður en sparifatnað.
Einnig erum við með einstaklega
léttar og þægilegar úlpur sem hafa
verið mjög vinsælar hjá okkur
enda á góðu verði, aðeins 12.990
krónur. Þá erum við sömuleiðis
með létta, síða vatteraða jakka
í einstaklega fallegum, björtum
litum. Nú eru kápur vinsælar og
við eigum þær í öllum stærðum. Þá
er mikið úrval af alls kyns léttum
og þægilegum peysum,“ segir Sig-
ríður og konur geta því alveg klætt
sig upp á afmælishátíðinni og
notið góðra afslátta. „Við verðum
með afmælisafsláttinn í báðum
okkar verslunum auk þess sem við
veitum kaupauka. Þá verður einnig
í gangi skemmtilegur gjafaleikur
og að sjálfsögðu verður boðið upp
á léttar veitingar,“ segir hún.
Glæsileg veisla um helgina
„Veislan byrjar á morgun,
verslanirnar eru opnaðar kl. 10 og
fyrstu þrjátíu viðskiptavinirnir
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Verslanir ZikZak í Kringlunni og á Akureyri hafa fengið andlitslyftingu og miklar endurbætur. Nú er vorlínan að koma í verslanirnar með fallegum litum.
Það er auðvelt að finna á sig réttu fötin í ZikZak, hvort sem það er í verslun-
inni í Kringlunni eða á Glerártorgi á Akureyri. Mikið úrval fyrir allar konur.
Klæðileg túnika sem hentar vel hversdags. Konur eru alltaf fínar í svona
klæðnaði, hægt að nota við svartar eða hvítar buxur. Verð nú 2.990 kr.
Hægt er að fá túnikur með mismun-
andi mynstri. Verð nú 3.495 kr.
Falleg peysa í vinsælum bláum lit.
Vinsæll litur í vor. Verð nú 3.992 kr.
sem versla hjá okkur fá veglegan
kaupauka. Við verðum í beinni á
Bylgjunni ásamt Siggu Kling sem
ætlar að gefa skemmtilegar gjafir
í Kringlunni í beinni útsendingu.
Veislan verður alla helgina. Kynn-
ingardömur frá Ak pure Skin verða
í verslun okkar í Kringlunni og
kynna glænýju og glæsilegu húð-
vörurnar sem Aron Einar Gunnar-
son og Kristbjörg Jónasdóttir
kynntu nýlega á markað.
Þeir sem komast ekki í afmælis-
hátíðina okkar þurfa ekki að
örvænta því hægt er að tryggja sér
öll f lottu tilboðin á zikzakversl-
un. is. Við viljum einnig minna á að
við höfum fellt niður sendingar-
kostnað í febrúar svo við hvetjum
alla til að kíkja á heimasíðuna og
tryggja sér f lottar vörur á afslætti
og fría heimsendingu á næsta
pósthús,“ upplýsir Sigríður og er
sannarlega ástæða til að bregða sér
í verslunarleiðangur í ZikZak.
Á heimasíðu ZikZak og á
Facebook-síðu verslunarinnar er
hægt að skoða úrval af fallegum
fatnaði sem nú streymir í hill-
urnar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R