Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 21

Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 21
Daníel segir umfangsmikla reynslu og sérfræðiþekk-ingu fyrirtækisins gera því kleift að þjónusta allar gerðir fyrir- tækja. „Við erum algjörlega óháð hvers kyns vél- og hugbúnaði sem fólk vill vinna með. Það skiptir engu máli hvaðan búnaðurinn er, við teljum okkur geta þjónu- stað allt og alla, hvort sem það eru einyrkjar, stór fyrirtæki, stofnanir eða bæjarfélög. Leiðandi á sínu sviði Þekking og reynsla fyrirtækisins sé afar dýrmæt. „Við höfum verið leiðandi í þjónustu á afgreiðslu- kerfum og kassa- eða smásölu- þjónustu á Íslandi árum saman og þjónustum mörg af stærstu fyrir- tækjum landsins í þessum bransa,“ skýrir Daníel frá. „Ég er búinn að vera í tölvu- bransanum síðan 2004 og hjá Þekkingu síðan 2007. Við erum með starfsfólk sem er búið að vera með frá stofnun Þekkingar þannig að það eru yfir tuttugu ár þar. Við erum mörg búin að vera að vinna í yfir tíu ár og erum við því mjög samheldinn hópur, það er nú bara þannig.“ Starfsstöðvarnar eru tvær talsins, þrátt fyrir að þjónustan nái um allt land. „Við erum með tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Kópavogi, og starfa um 70 manns hjá fyrirtækinu. Skiptingin hefur aðeins breyst með árunum, það eru nú orðnir töluvert f leiri sem starfa í Kópavogi en á Akureyri en við þjónustum allt landið og erum til dæmis að reka verslunarkerfið fyrir Samkaup sem er með sextíu verslanir hringinn í kringum landið.“ Þá hefur starfsemin og þjón- ustan aðlagað sig jafnt og þétt að breytilegu tækniumhverfi og ólíkum þörfum viðskiptavina. „Við þjónustum kassakerfin og alla hluta tengda þeim, eins og hand- tölvur, verðskanna, spjaldtölvur og stimpilklukkur og allt sem því fylgir.“ Daníel segir miklar tæknifram- farir undanfarna áratugi hafa haft mikil áhrif á starfsemi fyrirtækis- ins sem sé nú öll orðin stafræn. Hann minnist þess þegar síðasta sjóðsvélin var tekinn úr notkun árið 2017. „Hún fór nú bara og fékk endurnýjun lífdaga í einhverju allt öðru. Það var svona ákveðið augnablik hjá okkur,“ segir Daníel og hlær. Víðtæk þjónusta Þekking leggur ríka áherslu á vandaða þjónustu, allan sólar- hringinn, allt árið um kring. „Við erum með þjónustuver sem er opið frá klukkan 8 á morgnana til 19 á kvöldin og þá tekur við bakvakt sem er bara restin af sólarhringn- um. Þannig að við erum alltaf í rauninni á bakvakt. Svo erum við með útkallsvaktir í kringum stór- hátíðir eða stóra viðburði þar sem starfsfólk er á vöktum, þannig að það er alltaf einhver til taks, eins og fyrir jól og hátíðir og annað þá erum við alltaf með fólk klárt fyrir viðskiptakerfin,“ útskýrir Daníel. „Síðan erum við með mikla fjar- þjónustu. Við þjónustum hvaðan sem er og hvert sem er og erum til dæmis með starfsmann sem býr á Tenerife sem er að vinna hjá okkur og annan sem býr í Danmörku. Það er næstum allt hægt að gera í fjarþjónustunni.“ Einnig er boðið upp á kennslu og þjálfun þar sem viðskiptavinir njóta góðs af sérfræðiþekkingu starfsfólksins. „Við erum með menntaða kennara í Microsoft, í Office 365 og öðru Microsoft- tengdu og erum í raun með ráðgjöf í öllu sem viðkemur Microsoft og jafnvel út fyrir.“ Þá er líka lögð áhersla á að fylgj- ast vel með því sem er að gerast á sviði afgreiðslukerfa og smásölu á heimsvísu. „Ég er einmitt á leiðinni á sýningu sem heitir Euroshop sem er ein stærsta smásölusýning í heiminum. Við reynum að fara alltaf tvisvar á ári, bæði til Banda- ríkjanna á NFR og á þessa Euro- shop sýningu til að sækja okkur aukna þekkingu, nýjungar og annað tengt afgreiðslukerfum.“ Þjónustum allar gerðir fyrirtækja Þekking hf. hefur um áratuga skeið veitt fyrirtækjum alhliða ráðgjöf og þjónustu við rekstur tölvukerfa. Daníel Rodriguez hópstjóri segir fyrirtækið þjóna fyrirtækjum um land allt. Við þjónustum afgreiðslukerfin og alla hluta tengda þeim, eins og verðskanna, handtölvur, spjald- tölvur, stimpilklukkur og allt sem því fylgir. KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 KASSAKERFI OG SJÓÐSVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.