Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 26

Fréttablaðið - 19.02.2020, Page 26
Domino’s Pizza Group, sem samþykkti í liðinni viku að selja minnihlutaeigendum Domino’s í Noregi, þar á meðal Birgi Þór Bieltvedt fjárfesti, allan 71 prósents hlut sinn í norska félag- inu, hyggst samhliða sölunni greiða Birgi samanlagt 875 þúsund evrur, jafnvirði liðlega 120 milljóna króna, vegna uppgjörs á ráðgjafarsamn- ingum sem breska félagið gerði við fjárfestinn á árunum 2016 og 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Domino’s Pizza Group sendi kauphöllinni í Lundúnum í síðustu viku í tilefni af fyrirhugaðri sölu félagsins á rekstri Domino’s í Noregi. Umrædd sala, auk uppgjörsins á ráð- gjafarsamningunum við Birgi, er háð samþykki hluthafa breska félagsins. Domino’s Pizza Group mun ann- ars vegar greiða Birgi 500 þúsund evrur til þess að gera upp skuld- bindingar félagsins samkvæmt samkomulagi sem fólst í því að hann veitti félaginu ráðgjöf um rekstur og uppbyggingu Domino’s í Nor- egi og Svíþjóð til loka maímánaðar árið 2022. Samkomulagið gerði ráð fyrir að Birgir fengi greiddar um 250 þúsund evrur á ári til loka samnings- tíma. Hins vegar greiðir breski pitsuris- inn Birgi 375 þúsund evrur til upp- gjörs á samningi sem fólst í því að hann ynni í samstarfi við félagið að því að tryggja sérleyfi fyrir rekstri Domino’s í Finnlandi og Eystra- saltsríkjunum. Samkvæmt þeim samningi gat Birgir fengið greidda allt að eina milljón evra sem hlutafé í dótturfélögum Domino’s Pizza Group í áðurnefndum ríkjum, ef orðið hefði af stofnun slíkra félaga. Í tilkynningu Domino’s Pizza Group er þó tekið fram að hann muni áfram veita Pizza-Pizza, sem á og rekur Domino’s á Íslandi, almenna ráðgjöf samkvæmt ráð- gjafarsamningi frá því í lok árs 2017. Breska félagið hefur sem kunnugt er tilkynnt um áform sín um að selja allt hlutafé sitt í umræddu félagi. Á þeim tíma sem breska félag- ið samdi við Birgi um ráðgjafar- störf sögðu forsvarsmenn félagsins mikilvægt að hann kæmi áfram að uppbyggingu þess á mörkuðum á Norðurlöndunum í ljósi reynslu hans og tengsla við sérleyfishafann á heimsvísu. Birgir hefur lengi tengst Domino’s og rekið pitsustaði víða undir þeirra merkjum, meðal annars á Íslandi, í Danmörku, Þýskalandi og Noregi. – kij Það getur stundum verið erfitt að sannfæra viðskiptavini um að fara djarfari leiðir þegar kreppir að en ávinningurinn skilar sér margfalt til baka. Sigríður Theódóra Péturs-dóttir var nýverið ráðin aðstoðarframkvæmda-stjóri Brandenburg en hún hefur starfað sem við-skiptastjóri á auglýsinga- stofunni undanfarin sex ár. Hún segir styrk stofunnar felast í áherslu á árangursdrifnar hugmyndir. Erfitt geti verið að sannfæra viðskiptavini um að fara djarfari leiðir en ávinn- ingurinn skili sér margfalt til baka. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst mjög gaman að dansa og fer reglulega í danstíma í Hreyf- ingu. Annars er nýja uppáhaldið mitt dansnámskeið í Kramhúsinu þar sem maður lærir alls konar mjaðmahreyfingar. Einnig er langur göngutúr þar sem maður hreinsar hugann og nýtur umhverfisins mín hugleiðsla. Hvernig er morgunrútínan þín? Morgunninn byrjar yfirleitt á baráttu við snús-takkann í of lang- an tíma og hvort ég eigi að drífa mig í ræktina fyrir vinnu. Ég tapa yfir- leitt þeirri baráttu og sef lengur. Mér finnst mjög gott að vera aðeins í rólegheitum á morgnana að taka mig til áður en áreiti dagsins byrjar. Geng síðan í vinnuna, hlusta á góða tónlist og undirbý mig fyrir verkefni dagsins. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Það er af mörgu að taka en amma mín og nafna skrifaði sögu Kven- réttindafélags Íslands frá 1907-1992, Veröld sem ég vil, og mótaði sú saga og vinna ömmu í kringum hana mig mikið. Hún gaf mér það veganesti að ég gæti allt sem ég vildi. Ég var mikið hjá henni í æsku og tengdi því vel við efni sögunnar. Ég lærði um kvennabaráttuna og þær stórkostlegu konur sem vörðuðu veginn fyrir okkur í dag. Vissulega er ýmislegt óunnið í jafnréttisbar- áttunni en þarna var grunnurinn lagður. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin á undanförnum miss- erum? Eins og alltaf þá eru verkefnin Eigum ekki að hræðast breytingar Sigríður tók nýverið við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Brandenburg en hún hefur starfað hjá auglýsingastofunni í um sex ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nám n BA-próf í ís lensku og MA- gráða í markaðsfræði og alþjóðaviðskipt um frá Há skóla Íslands. n Sér hæft meist ara próf í mark- aðslegri stjórn un og sam skipt- um frá Tou lou se Bus iness School. Störf n Samskiptateymi Airbus A350 árið 2013. n Brandenburg auglýsingastofa frá árinu 2014. Svipmynd Sigríður Theódóra Pétursdóttir á auglýsingastofu fjölbreytt og krefjandi. Okkar hlutverk er að finna leiðir með viðskiptavinum til að reyna að ná sem mestu út úr þeim fjármunum sem varið er til markaðsmála. Það er alltaf tækifæri til að ná árangri og þegar hægist á markaðnum verður að skoða vel áherslur í markaðsmálum og beina kröftunum að því sem skilar mest- um ávinningi. Hvað Brandenburg varðar þá höfum við verið valin auglýs- ingastofa ársins síðustu þrjú ár af íslensku markaðsfólki, sem er mjög ánægjulegt. En maður má ekki verða værukær, við þurfum að halda stöðugt áfram að sanna okkur og sýna að við séum stofa í fremstu röð. Það er því mikil áskorun að við- halda velgengni okkar og að vera leiðandi á auglýsingamarkaði. Stofan hefur einnig vaxið hratt síðustu ár. Við erum bara átta ára og á þeim tíma höfum við farið úr fjórum starfsmönnum í um þrjá- tíu. En við höfum náð að viðhalda góðum starfsanda, enda með ein- staklega hæfileikaríkt starfsfólk sem gefur allt sitt í verkefnin og hefur metnað til að láta fyrirtækið blómstra og vera áfram bestu aug- lýsingastofu Íslands. Hvað mun felast í nýja starfinu? Ég kem nánar inn í rekstur, stjórnun og stefnumótun Branden- burgar ásamt því að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur verið síðustu ár. Er rekstrarumhverfið að taka breytingum? Ef svo er, hverjar eru helstu áskoranirnar? Það eru alltaf einhverjar breyt- ingar, en við eigum ekki að hræðast þær heldur líta á þær sem tækifæri því í raun þrífumst við á breyting- um og nýjungum á markaði. Núna eru helstu áskoranir okkar að nýta fjármagn viðskiptavina sem best. Þá verður verðmæti góðra hugmynda enn meira, þar sem þú vilt ná sem mestri athygli fyrir minni pening. Styrkur okkar hjá Brandenburg hefur verið áhersla á árangursdrifnar hugmyndir. Það getur stundum verið erfitt að sannfæra viðskiptavini um að fara djarfari leiðir þegar kreppir að, en ávinningurinn skilar sér margfalt til baka. Hvaða tækifæri felast í þessum breytingum? Þegar það kemur hik á markaðinn eiga fyrirtæki það til að minnka fé til markaðsmála. Tækifærin eru fólgin í því að sýna fyrirtækjum virðisaukann í því að vinna með okkur, því við búum yfir þekkingu og þjónustu sem ekki er innanhúss. Það var einmitt ein af ástæðum þess að við fjárfestum í snjallbirtinga- fyrirtækinu Datera, sem sérhæfir sig í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum á netinu. Þar eru áhugaverðir hlutir að gerast og mikil tækifæri. Birgir hefur keypt ásamt fjárfestum reksturinn í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Birgir fær 120 milljónir vegna uppgjörs á ráðgjafarsamningum 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.