Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2020, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 19.02.2020, Qupperneq 33
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 5. febrúar 2020 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu Hleinar að Langeyrar- mölum, og nær til lóðarinnar við Brúsastaði II, í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að afmarkaður er byggingarreitur sem er 14m x 14m. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,5 í stað 0,42. Hámarkshæð byggingar verður 7m. Allir aðrir skilmálar eru óbreyttir. Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2, frá 19.02.- 01.04.2020. Hægt er að skoða deiliskipulags- tillöguna á www.hafnarfjordur.is. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 1. apríl 2020. Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar. Skipulagsfulltrúi. BREYTING Á DEILISKIPULAGI hafnarfjordur.is585 5500 Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð Deiliskipulagsmál Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt skipulagstillaga fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni: 1. Efri-Reykir L167080. Bláskógabyggð. Varmaorkuver. Deiliskipulag. Kynnt er nýtt deiliskipulag fyrir varmaorkuver til rafmagnsframleiðslu í tengslum við núverandi borholu á jörðinni Efri-Reykir, þar sem áætluð framleiðsla verði um 1200 kW. Í gildandi aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, undir kaflanum 2.4.8. Stakar framkvæmdir, er þess sérstaklega getið að: hitaveita í byggð og á hálendi er heimilt að virkja heitt vatn (borholur), allt að 2.500 kW. ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst skv. 3.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulag Kjarnholtum 3 í Bláskógabyggð. Lögð fram í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr.123/2010, umsögn Skipulagsstofnunar dags. 30.10.2019, til afgreiðslu og umsagnar. Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við að sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafi ekki rökstutt með nægjanlega ítarlegum hætti svör við athugasemdum sem bárust í kjölfar auglýsingar á deiliskipulagi fyrir Kjarnholt 3, í Bláskógabyggð. Bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 12. desember 2019: Sveitarstjórn Bláskógabyggðar bregst við umsögn Skipulagsstofnunar með eftirfarandi hætti: Deiliskipulagið er í samræmi við staðfest Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027. Svæði þetta er skilgreint sem frístundasvæði, merkt F99, Kjarnholt 3 í Aðalskipulagi sveitarfélagsins. Deiliskipulagið samræmist því markmiði í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar varðandi frístundabyggð, að ný hverfi skuli að jafnaði vera í tengslum við núverandi frístundabyggð og að á frístundasvæðum skulu lóðir að jafnaði vera á stærðarbilinu ½ - 1 ha og nýtingarhlutfall skal ekki vera hærra en 0,03, (sbr. kafla 2.3.2 Frístundabyggð). Enn fremur er í aðalskipulagi gert ráð fyrir verslun- og þjónustu á deiliskipulagssvæðinu, merkt V17, Kjarnholt 3. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir uppbyggingu þjónustu fyrir, s.s. gistihúsi, smáhýsum og tjaldstæði. Fyrirhugað deiliskipulag samræmist því markmiði aðalskipulags Bláskógabyggðar 2015-2027, að stuðlað verði að nýjum atvinnutækifærum á sviði verslunar- og þjónustu og styrkari þjónusta við ferðamenn verði efld og afþreyingarmöguleikum fjölgað til að fjölga atvinnutækifærum og renna stoðum undir byggð, (sbr. kafla 2.4.3 Verslun og þjónusta). Reynt verður eftir bestu getu að minnka neikvæð umhverfisáhrif með því að mannvirki skuli falla sem mest að svipmóti lands og lita- og efnisval miðað við náttúrulega liti. ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Reykjavegur. Syðri-Reykir 2. Bláskógabyggð. Ný aðkoma að lóðum. Aðalskipulagsbreyting. Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar dags. 15. nóvember 2019. Afgreiðsla/rökstuðningur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 23.1.2020: Umsögn Vegagerðarinnar, dags. 3. desember 2019, var lögð fram. Þar kemur fram að Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur rétt að vinna formlega breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna vegtengingar við Reykjaveg í landi Syðri-Reykja 2, sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. nóvember s.l. Um er að ræða nýja tengingu við stofnveg og fjölgar þar með tengingum við veginn, þar sem aðkoma að landi og lóðum Syðri-Reykja 2 L137163 hefur til þessa farið um sömu tengingu og aðkoma að Syðri-Reykjum 1. Með breytingunni er því tryggð óheft umferð að landi Syðri-Reykja 2, sem áður hefur þurft að fara í gegnum hlaðið að Syðri-Reykjum 1. Sveitarstjórn telur breytinguna óverulega þar sem hún hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér, breytingin tekur ekki til svæðis sem nýtur náttúruverndar, áhrif hennar taka til lítils svæðis og er breytingin ekki talin líklega til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila, aðra en þá sem eiga land Syðri-Reykja 2, L137163, en þeir hafa óskað eftir að breytingin yrði gerð. Breytingin er jákvæð fyrir eigendur Syðri-Reykja 1, þar sem umferð mun ekki lengur fara um hlaðið á Syðri-Reykjum 1. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfull- trúa UTU að senda Skipulagsstofnun rökstuðning sveitarstjórnar og auglýsa niðurstöðu sveitarstjórnar. -------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda. Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögu á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitar- félags: https://www.blaskogabyggd.is Skipulagstillaga nr. 1 er í kynningu frá 19. febrúar til 11. mars 2020. Athugasemdir og ábendingar við tillögu nr. 1 þurfa að berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en 11. mars 2020. Athugasemdir og ábendingar og skulu vera skriflegar. Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi runar@utu.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.