Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Ómissandi í jólabaksturinn!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
10
9
9
Rótarýklúbbur Sauðárkróks stend-
ur árlega í upphafi aðventunnar
fyrir jólahlaðborði í íþróttahúsinu
þar sem íbúum og gestum er boðið,
þeim að kostnaðarlausu. Síðastlið-
inn laugardag mættu um 550
manns og gerðu sér glaðan dag í
mat og drykk.
Rótarýmenn fóru af stað með
þetta samfélagsverkefni fyrir sjö
árum, í samstarfi við fyrirtæki,
sveitarfélagið og stofnanir í hér-
aðinu. Lætur nærri að á þessu tíma-
bili hafi um fjögur þúsund gestir
notið veitinga á hlaðborðinu, þar
sem jólamatur hefur verið í öndvegi
auk huggulegrar jólatónlistar.
Rótarýmenn hafa eldað kjötið og
skorið ofan í mannskapinn og sem
fjáröflun fyrir utanlandsferð hafa
krakkar úr Tindastóli, ásamt for-
eldrum sínum, raðað upp borðum
og stólum.
Sem fyrr segir eru veitingarnar
ókeypis en gestir geta við inngang-
inn sett frjáls framlög í kassa, en
andvirði þeirra hefur verið varið í
góðgerðarmál í Skagafirði.
550 manns mættu á
jólahlaðborð Rótarý
Ljósmynd/Óli Arnar
Jólahlaðborð Skagfirðingar fjölmenntu í íþróttahúsið í upphafi aðventu og snæddu í boði Rótarýmanna.
Jólavættaleikur
Reykjavíkur-
borgar er hafinn
og venju sam-
kvæmt er 13 jóla-
vættir að finna
víðs vegar um
borgina. Ratleik-
urinn hefur nú
verið snjall-
væddur og hægt að nálgast hann á
síðunni Safnaðu.is þar sem jafn-
framt má finna á einum stað allt
það sem söfn borgarinnar hafa að
bjóða á aðventunni, segir í tilkynn-
ingu frá borginni. Leiknum er ætl-
að að hvetja borgarbúa og aðra
gesti til að njóta miðborgarinnar á
aðventunni. Gunnar Karlsson
myndlistarmaður teiknaði vætt-
irnar. Dregið verður úr svarseðlum
19. desember og vegleg verðlaun í
boði fyrir þrjá heppna.
Jólavættaleikur
í gangi í borginni
Allur ágóði af sölu á Jólaprýði
Póstsins, jólaóróum úr smiðju ís-
lenskra hönnuða, mun renna til
Ljóssins, endurhæfingar fyrir
krabbameinsgreinda og aðstand-
endur þeirra, nú í desember.
Jólaprýði Póstsins hefur verið
framleidd síðan árið 2006 og hafa
íslenskir listamenn fengið frjálsar
hendur við hönnunina, þar á meðal
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Hlyn-
ur Ólafsson, Örn Smári Gíslason,
Heiðar J. Hafsteinsson, Konráð K.
Þormar og Sveinbjörg Hallgríms-
dóttir. Jólaóróarnir fást í helstu
pósthúsum landsins og kosta 950
krónur. Einnig er hægt að kaupa
eldri óróa, sem er kjörið tækifæri
fyrir safnara.
Í tilkynningu frá Ljósinu kemur
fram þakklæti til Póstsins fyrir að
leyfa endurhæfingarmiðstöðinni að
njóta góðs af sölu óróans.
Jólaórói Póstsins
til styrktar Ljósinu
Jólaprýði Órói sem Pósturinn selur.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók
íslenskan karlmann á þrítugsaldri
síðastliðinn föstudag í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar eftir að toll-
gæslan hafði fundið fíkniefni í fór-
um hans. Um var að ræða tæplega
fjögur kíló af hassi sem maðurinn
hafði komið fyrir undir fölskum
botni í ferðatösku sinni.
Maðuinn var að koma frá Spáni
þegar hann var handtekinn. Hann
játaði sök og kvaðst hafa átt að fá
eina milljón króna fyrir að koma
efninu inn í landið. Málið er í rann-
sókn, að því er fram kemur í dag-
bók lögreglunnar.
Með fjögur kíló af
hassi frá Spáni