Morgunblaðið - 10.12.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 10.12.2019, Síða 4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Veðurstofunni Veðurfræðingarnir Helga Ívarsdóttir og Elín Björk Jónasdóttir fylgjast með lægðinni. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Búist er við víðtækum truflunum á samgöngum um allt land í dag og í fyrramálið vegna norðan roks eða óveðurs sem skellur á landinu í dag. Vegum verður víða lokað í varúðar- skyni og millilandaflug fellur niður síðdegis í dag. Þá er búist við að skólastarf raskist á höfuðborgar- svæðinu og víðar. Opinberum þjón- ustustofnunum eins og bókasöfnum og sundlaugum verður lokað um miðjan dag. Veðurstofa Íslands gaf í gær út appelsínugula viðvörun vegna norð- an storms eða roks á vesturhluta landsins. Viðvaranir breyttust eftir því sem leið á daginn. Versta veðr- inu var spáð á Ströndum og Norður- landi vestra, ofsaveðri eða fárviðri með mikilli snjókomu og skafrenn- ingi. Þetta spásvæði var fært upp í hæstu viðvörun, rauða, og er það í fyrsta skipti sem sá litur er notaður í veðurspám frá því litakvarðaðar viðvaranir voru teknar upp fyrir rúmum tveimur árum. Undir kvöld náði appelsínugula viðvörunin til alls landsins, nema vitaskuld þess rauð- litaða á Norðurlandi vestra og Ströndum. Ríkislögreglustjóri og allir lög- reglustjórar landsins lýstu yfir óvissustigi almannavarna á landinu, í takti við veðurspá Veðurstofunnar. Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum geti leitt til þess að heilsu fólks og öryggi umhverfis eða byggðar sé ógnað. Þjóðvegum lokað Ef fram fer sem horfir mun óveðr- ið hafa mikil áhrif á daglegt líf Ís- lendinga og gesta landsins. Vega- gerðin áætlar að loka öllum vegum að höfuðborgarsvæðinu og á Suðrnesj- um um hádegisbil í dag. Áætlað er að lokunin standi í sólarhring. Fjölda annarra vega um allt land verður lok- að, sumum strax árdegis í dag. Milli- landaflug og innanlandsflug raskast sem og almenningssamgöngur. Skóla- og frístundastarf í Reykja- vík mun raskast frá hádegi í dag. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er fólki ráðlagt að vera ekki á ferli eft- ir klukkan 15. Foreldrar og forráða- menn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum þannig að tryggt sé að börn og starfsfólk nái heim áður en óveðrið skellur á. Svipaðar tilkynningar hafa verið gefnar út hjá fleiri sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður sundlaugum í Reykja- vík, útibúum Borgarbókasafnsins og söfnum á vegum borgarinnar lokað klukkan 14. Undirbúa aðgerðir Starfsfólk Landsbjargar vann að því í gær að miðla upplýsingum um hættuna til ferðaþjónustufyrirtækja og gesta þeirra. Davíð Már Bjarna- son, upplýsingafulltrúi Landsbjarg- ar, segir að aðgerðastjórnendur og björgunarsveitarfólk hafi unnið að undirbúningi aðgerða með öðrum viðbragðsaðilum. Reynt hafi verið að slípa til ferla sem mögulega verða virkjaðir ef álag verður mikið. Opnaðar verða aðgerðastjórnstöðv- ar á svæðum sem mikið mæðir á. Þá er verið að fara yfir búnað sem notaður er í slíkum tilvikum og til athugunar var að flytja tæki, eins og til dæmis snjóbíla, til svæða þar sem búist er við að umferð teppist alveg vegna snjóa. Landhelgisgæslan hvatti í gær eigendur og umsjónarmenn skipa og báta í höfnum til þess að huga sérstaklega að þeim í ljósi að- stæðna. Víðtækar truflanir á samgöngum  Óveður sem spáð er í dag og fram á miðvikudag hefur áhrif á daglegt líf Íslend- inga og ferðir fólks um landið  Óvissustigi almannavarna lýst yfir um allt land Veðurviðvaranir í dag Upplýsingar er fengnar á vef Veðurstofu Íslands kl. 22:40 í gær RAUÐ VIÐVÖRUN Strandir og Norðurland vestra Norðan stórhríð Norðan ofsaveður og stórhríð eftir kl. 17 í dag APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN Vestfirðir Norðan stórhríð Breiðafjörður og Faxaflói Norðan rok APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN Höfuðborgarsvæðið Norðan stormur eða rok eftir kl. 15 í dag APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN Suðurland Norðan og norðvestan stormur eða rok Miðhálendið Norðan stórrhríð APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN Norðurland eystra Norðan og norð- austan stórnhríð Austurland að Glettingi og Austfirðir Norðan stormur eða rok með snjókomu og slyddu Suðausturland Norðan stormur eða rok 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ekkert sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu hefur lokið sam- komulagi við Vegagerðina um yfir- færslu þjóðvega til sveitarfélaganna, svokallaðra skila- vega, eins og gert er ráð fyrir í vegalögum. Rætt var um málið á seinasta stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga og telur stjórnin úti- lokað að niðurstaða náist um yfir- færslu allra þjóðvega fyrir lok þessa árs. Lagt er til að breyting verði gerð á lögunum og sem fyrst verði jafnframt fundin ásættanleg niður- staða milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga, á grundvelli vand- aðrar ástands- og kostnaðargrein- ingar viðkomandi samgöngu- mannvirkja. Í bréfi sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa sent Sigurði Inga Jóhannssyni, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir að nokkuð langt sé í land með að samkomulagi verði náð. Er stöðu málsins lýst með þessum hætti: ,,Garðabær hefur hafnað því að yfirfærslan geti átt sér stað þar sem ekki hafa verið uppfyllt skilyrði lag- anna um að fram fari ástandsmat og kostnaðargreining sem gæti verið grundvöllur samkomulags aðila.“ ,,Mosfellsbær hefur hafnað því að taka við Hafravatnsvegi (Reykja- vegi/Kóngsvegi) frá Vegagerðinni, miðað við fyrirliggjandi forsendur, fyrr en nýr Hafravatnsvegur hefur verið lagður.“ ,,Hafnarfjarðarbær hefur óskað eftir fresti á færslu veganna þar sem m.a. liggur ekki fyrir hvernig haldið verður á fjármögnun veg- halds af hálfu sveitarfélagsins eftir árslok 2019. Hefur Vegagerðin ekki svarað erindi Hafnarfjarðarbæjar.“ Þá segir að Reykjavíkurborg telji ,,að viðræður við Vegagerðina hafi enn ekki gefið sveitarfélaginu glögga mynd af ástandi vega komi til yfirtöku þeirra né því hvaða fjár- magn fylgir frá ríkinu til viðhalds og þjónustu“. ,,Kópavogsbær telur sig ekki geta tekið við veginum í því ástandi sem ,,skilavegurinn“ er í dag,“ segir einnig í bréfinu og fram kemur að Seltjarnarnesbær sé með málið í nánari skoðun. Vilja ekki skila- vegi að óbreyttu  Útilokað að ljúka málinu fyrir árslok Ljóst er að mikil röskun verður á millilandaflugi og innanlands- flugi í dag og fram á morgun- daginn. Þannig mun óveðrið hafa áhrif á yfir 4.000 farþega Icelandair, samkvæmt tilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Gert er ráð fyrir að allt flug Icelandair til Evrópulanda verði á áætlun nú í morgunsárið. Hins vegar hefur öllu flugi frá Evrópu til Íslands í dag verið seinkað og var sett upp ný flugáætlun fyrir farþegana. Gert er ráð fyrir að brottför farþega frá Evrópu verði við fyrsta tækifæri á mið- vikudagsmorgun. Þá hefur öllu flugi frá Kefla- vík til Evrópulanda og Banda- ríkjanna seinnipartinn í dag ver- ið aflýst. Einhverjir nýttu sér boð um að flýta för sinni og fóru þá í gær. Rúmlega 500 er- lendir ferðamenn munu dvelja í hótelum á vegum Icelandair í kvöld og nótt. Vonast er til að flug frá Keflavík verði að mestu leyti á áætlun á miðvikudags- morgun. Hefur áhrif á 4.000 farþega RÖSKUN HJÁ ICELANDAIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.